Tíminn - 21.07.1981, Qupperneq 17
ÞriOjudagur 21. júll 1981
Si'ií'Ii.
17
fþróttir)
Jaðarsmótið í golfi á Akureyri:
Páll öruggur
sigurvegari
■ Páll Ketilsson úr Golfklúbbi
SuOurnesja var hinn öruggi sigur-
vegari i opna Jaðarsmótinu i golfi
sem fram fór i Golfklúbbi Akur-
eyrar um helgina. Páll haföi for-
ustuna alltfrá fyrsta hring, og jók
hana siðan jafnt og þétt og vann
yfirburðasigur.
Alls mættu 85 kylfingar i mótið
viðsvegar að af landinu, en þó
saknaði maður margra af
fremstu kylfingum landsins sem
létu ekki sjá sig. Jaðarsvöllurinn
var i þokkalegu ástandi til þess að
taka á móti þessum fjölda, en
vegna slæmrar veðráttu i sumar
hefur hann oft verið betri.
Páll Ketilsson lék 36 holurnar á
151 höggi. Annar varð Islands-
meistarinn Hannes Eyvindsson
GR á 157 höggum, Jón Þór Gunn-
arsson GA þriðji með 161 högg,
Gunnar Þórðarson GA fjórði með
162 högg, Siguiður Albertsson og
Kristján Hjálmarsson GH næstir
á 163 höggum, Magnús Birgisson
GA næstur með 165 högg, þá
komu þeir Viðar Þorsteinsson
GA, Guðmundur Hafliðason GR
og Baldur Sveinbjörnsson GA all-
ir á 166 höggum. Þessir 10 menn
fengu stig til landsliðsins, efsti
maður 19, sá næsti 17, þriðji 15 og
þannig koll af kolli.
1 keppninni með forgjöf sigraði
Páll Ketilsson einnig, var á 141
höggi, Jón G. Aðalsteinsson GA
og Baldur Sveinbjörnsson GA
voru næstir á 146 höggum.
Jafnhliða Jaðarsmótinu fór
fram kvennakeppni, svokallað
Ragnarsmóten verðlaun i það gaf
Ragnar Lár. listamaður með
meiru. Þar sigraði Inga Magnús-
dóttir GA örugglega á 185 högg-
um, önnur Karólina Guðmunds-
dóttir GA á 214 höggum og þriðja
Pat Jónsson GA á 225 höggum. —
Með forgjöf sigraði Arnheiður
Jónsdóttir GH á 179, Sigriður B.
ólafsdóttir GH 186 högg og Erla
Adolfsdóttir GA á 188 höggum.
gk-Akureyri.
Sigurlásmeð
fjögur mörk!
■ „Þetta er i fjórða skiptið sem
ég skora fjögur mörk i einum og
sama leiknum, það gerðist siðast
1979 gegn Fram” sagði glað-
hlakkalegur Sigurlás Þorieifsson
úr Vestmannaeyjum eftir að hann
hafði skorað öll mörk IBV I 4:1
sigri liðsins yfir Þór á Akureyri i
fyrrakvöld. Aðeins einu sinni
náðu heimamenn að svara fyrir
sig, og er óhætt að segja að Þór
hafi farið illa út úr leikjum sinum
gegn ÍBV i sumar, tBV hirt öll
stigin úr leikjunum og marka-
taian 8:2 þeim i hag.
Mörk Sigurlásar og reyndar
einnig mark Þórarins Jóhannes-
sonar sem hann skoraði fyrir Þór
voru svo til það eina sem yljaði i
þessum leik, sem var leikinn i
norðaustan gjólu og fremur köldu
veðri. Þórsararnir voru gjörsam-
lega heillum horfnir ekkert hit i
framlinumönnum liðsins sem
reyndar fengu ekkert til að vinna
úr af viti og vörn liðsins „Uti að
aka” á stundum. Er ljóst að Þórs-
arar verða heldur betur að taka
sig á ef þeir ætla ekki að missa
sæti sitt i deildinni.
B Svona skoraði ég mörg mörk... Sigurlás kampakátur eftir leikinn
gegn Þór. Timamynd gk.
KA sótti
tvö stig
er þeir sigruðu ÍA 1:0
■ KA setti strik i reikning
Skagamanna er þeir sigruðu þá 1-
0 á Akranesi á laugardaginn í 1.
deildinni I knattspyrnu. Akurnes-
ingar misstu dýrmætt stig í
baráttu um tslandsmeistaratitil-
inn er þeir töpuðu fyrir KA I frek-
ar jöfnum leik.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
en ekki bar mikið á opnum
tækifærum, KA átti mikið á miðj-
unni en byggðu samtsittspil mest
upp á skyndisóknum. Hættuleg-
asta tækifæri hálfleiksins kom á
42. mi'n. er Kristján Olgeirsson
komst inn fyrir vörn KA og gaf
boltann til Guðbjörns Tryggva-
sonar, sem skallaði I stöng. Siðari
hálfleikur var jafn framan af, As-
björn komst í gott færi við Skaga-
markið, lék á Bjarna markvörð
en skot hans fór yfir markið. Hin-
um megin björguðu KA menn á
linu eftir gott samspil Sigurðar
Lárussonar, Júliusar og
Kristjáns Olgeirssonar. Sigur-
mark leiksins kom siðan á 56.
min., Asbjörn Björnsson átti gott
skot sem fór i Björn A. Björnss.
og af honum breytti boltinn stefnu
i markið, óverjandi fyrir Bjarna
markvörð. Eftir mark KA sóttu
Skagamenn stift og björguðu KA
menn tvfvegis á linu, þá átti Sig-
urður Lárusson skot i þverslá og
þaðan fór boltinn niður og sýndist
mörgum boltinn hafa farið inn
fyrir linuna, en góður dómari
leiksins Guðmundur Sigurbjörns-
son lét leikinn halda áfram. Það
sem eftir lifði leiksins reyndu
Skagamenn að jafna en allan
trodd vantaði i sókn þeirra. Þá
hafði það slæm áhrif að Kristján
Olgeirsson varð að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla, hið léttleik-
andiliðKAfór með sigur af hólmi
og hefur nú svo gott sem tryggt
stöðu sina i deildinni. Þeir As-
björn Björnsson, Guðjón Guð-
jónsson og Hinrik Þórhallsson
voru bestu menn KA. Sigurður
Lárusson, JUlius og Kristján báru
af i' liði Skagamanna.
DÓ/röp—.
Eyjamenn eru mun friskara lið,
bræðurnir Sigurlás og Kári afar
ógnandi frammi einsog Þórsarar
fengu að kenna á, og liðið i heild
allt jafnt og sterkt, skemmtilegt
sóknarlið. En litum þá á mörkin:
0:1... Á 6. minútu fengu Eyja-
menn hornspyrnu, og er boltinn
kom fyrir markið stökk Sigurlás
hærra en aðrir og skallaði hann i
mark.
0:2... Þegar um hálftimi var lið-
inn af leiknum gerðu Eyjamenr
harða hrið að marki Þórs og
fengu tvær hornspyrnur. úr sið
ari hornspyrnunni barst boltinr
til Sigurlásar á markteig og hani
átti ekki i erfiðleikum með ai
skora.
1:2.. Þórsarar fengu hornspyrni
og Þórarinn Jóhannesson serr
var kominn fram skallaði boltanr
glæsilega i stöng og inn.
1:3... Þo'rsarar vildu fá dæmda
hendi inni á vajlarhelmingi ÍBV
en Óli Ólsen dómari var á öðru
máli. Afram hélt leikurinn, bolt-
inn var gefinn á Sigurlás sem lék
inn i vitateig og skoraði með
föstu skoti.
1:4... Þremur minútum siðar átti
Ómar Jóhannesson þrumuskot
sem Eirikur Eiriksson varöi
Hann hélt ekki boltanum og Sig
urlás var mættur á staðinn og ýtt
boltanum i mark.
Þetta voru mörkin, en nefna mf
tvö hættuleg færi er liðin fengu
Kári Þorleifsson átti þrumuskot
þverslá á marki Þórs, og Þórðu
Hallgrimsson var hársbreidd fri
þvi i upphafi siðari hálfleiks al
skora sjálfsmark er honum mis-
tökstað hreinsa frá marki ÍBV og
boltinn small i þverslánni.
gk-Akureyri
Keflavík
Fylki 2-0
B Keflvikingar sigruðu Fylki 2-0
er félögin léku á Laugardalsvell-
inum i gærkvöldi, staðan i hálf-
leik vár 0-0. Fyrri hálfleikur var
frekar tiðindalitill, hvorugu fé-
laginu tókst að skapa sér færi og
gekk boltinn að mestu fram og til
baka. Keflvikingar geröu siðan
tvö mörk i seinni hálfleik með
stuttu millibili og var Sigurður
Björgvinsson að verki i bæði
skiptin. Bæði mörkin voru frekar
svipuð, þau komu upp úr horn-
spyrnum frá Steinari Jóhanns-
syni og barst boltinn i bæði skiptin
til Sigurðar sem afgreiddi þá
snyrtilega i markið.
röp—.
mi iiHiB
Páll Ketilsson, sigurvegarinn I Jaðarsmótinu, slær af teig.
Timamynd gk.
l;r gráir og »,a,r
, LUir: Rauðir. gr
AUar st*rðir __ 295.80
Verð kr. "
• LitiraUwúitt ^
Eíni'- nirTft—3*
váS‘’m
' Máll/kv.U
Verð kr.
veK’,'oi
£•-1- ,,%
’Æ Rautt/hvitt
U biátt/hvitt
Verð frá kr. 330.-
___ ‘zya-4”
Póstsendum
Sportvöruvers/un
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783