Tíminn - 13.12.1981, Page 13

Tíminn - 13.12.1981, Page 13
13 Sunnudagur 13. desember 1981 Sigurður A. Magnússon MÖSKVAR MORGUNDAGSINS Þetta er sjállstœtt lramhald metsölubókarinnar Undir kalstjörnu. Þegar frásögnln heíst er söguhetjan 9 ára og þegar henni lýkur er hann kominn „í fullorðinna manna tölu." Möskvar morgundagsins er ekki síður en fyrri bókin fallegt og átakanlegt lista- verk og um leið sérstceð aldarfarslýsing af þeim sviðum Reykjavíkurlíísins á kreþþu- og hemámsárum sem lítt hefur fyrr verið hampað í bókum, Jakobína Sigurðardóttir í SAMA KLEFA Aðalpersónur em miðaldra kona og ung stúlka sem verða aí tilviljun samskipa á leið suður. Á þeim rúma sólarhring sem ferðin tekur segir eldri konan þeirri yngri slitur úr œvisögu sinni. Aí hversdagslegri frásögn hennar - og ekki síður því sem hún lœtur ósagt - nemur lesandinn örlagasögu umkomulausrar manneskju og það hugaríar sem tii verður í harðbýlum og af- skekktum byggðum og skapar henni öriög. Er þá óneínd lýsing ungu konunn- ar og að hve miklu leyti hennar bíður sams konar hlutskipti þrátt fyrir þá upp- reisn sem henni býr í brjósti. Hér er mikilli sögu þjappað saman á fáar blaðsíður í bók sem enginn bókmennta- unnandi má láta íram hjá sér lara. Einar Kárason ÞETTA ERU ASNAR GUÐJÓN Bráðvel skrifuð íslensk nú- tímasaga. Aðalpersóna er ungur maður sem er í upp- reisn gegn umhverfi sínu, uppreisn sem er hálfáttavillt og stefnulaus. Við fylgjum honum eítir í stúdentsprófs- fylliríi sem œtlar engan enda að taka, í kommúnu gamalla skólafélaga sem hafa sest að á sveitabœ til að nýta gœði landsins, í misheppnaðri tilraun til háskólanáms og á trillu og togbát þar sem lítið fer fyrir sjómannarómantík í lýsingu höfundar. Vandíundin er jafn hnyttin lýsing á lííi og hugsunar- hœtti ungs fólks nútímans og í þessari bók. Málfarið er ósvikið og sver sig í œttina og sagan er auk þess krydduð með hráslaga- legum gálgahúmor sem hasfir efninu einkar vel. Vilborg Dagbjartsdóttir UÓÐ Ljóðasaín eins aí allra list- íengustu ljóðskáldum okkar. Hér er að íinna allar þœr ljóðabœkur sem Vilborg hefur gefið út, Laufið á trjánum, Dvergliljur og Kyndilmessu. Tii viðbótar eru hér prentuð ljóð sem síðar hafa birst í blöðum og tímaritum. Er ekki minnstur íengur að fá þau kvœði öll saman á einum stað því meðal þeirra eru mörg af merkilegustu ljóðum Vilborgar. Jón Reykdal teiknaði kápu og sá um útlit bókarinnar. Tryggvi Emilsson KONA SJÓMANNSINS og aðrar sögur Æviminningar Tryggva Emilssonar haf a notið mikillar hylli og viður- kenningar. Sögur þessarar bókar eru skáldsögur þó að þœr sœki að einhverju leyti efnivið sinn tii raunveru- leikans. Sögusviði í Konu sjómannsins svipar að tals- verðu leyti til œviminning- anna, þar er lýst líísbaráttu fólks og byrjandi verkalýðs- baráttu í ungum og vaxandi kaupstað þar sem óbrúan- legt djúp er milli stétta. í bókarlok eru nokkrar smœrri sögur þar sem frá- sagnargáf a höfundar nýtur sín einna best. Mikhaíl Búlgakof MEISTARINN OG MARGARÍTA Söguþráð þessarar mögnuðu og œrslafullu skáldsögu er erfitt að rekja í stuttu máli. Hér er fléttað saman píslarsögunni og frá- sögn af því er andskotinn og árar hans heimsœkja Moskvu - og setja allt á annan endann. Það fólksem aí því hlýtur uppreisn, örlagasaga þess og ástar- saga, er þungamiðja bókar- innar upp írá þvi. Mikhaíl Búlgakof (1891- 1940) lauk við þessa skáld- sögu skömmu fyrir andlát sitt og var þá lítil von til þess að sagan kœmist nokkru sinni á prent. Frumprentun var í sovésku tímariti 1966-7, með ýmsum úríellingum. í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, sem gerð er beint úr rússnesku, er sagan óstytt. Snorri Hjartarson KVÆÐ11940-1966 Heildarsaín ljóða Snorra Hjartarsonar fram að verð- launabókinni Hauströkkrið yfir mér. Myndskreytingar eftir Jón Reykdal. Bók sem enginn ljóðaunnandi getur án verið. William Heinesen KVENNAGULLIÐ í GRÚTARBRÆÐSLUNNI Fimmta bókin í sagnasaíni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Um síðustu bók sögðu gagnrýnendur m.a.: „Er nú ekki að orðlengja það að slika bók leggja menn frá sér með þakklœti og biðja William Heinesen að lifa í hundrað og tuttugu ár. Þorgeir Þorgeirsson íœr ósvikið lof fyrir þýðingu sína sem hinar fyrri í þessu ritsafni - hún er á miklu máli og góðu." ÁB Þjv. „Þessar dýrlegu smásögur Heinesens eiga eflaust eftir að vera öllum unnendum hans kœrkomin upplyíting í annars snautlegu jólabókaflóði." SSHp. „Þegar öðru hverju er verið að rífast út af Norraena þýðingarsjóðnum, aldrei heyrist þá nefnt hvað við eigum sjóðnum að þakka... í minum huga er engirrn vafi á því að þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar eru það sem við eigum sjóðnum mest að þakka það sem af er." ÓJ Dbl. „Sem bókmenntaverk er „Það á að dansa" með því besta aí þýddu efni, sem undimtaður hefur fengið til lestrar mjög lengi." JGTíminn. Maj Sjöwall og PerWahlöö MAÐUR UPPIÁ ÞAKI Sjöunda bókin í hinum vinsœla lögreglusagna- flokki Skáldsaga um glœp. Þessar bœkur hafa komið út í 22 þjóðlöndum og hvarvetna notið mikilla vin- saelda. Eítir þessari sögu gerði Bo Widerberg kvikmynd sem m.a. hefur verið sýnd hér á landi. Þýðandi er Ólafur Jónsson. Richard Llewellyn GRÆNN VARSTU DALUR Saga námumannafjölskyldu í Wales skömmu fyrir síðustu aldamót. Sagan er í senn uppvaxtarlýsing, þjóð- félagsleg skáldsaga og ástarsaga. Engum dylst að höfundur nauðþekkir það fólk sem hann lýsir og að það á samúð hans óskipta. Saga þess verður heillandi lestur, ljóðrœn, full aí hlýju, skaphita, angurvœrð og góðlátlegri kímni. Þessi skáldsaga hefur hvarvetna íarið sigurlör. Þýðing Ólafs Jóhanns Sigurðssonar var íyrst prentuð 1949ogseldistupp á tveimur mánuðum en hefur ekki verið endurprent- uð fyrr en nú. Vésteinn Lúðvíksson í BORGINNI OKKAR Sögur og ævintýri frá kostulegri tíð. Vésteinn Lúðviksson er löngu kunnur sem einn fremsti rithöfundur okkar. Með þessu sagnasafni mun hann þó enn koma lesend- um sínum á óvart. Hann íjallar hér um samtíð okkar frá sjónarhóli íramtíðar- innar og birtir hana um leið í nýju og kostulegu ljósi. Lestur þessara sagna er ekki síður skemmtun en opin- berun á þeim veruleika sem við þekkjum best. Það er góður sögumaður sem heldur á penna. Kristjén Jóhann Jónsson HAUSTIÐ ER RAUTT Fjölskrúðug nútímasaga sem gerist í íslensku þorpi og sveitinni þar í kring. Þetta þorp er þó ekki allt þar sem það er séð. í rás sögunnar tekur það t.a.m. stökkbreyt- ingu og þenst út í allar áttir. Er ekki að furða þótt ýmsar aí sögupersónum verði átta- villtar og að háitvirtur höfundur óttist að missa allt út úr höndum sér. Kristján Jóhann Jónsson er f. 1949. Hannkennirnúvið Menntaskólann á Egils- stöðum. Haustið er rautt er íyrsta skáldsagan sem eftir hann birtist. Mál IMI og menning

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.