Tíminn - 06.08.1981, Qupperneq 12
16
Fimmtudagur 6. ágúst 1981
VERKFÆRATOSKUR
meö og án verkfæra.
ÞYRILUA Hverflsgötu 84
Simi29080
Eftirtalin ráðuneyti Stjórnarráðsins verða
lokuð eftir kl. 14.00 6. ágúst vegna jarðar-
farar Magnúsar Kjartanssonar, fyrrv.
ráðherra.
Félagsmálaráðuneyti
Iðnaðarráðuneyti
Fjármálaráðuneyti
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
Rikisendurskoðun
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Tveir Zetor
árg. '71 og '79
4ra stjörnu snúningsvél, Fella.
Bindivél I.H. ’7(>.
Heyvagn á fjöðrum.
Hestakerra fyrir tvo hesta.
Hagstæð kaup ef samið er strax.
Upplýsingar i sima 99-3621 og 99-3979.
íbúð óskast
Aburðarverksmiðja rikisins óskar að taka
á leigu 3-4 herbergja ibúð frá 1. september
n.k.
Tilboð ásamt viðeigandi upplýsingum
leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 11.
ágúst.
Aburðarverksmiðja rikisins
Sjúkrahús Akraness —
Staða yfirlæknis
Staða yfirlæknis við fæðinga- og kvensjúk-
dómadeild Sjúkrahúss Akraness er laus
umsóknar
Umsóknarfrestur er til 1. sept. n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist Sjúkrahúsi Akraness.
Allar nánari upplýsingar veitir fram-
kvæmdastjóri Sjúkarhússins simi 93-2311
Sjúkrahús Akraness
íþróttir
■ Þátttakendurnir sem taka þátt í mótinu á Bretlandi f.v. Margrét Snæbjörnsdóttir, Asdls Gisiadóttir,
Jóhann Magnússon Guöny ólafsdóttir, Siguröur Pétursson, Siguröur Axelsson og Gestur Guöjónsson. 1
aftari röö eru þjálfarar og fararstjórn, Hlynur Guömundsson, Agústa Ólsen og Bjarki Bjarnason
Fötluð börn á
mót í Bretlandi
Iþróttasamband fatlaðra sendir 7 börn
á alþjóðlegt mót fatlaðra
■ Iþróttasamband fatlaöra sendi
fyrirstuttu7 böm til þátttöku f al-
þjóðlegu íþróttamóti fatlaðra
barna sem haldiö er um þessar
mundir i Newcastle i Bretlandi.
Islenska iþróttafólkiö keppir þar i
sundi og frjálsum iþróttum en
börnin eru úr röðum hreyfihaml-
aðra og þroskaheftra. Um 30
þjóðirsenda fötluð börn til þessa
móts og eru þau hvaðanæfa að úr
heiminum. Mótið hófst á mánu-
daginn og stendur það fram að
næstu helgi.
Útimótið í handknatt-
leik byrjar á morgun
Islandsmeistaramótið i hand-
knattleik utanhúss hefst á morg-
un og verður leikið á grasinu á
milli sundlaugarinnar og Laugar-
dalsvallarins. Alls verður keppt á
þremur völlum i einu og mun
mótinu ljúka um næstu helgi.
Keppt verður i meistaraflokki
karla og kvenna og i 2. flokki
kvenna. Sjö félög keppa i meist-
araflokki karla og er þeim skipt i
tvo riðla, i A-riðli leika Þróttur, -
FH, Valur og 1R, en i B-riðli leika
Fylkir, HK og KR. Fimm lið eru i
meistaraflokki kvenna og er leik-
ið i einum riðli, þar keppa Þrótt-
ur, Vikingur, FH, Fram og 1R.
Sama fyrirkomulag er á 2. flokki
þar eru einnig fimm lið i einum
riðli, Reynir, Sandgerði, Viking-
ir, FH, Fram og IR. röp-.
■ AAikill mannf jöldi
fagnaöi leikmönnum
Aston Villa er þeir
komutil ráðhústorgsins
og var taliö að um 75
þúsund manns hefðu
hyllt þá.
Hér látum við fylgja
með nokkrar myndir af
hinum stóra degi i Birm-
ingham.
röp-.
Enska meistarafélagið Aston
Villa leikur eins og kunnugt er
við Val i Evrópukeppni meist-
araliða og verður fyrri leikurinn
i Birmingham 16. september en
siðari leikurinn á Laugardals- —
vellinum 30. september Astoni
Villa vann i vor enska meistara- W
titilinn i sjöunda skiptið a sinum
ferli en 71 ár var siðan titillinn
vannst siðast. Það er
sjálfsagt sjaldan sem fé-
lag hefur verið eins mikið
hyllt eftir að hafa tapað
leik eins og Villa eftir 0-2
tapið fyrir Arsenal i mai i
vor.
En þá voru úrsiitin
lika ljós i viðureign Ips-
wich og Middlesbrough
en Ipswich var eina félag-
ið sem komið gat i veg
fyrir sigur Villa i ensku 1.
deildinni. Ipswich tapaði
leiknum 1-2 og gifurleg
fagnaðarlæti brutust út á
Highbury er þau úrslit
fréttust. Talið var að um
15 þúsund áhangendur
Villa hefðu fylgt félaginu
til Highbury en daginn
eftir er Aston Villa kom
heim til Birmingham var
áætlað að um 75 þúsund
manns hafi verið á ráð-
hústorginu til þess að
fagna leikmönnum og
forráðamönnum Aston
Villa er þeir komu heim
með hinn eftirsótta bikar.
Ekki er nú búist vió þvi aö
um 15 þúsund áhangend-
ur Villa komi hingað til
lands en Valsmenn hafa ‘
verið beðnir um að taka
frá á annað þúsund miða
á leikinn á Laugardals-
velli.