Tíminn - 20.09.1981, Page 2

Tíminn - 20.09.1981, Page 2
2_____________ Ijós vikunnar jgj Kræsi- legar trakter- ingar ■ Flestum ber — er þaö ekki? — saman um að leiðarar, eða forystugreinar, dagblaðanna séu ekki i hópi skemmtilegasta efnis þeirra. bað er helst að Jón Múli Ámason skemmti sér við lestur þeirra ef marka má tóntegundir hans á morgnana. 1 fyrragær lás- um við aftur á móti i Morgunblað- inu okkarleiðarastúf sem tók öðr- um svo fram i andagift og orð- kynngi að við stóðum agndofa. Þessi leiðari leiftraði skærast alls lesefnis blaðanna siðustu viku og á sér ekki nema fáa eina keppi- nauta um heiðurstitilinn Ljós vik- unnar. Leiöarinn heitir ,,Or salt- pæklinum” og cr á þessa leiö: „Eitthvert steinbarn er aö bjástra vió að skrifa leiðara- ómynd i Tímagarminum i gær. Ómyndin er frá fjórða áratugn- um, dregin upp úr saltpækli framsóknarmaddömunnar. Það þykja ókræsilegar traktéringar. 1 hálfa öld hefur ekkert breyst i hrútakofa framsóknar, þar er Þórarinn enn að stangast á við sjálfan sig. Leiðarakomið fjallar um vonsku danskra kaupmanna og Morgunblaöið. Nú spyrja allir: Hvenær fæðir Timinn steinbam- ið,svo að það verði lif i hrútakof- anum?” Það var lagið! Svona eiga leið- arar að vera! Er hann betur stil- aöur, hvassari og beittari en við höfum átt að venjast úr þessum herbúöum um langt skeið. Gott er ef Eyjólfur er að hressast en menn þykjast kenna handbragö Matthfasar Jóhannessen, rit- stjóra, á leiðaranum. Þá þykir okkur týra hversu stuttur hann er... Matthiasar, eða þess leiðara- höfundarannars sem gangast vill við leiðaranum, og þykir okkur ekki mikil skömm að þvi — hér uppá Tima, i sjálfum hrútakofan- um, biður splunkunýtt Antik-kerti frá Hreini til sannindamerkis um aö þessi leiðari ber af öðru rituöu máli vikunnar. Munum viö reyna að fá Þórarin sjálfan til að afhenda kertið. Einhverra hluta vegna hefur svo farið aö menn hafa reynst tregir til aö sækja kertin sin og skiljum við það ekki. Ef það mætti verða til að þetta kerti fyndi eiganda sinn viljum við , vekja athygli á að með þvi aö ^sækja kertið styrkir Matthias stöðu Geirs Hallgrimssonar, for- manns.svoaö um munar! Vitum við ekki betur en Geir sé einn aðaleigenda Hreins og þvi fram- leiöandi Antik-kerta. Væri hreint ekkert slor fyrir ritstjóra Morgunblaðsins að hafa slikt kerti á skrifborðinu fyrir framan sig! Tíminn er til húsa i Siðumúla 15, Matthi'as. Alþýðuleikhusið fastræður leikara — fyrsta frumsýning leikhússins á laugardag ■ Nú er að hefjast 6ta starfsár Alþýðuleikhússins, og eru enn einu sinni fyrirhugaöar breytingar á rekstri þess, má meö sanni segja að ekkert standi i stað á þeim bæ. Þetta verður annað ár Alþýðuleikhússins i nýju húsakynnunum i Hafnarbiói, i fyrra þótti húsnæðið gefa dágóða raun, þá haföi leikhúsiö alls 5 verk til sýninga og 32780 áhorf- endur komu i Alþýðuleikhúsið á leikárinu. A dögunum héldu Alþýðu- leikarar blaðamannafund til að kynna starfsemina á komandi vetri. 1 fyrirsvari sat stór hópur leikhússfólks. Þeir töldu sig enn hafa sannaö tilverurétt sinn i fyrra og að á þeim væri nokkur þörf, þvi ætluöu þau aö færa enn út kviarnar, enda geröi svo stórt og mikið hús sem Hafnarbió kröfur til þess aö vera nýtt til hins ýtrasta. Nú myndi leikhúsiö fast- ráða sér leikara, eins og það gerði i minna mæli þegar starfsemin var á Akureyri hér um áriö. Hingað til hafa leikarar verið við- loðandi leikhúsið af hugsjón og fengið siðan i laun það sem eftir var þegar búið var aö borga upp skuldir um mánaðarmót. Þvi hefur eðlilega veriö erfitt að manna sýningar á siðari hluta leikárs, leikararnir hafa einfald- lega leitað annað til að vinna fyrir lifibrauðinu. Það er úrvalshópur fastráðinna leikara og leikstjóra sem mun þvi bera hitann og þungann af starf- seminni i vetur. Leikararnir — Arnar Jónsson, Bjarni Ingvars- son, Borgar Garðarsson, Guömundur Ólafsson, Guðlaug Maria Bjarnadóttir, Helga Jóns- dóttir, Margrét ólafsdóttir, Sig- fús Már Pétursson og Tinna K b ■ Viðar Eggertsson og Sigfús Már Pétursson I hlutverkum sfnum f Sterkari en Súpermann, sem frumsýnt verður á laugardag. Gunnlaugsdóttir. Og svo leik- stjórarnir Tómas Ahrens og Þór- hildur Þorleifsdóttir. Nokkrir eru lausráðnir i eitt eöa fleiri verkefni — Viðar Eggertsson, Björn Karlsson, Jórunn Sigurðardóttir, Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri og leikmyndateiknararnir Grétar Reynisson og Messianna Tómas- dóttir. Alþýðuleikhússfólk taldi að það yrði varla færri en 20 manns sem ynnu i húsinu að stað- aldri I vetur. Leikararnir munu skiptast i tvo nokkuð jafna hópa, annar mun að mestu helga sig barna- og ung- lingaefni, en hinn mun huga aö andlegum þörfum fulloröinna. Pláss fyrir tíu hjólastóla Blaðamönnum var einmitt boðiö að sjá brot úr fyrsta við- fangsefni barnahópsins, og virtist þeim það holl og góð næring. Það er leikritið Sterkari en Súper- mann eftir enskt leikskáld , Roy Klift, i þýðingu Magnúsar Kjartanssonar. Tómas Ahrens og Jórunn Sigurðardóttirf en Grétar Reynisson gerir leikmynd. Leik- hópurinn er aö mestu sá sami sem stóð að umdeildri áyningu á Pæld’i’ði i fyrra — Björn Karls- son, Guðlaug Maria Bjarnadóttir, Sigfús Már Pétursson, Tómas Ahrens og Viðar Eggertsson. Leikritið veröur frumsýnt laugardaginn 19.sept. kl. 17.00, en önnur sýning er á sunnudag kl. 15.00. Alþýðuleikhúsfólk vildi reyndar frekar meina að hér væri um fjöl- skylduleikrit en barnaleikrit að ræöa. Sterkari en Súpermann fjallar um fatlaðan dreng i hjóla- stól einstæða móöur hans og systur. Þau eru nýflutt i ókunnugt umhverfi, sem bregst við þeim á 5 Eg vildi gjarnan iga leðurjakka99 — Rætt við Sigurð Gí: ■ Hótel Borg hefur haft nokkra sérstöðu meðal islenskra skemmtistaða ipp á siðkastið, þar hefur svo kölluð „lifandi tón- list” verið meira áberandi en við- ast hvar annars staöar og jafn- framt er ekki laust við aö Hótel Borg sæki annaö fólk en er hag- vant á hinum skemmtistööunúm. Viö fréttum af því fyrir nokkrum dögum að fyrir dyrum stæöu rót- tækar breytingar á rekstri Borgarinnar, þar sem eigendur og starfslið hefðu fengið nóg af erlinum og umtalinu síöustu mánuði og vildu færa Borgina aftur til „rólegra” horfs. Við slógum á þráðinn til Sigurðar Gislasonar, hótelstjóra, og spurö- um hvort satt væri. „Nei, nei, þetta er ekki rétt”, sagði Sigurður undir eins. „Það sem geröist var að við héldum fund um reksturinn á laugardag- inn si'ðasta, viö starfsfólkiö, og þaö hefur spurst eitthvaö út af þessum fundi sem ekki kom þar fram. 1 sjálfu sér eru engar breytingar i sjónmáli hjá okkur nema hvað gömludansamir,sem hingað til hafa verið eingöngu á sunnudögum, verða framvegis einnig á föstudögum. Eldra fólkið , hótelstjóra, um ■ Sigurður Glslason, „Borgar- stjóri”: Gömlu dansamir verða framvegis bæði á föstudögum og sunnudögum. sem stundar gömlu dansana hefur viljaö fá meira svigrúm en sunnudagarnir hafa leyft og við komum til móts við þaö með þessu fyrirkomulagi. A fimmtu- dögum og laugardögum verður eftir sem áður diskótek”. — En erþaö rétt aöhljómsveit- irfái ekki lengur að spila á Borg- inni? „Nei, þaö er ekki rétt. Ég segi fyrir mig, ég hef miklu meira gaman af lifandi tónlist en hel- vitis grammófóninum, ég fékk^ nóg af honum áriö 1944 þegar við" misstum hljómsveit Bjama Bö i tvo, þrjá mánuöi og þurftum aö notast við grammófón á meöan! breytingar á Borginni Oft geta gestir ekki sofið fyrir hávaða Hitt er annaö mál aö hljóm- leikahald hér i salnum fer ekki alltaf velsaman við gestaganginn á hótelinu sjálfu. Oft hefur verið slikur hávaöi i salnum að gestir hafa engan veginn getað sofiö og þaö segir sig sjálft að slikt getur ekki gengið endalaust. Hljóm- sveitirnar hafa margar hverjar spilað alltof hátt og það hefur ekkert þýtt að biðja þær um aö lækka í tækjunum. Ef þessir strákar geta ekki spilað eins og menn þá er illt að sjá að viö get- um notað þá. Enhér verða hljómsveitir, það er ekkert vafamál. Ég get i fljótu bragði nefntað Big-bandið hefur beðiö umaðfá hér einn mánudag i hverjum mánuði og það er ný- farinn frá mér maður frá Jazz- vakningu sem var að leita hóf- anna um tónleikaaðstöðu fyrir einhverja útlendinga. Svo það er ekkert hik á okkur.” — Nú fréttist lika aðfatareglur yrðu hertar. „Ja, hertar og ekki hertar. Þaö hefur alltaf veriö lagt nokkuð upp úrþvihér að fólk sé þokkalega út- litandi, en við getum auðvitað ekki ráðið þvi hvaða föt fólk kaupir sér út i búð. Auövitaö eru til takmörk, fólk má ekki vaða hér inn á drullugum klofstigvél- um, það er ljóst. Hins vegar erum við að skipta um teppi hér á salnum og dytta að hinu og þessu, „sjæna” staöinn dálitið tú.” — Enn hefur heyrst aö leður- jakkar verði ekki framar gjald- gengur fatnaður á Borgina? „Leður jakkar? Hvað er að heyra” Ég veit ekki betur en leðurjakkar séu dýrustu flíkur sem hægt er að kaupa. Ég segi fyrir mig, ég vildi gjarnan eiga leðurjakka!” — Hótel Borg hefur haft sér- stöðu meðal skemmtistaðanna i Reykjavik... „Já, já.” — Þið ætlið að reyna að halda þeirri sérstöðu? , ,Já, skilyrðislaust. A fundinum sem ég minntist á áðan kom fram mikill áhugi meöal starfsfólksins á að hafa reksturinn sem bestan, þvi þetta er nú einu sinni okkar lifibrauð.” —*j-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.