Tíminn - 12.08.1981, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 12. ágúst 1981
15
gróður og garðar
Runnar dfsanna og
stakkur Marfu
Disarunnar (sirenur, syringa)
fagrir runnar frá Asiu og austan-
verðri Evrópu. Ræktaðir til
skrauts vi'ða um lönd, bera
undurfagra ilmandiblómskúfa og
þvi kenndir hér við disir
(draumadisir) og sirenur.
Raunar voru sirenur þjóðsögu-
legar kynjaverur, sem með ljúf-
um söng lokkuðu sjómenn i dauð-
ann við strendur sinar. Odysseif-
ur hinn griski sá við þeim og lét
troða i eyru sjómanna sinna svo
þeir heyrðu ekki sönginn!
Á Norðurlöndum og víðar er
einkum ræktuð tegundin Syringa
vulgaris, sem ber digra, bláleita
angandi blómklasa, en blómgast
þvimiður sjaldan hér. En til eru
aðrar tegundir disarunna, sem
blómgast hér rikulega flest sum-
ur,þ.á m. bogsirena (syringa re-
flexa) sem myndin er af. Hún er
ættuð alla leið frá Mið-Kina.
Verður hér allstór runni, sem ber
fagra blómklasa ljósrauölita.
Hvert blóm i klasanum er rós-
rauttmeð hvitum jöðrum, ljósara
að innanverðu, ilmar þægilega.
Bogsi'rena hefur blómgast mest-
allan júli og sums staðar enn i
byrjun ágúst. Hún þolir nokkurn
skugga, en ber þar seinna blóm.
Af skyldum tegundum, sem
þrifist geta á Islandi má nefna
gljásirenur (Syringa josikaea)
frá Ungverjalandi. HUn ber dökk-
fjólublá blóm i klösum. Loðsirena
(Syringa Villosa) frá Norður-
Kina ber ljósrauð ilmandi blóm i
stórum skipunum.
Draumasirena (Syringa
sweginzawea), eirmig frá N-Kina
ber stóra, glæsilega ljósrauða
blómskúfa, en mun tæplega eins
harðgerð.
Dfsarunnum er aöallega fjölgað
með fræsáningu. Þrifastbest ivel
■ Mariustakkur i regni
framræstum, fremur þurrum
jarðvegi móti sól og i skjóli.
Ýmsar jurtir eru kenndar viö
Mariu mey, allt gæðajurtir á ein-
hvern hátt. Hér er mynd af einni
slikri jurt — mariustakk —, sem
hér er algengur á rökum stöðum,
t.d. við læki. Mariustakkur er
auðþekktur á stórum, sepóttum
nærri kringlóttum blöðum, er
sitja á löngum stilk. Þetta er
gömul lækningajurt. Mariublöðin
voru lögð við sár og þóttu græð-
andi.Mariustakkur er líka frægur
fyrir sérstæða fegurö. Blóm-
skúfarnir eru gulgrænir og ekki
mjög ásjálegir.Þaö er döggin eða
regnið, sem gefur fegurðina.
Gljáandi daggardropar sitja lengi
á stórum blöðunum og stundum
þrýstast vatnsdropar innanfrá og
koma iljósá jöðrum blaðanna við
enda æðastrengja. Já, daggar-
fagur er mariustakkur sannar-
lega, daggarfagur og regnfagur!
■ Bogsi'rena (Syringa reflexa)
Bæði málarar og myndasmiðir
glima viö að ná fegurð mariu-
stakksins á léreft, filmu eöa
brenna myndina i leir.
Gullgerðarmenn fyrri alda
höfðu trú (eöa hjátrú) á krafti
dropanna á mariustakksblöðum
og létu þá ilt i efnablöndur sinar
tilheilla. Þeim tókst ekki aö búa
til gull, en unnu þarft verk i efna- ■
fræði með tilraunum sinum.
Visindanafn mariustakks Al-
chemilla er kennt við „alkemist-
ana” þ.e. gullgerðarmennina.
Ingólfur
Daviðsson,
skrifar
föndurhornid
Ad leika sér ad leir
■ Leirinn fæst i flestum föndur-
eða tómstundabUðum. Leggið
hann ekki á lakkað eöa pólerað
borð, þvi aö þá vill hann oft fest-
astviöþað. —OgnU þarf aðbyrja
áþvi að hugsa um, hvernig hlutur
sá, sem við ætlum að búa til, er i
laginu. Litum til dæmis á mynd-
ina, sem við sjáum hér. I köttinn
þarf aö bUa til „pylsu”, kUlu og
tvær litlar keilur. Helst þurfum
viö að hafa leirskera, en það er
bogi með strengdum stálvir. Með
honum skerum við stykki, hæfi-
lega stór, úr leirklumpnum, og
gott er lika að hafa boröhnif og
litlar tréræmur til þess að laga
ýmis smáatriði, þegar farið er að
forma.
Leirinn verður að hnoða i hönd-
um sér og hafa hann hæfilega
rakan og mjúkan. A litlu mynd-
inni sést, hvernig búin er til
„pylsa”, kúla og keila til þess að
nota i köttinn. Keilurnar tvær
verða að eyrum, þegar þeim er
Jyýst á hausinn, en gæta verður
vel að þvi, að þær festist við, vel
og vandlega, sömuleiðis skottið.
Venjulega var það svo, að
„brenna” þurfti leirmunina við
mikinn hita I sérstökum ofni, en
Umsjón:
Gauti H& ■ JH
Hannesson méÆ
nú er kominn á markaðinn leir,
sem ekki þarf að brenna, þvi aö
hann harönar af sjálfum sér á
stuttum ti'ma. Allar ujplýsingar
um þessar leirtegundir getur af-
greiðslufólkið i tómstundabúðun-
um gefiö ykkur.
Tilkynning
launaskattgreiðenda
Athygli launaskattgreiðenda skal vakin á
þvi, að 25% dráttarvextir falla á launa-
skatt fyrir 2. ársfjórðung 1981 sé hann ekki
greiddur i siðasta lagi 17. ágúst.
Fjármálaráðuneytið
Gangavörður
Hálft starf gangavarðar er iaust tii um-
sóknar við Vighólaskóla.
Umsóknareyðublöð fást á skólaskrifstofu
Kópavogs, Digranesvegi 12, en þangað ber
að skila umsóknum fyrir 20. ágúst n.k.
Skólafuiltrúinn i Kópavogi
Auglýsing
Samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18.
mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt
með siðari breytingum, um að álagningu
opinberra gjalda á árinu 1981 sé lokið á þá
menn sem skattskyldir eru hér á landi
samkvæmt 1. gr. greindra laga, þó ekki 2.
tl. þeirrar greinar, og á börn sem skatt-
lögð eru samkvæmt 6. gr.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1981 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagða opinberra
gjalda, að sóknargjöldum undanskildum,
sem þessum skattaðilum hefur verið til-
kynnt um með álagningarseðli 1981 þurfa
að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans innan 30 daga frá og með dag-
setningu þessarar auglýsingar.
12. ágúst 1981
Skattstjórinn i Suðurlandsumdæmi, Hálf-
dán Guðmundsson.
Ættarmót
Ættingjar Bjarna Sigurðsson og Sigriðar
Gunnjónu Vigfúsdóttur frá Lambadal i
Dýrafirði, halda ættarmót laugardaginn
22. ágúst að Hótel Borg Gyllta sal kl. 15.
Þátttakendur vinsamlegast láti vita i
sima 81583 Sesselja, 40032 Sigrún, 74878
Hanna Kolbrún, 99-1453 Sæunn, fyrir 18. á-
gúst.
Viðgerðarverkstæði
Borgarnesi
Óskum eftir að ráða sem fyrst mann til að
annast viðgerðir og rekstur verkstæðis
fyrir Sláturhús K.B. i Borgarnesi.
Hér er um framtiðarstarf að ræða sem
einkum er fólgið i viðgerðum og viðhaldi á
vélum, vörulyfturum og ýmsum búnaði
sláturhúss, kjötmjölsverksmiðju, fóður-
blöndunarstöðvar o.fl,
Nánari upplýsingar gefur kaupfélags-
stjóri i sima 93-7200.
Kaupfélag Borgfirðinga
Borgarnesi.