Tíminn - 12.08.1981, Síða 5
Miðvikudagur 12. ágúst 1981
5
fréttir
Komið og / / , /j
/eitíðnánarí J\rláli(ÍVLá&on h f ^gólfsstræti 12
upp/ysmga —^ \r vjLjLvrvjJurv rv.j. simar 12800 -14878
Óðalsmálid:
Sá slasaði
hefur ekki enn
gefið skýrslu
■ Maður sá er slasaðist fyrir
framan óðal á dögunum, þegar
dyraverðir þar hentu á hann ein-
um gestisinum, hefur ennþá ekki
komið til skýrslutöku til Rann-
sóknariögreglunnar samkvæmt
heimiidum þaðan.
Maður þessi slasaðist illa og
hefur verið heima siðan hann
kom af sjúkrahúsi. Hann er þó
sagður á góðum batavegi.
Sá er fékk flugferðina út af
skemmtistaðnum Óðali hefur
hins vegar ekki fundistennþá eða
gefið sig fram, sem tefja mun
rannsókn málsins.
Dyravörður sá er visaði gesti
sinum úr húsi með þessum hætti
hefur verið i Færeyjum að undan-
förnu, en náðst hafði að taka
skýrslu af honum áður en hann
hélt utan. —HEI
Attantiovatnabðtamir eru framleiddir samkvæmt þýzkum öryggisstaðli,
„sicherheitsnorm DIN 7871". Bátamir em allir með 4 lofthölfum og
öryggisventium. Snúra er þrædd umhverf is bátana.
Atíantíc bátarnir eru tílí ýmsum stærðum
verð 880 Amasonas
verö 1293 Kajak 320 cm, verö 1345
Loftdœla veiö 153
Atlantic 30
Atiantic 40
Atiantic 50
Atlantic 60
240x140cm,
280x150cm,
310x165cm,
340 x 165 cm,
verð 1550
verð 1775
Arar
verö 215
■ Samherjarnir Vilmundur Gylfason og Jón Baldvin Hannibalsson á
fundi þeim sem þeir boðuðu til á Hótel Sögu i fyrrakvöld um málefni AI-
þýðublaðsins og deilur þær sem risið hafa upp milli ritstjórnar og
flokksforystunnar. Vilmundur greiðir hér atkvæði gegn frávisunartil-
lögu þeirra Ágústs Einarssonar og Bjarna Guðnasonar, en Jón Baldvin
tekur ekki þátt I atkvæðagreiðslunni. — Timamynd: Ella.
■ „Menn hafa kunnað að meta kraft Vilmundar og frjósemi, en ekki hafa allir þolað málfarið sem hann
temur sér”, sagði Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins á fundinum í fyrrakvöld, þegar hann
loks steig i pontu og svaraði ræðum þeirra Jóns Baldvins og Vilmundar. — Tímamynd: Ella.
„SEGI ÞESSUM DAPUR-
LEGA FUNDI SLITIД
sagdi fundarstjórinn í lok Alþýðublaðsfundarins
Vilmundarmenn urðu undir í atkvæðagreiðslu
■ Hiti mikill færðist f menn þeg-
ar liða tók á opna fundinn, sem
þeir Vilmundur Gylfason og Jón
Baldvin Hannibalsson boðuðu til
um málefni Alþýðublaðsins i
fyrrakvöld, og Timinn greindi frá
i gær.
Skiptust menn þá á stóryrðum
og fhigu títt setningar eins og
„þetta er ósatt” eða „við lýsum
vantrausti á fundarstjórann”.
Seint á fundinum lá fyrir honum
ályktunartillaga Helga Más
Arthurssonar, sem var i þvi fólgin
að fundurinn skoraði á forystu
flrfcksins: að leysa deilurnar um
Alþýöublaðið hið fyrsta, að lýsa
yfir fullu trausti við ritstjórn
blaðsins, að ná samkomulagi við
ritstjórnina um að hún héldi
áfram starfi og ræki sömu rit-
stjómarstefnu og veriðhefði. Auk
þess var þess getið i tillögunni að
fundurinn harmaði að forysta Al-
þýðuflokksins hefði stöðvað um-
rætt miðvikudagsblað, og i lokin
sagði að fundurinn lýsti yfir
fyllsta trausti á umfjöllun Al-
þýðublaðsins um nauðsyn á auknu
lýðræði i verkalýðshreyfingunni.
Þegarað þvivarkomið að þessi
ályktunartillaga væri borin undir
atkvæði, þá barst frávisunartil-
laga frá þeim Bjarna Guðnasyni
og Agústi Einarssyni. Var hún
borinundir atkvæði og eftir mikið
japl og jaml og fuður lá það fyrir
að frávisunartillagan hafði verið
samþykkt með 79 atkvæðum gegn
62. Að svo búnu sagði fundarstjór-
inn Jón H. Guömundsson: „Hér
með segi ég þessum dapurlega
fundi slitið”. Flokksstjómarfund-
ur Alþýðuflokksins hefur verið
boðaður um málefni Alþýðu-
blaðsins og deilurnar á milli for-
ystunnar og ritstjórnar ikvöld kl.
20.30.
—AB
Ólga meðal atvinnu-
bílstjóra á Akranesi:
„Lokum
hreinlega
veginum
■ Mikil óánægja rikir nú meðal
Akurnesinga, vegna slæms
ástands Akranesvegar og slæ-
legra vinnubragða Vegagerðar-
innar og verktaka við frágang
bundins slitlags á hann. Hefur
vegurinn verið I mjög slæmu
ástandi f mörg ár og loforð um
lagningu olfumalar á hann hafa
verið svikin ár eftir ár. Liggur nú
við að upp úr sjóði hjá Akurnes-
ingum, eftir að verktaki sá, sem
leggja áttioliumöl á kaflann milli
Ósholts og Brunna, hvarf frá hálf-
unnu verki og fór að vinna i
Borgarfirði.
„Okkur er það ekkert laun-
ungarmál, að við erum tilbúnir að
grípa til aðgerða”, sagði atvinnu-
bilstjóri á Akranesi, i viðtali við
Timann i gær, „og þá dettur okk-
ur einna helst i hug að fara að for-
dæmi Selfyssinga og hreinlega
loka veginum.
Vegurinn er búinn aðvera óþol-
andi i mörg ár og þeir eru búnir
að gaufa við þessa þrettán eða
fjórtán kilómetra árum saman,
án þess að ljúka verkinu, eða
koma veginum Iþolanlegt ástand.
Þessi vegarkafli, sem nú var
horfið frá hálfkláruðum, átti að
leggjast i fyrrasumar, en þegar
það gekk ekki var honum lofað I
ár. Þegar svo búið var að keyra
undirburðinn i hann, hvarf verk-
taki frá og fór að vinna annars
staðar. Við erum skilin eftir með
veg sem er svo grófur, að hann er
ltkastur hrauni að aka um hann,
og hefur hann þegar valdið miklu
tjóni á bifreiðum. Siðast i dag
varð allharöur árekstur þarna,
sem rekja má beint til ástands
vegarins.
Okkur finnst þetta allt ákaflega
einkennileg vinnubrögð. I fyrsta
lagi að gera veginn ekki ökufær-
an, i öðru lagi að hlaupa frá hálf-
unnu verki og i þriðja lagi aðgera
ekki við þær skemmdir sem orðið
hafa á oliumölinni, sem þó er
komin. Þaðhefur ekki veriðgert.
1 morgun fékkst loforð um að
slitlag yrði sett á veginn i dag eða
á morgun, en þeir eru ekki farnir
aö hreyfa sig ennþá. Ef ekki
verður staðið við þetta loforö,
hljótum við aö gripa til einhverra
aögerða, þvi þetta er gjörsam-
lega óþolandi.”
—HV
A tíantic- vatnabátar
SÉRSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ
Póstsendum