Tíminn - 13.12.1981, Side 14

Tíminn - 13.12.1981, Side 14
14 Sunnudagur 13. desember 1981 ■ Augun eru snör og stingandi, háriö kolsvart og nær niBur á axl- ir. Hann er grannur og hálfgegn- sær músselinkyrtillinn, sem hann er i og fellur laus um heröarnar, fær ekki leynt þvi a& likaminn likt og titrar af lifsþrótti. Meö kæru- leysislegri handarhreyfingu bandar hann einum þjóna sinna frá sér, sem kominn er til þess aö fagna honum, meö þvi aö færa honum glas af vatni. Hann reisir ljúfmannalega tvær konur á fæt- ur, sem voru aö kyssa fætur hans. Nei, á þvi leikur enginn vafi: Dhirendra Brahmachari heföi sómt sér vel i aöalhlutverkinu i „Jesús Kristur Súperstar.” Hann lætur hvitt kvenveski dingla við úlfnliö sér, en einkarit- ari hans ber stresstösku úr samsoniti með tölulæsingu. Tveir litlirhundar f laöra upp um meist- ara sinn og herra. Þeireru hvitir, einsogToyota Crown billinn, sem Dhriendra kom akandi á inn um hliðið rétt i þessu. Hann heldur mjög upp á þennan lit. Hann visar okkur inn i lof træsta skrifstofu sina i jógamiðstöð sinni, en hún heitir Vishwaytan og er i Delhi miöri. Hann lætur fallast niður i hvitan hægindastól úr leðri og byður okkur te. Á nýralaga skrifborði, þar sem andlit hans speglast i borðplöt- unni, má lita mynd af forstætis- ráðherra Indlands, Indiru Ghandi, og á veggnum er mynd af syni hennar, Sanjay, sem fórst i flugslysi i fyrra. Þarna er einnig isskápur fyrir drykkjarföng. Dhirendra Brahmachari hefur þarna fjóra sima og er einn þeirra þráðlaus. Þá er þarna innanhússtalkerfi og þegar hann vill ekki láta ónáða sig, þrýstir hann á hnapp á skrifborðinu. Kviknar þá rautt ljós fyrir fram- an dyrnar. GofHim horin vera? En hver er hann þessi maður, sem nýtur v irðinga r sem heilagur spámaður og hefur skrifstofu, sem er glæsilegri en nokkur ráð- herra i indversku stjórninni getur státað af? I augum vina sinna er Dhirendra goðumborin vera, mikiU gúrú og lærimeistari, sem býr yfir dularfullum kröftum. Féndur hans kalla hann útsmog- inn svikahrapp og Raspútin Indiands. Allir eru þó sammála um að hann hafi meiri völd, en nokkur ráðherra eða hershöfðingi i Indlandi. ,,Hann hefur ekkert opinbert embætti,” skrifar tima- ritið „India today”, en sú stað- reynd ein að hann gengur út og inn I bústað Indiru Ghandi, gerir hann svo þýðingarmikinn mann að allra áliti aö eindæmum sæt- ir.” Dhirendra Brahmachari, jóga- kennari og húsprestur forsætis- ráðherrans, gefur henni ráð um öll mál. Þaö er ekki lítilsvert i lýöræöisþjóöfélagi, sem svo á aö heita, en er þó ekki annaö en ind- versk eftirliking af sliku kerfi — hermileikur, þar sem frú Ghandi er primadonnan og leikstjórinn. Frú Ghandi fer meö ráðherra sina eins og leikbrúöur og safnar um sig ungum og li'tt reyndum kontóristum.sem tilbiðjahana og biöla til ráðar hennar og mildi. Sundurleit og forystulaus stjórn- arandstaða gerir henni létt aö leika þetta hlutverk sitt. Allar mikilvægar ákvarðanir eru tekn- ar heima i „eldhúsi” hjá frú Ghandi og þeir sem þar eru samankomnir eru ekki stjórn- málamenn. Hún er i álagaviðjum Gúrúa, stjörnuspámanna og lófa- lesara. „Þetta minnir á fyrri ald- ir”,skrifaði greinahöfundur einn, „þegar hindúaprestar viö hiröina réðu öllu.” Trú Indhiru Ghandi á hiö yfir- náttúrulega kom ekki til á einni nóttu. Eftir hinn mikla kosninga- ósigur sinn áriö 1977, dró hún sig út úr opinberu lifi um sex mánaða skeið. Þá fórhún i pilagrimsför til Vinoba Bahwe, heilags manns, sem faöir hennar hafði einnig metið mjög mikils. Hún spurði þennan gúrú að þvi hvort hún ætti aö freista gæfunnar á stjómmála- sviðinu enn aftur. Gúrúinn, sem hafði svarið að mæla ekki orð af munni i tiu ár, fékk henni seðil, þar sem á var ritað: „Haltu áfram.” Frú Ghandi hlýddi þessu. t kosningabaráttunni 1980 var hún enn á ný i fylkingarbrjósti Kcngress flokksins. Rikisstjórnin bannaði henni aö nota hiö gamla merki sitt, „kúna og kálfinn’” — ■ Hér má sjá frú Indiru Gandhi þiggja ráö af húspresti sinum og jóga kennara, Dhirendra Brahmachari. ■ Dhirendra i skrifstofu sinni f Dclhi. Á bak vib hann er mynd af syni Indiru, Sanjay, sem fórst f flug- slysi á fyrra ári. reiðum. „Þeir gátu aldrei sannað neitt upp á mig. Þeir vildu koma höggi á frú Gandhi og drógu þvi, vini hennar fyrir lög og dóm,” segir Dhirendra. Dhirendra er nú spurður að þvi hvort þaö standi ekki i hinum fornu ritum að jógi skuli halda sig sem fjærst öllum veraldlegum lystisemdum, þótt ekki sé kannske ætlast til að hann liggi alla ævina uppi á naglabretti. , ,Ég er siður en svo háður hin- um veraldlegu lystisemdum,” svarar hann. „Ég nota þær ein- göngu til þess að ná settu marki i jóganámi mínu. „Ég elska fagra hluti.” Nú suöar í þráðlausa simanum. Gúrúinn tekur tólið upp með gremjusvip. „Ég vildi ekki lata trufla mig...” En samstundis breytist röddin og verður hunangsblíð. Hann mælir á Hindi. Eftir nokkra stund leggur hann lófann yfir trektina og hvislar i átt til okkar: „Þetta er Indira Gandhi. t dag er afmælisdagur sonar hennar heitins og hún vill að ég komi strax til sin. „Þegar viö skiljum býöur hann okkur aö koma meö sér til Mantalai i Kaschmir, en þar er fegursta rannsóknarstöö hans. og það skipti ekki litlu máli i landi, þar sem 70% ibúanna eru ólæsir, og kjósa aðeins eftir tákn- um. Spámaður hennar, „prófessor” Sundaram frá Madras, stakk að henni þeirri hugmynd, að hún skyldi hafa mynd hinnar tjáningarriku hand- ar sinnar fyrirmerki. Hún sigraði með yfirburðum. Einn af fjölskyldunni. Dhirendra er löngu orðinn þekkt stærð i hópi gúrúanna sem frú Ghandi treystir best. Skyldi það vera satt, að hann hafi þekkt hana þegar sem unga stúlku? Dhirendra svarar ekki, fyrr en hann hefur kveikt á aðvörunar- ljósinu, sem nú hlýtur að blikka fyrir framan dyrnar. Þegar ljós- myndarinn ætlar að fara að taka myndir af honum, bregður hann skjótt við og tekur stóra svarta greiöu upp úr handtöskunni og greiöir sér. Loks þá leyfist ljós- myndaranum að hefjast handa og hann er reiðubúinn að svara. Réttara væri þö að segja að hann andvarpi orðunum út úr sér. „Ég hef talið mig einn af fjöl- skyldunni i' 20 ár. Ég var jógaráð- gjafi fööur hennar, meðan hann enn var forstætisráöherra. SIBan hef ég verið kennari hennar” og Sanjay, sonar hennar.” Hve gamall var hann, þegar hann kynntist Indiru? „Æ”, segir hann. Sli'kum ágengum spurningum vill hann ekki svara. „Heilagur maður ræðir aldrei um aldur sinn né æsku, enda er svo fyrir lagt i helgiritunum.” Við látum þvi nægja að byrja á árinu 1961, þegar hann stofnaði fyrstu jógarannsóknarstöð sina i Delhi. Hann fékk lóðina á gjaf- verði og féndur hans segja að upp frá þvi haf i hann notað ky nnin við Ghandi fjölskylduna i eigin þágu. oe Mercedes Gúrúarnir eiga meiri ítök í frú Gandhien ráðherrar hennar Indverska ríkið reisir þeim turna og hallir Flugvélar Benz. „Þetta er mesta fásinna,” segir Dhirendra. „Ég á ekki eina ein- ustu rúpiu. Flestar kennslustofn- anir minar eru reknar af rikinu. Ndckrar aðrar eru sjálfstæðar og eiga sig sjálfar. Ég lifi aðeins á ölmusu. ” Samt var það svo að þegar Indira Ghandhi féll árið 1977 og nýja stjórnin hugöist höfða mál á hendur henni, þá var Dhirendra einnig ákæröur. Opinberi ákærandinn bar upp á hann ólöglegan innflutning á flugvél, milljóna fjárdrátt vegna bygg- ingar jógastöövar og fölsun á pappirum vegna innflutnings á tveimur Mercedes Bens 300 D bif-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.