Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 15

Tíminn - 13.12.1981, Blaðsíða 15
Sunnudagur 13. desember 1981 15 ■ Gúrúinn Sadachari er hér hylltur af áhangendum sinum. Ævintýra turninn. Tveimurdögum síðar erum við staddir i indverska sambandsrik- inu Kaschmir. Við höldum um djúpan dal, þar sem má lita fag- urtæra læki, og ávaxtaekrur und- ir fagurhvitum fjallgarði. Þegar komið er fyrir beygju eina blasir við undurfögur sýn: þar má sjá turn umlukinn furutrjám, bera við himinn. Hann er mjór, byggð- ur úrsteinsteypu og gleri og eru á honum Utskot og bungur hér og þar. Þetta er likast þvi sem an- hver guð hefði verið að leika sér að „legó-kubbum.” Stoltur sýnir Dhirendra okkur útbúnaðinn i turninum, sem stendur i 2000 metra hæð. Þarna er litasjónvarp og videótæki, þykk teppi og pluss- húsgögn. „Jóga getur meira að segja læknað sjúkdóma,” segir Dhirendra. Eitt algengasta læknisráð hans er það að láta menn gleypa meterslanga grisju, sem siðar er dreginafturúr þeim, — þetta á að hreinsa sjúklinginn að innanverðu. Morguninn eftir fer Dhirendra með okkur á litinn flugvöll, sem hann hefur látið gera i grennd við turninn, þótt varnarmálaráð- herra landsins hefði mælt gegn þvi, þar sem honum þótti þetta of nærri landamærum óvinanna i Pakistan. En Indira féllst á þetta sam t. Veður er slæmt, en Dhirendra erstaðráðinn iþvi að fljúga sjálf- ur með okkur til Delhi. Flugið gekk ekki áfalla laust. Við lentum i þrumuveðri, mótorinn stansaði og við urðum að nauðlenda. „Ég var bUinn að biðja fyrir ykkur,” segir gúrUinn. Dhirendra Brahmachari hefur eignast keppinauta fyrir skömmu. Ungur maður að nafni Sadachari fékk það hlutverk að reka djöfla af höndum rikis- stjórnar frú Gandhi og litur nU á sig sem Gúrú númer eitt. Við heimsóttum Sadachari i Janakpuri, en það er úthverfi i Delhi og þar hefur stjórnin fengið honum til umráða svæði á stærð við fótboltavöll. Enn stendur þó aðeins kofi á þessu landi. Sadachari heldur einkum upp á rauðan lit. Þegar úr fjarlægð má sjá hina eldrauðu skikkju hans. Hann er með alskegg, þriflegur og segir að við megum ávarpa hann „Yðar heilagleiki”. Studdi Reagan. Hans heilagleiki segir að allt frá þvi er hann var barn, hafi hann ráðið yfir guðdómlegum mætti. Fjögurra ára gamall snerti hann við lömuðum manni, sem þegargat stokkið á fætur og hlaupið. Hann hefur numið „Tantra”, hin fornu fræði. Maður i ameríska sendiráðinu bað hann að gera eitthvaö til stuðnings Reagan, áður en forsetakosning- arnar fóru fram og nú er árang- urinn öllum ljós. Hann spáði að ameriska geimflaugin, sem skot- ið var upp 1979, mundi ekki falla á Indland, heldur koma niður á sjó. Hann kveðst einnig eiga allan heiðurinn af þvi að Indira Gandhi komst til valda á ný. ,,í Tantra er eiginlega ekkert ómögulegt.” Þegar rætt er við hann um Dhirendra, hikar hann um stund, en segir svo : „Við erum hægri og vinstri hönd frú Gandhi. „En hvor er hægri höndin og hvor sú vinstri? Einkaritarinn hans er skjótari til svara en meistarinn: „Hans heilagleiki er sú hægri” Þótt svo eigi að heita að þessir menn skipti með sér verkum, er ekki laust við meting á bak við tjöldin. Dhirendra segir um Sadachari: „Loddari.” Sadachari segir um Dhirendra: „Vindbelgur.” Spádómsgáfan brást. Þá er ótalinn enn einn gúrúinn, sem nýtur vaxandi virðingar. Hann heitir Chandraswamy, fyrrverandi brotajárnsali frá vesturindverska héraðinu Rajasthan. Ahrif hans á frú Gandhi fara sivaxandi. Hins vegar hefur stjama enn eins urgúrú hrapað hratt, stjarna Kamplapathi Tripathi. Hann er kominn af prestafjölskyldu í hinu heilaga Benares og var oröinn járnbrautarmálaráðherra, þegar hann var skyndilega sviptur öll- um vegtyllum sinum. Hann hafði oft stjórnað heilögum seremóni- um i húsi forsætisráðherrans, bar sem einn liður i athöfninni var sá að láta Htil guðalikneski niður i mjólk og hræra i öllu sam- an. Með þessu átti aö vera hægt að finna heppilega tima til flug- ferða fyrir hinn ákafa flugmann, Sanjay Gandhi, einkason Indiru. Eftir að hann fórst i fhigslysi þann 23. júni á fyrra ári, sat hinn heilagi maður heldur illa i súp- unni, sem nærri má geta. (Þýtt úr „Stern”) V Sunnlenskir sagnaþættir Safn frásagna frá liðinni tið/ skrifað af ýmsum þekktum höf- undum frá fyrri timum. Af frá- sögnum í bókinni má nefna: Skipsströnd/ þjóðlif sþætti/ náttúruhamfarir/ sagnaþætti/ einkennilegir menn, þættir af Kambsráni, þjóðsagnaþættir o.fl. Aætlaðer framhald af þess- um bókaþáttum. örlög á Mateland- setrinu er nýjasta bók Victoriu Holt er kemur út á is- lensku, er þetta 15. bók hennar. Victoria Holt var strax með fyrstu bók sinni, Manfreiakastalinn afar vinsæll höfundur. islensk list Saga 16 islenskra myndlistar- manna, sem rituð er af 12 rlthöf- undum. Bókin er með litmyndum og svart-hvítum myndum í stóru broti. Formála skrifar forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir. Greifinn á Kirkjubæ eftir Victoriu Holt er 2. útgáfa og má segja það sama um hana og Ib H. Cavling að reynt er að koma til móts við les- endahóp útgáfunnar. Hertogaynjan er nýjasta bók Ib H. Cavling er kemur út á íslensku. Þetta er 22. bók hans sem sýnir að vinsældir Cavl- ings dvína ekki með árunum. Skemmuvegi 36 Símar 76700 — 43880

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.