Tíminn - 07.08.1981, Blaðsíða 11
Föstudagur 7. ágúst 1981
dagskrá hljóðvarps og sjónvarps
LOKSINS - LOKSINS - LOKSINS
■ Þá er leiðinlegasta timabili
ársins 1981 lokið og fram undan
ellefu mánuðir yndislegrar af-
þreyingar i útmældum skömmt-
um. Við getum lagt lúdóið til
hliðar, hætt að raka okkur og
fara i lagningu, hætt að óttast
heimsóknir, hætt að horfa hvert
á annað og, umfram allt, hætt
að tala saman að nýju. Nú fáum
við aftur sent uppbyggilegt . á-
hugavert, spennandi og menn-
ingarlegt afþreyingarefni i sér-
hönnuðum neytendapakkning-
um, gegn um vininn eina. Sjón-
varpið er að hefja útsendingar
sinar að nýju, eftir óralangt fri,
sem um tima virðist ætla að
verða óendanlegt.
Það fer unaðshrollur niður um
bakið við tilhugsunina um Löður
á laugardagskvöldum. Ekki er
heldur amalegtað orna sér við
tilhlökkunina um kvikmynd,
siðarum kvöldið, sem máske er
orðin nógu gömul til að við höf-
um gleymt sumum atriðum
hennar. Og þessi fréttamynd á
milli — um það hvernig prinsinn
giftist stelpunni þarna i Breta-
veldi um daginn, með Vigdisi
sem vitni — er upplögö afsökun
fyrir þvi að svæfa ekki krakka-
gemlingana.
Sunnudagarnir verða nú eðli-
legiraðnýju. Krakkarnirstilltir
og þægir, þvi ef þau hegða sér
ekki verður ekki kveikt á
Barbapabba. Þrjúbióið að sjálf-
sögðu úr sögunni, þvi Emil i
Kattholti kemur i staðinn.þann-
ig að dagurinn verður eilifur
friður, eins og vera ber. Ekki er
það heldur verra, að pabbi hans
Emilser slikur afstyrmis óvætt-
ur, að hver einasti illskuflár og
timbraður islenskur pabbi verð-
ur ljúfmenni þar við hlið.
Um kvöldið er dagskrá imb-
ans að visu mistökum merkt.
Þau fyrri eru sinfónían, er á að
vera i útvarpinu á fimmtudög-
um. Það værinærað sýna hana i
vídeói i Skúlagötuhúsinu, spila
mússíkina í útvarpið og láta Jón
Múla lýsa myndinni. En þeir sjá
ekki einföldu lausnirnar þessir
menn.
Og það er gottað sjá og finna,
að islenska sjónvarpið er loks
komiö á rétta braut i pólitikinni.
A dagskránni eru að minnsta
kosti tveir þættir þessa vikuna,
sem sýna hvað kommúnistar
eru hræðilegir menn. Annar er
um illsku Kastrós, sem öllum
hugsandi mönnum er löngu ljós,
en hin um hræðilegan veruleik-
ann i sovéska hernum, þar sem
menn eru illa þjálfaðir, illa bún-
ir tækjum, fullir og röflandi, ef
marka má dagskrána.
Væri ekki ástæða til að endur-
sýna báða þættina i barnatim-
anum á sunnudögum? Þaö er
aldrei of vel byrgður brunnur-
inn.
Það versta er, að þessi þáttur
um Rauöa Herinn getur veriö
tvieggja. Hvort þýðir þetta með
lélega þjálfun og lélegan bunað
og endalaust fylleri, aö þessi
ógnvaldur geti ekki, eftir allt,
brennt bilana okkar og húsin,
bannað okkur að tala og drepið
okkur, eða hvort þýðir það að
hann er enn hættulegri en jafn-
vel Styrmir og Matthias hafa
haldið. Liklega verðum viö að
biða eftir úrskurði i Reykjavik-
urbréfi eða Moggaleiðara og -
máske er best að geyma endur-
sýningu i barnalima fram yfir
þann tima.
Svo er i vikunni þáttur um
Charles De Gaulle og á eftir
þáttur um skúnk. Tekið skal
fram, að þetta eru tveir aðskild-
irþættirog fjallaekki um sama
efni, eins og einn blaðamaður
hér á blaðinu hélt i fyrstu. Og á
miðvikudaginn fáum viö einn
skammt af Dallas, á fimmtu-
daginn förum viö i bió — von-
andi, þvi annars er ekki að vita
hvernig fer — og á fóstudaginn
fáum viö nýja-gamla mynd, á-
samt með öðru efni og öörum
upplifunum.
Já, það er munur að geta aft-
ur skálaö viö imbann um helg-
ar, i stað þess að þurfa aö horfa
á misleiðinlegt fólk yfir glas-
barminn. Vér þökkum þér, ynd-
islegi og fjölmáttugi.
■ Rauöi herinn hættulegri en jafnvel Styrmir og Matthias hafa haldiö?
Hin mistökin eru sýnu verri.
Þau eru þessi nýi þáttur, sem
virðist fjalla um það eitt að kon-
ur geti verið án karla. Látum
það vera þótt slikt efni sé borið -
fyrir augu þeirra sem þroska
hafa til að neyta þess. En, þeim
láist sú sjálfsagða varúðarráð-
stöfun að banna þáttinn konum.
Slæm mistök, sem geta valdið
erfiðleikum á heimilum, þar
sem höfuð fjölskyldunnar gera
sér grein fyrir þvi hvað hentar
öðrum greinum hennar og hvað
ekki.
Og svo spinnum við ■ áfram, i
rósrauðum sæluskýjum. Barna-
efni sjónvarpsins er, að venju,
klukkan hálf niu á kvöldin.
Góður timi, þvi þá eru allir
sæmilega uppaldir krakkar
komnir i bælið og trufla ekki
með spurningum og athuga-
semdum.
Halldór Valdimarsson,
bladamadur
skrifar um sjónvarp
Dagskrá sjónvarps vikuna 9. til 15.
1981
sjonvarp
Sunnudagur
!). ágúst
18.00 Sunnudagshugvekja
Séra Páll Pálsson, sóknar-
prestur á Bergþórshvoli.
ilytur hugverkjuna.
18.10 Barbapabbi.Tveir þættir,
annar endursýndur og hinn
frumsýndur. Þýðandi
Ragna Ragnars. Sögu-
maður Guðni Kolbeinsson.
18.20 Emil i Kattholti.Fimmti
þáttur endursýndur. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
18.45 Flugdrekar.Bresk mynd
um fhigdrekasmið og þá
ánægju. sem má hafa af
þessum leikföngum.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
19.10 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.45 Sinfónfa nr. 36 i C-dúr
eftir W.A. Mozart.Sinfóniu-
hljómsveitin i Bamberg
leikur. Hljómsveitarstjóri
James Loughran. Ein-
söngvari Edith Mathis,
sópran. Upptaka frá
Mozart-hátiöinni I WUrz-
burg 1981. (Evróvision —
Þýska sjónvarpið)
21.30 Annaö tækifæri. Nýr,
breskur myndallokkur i sex
þáttum. Höfundur Adele
Rose. Aðalhlutverk
Susannah York, Ralph
Bates, Mark Eadieog Kate
Dorning. Kate og Chris, sem
hafa verið gift i nitján ár, á-
kveða að skilja, og hún
stofnar heimili ásamt
tveimur börnum sinum.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.20 Dagskrárlok.
Mánudagur
10. ágúst
19.45 Fréttaa'grip á táknmáli
20.00 Fréttír og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Muminálfarnir. Niundi
þáttur endursýndur. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
20.45 iþróttir.
21.15 Amorsörvar. Breskur
gamanleikur eftir David
Nobbs. Leikstjóri David
Cunliffe. Aðalhlutverk Rob-
in Bailey og Leslie Ash. Há-
skólakennarinn Alan Cal-
cutt kynnist kornungri
konu, sem er gerólik öllum
vinum hans og kunningjum.
Þýöandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.05 Hinir reiöu Utlagar. Stutt
fréttamynd um kúbanska
útlaga og baráttu þeirra
gegn stjórn Fidels Castrœ.
22.20 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
11. ágúst
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Pétur. Nýr, tékkneskur
teiknimyndailokkur i þret-
tán þáttum. Fyrsti þáttur.
20.40 Þjóöskörungar tuttug-
ustu aldar. Charles de
Gaulle (1890 - 1970), fyrri
þáttur. Þýöandi og þulur
Gylfi Pálsson.
21.10 óvænt endalok. Skunkur.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
21.35 Rauöi risinn. Um ára-
tugaskeiö hefur Vesturlönd-
um staðiö mikil ógn af her-
sveitum Sovétrikjanna, og
skuggi þeirra grúfir yfir
Austur-Evrópu og viöar.
Þessibreska heimildamynd
leiðir i ljós, að Rauöi herinn
er bagaöur af ónógri þjálf-
un, lélegum tækjabúnaöi,
drykkjuskap og þjóöarrig.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
22.20 Dagskrárlok.
Miðvikudagiir •
12. ágúst
19.45 Fréttaágrip á táknmáli..
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommi og Jenni.
20.50 Dallas. Attundi þáttur.
Þýöandi Kristmann Eiðs-
son.
21.40 Hjartaslag. 1 þessari
kanadisku heimildamynd
kemur fram, að ýmsir vis-
indamenn draga nú i efa, að
dýrafita sé jafnskaðleg
starfsemi hjartans og áður
var talið. Einnig er bent á
leiðir til aö draga úr dauðs-
föllum af völdum hjarta-
áfalls. Þýðandi og þulur Jón
O. Edwald.
22.30 Dagskrárlok.
Föstudagur
14. ágiist
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og da gskrá.
20.40 A döfinni.
20.50 Allt i gamni meö Harold
Llovds/h. Syrpa úr gömlum
gamanmyndum.
21.15 Pétur litli. Heimilda-
mynd um dreng, sem fædd-
ist illa bæklaður af völdum
thalidomide-lyfsins. En
Pétur litli er allur af vilja
gerður til að bjarga sér
sjálfur og hefur náð undra-
verðum árangri i listinni að
lifa. Þýöandi Jón O. Ed-
wald.
22.05 Flóðaldan niikla. (The
Last Wave) Aströlsk bió-
mynd frá árinu 1977. Leik-
stjóri Peter Weir. Aðalhlut-
verk Richard Chamberlain
og Olivia Hamnett. David
Burton er lögfræðingur i
Sydney og fæst einkum viö
samningsgerð. Það kemur
hopuín þvi á óvart að vera
ftflið að verja nokkra frum-
byggja, sem grunaðir eru
um morö. Þýðandi Krist-
mann Eibsson.
23.45 Dagskrarlok.
Laugardagur
15. ágúst
17.00 tþróttír. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
19.00 Einu sinni var. Tólfti
þáttur. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir. Lesarar Einar
Gunnar Einarssonog Guðni
Kolbeinsson.
19.30 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 I.ööur. Gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Ellert Sig-
urbjörnsson.
21.00 Þjófarnir. Tónlistarþátt-
ur meö hljómsveitinni
Thieves Like Us.
21.45 Irma la Douce. Banda-
risk gamanmynd frá árinu
1963. Leikstjóri Billy Wild-
er. Aöalhlutverk Shirley
Maclaineog Jack Lemmon.
Myndin fjallar um lögreglu-
þjón i Paris, sem veröur
ástfanginn af gleðikonu og
gerist verndari hennar.
Þýöandi Heba JUliusdóttir.
00.00 Dagskrárlok.