Tíminn - 07.08.1981, Page 4
4 Föstudagur 7. ágúst 1981
B I»ótt önnur úrslit hafi ef tii viil
komið meir á óvart á hestamót-
inu. sem haldið var á Vindheima-
inelum i Skagafirði um
verslunarmannahelgina, er þó
vafalaust að besta afrek mótsins
var nvtt islandsmet, sem Skjóni,
tlelga Valmundarsonar, setti i 150
nietra skeiði, cn hann fór vega-
lengdina á 13.9 sekúndum, sem er
þrem tiundu úr sekúndu betri timi
en fvrra islandsmet.
Óvæntustu úrslitin voru þó lik-
lega i 250 metra skeiðinu, þar sem
Skjóni varð að láta sér lynda
annað sætið, en Fannar, Harðar
G. Albertssonar, skaust fram
fyrir.hann og náði timanum 23.1
sekúndu. Skjóni skeiðaði 250
metrana á sama tima i úrslita-
keppninni, svo og Eljar, einnig i
eigu Harðar G. Albertssonar, en
Fannar átti bestan samanlagðan
tima og náði þvi fyrsta sætinu.
1 350 metra stökki var það
Stormur, Hafþórs Hafdal, sem
sigraði, á 24.3 sekúndum, annar
varð Tvistur, Harðar G. Alberts-
sonar, á sama tima, þannig að
sjónarmunur réði, en i þriðja sæti
varð Sindri, Jóhannesar Þ. Jóns-
sonar.
í 800 metra stökki sigraði
Cesar, Herberts Olasonar, á 57.9
sekúndum. 1 öðru sæti varð Reyk-
ur, Harðar G. Albertssonar, en i
þriðja sæti Þróttur, Sigurbjörns
Bárðarsonar.
í brokki varð hlutskarpastur
Faxi, Eggerts Hvanndai, á 1.39.5
minútum, i öðru sæti Tritill, Jó-
hannesar t>. Jónssonar, en i
þriðja sæti Tinni, Stefáns Frið-
rikssonar.
1 A-flokki gæðinga sigraði Koi-
skeggur, Ragnhildar Óskars-
dóttur, með einkunnina 8.32. Ann-
ar var Tenór, Siguröar Ingimars-
sonar, en i þriðja sæti Svala, Ingi-
bjargar Steíánsdóttur.
t B-flokki varð hlutskarpastur
Gimsteinn, Sveins Jóhannssonar,
með einkunnina 8.46.
Annar i B-flokki varö Svipur,
Sveins Jóhannssonar, en i þriðja
sæti varð Lúkas, Jósaíats t>.
Jónssonar.
Hestamótiö stóð yfir laugardag
og sunnudag. Fyrri daginn voru
gæðingadómar og undanrásir i
kappreiöagreinum. i lok fyrri
dags var svo haldiö uppboð á
folöldum.
Siöari dag mótsins fóru svo
■ Tvisýn keppni varö iýtnsum greinum, en þessi baráttumynd er úr 350 metra stökki.
fram milliriðlar i kappreiöunum,
og lauk mótinu svo meö úrslita-
hlaupum þeirra.
Ýmislegt fleira var á dagskrá
mótsins, svo sem hópreiðar, gæð-
ingasýning og annaö.
Hæstu verðlaun á mótinu að
þessu sinni voru i 250 metra
skeiði, eða kr. 5.000.00. 1 heildina
tekið voru veitt verðlaun sem
svarar tæplega þrjátiu þúsund
krónum.
■ Páli Pétursson, alþingismaður var einn af starfsmönnum mótsins,
en þarna hvílir Sigurður ólafsson olnboga á öxl þingmannsins.
Efstur hesta i B-flokki varö Gimsteinn, Sveins Jóhannssonar, en knapi var Björn Sveinsson.
■ Efstur hesta i A-f!okki varð Kolskeggur, Ragnhildar óskarsdóttur,
en knapi var Albert Jónsson.
■ Baráttan var einnig hörð i 150 metra skeiði, bæði i riðlum og I úrslitakeppni..