Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 19
Sunnudagur 15. nóvember 1981
-lyiro________________________________19
á bókamarkaði . •• '; • • -’rG
SÓLFAR
Guðmundur Irgi Kristjánsson
®Þetta er fimmta ljóðabik
Guömundar Inga Kristjánssonar
bónda á Kirkjubóli i Bjarnardal i
önundarfirði, en hann varð þjóð-
kunnur strax af fyrstu bók sinni
1938 og hefur siðan verið i fremstu
röðislenskra skálda. Fyrri bækur
Guðmundar eru: Sólstafir (1938),
Sólbráð (1945), Sóldögg (1958) og
Sólborgir (1963).
Um skáldskap höfundar segir á
bókarkápu „Guðmundur Ingi er
fulltrúi sveitalifs og bændamenn-
ingar á islensku skáldþingi. Ljóð
hans eru sérstæð og listræn, ný-
stárleg en þó hluti af aldagömlum
arfi Islendinga. Skáldið kveður
stuðlaðar lofgjörðir um lif og
gróður, menntir og samhygð,”
Sólfar er 113 bls. að stærð og
hefur að geyma 52 kvæði. Sigurð-
ur örn Brynjólfsson gerði kápu,
en bókin er sett, prentuð og bund-
in i Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Spellvirki
■ Út er komin hjá Almenna bóka-
félaginu ný skáldsaga eftir Jón
Dan. Nefnist hdn Spellvirki og
segir frá unglingi sem lendir i
vandræðum. Bókin er kynnt
þannig:
,,Ný skáldsaga eftir Jón Dan,
raunsönn, spennandi, um eitt af
brýnustu vandamálum samtim-
ans.
Unglingur við erfiðar aðstæður
og misrétti beittur lendir i hræði-
legum vanda þegar hann missir
stjórn á sjálfum sér á örlagastund
— og fremur spellvirki.
Hvað er til ráða?”
Spellvirki er gefin út i pappirs-
kilju 157 bls. að stærð. Bókin er
unnin i Prentsmiðju Arna
Valdemarssonar og Bókbands-
stofunni örkinni.
Skrifað í skýin
SKBJFAÐj
SKYIN \
JÓHANNESR SNORRASON
Úter komin hjá Almenna bóka-
félaginu bókin Skrifað i skýin eft-
ir Jóhannes R. Snorrason flug-
stjóra. Þetta er æsku- og flugsaga
höfundarins, hefst vestur á Flat-
eyri og endar áriö 1946, þegar
fastur grundvöllur hefur verið
lagður að áætlunarflugi innan-
lands og hafið er farþegaflug til
útlanda, en Jóhannes R. Snorra-
son var einn af aðalfrumherjun-
um í hvoru tveggja.
Skrifað i skýiner kynnt þannig
á bókarkápu:
„Jóhannes R. Snorrason býður
okkur fram i flugstjórnarklefa.
Og það er ekki einn flugst jórnar-
klefi, heldur margir, og við fljúg-
um ýmist i sólskini eða kolsvört-
um skýjum og illviðrum.
Nú er flugtæknin háþróuö, en i
upphafi flugferils Jóhannesar var
hún þaö ekki. Þá var flugiö ævin-
týri likast.
Þessi bók er fyrri hluti flugsögu
Jóhannesar. Fyrst segir hann frá
viðburöarikum bernskuárum á
Flateyri viö önunarfjörð og svo
enn viðburðarrikari unglingsár-
um norður á Akureyri. Siðan
hefst fhigsagansjálf ímBju striði
og endar á þessu bindi 1946
þegar Jóhannes er nýbúinn að
fljúga fyrstu farþegaflugin frá Is-
landi til Skotlands og megin-
landsins og ferjá tvo Katalínu-
flugbáta hingað frá Ameriku yfir
Grænland i illviðrum um hávet-
ur.’ ’
Skrifað i skýin er 266 bls. að
stærðauk 37 myndasiðna með um
70 myndum frá æskuárum höf-
undar og þó einkum frá fyrstu ár-
um fhigferils hans, ýnsum mjög
mikilvægum fyrir flugsögu lands-
ins.
Skrifað i skýiner unnin i Prent-
smiðju Arna Valdemarssonar og
Bókbandsstofunni örkinni.
,Kátt er í
Krummavík
Mignea frá Kkifum
KÁTT ER í
■ út er komin hjá Iðunni ný
barnabók eftir Magneu frá Kleif-
um og nefnist hún Kátt er i
Krummavik. Þetta er sjálfstætt
framhald sögunnar Krakkarnir i
Krummaviksem út kom i' fyrra.
Magnea frá Kleifum hefur samið
allmargar barnasögur, þar á
meöal eru sögurnar um Hönnu
Marfu. — Nýja bókin, Kátt er i
Krummavik, er myndskreytt af
Sigrúnu Eldjárnog er kápumynd
einnig eftir hana.
Um efni sögunnar segir svo á
kápubaki: ,,Nú er aöalpersónan
frændi krakkanna i Krummavik,
Danni, sem lika kom við sögu i
fyrri bókinniog á heima i Reykja-
vik. Hann fær að vera hjá frænd-
fólki sínu um sumartima og sú
dvöl reynist mikið ævintýri.”
Kátt er I Krummavík er 137
blaðsiður. Prisma prentaði.
Sætir strákar
■ IÐUNN hefur gefið út nýja
skáldsögu eftir Magneu J.
Matthiasdóttur og nefnist hún
Sætir strákar. Þetta er þriðja
skáldsaga Magneu. Hinar fyrri
voru Hægara pælt en kýlt og
Göturæsiskandfdatar. Auk þess
hefur hún gefið út ljóðabók.
I kynningu forlagsins á efni
hinnar nýju sögu segir m.a.:
„Sætir strákar — hverjir eru
þeir? — Giftir, ógiftir, fráskildir,
dökkhærðir, ljóshærðir, rauð-
hærðir, skáld og skrifstofumenn,
pönkarar og pólitiskir skipbrots-
menn, framagosar og fallnir alk-
ar, hommar, ofstækisfullir
náttúruverndarmenn, ráðherrar,
leigubilstj<k-ar, sjoppuþjófar. Allt
sætir strákar.. Umhverfið er
Reykjavik, timinn núna, sögu-
maðurinn stúlka sem flækist I
ýmis mál, viljandi eöa óviljandi.
Andrúmsloftið frjálslegt, allt get-
ur gerst”.
Sætir strákar er i niu köflum,
160 blaðsiður að stærð. Kápu-
teikningu gerði Brian Pilkington.
Prentrún prentaði.
LJOÐ
® Fyrirskömmu kom út hjá Máli
og menningu bókin Ljóö, ný heild-
arútgáfa á ljóðum og ljóðaþýö-
ingum Vilborgar Dagbjartsdótt-
ur.
1 bókinni er að finna efni þeirra
þriggja ljóðabóka, sem Vilborg
hefursentfrá sér. Laufið á trján-
um (1960) Dvergliljur (1968) Og
Kyndilmessa (1971) og ennfrem-
ur ljóð sem birst hafa i' blöðum og
timaritum siðan Kyndilmessa
kom út.
Jón Reykdal, myndlistarmað-
ur, teiknaði kápu og sá um útlit
bókarinnar og er frágangur henn-
ar allur hinn vandaðasti.
Bókin er 137 bls. og unnin i
Prentsmiðjunni Hólum hf.
í borginni okkar
■ Mái og menning hefur gefið út
smásagnasafn eftir Véstein Lúð-
viksson og nefnist það 1 borginni
okkar, Sögur og ævintýri frá
legri tið.
Abókarkápu segir: „Einu sinni
var borg sem hét þvi hlýlega
nafni Borginokkar. Enginn efað-
istum aöhún væri fallegust allra
borga, a.m.k. á sólrikum dögum.
Tungan sem þar var töluð var
hreinust allra tungna og þar
bjuggu kynhreinir menn sem
voru frá fornu fari gefnir fyrir
mergjaðar sögur. I þessari bök
kynnumst við viðbrögöum
Borgarinnar okkar við hinum
margvi'slegasta vanda, bæði
utanaökomandi og þeim sem
steðjar innan frá og raskar þeirri
mynd sem borgarbúar hafa gert
sér af li'finu eins og það er — og á
að vera.
1 borginni okkar er 157 bls. aö
stærð, unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Robert Guillemette
gerði kápuna.
Lambadrengur
■ út er komin á vegum
IÐUNNAR ný saga handa börn-
um eftir Pái H. Jónsson. Nefnist
hún Lambadrengur og er þriðja
barnabók höfundar. Fyrri sögur
hans, Berjabitur og Agnarögn,
hlutu báðar verðlaun fræðsluráðs
Reykjavikurborgar sem veitt eru
bestu frumsaminni barnabók
hvers árs. Auk þessara bóka hef-
ur Páll H. Jónsson gefið út tvær
ljóöabækur, leikrit og ævisögu,
auk þess sem hann er kunnur
fyrir tónlistarstörf og hefur samiö
sönglög.
Um efni þessarar nýju bókar,
Lanibadrengs segir svo i kynn-
ingu forlagsins: „Hér leitar höf-
undur i sjóð minninganna og
bregður upp heillandi myndum úr
lifi sveitadrengs á þeim árum
sem enn var fært frá og þurfti að
sitja yfir ánum sumarlangt. Sag-
an lýsir samlifi drengsins með
fólki, dýrum og gróðri, segir frá
þvi hvernig hann vaknar til vit-
undar um hið auöuga og marg-
breytilega lif sem landið elur.”
Lambadrengurer i sextán köfl-
um, auk inngangs- og lokaorða.
Teikningar og kápumynd gerði
Sigrid Valtingojer. Prentrún
prentaði. Hún er 122 bls.
FRONSK LEIKFONG
Stór og smá í miklu úrvali á góðu
Heildsölubirgðir
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simi 33560.