Tíminn - 20.09.1981, Page 21
Sunnudagur 20. september 1981
■ Bækurnar hér aö ofan eru fengnar hjá Bókabúö Máls og
menningar.
Stanislaw Lem:
Solaris, The Chain of Chain, A
Perfect Vacuum
Penguin (King Penguin) 1981
■ Visindaskáldskapur verður
æ vinsælli nú til dags, ég veit
ekki hvaö þeir heita allir
þessir amerisku rithöfundar
sem rita æsilegar Hvell -
Geira-sögur um undarlega
heima handan geimsins. en.bá
mega þeir ekki gíeymast sem
hrintu þessari bdkmennta-
grein úr vör — H.G. Welles,
JulesVerne, Edgar Allan Poe
og fleiri og fleiri. Nú orðiö
getur Stanislaw Lem væntan-
lega talist i þeirra hópi þó
hann hafi ekki byr jaö að skrifa
sögur fyrr en f seinna striös
lok. Ég er ekki vel aö mér i
afkimum „science-fiction”
bóka en hygg óhætt að segja
sögur Lems allf rábrugönar
hinni amensku gerð i ýmsum
atriðum.Maöurinn erPólverji
og sögur hans einhvern veginn
blæbrigöarikari, mannlegri en
gerast mun og ganga um hinar
nýjustu þessarar tegundar.
Sögurnar þrjár eru allar
áhugaverðar, en aðgengi-
legar, kvikmyndaunnendur
munu vita aö eftir Sólaris
hefur veriö gerö fræg sovésk
kvikmynd.
ALLBEURY
■Tnibaelassiewnter
ef esoietiags íletton-
t£SCf!6ST8«
Denis Mack Smith:
Mussolini’s Roman Empire
Penguin/Peregrine 1979.
■ Hver varMússólini? — það
má finna svar viö þvi. En
hvers vegna komst hann til
valda á ítaliu, hvers vegna
hélt hann völdunum, hvert
vildi hann stefna og hvað fólst
i fasisma hans — ný fram-
tiöarskipan eða einungis nýtt
Rdmarveldi? Mússolini hefur
oft verið afgreiddur i helstil
miklum fljótheitum af nútíma
sagnfræðingum — hann var
vúlgar ruddi sem náöi völdum
eiginlega af tilviljun og hélt
þeim með haröstjdrn og
blekkingum. baö er því ekki
litils um vert að kynnast hér
hinum raunverulega Mússó-
líni — sem að sönnu á flest
sameiginlegt með hinum æp-
andi II Duce sem við þekkjum
best. Mack Smith þykir vera
mikið átóritet um Italska sögu
og ekki ástæða til að efast um
það eftirlestur þessarar bókar
— hún brýtur fasistaleiðtog-
ann ogþað sem hann stóð fyrir
til mergjar, en er jafnframt
skrifuð á ákaflega fáguöu og
vönduöu máli.
George Orwell:
Decline of English Murder
and Other Essays
Penguin 1980.
■ Orwell (réttu nafni Eric
Blair) var ekki einvöröungu
höfundur kómiskra, en ógn-
vekjandi, framtiðarskáld-
sagna einsogAnimal Farm og
1984. Hann var jú kommúnisti,
að minnsta kosti framan af, og
átti sér þann metnað að um-
bylta pólitiskum skrifum yfir i
list. Það er sagt hafa tekist
ósjaldan. I þessu ritgerðahefti
ber að visu dcki mikiö á póli-
tiskum hugðarefnum Orwells
— nema I bakgrunni — uppi-
staðan eru langar ritgerðir um
Rudyard Kipling og Charles
Dickens, góðar en segja eins
og vanalega meira um rit-
skýrandann en rithöfundinn.
Hann fjallar um Salvador
Dali, málara, áður en sá varð
stofnun og i hæðnislegri smá-
grein syrgir hann hnignun
enskra morðingja, sem farin
er aðógna News of the World-
lestri miðstéttarinnar á
sunnudagseftirmiðdögum.
Allir sem vilja kynnast Orwell
náið ættu aö lesa þessar (og
aðrar) greinar hans, hinum
eru þær einnig góð skemmtun.
Ted Allbeury:
TheTwentieth Day of January
Granada 1980
® Ted Allbeury er enskur i
húð og hár, starfaði i leyni-
þjónustunni til skamms tima
og gerir sér nú mat Ur þvi eins
og gengur. Enskir leyniþjón-
ustumenn komast, næsta
óvænt, á snoðir um eitt mikið
samsæri sem hinir illskeyttu
RUssar standa fyrir og teygir
anga sina viða, alla leið i
æðsta embætti Bandarikjanna
— forsetaembættið. Hver er
maðurinn sem tuttugasta dag
janúarmánaðar mun taka við
þessu embætti? Getur það
verið aö hann sé sovéskur
njósnari? I ljds kemur aö það
getur meir en verið. Hug-
myndaauðgin er aðal All-
beurys sem reyfarahöfundar,
hann ritar hraðan og töluvert
meitlaðan stíl en ekki frum-
legan. Þessi bók er núti'ma-
reyfari.
iitiil’ll1'11 *
21
ISMOLAR 0,.?*k°9 JSl
t/./y
1. Látið vatnlð
renna i gegn um
trektina, í pokann.
2. Rúllið trekt-
innl upp!
Bindið hnút.
3. Setjlð pok-
ann f frystlnn
4. Loslð fsmolana
með þvf að
/sta þelm út.
PLASTPOKAR
O 82655
Einkaumboö á Islandi
M<i.?í.o.s lil*
PLASTPOKAR
O 82655
□ □□□□
RAFGEYMAR
Tudor rafgeymar
— meó 9 líf.
Já i dag opnum við TUDOR rafgeymaþjónustu
okkarað Laugavegi 180(gamla bónstöðin).
Við bjóðum viðskiptavinum okkar stórbætta
þjónustu, rýmra húsnæði og jafnvel kaffi
meðan við skiptum um rafgeyminn.
Laugaveg 180, simi 84160.