Tíminn - 06.12.1981, Blaðsíða 14
14
Sunnudagur 6. desember 1981.
Myndakóngur nóvember-mánaðar
ARNAR JÓNSSON
Myndir í blödunum taldar
Vísir
■ Friðrik
Sophusson
■ Magnús E.
Sigurðsson
■ Gunnar
Thoroddsen
■ Geir
Hailgrimsson
■ Myndir dreifðust mjög jafnt að þessu
sinni. Eins og menn muna ef til vill var Pétur
Sigurgeirsson biskup myndakóngur septem-
bermánaðar, með 32 myndir, Vigdis Finn-
bogadóttir forseti varð myndakóngur októ-
ber með hvorki meira né minna en 107
myndir. Nú er það Arnar Jónsson leikari
sem ber sigur úr býtum — af honum voru 32
myndir i blöðunum i nóvember...
Þjóðviljinn
■ A þvi blaði var hörö
keppni og jöfn manna í mill-
um þennan nóvember. Aö
lyktum fór þaö svo að tveir
stóöu uppi efstir og jafnir
meö flestar myndir af sér,
sem reyndust nefnilega dtta
aö tölu. Þetta voru þau Vig-
dis Finnbogadóttirforseti Is-
lands og Hjörleifur
Guttormsson alþingismaöur
og iönaöarráöherra.
I þriöja sæti var Arnar
Jónsson.leikariog voru birt-
ar sjö myndir af honum i
•Þjóöviljanum umræddan
mánuö — enda lék Arnar og
leikur enn, hlutverk i tveim-
ur leikritum AlþýöuleikhUss-
ins og öldungis snilldarvel aö
þvi er sagt er.
Fjóröi varö sjálfur for-
maöur Alþýöubandalagsins
sem gefur Ut Þjóðviljann.þaö
vill segja Svavar Gestsson
ráöherra og sex sinnum
fengu lesendur Þjóöviljans
aö rifja upp i huganum útlit
hans.
Siðan komu fjórir I fimmta
til áttunda sæti: ólafur Jó-
hannesson, utanrikisráð-
herra, ólafur Ragnar
Grimsson alþingismaöur,
Guðrún Helgadóttir, al-
þingismaöur og borgarfull-
trúi og Ragnar Arnalds al-
þingismaður og fjármála-
ráðherra. Voru birtar af
hverju þessara fjórar
myndir.
Með þrjár myndir voru
meöal annars Jóhanna
Egflsdóttirbaráttukona sem
varö eitt hundraö ára fyrir
stuttu, Sigurjón Pétursson,
yfirborgarstjóri og Einar
Kárason rithöfundur og höf-
undur bókarinnar Þetta eru
asnar Guöjón.
Tíminn
Þaö reyndust vera tveir
leikarar sem fengu flestar
myndir af sér I Ti'manum nú
I nóvember. Annar þeirra,
Montgomery Clift,
Broadway- og Hollywood-
stjarna (Neineinei! Ekki is-
lenslúrskemmtistaöir!) sem
bar aö lokum sigur úr být-
um. Voru af honum sjö
myndir f Timanum,en þess
skal getið aö þær birtust all-
ar meö langri grein um
Monty i Helgar-Timanum
siöasta.
I ööru sæti varö ,,our own”
Arnar Jónsson stjarna i
Útlaganum, Elskaöu mig og
Illum feng. Birtust sex
myndiraf Arnari iTimanum
aö þessu sinni.
1 þriöja sæti varö ólafur
Jóhannesson alþingismaöur
og utanrikisráöherra en
fimm myndir voru af honum
I nóvember.
I f jóröa til sjötta sæti voru
eftirtaldir: Ronaid Reagan
forseti vestur i Bandarikjun-
um, Vigdis Finnbogadóttir,
forseti hér á íslandi, og
Oriana Fallaci itölsk blaöa-
kona meö kjaftinn fyrir
neöan nefiö og eru fjórar
myndir af hverju þeirra.
Meö þrjár myndir eru
meðal annars Þórhallur
Sigurðsson leikari og leik-
stjóri, Guölaugur Þorvalds-
son sáttasemjari og Alfreð
Alfreðsson stórglæpa-
maöur...
Morgunblaðið
Óskaplega sem ljósmyndir
Morgunblaösins dreiföust
þennan mánuöinn nóvem-
ber. Fjöldi mynda var i
blaöinu aö venjuen samtvar
varla hægt aö skrapa upp I
myndakóng.
Aö lokum var þaö samt
Arnar Jónsson leikari sem
bar sigur Ur býtum. Voru
birtar sjö myndir af honum i
Mogganum, tveimur fleiri en
af nokkrum öörum.
Tveir þjóöarleiötogar
lentu i' öðru til þriöja sæti
annarlifshinn liöinn. Er hér
um aö ræöa þá Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta,
og Ólaf Thors forsætis-
ráöherra tslands sem lést
fyrir 18 árum. Fimm myndir
af hvorum þeirra prýddu
siöur Morgunblaösins.
Fjórar myndir rákumst
viö á aftveimur stjómmála-
mönnum til,annar þeirra er
ólafur Jóhanncsson utan-
rikisráöherra og hinn Geir
Hallgrimsson alþingismaöur
og fyrrverandi forsætis-
ráöherra auk þess aö vera
formaöur Sjálfstæöisflokks-
ins.
Meöal margra sem fengu
af sér þrjár myndir i Mogg-
ann voru Friðrik Sophusson
varaformaöur Sjálfstæöis-
flokksins, Jóhanna Egils-
dóttir 100 ára skörungur og
Gunnar Thoroddsen for-
sætisráöherra.
Visir
Friörik Sophusson al-
þingismaöur og nýkjörinn
varaformaöur Sjálfstæðis-
flokksins varö öruggur
myndakóngur dagblaösins
Vfsis meöan þaö var og hét i
nóvembermánuði. Nú er þaö
dáiö drottni sinum eins og
menn vita. Af Friörik voru
heilar fimmtán myndirfVIsi
mtíra en helmingi fleira en
af næstu mönnum.
Næstir uröu þrir kappar:
Magnús E. Sigurösson for-
maöur Félags bókageröar-
manna, Gunnar Thoroddsen
forsætisráöherra og Geir
Hallgrimsson endurkjörinn
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Af hverjum þessara voru
sjö myndir i Visi og dæmast
þeir þvi vera saman I ööru til
fjórða sæti.
Aðrir þrfr kappar fengu
sex myndir af sér i Visi —
nefnilega Steingrimur Her-
mannsson sjávarútvegsráö-
herra, Ólafur heitinn Thors
forsætisráöherra, Aðalsteinn
Ingólfsson listfræöingur og
Arnar Jónsson leikari. Eru
þeir fjórmenningar þvi i
fimmta til áttunda sæti allir
saman.
Meö fimm myndir i niunda
sæti varö sænska söngkonan
Agnetha Faltskog kunn af
starfi sinu með hinum valin-
kunna ABBA-flokki...
Nokkrir voru með fjórar
myndiraf sér i Visi i nóvem-
ber: við látum okkur nægja
að nefna hina sivinsælu
Karin Madsen,danska fata-
fellu.
Dagblaðið
Erekki lengur til, aö þvi er
manni er sagt. En i
nóvember-mánuði var aukin
heldur fátt um myndir i þvi
blaöi eða að minnsta kosti
fátt um margar myndir af
sömu mönnunum. Hæstur
varö aö lokum Magnús
Magnússon sjónvarpsmaöur
I Bretlandi en af honum voru
fimm myndir i Dje-Bje.
t ööru sæti varð enginn
smátappi: sem sé Leónid
Ilitsj Brésnjéf, forseti Sovét-
rikjanna og formaður
Kommúnistaflokksins þar i
landi, fjörum sinnum sáu
lesendur Dagblaðsins hann
blasa viö á siöum blaðsins.
Nokkrir fengu þrjár
myndir — Anatóli Karpov,
heimsmeistari i skák, Arnar
Jónsson,leikari, Geir Hall-
grímsson,formaöur Sjálf-
stæöisflokksins , Friðrik
Sophusson, varaformaður
sama flokks og Arnór Guö-
jónssen,fótboltamaður.
Dagblaðið &
Visir
Svo fá eintök hafa komið út
af þessu nýja blaöi að varla
er marktækt aö telja þau
meö. Þó er Tom Martinhjá
Menningarstofnun Banda-
rikjanna efsturþviaf honum
birtust sex myndir i Dag-
blaöinu & Vísi.
Aö auki skal þess aðeins
getiö aö fleiri myndir birtust
af Ellert B. Schram en
Jónasi Kristjánssyni.
Alþýðublaðið
Þaö var einn alþingis-
manna Vestfirðinga, Sig-
hvatur Björgvinsson sem
fékk flestar myndir af sér i
Alþýöublaöinu — nákvæm-
lega taliö voru þær átta og
stundum tvær i einni og
sömu opnunni.
t ööru sæti varð Jóhanna
Egilsdóttir baráttumaöur
Alþýðuflokkskvenna sem
varö 100 ára nýlega en af
henni voru sjö myndir i
blaöinu. Næstur kom svo
Kjartan Jóhannssonfyrrver-
andi ráðherra en af honum
voru fimm myndir I mál-
gagninu.
Förum viö ekki lengra aö
sinni en getum þess að sem
fyrr er Alþýðublaðiö eina
flokksmálagagniö sem birtir
myndir af öllum þingmönn-
um sinum og flestum oftar
en einu sinni...
Þjódviljinn
■ Hjörleifur
Guttormsson
■ Vigdís
Finnbogadóttir
■ Arnar
Jónsson
Tíminn
■ Montgomery
Clift
Arnar
Jónsson
■ ólafur
Jóhannesson
Morgunblaðið
j|: jgj
■ Araar ■ Ronald Jónsson Reagan ■ Ólafur thors
Dagbladið
■ Magnús ■ Leónid I. ■ Arnar
Magnússon Brésjnéf Jónsson
Dagblaðid
& Vísir
■ Tom ■ Ellert B. ■ Jónas
Martin Schram Kristjánsson
Alþýdublaðið
■ Sighvatur ■ Jóhanna Kjartan
Björgvinsson Egilsdóttir Jóhannsson