Tíminn - 21.07.1981, Síða 11

Tíminn - 21.07.1981, Síða 11
Þriðjudagur 21. júli 1981 gródur og garðar Ingólfur Davídsson grasafræðingur skrifar m Grásleppa i hjalli og bátur i Grlmsstaðavör Ægisíöu 30. april 1981. LITAST UM r BORGINNI ■ Bregðum okkur snöggvast á markaðinn á Lækjartorgi, þar er oft „handagangur i öskjunni” og margs konar varningur á boðstólum. Hér eru blóm i forgrunni, fjöl- margar tegundir. Einnig grænmeti og ávextir. Skyldi bankinn fjármagna markað- inn? Úti í örfirisey sjást margir bátar uppi á kambi, sumir æði gamlir. Rosknir sjómenn hölluðu sér upp að vélbát og ræddu um sjósókn i gamla daga á róðrarbátum og þil- skipum. ,,Ennþá dregur Ut- hafssær, öflug vélin fyrir mig rær.” Auk bátanna sáust þarna stórir haugar af netum, og grjóthrúgur, þvi að verið er að stækka athafnasviðið á eynni.,,Þar er fjöru og þara- lykt, þar kom margur Bene- dikt” var eitt sinn kveðið. Ægisi'ða er mikill ævintýra- heimur. Borgarmeginer hvert húsið öðru fegurra og rik- mannlegra, en sjávarmegin lifir gamli timinn. „Grá- sleppukarl,” ungur maður að visu, kom að landi með góðan feng. Leiðinlegt að þurfa að fleygja grásleppunni, hirða aðeins hrognin, sagði hann, vonandigetaþeir bráðum gert mat eða fdður Ur öllu þessu, sem við verðum nú að fleygja. Þó er ætilegt að lita i grá- sleppuhjallana. Endur og hænsni vappa um, já og gæsir, hjá skUr og bát á hvolfi. Kona ber egg I fötu, börn eru að fóðra fiðurféð! Þarna og viðar ifjörusandi ber talsvert á hin- um fögru ljósbláu eða blá- rauðfeitu, ilmandi breiðum fjörukálsins. Blöðin eru blá- græn, þykk og kjötkennd, enda voru þau fyrrum hagnytt, söxuð og gefin hænsnum. Fjörukál var einhver fyrsta blómjurt, sem festi rætur i Surtsey, enda þola aldinin salt og sjóvolk. Allviða ber á þvi að fura, einkum stafafura, en einnig greni og fjallafura, eru brún- leitog veikluleg að sjá. Sumar hríslur komu þannig undan vetri, en aðrar hafa brUnlitast eða roðnað siðar. Margir spyrja hvað valdi þessum skemmdum Sumsstaðarmun vera um saltskemmdir að ræða, þ.e. af salti, sem ausið var á göturnar i vetur, það er trjágróðri óhollt. Sjó er og stundum ausið á götur i stað vatns tilað binda ryk á sumrin og veldur það skemmdum á trjám og runnum, eða getur valdið. Eitt sinn sá undir- ritaður sjó dælt á götu, en rétt á eftir hvessti og salt götu- rykið sveið lauf i nærliggjandi görðum. En dcki eru allar „roða- skemmdir” á barrtrjám salti að kenna, veðrið i vor á lika sinn þátt, þ.e. mikiö sólfar þegar jörð var frosin. Barrná- larnar byrjuðu þá að starfa og það gufaði of mikið UtUr þeim, meðan jörð var frosin, svo að ræturnar náðu ekki i vatn. Trjám móti sól er þá hættast. NU, á sumarsólstöðum, byrjar reyniviður að falda hvitu. Alaskayllir stendur hvitur af blómum i garði kvenfélagasambandsins TUn- götu 14 og viöar, já og heggur- inn við Tjarnarhornið. Fagur- bláar AlaskalUpinur lýsa langarleiðir. „Jarðveg bætir jurtin fríða, ég þann galdur veit. Langt Ur vestri sótt um siðir, sett í frónskan reit.” ■ Blóm- og grænmetismarkaður á Lækjartorgi við Útvegs- bankann 27. mai 1981. Húsnæði óskast Borgarspitalinn óskar eftir að taka á leigu 200-300 fermetra ibúðar- eða skrifstofu- húsnæði. Upplýsingar veitir Brynjólfur Jónsson i sima 81200 / 368. Reykjavik 20. júli 1981. Borgarspitalinn. Kennara vantar að barnaskóla Bárðdæla S-Þing. Húsnæði aðeins fyrir einhleypa. Miklar aukatekjur. Umsóknarfrestur til 15-ágúst n.k. Upplýsingar veitir Fræðsluskrifstofa Norðurlands-Eystra, gegnum simstöðina Fosshóli. Skólastjóri. EI Gjaldkeri Laus er staða gjaldkera á bæjarskrifstof- um Kópavogs. Þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst. Laun skv. 14. launaflokki. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstof- urnar á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst. Bæjarritari NÚERU GÓDRÁÐ ODYR! Þér er boðiö að hala samband við verkfræði- og tæknimenntaða ráðgjafa Tæknimiðstöðvar- innar ef þú vilt þiggja góð ráð i sambandi við eftirfarandi: ~ Stjórnlokar (loftogvökvi) Eitt samtal við ráðgjafa okkar, án skuldbindingar, getur sparað þér stórfé hvort sem um er að ræða vangaveltur um eða vandamál viö endurnýjun viðgerð á þvi sem fyrir er. VERSLUN - RÁÐGJÖF- VIÐGERÐARÞJÓNUSTA TÆKNIMIÐSTÖÐIN HF Smiójuveg66. 200 Kópavogi S:(91)-76600 Þorvaldur Ari Arasonj hrl Lögmanns- og fvrirgreiðslustoía Eigna-og féumsýsla Innheimturog skuldaskil Smiðjuvegi D-9/ Kópavogi Simi 40170. Box 321 - Rvík. Auglýsið í Tímanum Núbjóðttmvíð HREINAN PP' frá FLDRIDANA ómissandi i ferðalagíð. "THS" Mjólkursamsalan

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.