Tíminn - 20.09.1981, Page 3
Sunnudagur 20. september 1981
3
misjafnan hátt. 1 upphafi leiksins
er Súpermann hetja stráksins, en
þetta er vaxandi einstaklingur, og
er liður á leikinn veröur hlutverk
ofurmennisins veigaminna. Hann
er rétt eins og önnur börn, þótt
ekki geti hann hlaupið.
Leikhópurinn sagðist litið hafa-
þekkt til málefna fatlaðra þegar
verkiö var tekiö til æfinga, en að
þau hefðu reynt að kynna sér þau
eftir föngum, m.a. hafa fatlaðir
fylgst með æfingum á leikritinu.
I tilefni af þessu, og svo bara af
sjálfsögðum mannréttindaá-
stæðum, hafa nú veriö rýmdar
burt tvær sætaraðir i miðjum á-
horfendasal Hafnarbiós — þar er
nú pláss fyrir um 10 hjólastóla.
Að auki eru tvær sýningar i
æfingu — Arnar Jónsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir leika saman i
tveggja manna leikriti eftir
dönsku skáldkonunna Vitu
Andersen, Elskaðu mig. Þau eru
ungt skrifstofufólk sem býr
saman og eru í leit aö hamingju
og ást. Þau gera mismunandi
væntingar til hvors annars, og sú
spurning vaknar hvort þau hafi
farið réttar leiðir hingað til.Blm.
spuröi með semingi hvort þarna
færi vandamálaleikrit. Arnar
Jónsson svaraði að bragði að
þetta væri „bráðskemmtilegt á-
takaleikrit”.
Úlfur Hjörvar þýðir Elskaöu
mig, Sigrún Valbergsdóttir leik-
stýrir, og frumsýning verður
væntanlega 18da október.
„Loot” heitir leikrit sem menn
hafa beðið með óþreyju i mörg ár,
en ekki fengið að sjá vegna tækni-
legra örðugleika. Illur fengur
heitir það i meðförum Alþýöu-
leikhússins, sem hyggst frum-
sýna það 7da nóvember i þýðingu
Sverris H ó lm a r s s o n a r .
Höfundurinn er Joe heitinn Orton,
sem i eina tið skaut enskum leik-
hússgestum skelk i bringu. Þetta
er kolsvartur farsi —undarlegir
og hryllilegir atburöir gerast á
ofurvenjulegu bresku milli-
stéttarheimili, t.a.m. morð og
sifjaspell. A yfirborðinu er allt
slétt og fellt en undir niöri
kraumar spilling og viðbjóður.
Nokkrar þreifingar standa enn
yfir um leikstjóra.
Jón Kígóði
frá Holtamó
I november færir barnahópur-
inn upp leikrit fyrir krakka á for-
skólaaldri, það verður farand-
sýning, en um verkefnaval er enn
allt á huldu.
Alþýðuleikarar vildu ekki láta
mikið uppi um það sem sýnt
veröur eftir jól — enda mun þaö
allt á umræðustiginu ennþá. Don
Quijote.eða Jón Kígóði frá Holta-
mó og Sanko vinur hans, er leik-
gerð á sigildri sögu Cervantes eft-
ir James Saunders sem Karl Guð-
mundsson þýöir. Frumsýning er
fyrirhuguð i janúar.
Franz Xavier Kroetz er okkur
kunnur af „Að sjá til þin maður”,
sem sýnt var i Iðnó i fyrra. Hann
er annars afkastamesta og
þekktasta leikskáld af yngri kyn-
slóð i Þýskalandi og róttækur
mjög. Alþýöuleikhúsið sýnir i
febrúar Hvorki fugl né fiskur
—„Nicht Fisch noc Fleisch”, eitt
nýjasta verk Kroetz þessa.
tslensk leikrit sitja ekki heldur
á hakanum hjá Alþýöuleikhúsinu
i vetur — Þjóðhátið, áður ósýnt
leikrit eftir Guömund Steinsson
veröur væntanlega sett upp um
jólin. Auk þess situr Ólafur
Haukur Simonarson við skriftir á
vegum leikhússins.
Stjórnleysingi ferst af slys-
förum eftir Dario Fo verður
endurupptekinn frá fyrra leikári i
október, en nú sýndur á mið-
nætursýningum. Blm. spurði
hvort það væri meiri bróðavon
svo siðla kvölds þvi var svarað til
að ar teldu þau sig ná i nokkuð
annað públikum, m.a. fólk sem
trauöla á heimangengt vegna
vinnu eða barna.
Afsláttarkort
A aðrar sýningar en barna- og
unglinga, sem eru niðurgreiddar
eins og mjólkin, býöur Alþýðu-
leikhúsið upp á afsláttarkort, sem
gilda fyrir tvo og slá 50% af miða-
verði. Verð kortanna er 200
krónur.
Ennfremur er rétt að geta þess
að leikhópum gefst kostur á að
taka Hafnarbió á leigu einstök
kvöld i vetur, það er vist bara aö
slá á þráöinn með góðum fyrir-
vara.
í lok blaðamannafuridarins
snerust umræðurnar á þennan
veg: Meö Hafnarbiói hefur Al-
þýðuleikhúsiö tekið á sig fjár-
hagslegar skuldbindingar og lagt
út i viðameira starf. Það hefur
veriö á hálfgerðum hrakhólum
undanfariö, fólk ekki fengist til að
starfa og þvi hefur vantað eðlilegt
og nauðsynlegt framhald i starfið
— það hefur ekki náð að myndast
viss still eöa stefnumörkun. Leik-
húsið hefur lifað á skammtima-
grundvelli, fra einu verkefni til
annars. Húsiö er ekki stefnumið i
sjálfu sér, mun fremur gerir það
leikhúsinu kleift að halda fastan
kjarna i lengri eða skemmri tima
— þannig ætti að færast einhver
heildarsvipur á starfsemina.
EH
Auglýsið í Tímanum
AÐSTAÐA
BUNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi
NY FERÐASKRIFSTOEA:
Nýir heillandi áfangastaðirí
Vika í Amsterdam: Búiö á lúxushótelinu Hilton eöa notalegu fjölskylduhóteli í
miðborginni. Brottför alla fimmtudaga. Verö frá kr. 3.400.-.,
Amsterdam — París: Tvær skemmtilegar heimsborgir í einni og sömu feröinni.
Búiö á góöum hótelum. 8 dagar. Brottför alla fimmtudaga.
London — Amsterdam: Átta daga feröir, þar sem hægt er aö njóta alls þess
besta sem þessar tvær borgir hafa upp á aö bjóöa. Brottför alla fimmtudaga.
París — Amsterdam — Róm: 15 daga ferö. Brottför 24. sept.
London — Amsterdam — Kaupmannahöfn: 15 dagar. Brottför 17. sept.
Flug og bíll: Innifaliö í veröi feröar eru flugferöirnar til Amsterdam fram og til
baka, bílaleigubíll meö fullum tryggingum og ótakmörkuöum kílómetrafjölda í
heila viku. Brottför alla fimmtudaga. Verö frá (4 saman í bíl) kr. 2.960.-.
Flugfarseðlar til fjarlægra heimsálfa: Vegna hagstæðrar samvinnu viö þýska
„feröaheildsala" getum viö boöiö flugfargjöld meö áætlunarflugfélögum til
flestra heimshluta á ótrúlega hagstæöu veröi. Dæmi Reykjavík— Ástralía, fram
og til baka frá kr. 10.800.-, Reykjavík — Los Angeles, fram og til baka kr.
7.900. -, Reykjavík — Bangkok, fram og til baka kr. 9.700.-, Reykjavík — Tokyo,
fram og til baka kr. 11.400.-, Reykjavík — Rio de Janeiro, fram og til baka kr.
11.900. -, Reykjavík — Johannesburg, fram og til baka kr. 11.200.-.
Viö erum ekki lATA-skrifstofa og höfum því fullt viðskiptafrelsi á alþjóölegum
flugleiðum. Leitiö upplýsinga.
Fluqferðir
Airtour Icéfcujtf
Miðbæjarmarkaðinum 2 h. Aöalatræti 9. Sími 10661.