Tíminn - 21.07.1981, Page 14
Þriöjudagur 21. júli 1981
heimilis-tíminn
Körfur
hér og
körfur þar
og körfur
alls staðar
® Körfur má nota á hinn marg-
brevtilegasta hátt. Einu sinni var
tæpast talaö um annaðen sauma-
og prjónakörfur og svo óhreina-
lauskörfur. Ef þið litið á teikning-
arnar, sem birtast hér á siðunni
sjáið þið, að þar með eru ekki upp
taldar allar þær körfur, sem hægt
er að hafa á heimiiinu bæði til
ski ai ts og til nytsemdar.
Körfur eru búnar til úr marg-
vislegu efni. Til eru tágakörfur.
strákörfur, körfur riðnar úr
grasi, viðarteinungum, spær.i,
rótum og ymsu öðru. Meira að
segja eru til körfur úr banana-
blöðum og trjáberki, bæði hér
heima og erlendis.
Ef við rennum augunum yfir
teikningarnar skulum við byrja á
þeirri, sem merkt er nr. 1 Hér
hefur körfusafni húsbændanna
veriö komið fyrir i glerskáp.
Hann er tppiystur, svo körfurnar
njóta sin vel. Þæreru sagðar eft-
ir Indiána í Ameriku.
A teikningu nr. 2er opinn skáp-
ur, sem einnig hefur að geyma
körfusafn. Þetta eru allt mun
minni körfur heldur en þær sem
voru I fyrsta skápnum. Þess má
geta, að ekkert er þvi til fyrir-
stöðu, að fólk fari að safna alls
konar smákörfum, rétt eins og
það safnar teskeiðum eða pipar
og salt staukum. í loftinu hangir
karfa með blómum. Tágakörfur
og blóm fara mjög vel saman.
Á teikningu nr. 3'hanga körfur á
smiðajárnsgrind. Eigandinn er
sagður hafa flutt heim meö sér
frá fjarlægum löndum eina og
eina körfu i einu. Agætis hug-
mynd um næstu utanlandsferö.
A teikningu nr. 4 er garðborð.
Húsmóðir á vesturströnd Banda-
rikjanna mun eiga hugmyndina
aö garðboröinu, og meira að
segja sögö hafa búið það til sjálf.
Hvernig væri aö bregöa sér i bæ-
inn i leit að tagabakka, kringlótt-
um eða aflöngum á meðan enn er
sumar og hægt er að sitja úti I
garöi og drekka kaffisopann við
körfuborðið sitt.
A teikningu nr. 5er karfa notuð
á sigildan hátt, undir dót. I þessu
tilfellier það hundakarfa, sem er
látin halda utan að uppvöfðum
pappi'rsblöðum, sem eiga að fara
i eldinn annaöhvort i sumar-
bústaðnum, eöa heima þar sem
svo vel er búið að eiga arin.
Teikning nr. 6er af öðru borði.
Nú er það borðfóturinn sem er Ur
körfu, og ofan á hann hefur verið
lögö glerplata. Þetta getur verið
skemmtilegt borö, en einhvern
veginnn verður aö tylla glerplöt-
unni, að minnsta kosti á heimil-
um, þar sem eru börn, sem gætu
ýtt henni á gólfiö.
A teikningu nr. 7 er nokkuð há
og m jó karfa, sem notuö er undir
regnhlffar og stafiog annað álika
i forstofunni. Mætti lika
hafa svona körfu standandi Uti á
stétt á sumrin og geyma I henni
garðverkfærin?
A áttundu og síöustu teikning-
unni er þvottaherbergið, þar sem
mikið er um körfur. Ein þeirra er
greinilega hin sigilda óhreina-
tauskarfa. 1 hillunum eru
geymdar körfum, sem notaðar
eru þegar þörf krefur, annað
hvort undir blóm og blómaskreyt-
ingar, eða til þess að bregða sér
með Ut í bUð i innkaupaferð. Þær
má lika hafa sem saumakörfur
eða prjónakörfur, og körfur undir
leikföng barnanna. Legókubbar
fara til dæmis mæta vel i körfu
eins og sjá má standandi á gólfinu
undir hiíiunum.
fb
I Uppmokstur unglinganna fyrir nokkrum vikum, sem sést hér á
mynd að neðan hvarf undir vinnuvélar og moldarhrúgur á
föstudaginn var. — Timamyndir: GE.
Starf ung-
linganna fór
fyrir lítid!
I Fyrir hálfum mánuði lýsti
Heimilis-Tíminn tilgangsleysi
unglingavinnunnar a.m.k.
sums staðar hér i Reykjavik.
Nefndum við sem dæmi upp-
gröft nokkurra unglinga við
Hvassaleitisskóla og spáðum
þvi, að búiö væri að moka ofan
í það sem drengirnir höfðu
grafið upp, áöur en langt liði.
Ástæðan var m.a. sú, að lóð
skólans er ófrágengin og vitað
var, að eitthvað átti að lag-
færa hana i sumar.
Fyrir hádegi á föstudaginn
birtist risastór vélskófla og að
minnsta kosti þrir vöruflutn-
ingabilar af stærstu gerð, og
hafizt var handa við upp-
mokstur og jarðvinnslu. Það
leið ekki löng stund, þangað til
handaverk unglinganna voru
horfin sjónum okkar.
Tilgangsleysi og tviverkn-
aöur i framkvæmdum opin-
berra aðila hér á landi er ekki
ný bóla, en gaman væri að vita
hvaða uppeldisgildi þessi
vinnubrögð eiga að hafa á
unglinga i þvi, sem kallast
„vinnuskóli”. Peningasóun er
ekki til umræöu i þetta skipti
þar sem áreiðanlega er hægt
að færa sönnur á, aö oft hafi
meiru verið eytt til einskis,
þar sem kaup unglinganna sé
ekki svo hátt. Það er þó
áreiöanlega nógu hátt til þess
að eitthvað mætti gera við það
gagnlegra en þetta.
Gaman væri að heyra álit
einhverra á þessum málum,
foreldra eða aðstandenda
vinnuskólans.
fb
Húsráð:
Notið matar-
sóta í ís-
skápsþvottinn
■ Stundum
vill brenna
v i ð a ð
undarleg
lykt sezt i
isskápana.
Henni á að
vera auð-
velt að út-
rýma.
Byrjið með
því að af-
frysta
skápinn og
þvo hann
vel innan
með sápu-
vatni. Eftir
að því er
lokið skulið
þið strjúka
yfir hann
með klút/
sem undinn
hefur verið
u p p ú r
vatni, sem
matarsóti
hefur verið
látinn
renna í.
Eftir þetta
á skápur-
inn að vera
eins og nýr.