Tíminn - 20.09.1981, Page 16

Tíminn - 20.09.1981, Page 16
16 SiMiíí;'! Sunnudagur 20. september 1981 m „Sósíalismi án fyllstu lýðrétt- inda fær ekki risið undir nafni” „Alþýðubandalagið er lýðræðislegur sósialista- flokkur” — Svo við litum okkur nær. Hvernig skilgreinir þú Alþýðu- bandalagiðsem stjórnmálaflokk? „Alþýðubandalagið hefur gert skil á sinni stefnu, bæði i ræðu og riti, en ékki siður i stjórnmála- legu starfi. Það er þvi eðlilegast að visa til reynslunnar, þegar skýra á hvaða málstað flokkurinn setur á oddinn og fyrir hverju hann berst. Alþýðubandalagið er aö sjálfsögðu ekki flokkur sem stendur i stað. Flokkurinn tekur breytingum vegna þeirrar um- ræöu, sem fram fer innan hans og vegna breyttra aðstæðna. Al- þýðubandalagið hefur frá upphafi verið lýðræðislegur sósialista- flokkur, og hagað sinum störfum þannig. Það hefur frá upphafi tekið afstöðu gegn þvi stjórnar- fari sem við þekkjum i flokksein- ræðisrikjum. Ég tel Alþýðubandalagið vera róttækan sósialdemókratiskan flokk i ætt við þá flokka, sem hafa gert sig gildandi á Norðurlönd- um, t.d. vinstrihlutinn i sósial- demókratiskum flokkum þar. Hugmyndalega tel ég að Alþýðu- bandalagið standi þeim flokkum nærri, en auðvitað er það fyrst og fremst islenskur stjórnmála- flokkur. Mér finnst það ekki aðeins broslegt, heldur i ætt við örgustu öíugmæli þegar við lesum það ail- oft i hægrisinnuðum málgögnum hér, að Alþýöubandalagið skipi einhvern sérstakan sess, alveg frágreint hinum stjórnmálaflokk- unum þremur, hvað snertir við- horf til lýðræðis. Taliö um „lýð- ræðisflokkana þrjá”, sem á raunar rætur sinar að rekja til þess tima, þegar þessir þrir ógæfusömu flokkar, Fram- sóknarflokkurinn, Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn stóðu að einni ólýðræöislegustu gjörð sem unnin hefur verið á Is- landi, með þvi að kalla hér inn bandariskt herlið árið 1951, eins og ég minntist á hér áöan. Þetta töldu þeir sig gera i nafni þjóöarinnar, gerðu það utan Al- þingis, á leynifundum, án þess að nokkuð væri skeytt um viðhorf þjóðarinnar.” ,,Einn mesti löstur minn hversu mjög ég hef drepið áhugamálum minum á dreif” — Þó að iðnaðarráðherrann Hjörleifur Guttormsson sé önnum kafinn og starfssamur maður, þá hlýtur persónan Hjörleifur að eiga sér einhver áhugamál burt séö frá starfinu. Hver væru þau nú helst? „Ég hef alltaf áll auövelt með aö fylla út i daginn og raunar alltaf fundið fullnægingu i gegn- um starf, og ég hef aldrei haft sérstaka þörf fyrir að leita til- breytingar i efnum sem ekki tengjast starfi, eða þeim áhuga- málum sem hafa runnið saman viö starfið. Þetta þýðir að visu ekki þaö, að mér falli ekki verk úr hendi og að ég hafi ekki gaman af ab hugsa um annaö en skyldan býður. Ég lit nú á það sem einn mesta löst minn, hversu mjög ég hef drepið áhugamálum minum á dreif. Auk félagsstarfa og mála sem tengjast stjórnmálavafstri, og sem hafa lengi fylgt mér, hefi ég mikinn áhuga á bókmenntum, bæði ljóðum og skáldskap, þótt áhuginn hafi i seinni tið hneigst frá skáldsögunni yfir á fræðasvið- ið, en þar á ég við náttúrufræði i viðri merkingu. Auk minnar aöal- greinar, liffræðinnar, þá er mér jarðfræði afar kær og áhugi á henni hefur aukist mjög mikið eftir að heim kom. Skóla- og fræðslumál hafa verið mér hug- leikin en ég kenndi i 8 ár i Nes- kaupstað. Þó að ég sé hættur kennslu, þá tel ég mig ennþá hafa áhuga á skólamálum, og tel að það sé svið sem við þurfum að sinna meira og betur en gert er. Þessu sviði teng- ist áhugi minn á safnamálum, en ég hef skipt mér talsvert af þeim málum eystra. Þegar ég var i Neskaupstaökom ég uþp náttúru- gripasafni þarog tengdi það minu eigin fræðagrúski. En ég tel að saínamál hafi orðið allt ot mikiö útundan þegar fjárveitingar eru annars vegar, og er þeirrar skoð- unar að við ættum að gera stór- átak á þessu sviði, og er ég þá ekki sist með i huga myndarlegt safn á jarðfræðisviði, til þess aö sýna bæði okkar eigin þjóð og þeim sem okkur sækja heim. ,,Fór ef til vill i náttúru- fræðinám vegna heim- spekilegra þanka” „Nú, þetta eru aðeins fáeinir þættir sem tengjast minum áhugamálum. Ég hafði og hef áhuga á málum sem tengjast heimspekilegum vangaveltum. Það var ef til viil öðrum þræði sá áhugi, sem ýtti á eftir þvi að ég fór i náttúrufræðinám. Þar á ég ekki við vonina um að geta leyst lifsgátuna.heldur að fá i gegnum kynni af náttúruvisindum gleggri sýn til mála og gleggri heims- mynd. Eftir á er ég mjög ánægður með það svið sem ég valdi mér sem aöalnámsbraut, þvi náttúru- ■ „Ekki æskilegt að menn verði fræði auðveldar manni sýn til hluta, sem ella eru meira eða minna duldir, þó þeir liggi nánast viö hvert fótmál. Hún auðgar til- veruna, ekki sist úti við og ég tel mig lika hafa orðið svolitið við- sýnni en ella við það að sökkva mér niður i þau fræði. Sem dæmi vil ég nefna þróunarsöguna, þró- unarskeið jaröar og lifs á jörð- inni, sem er ef til vill ekki hvað sist heillandi. Ég tel að maðurinn út af fyrir sig smækki ekkert við að vera lagður við þann tima- kvarða sem áðurnefndri þróun fylgir, en hins vegar verbur okkur enn betur ljóst, hversu stutt mannsævin er, hverstu stutt skeið mannsins á jörðinni er og hversu stórfelldar breytingar hafa átt sér stað á þessu timaskeiði frá þvi lif kviknaði á jörðinni og hversu skeið mannsins er geysilega stutt i samanburði við þann tima. Ég tel að alveg burtséð frá þvi hvaða trúarleg viðhorf menn hafa, hversu miklir efahyggjumenn eða trúmenn menn eru, þá geti menn alveg búið við þá heims- mynd og haft sæmilega siðræna sýn til eigin tilveru og umhverfis, án þess að gera kröfu til þess að ég og þú eigum eitthvað annað en stundina sem við dveljum hér á þessari jörð, sem hlekkir i keðju lifsins. Ég tel að maðurinn geti verið alveg sáttur við tilveru sina jafnvel þó hann hafi enga vissu fyrir öðru og meira en þvi andar- taki sem er hans eigið á þessari jörð, jafn stórkostlegt og fjöl- breytt og þetta lif er, sem við eig- um kost á að lifa hér. Þetta getum við sagt sem búum hérihinum velstæða hluta heims- ins og höfum efni á að velta þess- um hlutum fyrir okkur. Hins vegar eru þau ár sem við lifum, þrungin kannski enn meiri and- stæðum heldur en nokkru sinni fyrr á tið i sögu mannsins, bæði ellidauöir i stjócnmálum.” hvaðsnertirmisskiptingu auðs og andstæður milli rikra og fátækra ogsiðan hina yfirþyrmandi hættu sem tengist gereyðingarstrfði, sem er ef til vill miklu nær en okkur er tamt að hugsa til frá degi til dags.” — Ef við vendum okkar kvæði i kross, þá langar mig til að spyrja þig um heimilishagi þina. Eiginkonan læknir i Neskaupstað „Kona min, Kristin er læknir að mennt, og af þýsku bergi brotin. Við kynntumst ytra á námsárum mlnum og hún fylgdi mér hingað heim. Siðan höfum vib verið bú- sett I Neskaupstað. Þar er okkar heimili, fyrir utan þá verstöð sem við erum stödd i hér.. Kristinhefur starfað sem lækn- ir við Fjórðungssjúkrahúsið i Neskaupstað frá þvi að við kom- um til landsins. Hún hefur kunnað mjög vel við sig þar og kosið að halda þar sinu starfi. Hún gerir það að visu með þeim hætti, að hún getur tekið sér fri, i stað launa fyrir bakvaktir, þannig að hún er hér góðan hluta úr árinu. Við höfum ekki talið timabært að bregða búi fyrir austan eins og komið er, og ég er raunar ekkert á þeirri leið að flytjast þaðan. Þetta er raunar ekki ósvipað og hjá sjómannafjölskyldum, ná- grönnum okkar fyrir austan, sem búa við svipaðar aðstæður og við. Ég á gjarnan langan vinnudag, þannig að eiginkona hefði kannski ekki alltaf mikið af mér að segja á meðan ég er i tvöföldu starfi i stjórnmálunum.” — Hvernig rekur þú heimilið, þegar Kristin kona þin er fyrir austan? Skipuleggur þú matseðil vikunnar, þegar þú ferð til inn- kaupa og sérð þú sjálfur um elda- mennskuna? „Já, þaöer kannski best að fara sem minnst út i þá sálma. Þó að ég hafi sótt tima i æsku i Hús- mæðraskólanum á Hallormsstað, þá komst ég þvi miður aldrei sem námsmaður i eldhúsið þar. En bæði sem stúdent, ókvæntur um tima, og siðan sem útilegumaður á fjöllum, hef ég hlotið að sjá um mig sjálfur i matseld og hún veldur ekki neinum erfiðleikum. Ég kann vel að meta góðan mat og vil helst njóta góðs matar, þó að i litlu sé. Yfirleitt borða ég ekki nema eina máltið aö heitið geti á degi hverjum, — snæði þegar heim kemur frá vinnu. Þessi máltið rennur oft saman við sjón- varpsfréttirnar eða kemur þaðan af siðar. Þá er ég með góða matarlyst eftir að hafa fengið mér sprett i Laugardalnum og skroppið i sund á eftir. Ég reyni að halda þvi sem daglegum þætti, þó að stundum vilji nú út af bregða sökum vinnu. Heimilis- störfin hjá grasekkjumanni eru nú ekki mjög flókin, en ég reyni að láta uppþvottinn ekki safnast fyrir, heldur afgreiða hann jafn- óðum. Svo eru aðstæður hér i svona f jölbýlishúsi (innskot blaðamanns: Hjörleifur býr i fjöl- býlishúsi við Espigerði) góðar að þvi leyti, að hér er þvottahús sameiginlegt, og þar er mjög auð- velt fyrir karlmann að bjarga sér.” „Einmanalegt á köfl- um” — Er svona lif ekki einmana- legt? „Það er nú ekki hægt að neita þvi að lif af þessu tagi er ein- manalegt á köflum. En yfirleitt eru verkefnin það margbrotin og krefjandi að þau skilja ekki mikið eftiraf tima tilað hugsa um slikt. Það þykir nokkuð gott ef að hægt er að næla sér i skikkanlega stund til að sofa, en ég hef raunar aldrei þurft að verja mjög löng- um tima af sólarhringnum i svefn.” ..Fréttamiðlun beinist að mönnum en ekki mál- efnum” — Hvaöa skoðun hefur þú á islenskum fjölmiðlum? „Ég hef ekkert undan sam- skiptum við fjölmiðla að kvarta. Ég hef kynnst mörgum sem við þá starfa og mér h'ka þau kynni á- gætlega. Það er nánast daglega sem einhverjir frá fjölmiðlunum hafa samband við mig til þess að leita eftirfréttum og áliti, þó þeir hafi ekki alltaf erindi sem erfiði. En þrátt fyrir prýðileg samskipti við einstaklingana sem við fjöl- miðlana starfa, þá get ég ekki neitað þvi, að mér finnst f jölmiðl- ar hér, og þá á ég sérstaklega við dagblöðin, þvi ég fylgist i seinni tið sáralftið með rikisfjölmiðlun- um nema þá helst fréttum, ekki rækja sitt hlutverk með þeim hætti sem þau oft og tfðum þyrftu að gera. Mér finnst umræðan i dagblöðunum oft snúast allt of mikið um léttvægar dægurflugur og aukaatriði i þvi sem er að gerast. Þau bera til muna of mikinn svip af samkeppni um markað og sölu. Það er sem sagt verið að lata frétta til að selja. Ég sakna sérstaklega skilmerki- legrar greiningar á ástandi og að- stæðum hverju sinni. Ég geri mér ljóst að aðstæður á islenskum dagblöðum eru oft þannig, að þær leyfa ekki verkaskiptingu eða næði til að fara yfir mál og kryf ja þau með tiiliti til þróunar yfir lengri tima, en óskandi væri að þessi þáttur væriefldur til muna i islenskum blöðum — gagnrýnin fréttamennska og fréttaskýr- ingar. Einstöku sinnum bregður þessu fyrir með ágætum á sfðum blaðanna, en þyrfti að vera mun meira. Eins tel ég að fréttir i blöðum og fréttamölun beinist um of að mönnum en ekki málefnum. Það er verið að leita eftir ágreiningi millimanna, kannski á meðan að mál eru i mótun, og liggja óljóst fyrir. Þannig hafa fjölmiðlarnir að nokkru reyntað gripa inn i rás viðburðanna og búa til atburða- rás á vettvangi stjórnmálanna frá degi til dags. Viö þvi er ef til vill ekkert að segja,enda held ég aðáhrifin séu ekki jafn mikil og fjölmiðlamenn kunna að halda. Ég legg áherslu á, að samskipti á milli þeirra sem eru í ábyrgðar- stöðum og fjölmiðla þurfa að vera góð. Fjölmiðlar eiga heimtingu á þvi að eiga aðgang að þeim sem skipa ábyrgðarstöður, þó svo að þeir sem gegna þeim störfum hverju sinni, þurfi siðan að vega það og meta hverju siimi, hvað þeirkjósa að reiöa fram og segja hverju sinni.” ..Flokkurinn leitast viö að hafa marga með i ráðum” — Ereitthvað hæfti þvi, að for- o

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.