Tíminn - 20.09.1981, Side 20

Tíminn - 20.09.1981, Side 20
E.L. Doctorow: Loon Lake Pan Books 1980 ■ E.L. Doctorow er ábyggi- lega meöal frægustu rithöf- unda i Amerlku oghann hefur kosti þeirra i rikum mæli, en aö sjálfeögöueinnig galla. Hér á Islandi er hann þekktur fyrir Ragtime, viöamikla skáld- sögu sem freistar þess aö sundurgreina heiL timabil I sögu Bandarikjanna, og hér er hann viö nokkuö sama hey- garðshorniö. Þaö er kreppan mikla sem er til umfjöllunar og mannleg örlög i sambandi viö hana. Mannleg örlög eru kært hugöarefni bandariskra rithöfunda, og hér tekst Doctorow vissulega aö draga upp minnisstæöa lýsingu á áhrifum kreppunnar. Doctorow hefur lika löngum þótt kunna aö halda á penna. Þetta erfyrsta bók hans sföan Ragtim e kom út áriö 1975 en alls hefur hann skrifaö fjórar bækur á tuttugu árum og eitt leikrit. Vönduö vinnubrögö einkenna hann enda. THE BÍG KEDWMM X$X A Rid« on tiieTtoiisSibenan Jtoulway WERICNEWBT T»* bwtf Sc'.ííí <4 twvtó íxjcár íjíwAwíiKS tnt>T/ tXtc**v>n tm. ma 5 'Z*? tcfiv i hoti íaýitlerí-’Wstí TMmMx Eric Newby: The Big Red Train Ride. Penguin 1981. ■ Eric Newby er gamal- reyndur æVintýramaöur, stri'öshet ja, blaöamaöur, kaupmaöur og feröalangur af hugsjón um ýmis sviö tilver- unnar. 1977 lagöi hann af staö meö konu sinni og samferöa- langi, Wöndu, ljósmyndara og túlki, i feröalag meö Síberíu- lestinni miklu, sem enn er eina landleiöin yfir þver Sovétrikin — lestarferö upp á næstum 10.000 km sem tekur heila átta daga. Þar eru mörg ljón á veginum fyrir útlenskan feröalang, litt sveigjanleg yfirvöld, veörahamur, lokaöar borgir, léleg þjónusta. Reyndar er Newby á köflum hálfgeröur nöldurseggur, eins og titt er um Englendinga á feröalagi, hefur allt á hornum sér,skort á mat og einkum þó drykk. En svört kimnigáfa hans bætir þaö upp. Feröa- saga Newbys er uppfull af skemmtilegum smáatriöum um lifiö i viöáttum Sovétrikj- anna, þótt heildarmyndin sé heldur kuldaleg. Hérá siöunni höfum viö áöur lofaö feröa- langa sem feröast án fyrir- heits, Newby er einn þeirra. James Morris: Heaven’s Command. Penguin 1981 ■ Fyrir nokkrum árum tróð höfundurinn, James Morris, upp í viötalssjóöi Dick Cavetts, þá undir nafninu Jan — hann/hún gekkst nefnilega undir kynskipti meöan á samningu þessarar bókar stóö. Enn var þaö þó James þegar hann tók þátt i frægöar- ferö Hunts á Everest-fjall i eina tiö. James, afkastamikill blaöamaöur og rithöfundur, vann lengi að samningu þess- arar trilógiu um breska heimsveldið. „Heaven’s Command” er fyrsta bindið, annaö bindiö fjallar um heimsveldiö á hátindi um aldamótin, það þriöja um hnignun þess og éndar á and- láti Churchills 1965. Það var á óralangri stjórnartiö Viktoríu aö allt geröist, bókin hefst á krýningu hennar, stelpu- krakka, 1837, og lýkur á demantsafmæli drottningar- innar 1897, þegar sólin gekk aldrei til viöar i rikinu. Afbragös mynd af Bretlandi og breskum á sjálfbyrgings- legu vaxtarskeiði — læsileg, fróöleg og þokkafull bök. Kannski þó I lengsta lagi.... Wendy Leigh: What Makes a Man GIB? Granada 1981. ■Brennandi spurning: Hvaö er þaö aö vera GIB? Good in bed, góöur i rúminu. Karl- peningurinn er hér undir smá- sjá, hliöstæö bók um bólfarir kvenna kom út fyrir nokkrum árum. Þaö eru stjörnur, bæöi kven- og karlkyns sem svara fyrir sig af misjafnri hrein- skilni — helstir karlanna eru Richard Burton, Helmut Berger, Andy Warhöl. Af kon- unum — Barbara Cartland, Geraldine Chaplin, Debbie Harry, og önnur viðlika kyn- tákn. Svo er lika leitaö svara hjá sérfræöingum, kynlifs- könnuöum, og gjörkunnugum — nefniiega mellum og dólg- um. Höfundurinn, kona með rósrauöar eggjandi varir, til- einkar bókina öldruöu kyn- tákni, Zsa Zsa Gabor sjálfri. Satt aö segja lyktar þetta allt meira af peningum en kynlifi. Hvernig eiga karlmenn svo aö bera sig aö i bólinu? Vera bliðirog góöir, fautaskapur og mannalæti eru ekki lengur i tisku.... ■ Bækurnar hér aö ofan eru fengnar hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Samviskuleysi og undirgefni Hannah Arendt: Eichmann in Jerusalem — A Report on the Banality of Evil Penguin 1979 Hver var Adolf Eichmann sem stóö fyrir rétti i Jerúsalem áriö 1961? Nasistaböðull, erkifjandi Gyöinga, djöfull i mannsmynd? Þessum spurningum veltir Hann- ah Arendt fyrir sér i þessari frægu bók en hún fylgdist mjög náiö meö réttarhöldunum fyrir The New Yorker. Annars er Hannah Arendt, eða var þvi hún lést áriö 1975, merkileg fyrir sitt leyti. Hún fæddist i Hanover i Þýskalandi árið 1906, Gyöingur, dóttir vélfræðings. Hún var námshestur i besta lagi, lagði fyrir sig heimspeki og náði doktorsgráðu i þeirri grein ekki nema tuttugu og tveggja ára gömul. Stúderaði með Heidegger og Jaspers i Heidelberg. Þegar Hitler komst til valda árið 1933 flutti hún úr landi og settist, aö lyktum, að i Bandarikjunum. Bandarikjamenn tóku henni ekki nema miðlungi vel, og varla það, en smátt og smátt komst hún þó til þeirra metorða sem henni bar. Hún var prófessor við ótal há- skóla, eftirsóttur fyrirlesari og áhrifamikill rithöfundur. Hún skrifaði margar bækur — auk þeirrar sem hér er nefnd vakti The Origins of Totalitarianism hvaö mesta athygli á sinum tima en hún kom út árið 1951. Þar freistar Arendt þess að grafast fyrir um rætur alræðis, i hvaða mynd sem það birtist, og kenn- ingarhennar höfðu gifurleg áhrif. En væntanlega, þó of snemmt sé aö fullyrða nokkuð um þaö, veröur Eichmann in Jerusalem sú bóka hennar sem eftir stendur. Já, hver var Adólf Eichmann? Þessi bók er reyndar fjarskalega vel skrifuö, ágætlega uppbyggö og stiluö — hún vippar sér létti- lega milli réttarhaldanna sjálfra og til sögu Gyðingaofsóknanna og fipast hvergi. Hún gagnrýnir á lágværan en áhrifamikinn hátt þann tilgang sem leiötogar Isra- elsrikis — fyrst og fremst Daviö Bengúrion — sáu með þessum réttarhöldum, sem var að leiða loks i ljós allan sannleikann um útrýmingarbúöirnasista.en siður aö finna út hvort og þá hvað hinn ákæröi Eichmann hafði gert rangt. Þá snýr hún sér að þvi að kanna hvers vegna ofurvenjuleg- ir menn eins og Eichmann, þvi Eichmann var enginn djöfull i mannsmynd, samþykktu möglunarlaust að taka þátt i og stjórna morðum á milljónum manna. Það er ekkert dularfullt, mystiskt eða heillandi viö þá „illsku” — Eichmann var bara þannig af guði gerður að hann var samviskulaus og gat ekki, ef rétt var að honum farið, séð neitt rangt viö það sem hann var að gera. Lýsing Arendt á Eichmann er geysimögnuð og, þrátt fyrir allt, sympatisk að þvi marki að húnreyniraðskilja hann til hlitar i staö þess að úthrópa hann frá upphafi sem margnefndan djöful i mannsmynd. 1648 af 476.000 komust af Einna ónotalegust verður bókin þegar Arendt fjallar um undir- gefni kynbræðra sinna við nasista — jafnvel eftir að fullljóst varð hvað á seyði væri — fjöldamorð svo hryllileg að þess eru fá dæmi fyrr eða siðar. Gyðingaleiðtogar höfðu samvinnu við nasista, sáu um að safna Gyðingunum saman, .ákveða hverjir skyldu fluttir hvenær til Auschwitz og annarra áiika staða, það var Gyðingalög- regla sem elti uppi alla þá sem reyndu að komast undan og þær lögreglusveitir reyndust oft vera enn miskunnarlausari og grimm- ari en almennir þýskir hermenn. Eftir striö hafa Gyðingar þeir sem samstarf áttu við Þjóðverja jafnan haldið þvi fram að þeir hafi ekki átt annars úrkosti, allir heföu verið drepnir hvort eð væri og svo framvegis. Hannah Arendt sannar svo ekki verður um villst aö vist áttu Gyðingaleiðtogarnir annars úrkosti. Óhugnanlegt er dæmið af Dr. Kastner, Gyðinga- leiötoga Ungverjalands, en hann var eftir striö ásakaður fyrir aö hafa ekki hvatt Gyðinga til að flýja en þess i stað unnið sam- viskusamlega fyrir Þjóöverja við aö gera fjöldamorðin auðveldari. Kastner svaraöi aö hann hafi i raun veriö að reyna að bjarga Gyðingunum og tekist að koma mörgum undan. „Auk þess”, sagði hann, „voru fimmtiu prósent þeirra sem reyndu að flýja, handtekin aftur og drepin”. 50% er hátt hlutfall i þessu sam- bandi —■ af þeim 476 þúsundum Gyðinga sem Dr. Kastner hafði afskipti af komust aðeins 1.684 af... Og Hannah Arendt sýnir hvernig Gyöingaleiðtogarnir nutu valdsins sem nasistarnir færðu þeim upp i hendurnar, þó svo þeir hafi vitað að á endanum yrði þeir sjálfir fluttir á brott og kæmu aldrei aftur. Bók Hönnuh Arendt er alger- lega ómetanleg heimild um Adólf Eichmann, það þjóðfélag sem skapaði hann, hugarfar nasista- leiðtoganna og stjórnenda útrým- ingarbúðanna, um Gyðingaof- sóknirnar sjálfar og undirgefni Gyðinga og um hina hallærislegu illsku, samviskuleysið og hvert það getur leitt. Bókin hefur sist glatað mikilvægi sinu þó tuttugu ár séu siöan ruglaður Eichmann stóð fyrir rétti. —jj. Osborne hættur að vera reiður — Slúður um leikritahöfund ■ Þaö vöktu fá leikrit meiri at- hygli á sjötta áratugnum en „Horföu reiöur um öxl” eftir John Osborne. Ot frá þvi' var myndaöur frasinn „reiöur, ungur maöur” — maöur sem er reiöur út i umhverfi sitt, þjóöfélagiö ogsvo framvegis. Vill breytingar en veit ekki almennilega hvernig breytingar né hvernig á aö koma þeim i kring. Breskur blaöa- maður ræddi nýlega viö Osborne og þá lét hann litið af „Horfðu reiöur um öx.”. ,,Ég er þakklátur þessu leikriti fyriraö hafa borgaö leiguna mi'na i tuttugu og fimm ár,” sagöi hann. Hann er nú fimmtugur, kannski ekki máttarstólpi þjóö- félagsins en allt aö þvi og veröur irriteraöur þegar nafn hans er eingöngu tengtviö „Horföu reiöur um öxl” þegar staöreyndin er sú að hann hefur skrifað 30 önnur leikritog kvikmyndahandrit, „og sum þeirra eru miklu betri en þetta fyrsta leikrit mitt,” segir hann. Þaö leynir sér samt ekki aö honum þykir nokkuö til um sivin- sældir þessa margumtalaöa leik- rits: „Þaö er enn veriö aö sýna gamla brýniö ánhvers staðar upp á hvern einasta dag. Síðast var veriö aö frumsýna þaö i New York. Amerikanar eru alltaf á eftir, en þeir hafa aö minnsta kosti ekki falliöiþá gryfjuaöfara meö þaö eins og sagnfræöi.” Osborne er um þessar mundir aö skrifa æviminningar sinar og hann telur engin tormerki á þvi aö hann súi sér brátt að skáld: sagnagerðHann segir aö i sér hafi ætiö blundað dálitill púritani sem fengiö hafi nokkra útrás i leikrit- inu Lúter, en það var sýnt i is- lenska sjónvarpinu, vetur sem leiö. „Lúter var augljóst dæmi um þennan púritanisma, augljósasta dæmiö þar til kom aö „Júdasi”. Ég gæti sest niöur og skrifað „Júdas” á morgun en timinn er ekki réttur. „Júdas” er um þá til- finningu sem er rik i fólki sem nú er komiö á miöjan — sem sé aö þaö hafi veriö svikiö. Þessu fdlki likar hræöilega illa viö unga fólkiö og, auövitaö, svertingja. Enég held aö þeir sem raunveru- lega hafa komist til fullorðnisára finnist sér aldrei ógnað á þennan hátt.” John Osborne viöurkennir fús- lega aö hann er ekki „reiöur, ungur maður” lengur — enda væri það út i hött, hvað sem allri rómantik liður. „Þegar dóttir min kemur heim og segir mér brandarana sem ggfga I skólanum þá sé ég aö á hennar aldri hefði ég ekki skilið þá. Ég tilheyri eldri kynslóðinni núna.” Hann hló aö þessari tilhugsun og bauð blaðamanninum meira kampavin. Osborne er kominn meö blómabindi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.