Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 7
Sunnudagur 15. nóvember 1981 Hjúkrunarkonan marggifta og Truscott frá vatnsveitunni talast vift. Arnar Jónsson og Helga Jónsdóttir. varsettá sviö, hitt vissu þó fæstir aö þarhéltOrton sjálfur á penna. Stjórnin — ofjarlar ykkar í geðveiki Meö Loot leikritinu sem Al- þýöuleikhúsiö sýnir nú undir nafninu Illur fengursló Joe Orton loks í gegn svo um munaði. Fyrsta uppfærslan i Wimbledon 1965 varð að visu ekki langlif. Mörgum fannst höfundurinn ganga of langt,hann væri hrein- lega gersneyddur öllum smekk og fágun. Ensýningin i London áriö eftir undir stjórn Charles Marowitz var mikill sigur. Fyrir Orton þýddi Loot bæöi velgengni og peninga, hann seldi kvik- myndaréttinn fyrirof fjár og naut frægðarinnar fram i fingurgóma. EnHalliwellsá ofsjónum yfirvel- gengni ástmannsins,geröist þung- lyndur og uppstökkur og reyndi tvivegis að fýrirfara sér. Mörgum vinum þeirra fannst eins og ein- hver ógæfa væri yfirvofandi. Orton hélt þó lengst af fullri tryggö við Halliwell. Sjónvarpsleikritið The Good and Faithful Servant frá 1967 fjallar um verkamann sem er varpað út i' kuldann eftir fimmtiu ára þjónustu við sama fyrirtæki. Leikritið er skrifað af reiði og vanþóknun og i þetta eina skipti sýnir Orton að hann er á bandi þeirra sem verða undir i hörðum heimi. Annað sjónvarp6leikrit, Funeral Games sem sýnt var 1968, fjallar eins og Loot á létt- vægan hátt um dauða og kristi- legan tviskinnung. Erpingham- búðirnar frá 1967 er stutt leikrit um uppreisn á sumarleyfisbúðum þar sem fasiskur gangur er á öll- um málum. 1967 var Ortoneinnig beöinn að semja handrit aö fyrir- hugaöri kvikmynd Bitlanna, sem þá voru kóngar i riki friðar og blóma. Vitaskuld átti kvikmyndin að vera fyndin og fjörug, en kimnigáfa Orton reyndist helsti tvieggjuö fyrir fjórmenningana frábæru. Handritið Up Against It hefur þó veriö gefiö út á bók. Orton entist ekki lif til aö sjá siöasta verk sitt á leiksviöi — What the Butler Saw frumsýnt 1969. Sumir telja það meistara- verk hans/öðrum finnst að þar taki hanr. loks út yfir allan þjófa- bálk. Leikritið gerist á vitlausra- spitala þarsem starfsliðið er mun geðveikara en sjúklingarnir. M.a. er lagt i munn eins læknisins: ,,Ég er fulltrúi stjórnar hennar hátignar/Ofjarlykkar i geöveiki”. Orton er sifellt að gera gys að dauðanum, næstum storka hon- um. begar hans eigin dauða bar siöan að með svo vofveiflegum hætti, fóru menn aö lesa verk hans eins og fyrirboða.ekki varð annað hægt en að horfast beint i augu við alvöruþungann sem i þeimlá frá upphafi. Orton sjálfur hélt þvi stöðugt fram að hann skrifaði aöeins sannleikann. Þótt ekki kæmi hann miklu i verk á stuttri ævi, aðeins sjö leikritum sem mark er á takandi og einni skáldsögu, Head to Toesem gefin var út eftir dauða hans, er það fyllilega nægilegt til aö halda hæfni hans á lofti sem einhvers færasta og sérkennilegasta leik- skálds f endurreisn bresks leik- húss á sjöunda áratugnum. Loot eða Illur fengur t Illum feng gerir Orton sér mat úr flestu því sem er heilagt i vitund samfélagsins — dauðan- um, trúarbrögðunum og einkum og séri'lagi yfirvöldum og lög- reglu. Aköflum er eins og hann sé að ná sér niðriá löggæslunni fyrir fangelsisvistina 1962. Leikurinn hefst á þvi að sómakær kaþólikki McLeavy, hyggst koma konu sinni nýlátinni i gröfina á viðeig- andi hátt. Likkistan stendur siðan á sviðinu mestallt leikritið. Hjúkrunarkona eiginkonunnar sem hefur átt sjö eiginmenn á jafnmörgum árum, reynir að bragði að festa sér hann i' hjóna- band. Sonurinn, Hal, hefur lika óhreint mjöl í pokahominu, tvi- skinnungurinn f fari hans er undirstrikaður með þvi að honum er ókleift aö ljúga. Fyrr en varir er kominn óboðinn gestur inn á heimilið. frakkaklæddur maður með hatt sem segist koma frá vatnsveitunni. Þó dylst engum áhorfanda að þarna er á ferðinni laganna vörður. Truscott þessi er eins og gangandi safn af of- notuðum klisjum úr lögreglusög- um og 1 þokkabót heimskur og hugvitsamur, i senn spilltur og ruddalegur. Misræmið milli þess sem persónurnar segja og gera er him inhrópandi og það er engin tilviljun að í lokin hlýtur sá eini sem trúir á heiðarleika og réttlæti makleg málagjöld. Þetta er gallsvartur farsi. svartagallsleikrit eins og flest verk Ortons. Hann er fram úr hófi illkvittinn og tekur áhorfendur óblBum tökum. Þess er kannski ekki að vænta að áhorfendur módel ’81 láti hann slá sig út af laginu og hneykslist. Enhins veg- ar má sá hafa harða skel sem ekki sér að undir farsanum býr djúp alvara og vandlæting. Snilli Ortons þykir einkum felast 1 harðsnúnum orðræðum og reynslan hefur sýnt að Illan feng skuli leika á sem raunveruleg- astan hátt,fáránleikinn sem býr I textanum og uppákomunum sé látinn tala sinu máli. Orton skrif- ar af þeirri sannfæringu sinni að fóík sé „óforbetranlega slæmt, en óumræftaniega fyndift”...._ VEUN ANDfl OGHÚN PARF HREINT LOFT í andrúmsloftinu eru alls kyns óhreinindi, sem fara inn um loftinntakið á dráttarvélinni, og valda því aö hún vinnur ekki nógu vel. Viðhaldskostnaðurinn eykst, eldsneytiseyðslan veröur meiri og það þarf að skipta oftar um loftsíur. Vélin þolir nefnilega ekki mengun! Lausnin er TURBO II lofthreinsitæki. TURBO II lofthreinsitæki vinnur á sama hátt og skil- vinda. Loftið sogast inn, og spaöarnir (loftknúnir — í því er galdurinn fólginn) snúast og skilja ryk, vætu, snjó og önnur óhreinindi frá loftinu sem dráttarvélin þarfnast. TURBO II er sjálfhreinsandi. TURBO II hentar öllum (þeir ætla aö fá sér TURBO II í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Þarf frekar vitnanna við? ?) DRA TTARVELIN ÞÍN ÞARF HREINT LOFT, EIGI HENNI ADUDA VEL Yækjasalan hf .....tæki í takt við tímann. Pósthólf 21 202 Kópavogi S 91-78210

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.