Tíminn - 13.12.1981, Page 5

Tíminn - 13.12.1981, Page 5
_____ Vigdís Finnbogadóttir_____________________ ritar ítarlegan formála. ______________ Bókin er saga Tonton Yves, eða ,,Yves frœnda“ sem stundaði veiðar á skútum við ísland á lokaskeiðiþeirrar út- gerðar. Jacques Dubois skráði eftir frásögn Yves. Vigdís Finnbogadóttir er manna fróðust um íslands- siglingar Frakka. í formála segir hún m.a. : ,,Þessi bók sem hér hefur verið þýdd af frönsku á íslensku er, auk þess að vera merk œvisaga einstaklinga, drjúgt heimildarrit um siglingar Frakka á íslandsmið og samskipti þeirra við íslendinga á síðasta skeiði 300 ára siglingasögu. Hér er brugðið upp myndum af því hvemig lífið var um borð langa mánuði með endalaust hafið við sjóndeild- arhring, hvemig menn voru keyrðir áfram til vinnu og veik- um og slösuðum allar bjargir bannaðar um lœknishjálp, þar sem hagur útgerðarinnar var stcerri og meiri en hagur einstaklingsins. Hún segir frá strandi franskrar skútu á söndunum suður af jöklum og viðbrögðum skipverja og heimamanna... Þá er íþessari bók rifjað upp hvernig veið- arfórufram á frönsku skútunum. “ Bókin er prýdd 52 gömlum ljósmyndum YVES FRÆNDI hefur að geyma 52 gamlar Ijósmyndir, s sumar áður óbirtar, sem tengjast efni hennar, jafnt frá ® Bretagne sem Austfjörðum þar sem frönsku duggararnir í komu einkum. Aftast í bókinni er sögulegt yfirlit um f fiskveiðamar við ísland. | __Raunsönn og forvitnileg bók um samskipti íslendinga og Frakka.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.