Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 4

Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 4
Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur er ógleymanlegur öllum þeim sem höfðu kynni af honum, stórbrotinn og skemmti- legur persónuleiki, lífslistamaður, sögu- maður, fræðimaður - og ritsnillingur. Nú er komið út fyrsta bindi ritsafns Sverris og hefur að geyma ritgerðir um íslandssögu fram til aldamótanna 1900. Þetta er það tímabil sem Sverri hefur verið einna hug- stæðast. Um það hefur hann skrifað ýmsar af veigamestu ritgerðum sínum og helstu grundvallarrannsóknir hans eru unnar á því sviði. Ritsafnið er áformað í fjórum bindum. í næsta bindi verða ritgerðir um íslenska menn og málefni þessarar aldar. Þriðja bindið á að geyma ritgerðir um almenna sögu og í því fjórða verða ritgerðir um bók- menntir og dægurmál auk ritaskrár Sverris Kristjánssonar. Einnig munu fylgja bókun- um ritgerðir um höfundinn, viðfangsefni hans og efnistök. Þetta ritsafn í fjórum vænum bindum er fjarri því að vera heildarsafn. Æviverk Sverris Kristjánssonar hefði fyllt tólf slík bindi að minnsta kosti. En þegar safnið er komið út ætti öllum helstu áhugasviðum Sverris og höfundarsérkennum að hafa verið gerð góð skil. Um leið verður tiltækt í handhægri útgáfu sýnishorn þess sem einna best hefur verið skrifað á íslensku á þessari öld. Mállnlog menning Rsher'Price LEIKFÖNG í MIKLU ÚRVALI 10 mismunandi gerðir af barna-fararskjótum. IMýtt leikfang á hverjum degi. Playmobil í miklu úrvali. Póstsendum. w w LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0 AUSTURSTRÆTI8 - SlM113707 Núgetalitlu stúlkurnar gefíð dúkkunni að borða og drekka Vorum að fá dúkkuna sem borðar, drekkur og þarf að skipta á eins og ungabarni. Verð aðeins kr. 280,- s* TÓmSTUnDAHÚSIÐ HF *** Lauqauegi 164-Reutiauil: 5=21901

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.