Tíminn - 06.12.1981, Blaðsíða 4
k
*L3Lí
lj a; í a J
mt mxamiMUJE ooffinxaxmf
oaaxiojomwum
•iMitiaii
-ti
Francis Sakoian & Louis S.
Acker:
The Astrologer’s Handbook
Penguin 1981
■ Liklega trúa fæstir á
stjörnuspeki i raun og veru —
þeir eru aftur á móti fáir sem
ekki hafa einhvern tima
skemmt sér i riki stjörnuspá-
dóma7 merkjafræði og þess
háttar fyrirbrigöa. Hér er
komiö nákvæmt kynningarrit
eftir tvo af postulum nútima-
stjörnuspeki, bók þeirra
Sakoians og Ackers mun reyn-
ast áhugamönnum ómetanleg,
hvort sem er til gagns eða
gamans. Stjörnukort eru
kynnt og plánetupælingar eru
riflegar — nákvæmlega er
skýrt frá þýðingu afstöðu
plánetanna og öðru sem ku
skipta máli i þessum fræðum.
Handhæg bók-ef maðurhefur
áhuga!
TIM PATCOOG/W
THE
ERA
Jean Genet:
Querelle
Grove Press
■ Genet á merkilegan feril að
baki. Hann er Frakki, fæddur
árið 1910 og lenti fljótlega á
refilstigum samfélagsins —
fyrst af nauösyn siðar af
nautn. Hann skrifaði fyrstu
skáldsögu sina i fangelsi og
hún vakti athygli Jean-Paul
Sartres sem, með samstilltu
átaki mennta- og listamanna,
fékk þvi til leiöar komið aö
Genet var látinn laus og hefur
siðan helgaö sig ritstörfum.
Glæpir af nautn hafa löngum
verið Genet hugleiknir, hann
þykir skrifa um „ljóta” at-
buröi fagurlegar en aðrir lýsa
blómum i ljóði... Mætti segja
mér að þessi þýöing nái ekki
fyllilega töfrum Genets,
a.m.k. er eins og eitthvað
vanti á. Querelle er annars
sjómaður, launmorðingi,
opiumsali, kynvillingur, þjóf-
ur, svikahrappur og aðskiljan-
legur pervert. Genet er á
heimavelli — bók mun ekki
láta marga ósnortna. En
djöfull er þessi pappirskiljuút-
gáfa ljót og leiöinleg...
I'.xpaiki'd ;mtlup-it.ií<itc(lífMH»i 'íistu!
fhelvsf aml mosi jntimaJtcaorounC
ÍSS NKWSTATlsSMAN, S
Tim Pat Logan:
The I.R.A.
Fontana 1981
■ Bók þessi kom fyrst út árið
1970 og öölast þá feiknavin-
sældir enda var hún einna
fyrst bóka til að freista þess að
gera sér grein fyrir þvi hvaö
Irski lýðveldisherinn stendur i
rauninni fyrir, annaö en
manndráp og hryöjuverk. Að
visu fylgir ekki meö að höf-
undurinn hafi samúð meö bar-
áttuaðferöum I.R.A. en hann
hefur altént reynt að gera sér
grein fyrir þvi hvað hreyfir
þessi umdeildu samtök. 1
fyrra endurskoðaði Logan bók
sina og færöi hana til nútim-
ans enda mikið gerst siðustu
tiu ár og færir það bókinni
auðvitað aukið gildi. Bókin er
löng og ýtarleg sýnilega
árangur af mjög nákvæmri
heimavinnu og höfundur
reynir aö forðast sleggju-
dóma. Talsverður fjöldi
mynda er einnig i bókinni.
Kaflinn um upphaf I.R.A. er
sérlega vel þeginn, atburöir
siðustu ára eru e.t.v. of nærri i
timanum til að hægt sé að
krefjast óaöfinnanlegs sagn-
fræðirits.
Helen
MAClNNES
THEHIDDEN
TARGET
‘Thr qt»ecn wríte
Helen Maclnnes:
The Hidden Target
Fontana / Collins 1981
■ Að minnsta kosti ein bók
eftir reyfarahöfundinn Helenu
hefur komiö út á islensku —
„Sambönd i Salzburg” fyrir
allnokkrum árum og þótti góð.
Frúin er nú orðin roskin vel en
lætur engan bilbug á sér finna
i þessari nýjustu bók sinni.
Segir sagan frá Ninu
O’Connell sem telja má til
„jet-settsins” i veröldinni og
hvernig hún flækist meira eöa
minna óviljandi inn i alþjóð-
legt samsæri hryðjuverka-
manna sem segir sig sjálft að
eru hin verstu fól og láta
stjórnast af illum hvötum.
Láta persónurnar berast um
heiminn og sifellt flækist
veslings Nina meir og meir i
skuggalega atburði uns leiðin
út er aðeins ein... Still og frá-
sagnaraðferð Maclnnes er á
lægri nótum en tiökast helst nú
til dags, færir það bókinni
þokkafyllri svip en við eigum
að venjast af reyfurum. Og
spennan helst bókina út i
gegn...
Bækurnar hér aö ofan eru fengnar hjá Bókaverslun Sigfúsar
I Eymundssonar.
Að vera einn..
— „Einbjörn Hansson”
eftir Jónas Jónasson
Jónas Jdnasson:
Einbjörn Hansson
Vaka 1981
■ Hver Einbjörn er? Jú, hann
gæti verið maðurinn i næsta húsi,
segir á bókarkápu. Annars er
hann, þegar sagan hefst, rúmlega
fertugur og einstæðingur. Barn-
æska hans var tiöindalitil, nema
fyrir sifellda flutninga, og hann
varð fljótt sér á parti, náði ekki
sambandi við annaö fólk, börn.
Eftir aöhafa misstforeldra sina i
bilslysi er hann alveg einn og
hann lærir þá list, hefur litiö eöa
ekkert til annars fólks aö sækja.
Stundar sina vinnu, fer heim á
kvöldin og er einn. Auðvitað fellur
honum þaö ekki, auövitað vill
hann félagsskap manna, en þaö
ernú svoað hann veitekki hvern-
ig hann á að bera sig eftir honum.
t hálfgert ómeðvituðum ein-
manaleik sinum tekur hann að
skrifa sjálfum sér bréf — það
myndi vera þessi bók, reyndar
fyrsta skáldsaga Jónasar Jónas-
sonar, sem fyrst og fremst er
þekktur af útvarpsþáttum sínum.
Einnig ein af fyrstu bókunum sem
nýstofnaö forlag, Vaka, gefur út.
bað er margt vel ger t i þessari
bók og sér i iagi féll mér fyrri
hlutinn prýðilega. Þar er lýst lifi
Einbjörns i fólksfæöinni og
hvernig hann reynir að halda sér
vitibomum einnmeð sjálfum sér.
tmyndunarafl hans er rikt og
hann spinnur upp samræður við
fólk sem óvarterekkitil: eittsinn
er hann meö hund i pössun um
áramót og ætlar með hvutta aö
skoða brennurnar þegar honum
dettur í hug stæðilegur lögreglu-
þjónn sem ef til vill muni gera
athugasemdir við tilveru þeirra
beggja, hundsins og Einbjörns.
Hann veröur hræddur í huga sér
og fer hvergi. Einnig má nefna
senu þegar Einbjöm kaupir jóla-
gjöf handa sjálfum sér, rakvél en
merkir pakkann skrúfjárn til að
koma sjálfum sér á óvart. Sam-
ræöur hans viö manninn i búöinni
eru einnig bæði skemmtilegar og
lýsandi. I þessum hluta koma
kostir Jónasar sem prósahöfund-
ar vel i 1 jós: still hans er lágróm a
og svolitiö ljóörænn á stundum,
jafnframtglettinn sem mér finnst
þó stöku sinnum fara næstum úr
hófi fram.
Einbjörn verður
ástfanginn
I siðarihluta bókarinnar verður
Einbjörn Hansson ástfanginn.
Það flytur nýtt fólk I hverfiö, for-
eldrarmeð dóttursínaíhjólastól.
Þvi hvernig Einbjörn Hansson
festir smátt og smátt ást á stúlk-
unni, sem er jú ekki i ólikri
aðstöðu og hann sjálfur, er
framan af vel lýst og skemmti-
lega en eftir þvi sem á liður þyk-
ir mér Jónas ganga of langt. Til-
finningarnar veröa ýktar, fyrir
minn smekk. Þetta fólk, Einbjörn
og stúlkan Guðrún, fara að tala
tilfinningaþrungna speki sem á
engan veginn viö þær raunveru-
legu persónur sem Jónas var aö
enda við að skapa. Og maður sem
fram að þvi hefur legiö oni bil
reynist og enn einn stofuheim-
spekingurinn.
Bókin endar á þvi að Einbjörn
og stúlkan ganga i' það heilaga,
þau eru dálitið hrædd eins og
gengur um að þetta muni ekki
lukkast en bæði vita samt aö allt
muni fara eins og i sögu. Og Ein-
björn Hansson er einmitt saga.
Ég hygg að þrátt fyrir ofan-
greindar aðfinnslur muni margir
lesa þessa fyrstu skáldsögu
Jónasarsértilgamans og jafnvel
gagns. Hún boðar hluti sem
heldur sjaldgæft er að finna i
bókum nú til dags — á þessum
siðustu og verstu timum — bjart-
sýni, kærleika, ást og skilning og
h'kasttil er ekki nema gottum það
að segja. Haldi Jónas áfram á
sömu braut, sem mér sýnist hann
hafa alla burði til, er þó rétt að
hann gæti sin á þvi að ofbjóða
ekki sjálfum lögmálum bók-
menntanna.
Illugi Jökulsson
■ Jónas Jónasson. t ritdómi seg-
ir m.a.: „Ég hygg aö margir
muni iesa þessa fyrstu skáldsögu
Jónasar sér til gamans og jafnvcl
gagns...”
■
Hamhleypan skrifar smásögur
— „Flýgur fiskisagan” eftir Hrafn Gunnlaugsson
Hrafn Gunnlaugsson:
Flýgur fiskisaga
Smásögur
Almcnna bókafélagiö 1981
■ Hamhleypa hann Hrafn. Hann
gerir kvikmyndir, sjónvaps-
myndir, skrifar ljóö, leikrit,
skáldsögur og smásögur. Hér er
komiö smásagnasafn uppi hend-
urnar á mér, sögur«iar eru tólf og
visast hafa ýmsar þeirra birst
áöur, að minnsta kosti man ég
eftir að hafa lesið söguna um
englakroppana i Kópavogi ein-
hvers staðar áður. Sú saga, um
englana sem komu til jarðar að
lita eftir fyrir guð en ánetjuðust
súkkulaði, mjólkurhristingi og
öðrum syndum uns þeir urðu svo
feitiraðþeir gátu ekkiflogið aftur
til guðs og voru drepnir af þrem-
ur harðsviruðum pipulagninga-
mönnum, er raunar harla ein-
kennandi fyrir ýmislegt af því
sem Hrafn hefur áður skrifað, en
varla fyrir þessa bók i heild. Hér
og hvar sleppir Hrafn af sér beisl-
inu og lætur imyndunaraflið
hlaupa um viðan völl, annars
staðar hefur hann taumhald á sér
og setur á blað fastmótaðar,
sterkar sögur. Þannig er til að
mynda fyrsta sagan i þessu kveri,
um farþegann frá Gautaborg til
Reykjavikur sem að lyktum grip-
ur tíl örþrifaráða vegna dópleys-
is. Inn i söguna fléttast önnur af
Gisla stýrimanni sem á um sárt
að binda. Þessi saga lýtur öllum
þeim lögmálum sem slfkar sögur
einattgera, hún er realisk á sinn
háttog að minu mati góð. Nokkr-
ar sögur má telja til sérstaks
hóps, Silfurkross áhvitasunnu en
einkum Desember kaldur og ég
með hita, og Hún er einhver önn-
ur. Þar hefur sögumaður greini-
lega brugðið sér I liki Hrafns
Gunnlaugssonar og segir sög-
urnar i hans nafni — i Desember
kaldur... ráfar hann um ibúð sina,
með hita, og reynir að einbeita
sér að þvi aö skrifa. Hver hug-
myndin fæöist á fætur annarri en
ekkert verður úr, sögumaður
hengslast fram og til baka, hugs-
anirnarráða ferðinni.HUn er ein-
hver önnur ersvipaðs eðlis. Þess-
ar sögur tvær eru ritaðar i hálf-
kæringi á yfirborði, ég held það sé
stutt á alvöruna.
Imyndunarveiki i alvöru gerist
i Stokkhólmi, þar sem sögumað-
urinn er við nám, og Eldgosið á
bókasafninu sömuleiðis. I báðum
sögunum þykir mér að Hrafni
takist býsna vel að sameina i-
myndun, skáldskap og það sem
svo glettilega er nefnt „raunveru-
leiki”, eða hvi gerir hann sjálfan
sig að persónum i þessum sög-
um?
Tröll á fjöllum
Hrafn er einnig til staðar i sög-
unum Sannleikanum vitni og
Handritið sem hvarf en þar sér
hann um að koma handritum sem
hann hefur fundið á prent. Svip-
aðar brellur hefur Jorge Luis
Borges notað mikið sem kunnugt
er. Nema hvað: handrititin bæöi
eru töluvert fantastisk, ég held
það fari fyrst og fremst eftir
smekk manna hvort þeir hafa
gamanaf þeim. önnur er lýsing á
ferðalagi sem lýkur með undar-
legum hætti.hins segirfrá manni
sem sér tröll á fjöllum uppi. Þá
má nefna söguna Umfjöllun sem
er að formi til ritdómur um bók
sem annar hefur skrifað: þunga-
miöja sögunnar er hvernig þær
skarast, sagan sem til umfjöll-
unar er (minnir einhverra hluta
vegna á sögu eftir Daphne du
Maurier sem ég man ekki hvað
heitir), og hin sem ritdómarinn
setur á blað. Þá eru ónefndar
tværsögur: Tæknibrella sem ger-
ist á tveimur sviðum eins og svo
margar sögur i kverinu, maður
situr á Mokka og segir stúlku
nokkurri sögu með óvenjulegum
hætti, sagan er um hvernig hann
og vinur hans voru gabbaðir af
■ Hrafn Gunnlaugsson. 1 ritdómi
segir m. a.: „Hugmyndaflug
Hrafns hefur aldrei látið að sér
hæða. Það kemur skýrt fram i
þessari bók stundum eftirminni-
lega”.
ósvífnum tannlækni, og Þjófa-
bálkur sem er skemmtileg saga
af grunnhygginni konu sem
verður fyrir þvi að veski hennar
er stolið á skemmtistað.
Hugmyndaflug Hrafns Gunn-
laugssonar hefur aldrei látið að
sérhæöa. Það kemur skýrt fram i
þessari bók stundum eftirminni-
lega. Eins og við var að búast eru
sumar sögurnar betri en aðrar,
en ég fæ ekki séð að það fari eftir
formgerð sagnanna. Þarsem frá-
sagnargleðin nýtur sin skiptir
formið ekki máli. Margar sagn-
anna eru beintínis skemmtilegar,
aðrar til þess fallnar að einhverj-
iropni augu sin og sjái frásagnar-
efni Hrafns i öðru ljósi.
Má ég bæta hér viðp.s.? Hvað
er orðið af nóvellu þeirri sem
Hrafnbirtifyrirallmörgum árum
sem framhaldssögu i Lesbók
Morgunblaðsins? Þar var sko
glatt á hjalla og ef ég man rétt
var sagan öldungis skemmtileg.
lllugi Jökuisson.