Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 24

Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 24
Sunnudagur 13. desember 1981 24__________________________________Wimvm. á bókamarkadi Klas, Lena, Nína og ... hver? — Unglingabækur Lystræningjans eftir Hans Hansen Hans Hansen : Klás, Lena, Nina og... Margrét Aöalsteinsdóttir og Vernharður Linnet þýddu, Lystræninginn 1981. ■ Þaö er erfitt, og i rauninni óhugsandi að fjalla um þessa bók án þess aö minnast bækurnar, „Sjáðu sæta naflann minn” og „Vertugóður viðmig”,en þessar þrjár bækur eru svo að segja órofa heild og hver i framhaldi af annarri. Þó ekki svo að skilja að hverþeirra standiekki fyrirsi'nu, hinsvegar er það næsta nauðsyn- legt vegna þess að viss þróun á sér stað og atburðarásin er sam- ofin. Aðalpersónur þessara þriggja bóka eru Klas og Lena, þótt Lena detti að svolitlu leyti út úr myndinni I siðustu bókinni. Þau skötuhjú eru í sama bekk og byrja að vera saman i „ Sjáðu sæta naflann minn”. Þar er sam- bandi þeirra lýst af skilningi, þegar þau kynnast hvort öðru, — andlega og li'kamlega. Sagan er þó að mestum parti sögð frá sjónarhóli Klás, hans vangavelt- ur og hugsanir ganga fyrir. Hann er á þessu „erfiöa skeiöi”, hefur mikinn áhuga á stelpum og kyn- lifi, sem hann hefur einungis kynnst i gegnum klámblöð og fjálglegar lýsingar vinar sins, Jörgen, sem þó virðist aðeins hafa upplifað kynlif i kollinum og kjaftinum. Aö minum dómi er of mikið lagt upp úr þvi, — eða of litil hersla lögö á að strákar hafa ýmiss önnur áhugamál en bara steipur. Vafalaust upplifa flestir drengir „klámblaðakynllf” ein- hverntima, en ég hygg að fæstir verði svo gagnteknir að engin hugsun önnur komist aö, og þeir linni ekki látum fyrr en þeir hafa „sannaö karlmennsku sina”. Vel aö merkja, ég vil engan veginn koma nokkrum til að halda að bækurnar snúist um þetta eitt, það væri hreinasta fásinna, auk heldursem þetta er vitaskuld ein- vörðungu min persónulega skoö- un. Dream about you.. Ensvolitið sé afturá söguþráð- inn, Klás og Lena kynnast æ betur og verða nánari, tilfinningalega séð. En þótt Klás sé sannfærður um að hann geti ekki án Lenu verið, þá verður hann hálfhrifinn af annari stelpu : Ninu. Nina er tölu- vert öðruvisi en Lena, en hún er llka soldið skotin i Klás. Enginn alvarlegur ástarþrihyrningur myndast, Klás kyssir Ninu einu sinni og káfar litillega á brjóstum hennar (sem reynast stærri en á Lenu!): en svo er það búið i bili. Núgæti verið aðlesendur þessa pistils séu orðnir svoldið áttavillt- ir, ég vil taka fram að það sem hér á undan er nefnt gerist i fyrstu tveim bókunum. Þar gerist það lika að Lena flytur til Fjóns, sem ku vera alllangt frá þeim stað sem þau bæði búa á. Klás verður harmi sleginn og er á þvi að hann muni ekki bera sitt barr eftir þaö. Þau heita þó hvort öðru ást, tryggð og bréfaskriftum. Klás situr eftir i bókarlok angur- værog dapur, hafandi misst Lenu og bókin endar á þessari rómantisku laglinu: I just dose my eyes and dream about you... Aldrei að vita Siðasta bókin, „Klás, Lena, Nina og..” snýst að mestu leyti um Klás, Lena, hún er á Fjóni og þótthún séeinatt nálæg Klási, þá erhún eins og gefur aö skilja ekki mikiö ráðandi i söguþræðinum sjálfum. Eins og nafnið gefur til kynna blandast Nina, áðurnefnd meira inn i. Klás endurnýjar kynnin við hana, hver verða aldrei mjög tilfinningaleg frá hans hendi, hann leitar til hennar, að mér skildist meira af kven- semi en ást. Þau sofa saman, og þar með finnst Klás sem horn- steinninn að karlmennskuprófi hans sé lagður. (Hér ber að taka fram, að Klás og Lena sváfu aldrei saman, — þótt þau gerðu ýmislegt annað) Inn ísöguna er blandað, eins og i hinum bókunum, bekkjarfélög- um Klás, foreldrum... — og Lenu aðeins. Svo litið sé á Klás, eins og hann er gerður frá höfundarins hendi, þáerhann fremur feiminn og lok- aður, hvaö stafar að einhverju leyti af tilfinningalegu sam- bandsleysi við foreldrana. Þeir eru dálitiö gamaldags, og litið um opinskáar samræðurum það sem Klás vill helst tala um. Þeir eru öngvu að siður ágætir og vilja Klási allt hið besta. Andstæða þeirra eru svo foreldrar Jörgens, bestavinar Klásar, móðirhanser svo frjálsleg og alþýðleg að Jörgen hefur imugust á. Siðasti kafli bókarinnar lýsir þvi þegar Klás fer i heimsókn til Lenu, hún var lika búin að útvega sér annan vin, þótt það væri eins og hjá Klási, ekki mikil alvara i. Hjá báðum vaknar ástin aftur, og það er aldrei að vita... Besta unglingabók þessa árs. Þessar þrjár bækur, sem allar eru frekar stuttar, til samans sirka hálfur Sigurður A., eru bestu þartilgerðu unglingabækur sem ég hef lesið. Þær fjalla um þaö sem getur hent hvern sem er, gagnstætt flestum unglingabók- um sem fjalla um unga ofurhuga leysandi hin og þessi löggumál. Atburðarásin er lifandi og per- sónurnar skýrar og vel upp dregnar og ekki sist einkar trú- verðugar. Þráttfyrir ýmsa mein- bugi eru kostirnir svo miklu fleiri og ég vil hvetja alla, og ekki bara unglinga til að lesa þessar bækur, þær eru öllum þörf — og skemmtileg lesning. Þýðing Margrétar og Vern- harðs sýnist mér hin ágætasta, lipurog vel unnin.Má vera að það sé smáatriði, hinsvegar langar mig að benda þeim á, að orðið hönd beygist svona: hér er hönd um hönd frá hendi til handar. Þaö er án efa áhættusamt fyrir- tæki, fyrir ekki stærra forlag en Lystræningjann að ráðast i út- gáfu þessara bóka. Eiga þeirsem hlut eiga að máli hinar bestu þakkir skildar. Aö lokum vil ég leyfa mér að út- nefna bókina „Klás, Lena, Nina og...” bestu unglingabók þessa árs. Draumóra- bók fyrir byrjendur — „Á flótta með f ar andleikur um ’ ’ eftir Geoffrey Trease Geoffrey Trease: Á flótta með farandleik- urum/Cue for Treason, Silja Aðalsteinsdóttir þýddi Mál og menning 1981. ■ Þessi bók kom út i Englandi árið 1940 og gerist á siðustu ára- tugum 16. aldar. Má þvi með sannisegja að hún sé orðin dálitið lúin að eðli og anda. Aðalpersóna sögunnar er Pétur Brownrigg, 14 ára drengur úr norðurhéruðum Englands. 1 upp- hafi sögunnar er lýst viðureign bænda þessarar sveitar við aðals- manninn: Sir Philip Morton. Hann er erfiður viðureignar og vill sölsa land bændanna undir sig. 1 þeirri baráttu kemst Pétur upp á kant við aðalsmanninn, m.þ.a. sá fyrrnefndi veróur að flýja. Pétur slæst i för með far- andleikflokki og leikur um nokk- urt skeið aðalkvenhlutverkin, en það tiðkaðist ekki á þessum tim- um aðkvenmenn léku. En stjarna hans fer lækkandi innan flokksins meö tilkomu annars drengs, Kit. Pétur kemst að þvi eftir nokkurn tlma, að Kit er einnig að flýja Philip, hinn grirnmlynda aðals- mann, sökum þess að hann vill taka sér Kit fyrir konu (!?). Kit reynist eftir allt saman vera stúlka, vellauðug, en foreldralaus og ætlaði Philip að sölsa undir sig lendur hennar með aðstoð fjár- haldsmanns hennar. Kit er ein- ungis 13 vetra og kaus þvi að hlaupast á brott, uns hún yrði fjárráða. Pétur lofar að ljóstra ekki upp um leyndarmál Kits og saman fara þau til Lundúna. Þar komast þau að i leikhúsi, fyrir til- stuðlan Villa Shakespeares! Hann er um þær mundir að skapa sér nafn og telur ekki eftir sér að hjálpa strákunum (?) enda Kit hið mesta efni. En uppúr einhverju briarii komast þau á snoðir um... — landráð! Og höfuöpaurinn á bak við þau er enginn annar en Sir Philip Morton! Þau ganga þegar á fund ensks ráöherra, sem snim- endis innritar þau i ensku leyni- þjónustuna.... 1 fylgd bráðklárrar allratima leynilöggu fara þau aftur á heimaslóðir til að freista þess að koma upp um samsærismennina og þar með bjarga ensku krún- unni og þeirri Betu drottningu sem þá sat.... Eins og gefur að skilja, lenda þau i miklum mannraunum og hættum, dauðinn biður við hvert fótmál. En þau slá öllum við i ráðkænsku og hugrekki og — eins og vænta mátti —- standa að lok- um uppi sem hinir fullkomnu sig- urvegarar, dáð og virt og elskuð af Betu og Villa og öllum hinum. Hetjur Þetta er litt frumleg bók, hún var það kannski fyrir 40 árum, ekki núna. Hún er ein af þeim bókum þar sem venjulegir ung- lingar verða hetjur og nánast of- urmenni, leysandi öll vandamál sem ekkert væri. Ég skil ekki þá tilhneigingu að geta ekki skrifað um unglinga fyrir unglinga, án þess að úr verði einhver hetju- fans. Allir verða að vera hetjur, bjargandi hinu og þessu, ef ekki föðurlandinu, þá helst heiminum. Ef ég væri nú jafn kænn og hug- rakkur.... Semsagt draumórabók, fyrir þá sem langar að verða hetjur. Sem slik er hún ekki svo slæm, hún er bara innihaldslitil og fjarstæðu- kennd. Þýðing Silju sýndist hin skikk- anlegasta og ekki meira, enda býður bókin sennilega ekki upp á mikil stiltilþrif. Tilvitnanir i leik- rit Villa, þónokkrar, eru úr þýð- ingum Helga Hálfdánarsonar, birtum og óbirtum. Enhverntima hefur hann átt hlut i betri bók... Hrafn Jökulsson skrifar um unglingabækur. Bara fyrir stelpur? — „Aprílást” eftir Evi Bögenæs Evi Bögenæs: Aprilást Andrés Kristjánsson þýddi, Iðunn 1981. ■ Þessi bók kom fyrst út i Noregi 1958, og var gefin út i islenskri þýðingu Sigurðar Gunnarssonar 1963, þá hjá Setbergi. Höfundurinn, Evi Bögenæs, er einkum kunnur á Islandi fyrir Kittu bækurnar, sem munu hafa notið mikilla vinsælda hjá is- lenskum stúlkum að þvi er segir á bókarkápu. Auk heldur er þar fullyrt að Aprilást muni ábyggi- lega ekki falla þeim siður i geð. Semsagt stúlkubók, eða hvað? Sagan fjallar um önnu Betu, sem búið hefur ein hjá föður sin- um, móðirin lést við fæðingu Onnu. Hún unir sér vel og sam- band þeirra feðgina er gott og ná- ið. Það verður þvi reiðarslag fyrir hana þegar pabbi hennar giftir sig aftur og konan flytur inn á heimilið með dóttur sinni sem er á aldur við önnu. Henni finnst sem lif sitt hafi algerlega verið brotið niður, nýja konan sé búin að stela pabba hennar frá henni. Aukheldur er dóttir konunnar hvers manns hugljúfi og önnu Betu fellur sárt þegar vinkonur hennar virðast meta hina stelp- una meira. Hún verður einmana, sár, bitur og þrjósk og fer einför- um. En þá kemur Friðrik, sonur nýju konunnar til sögu. Hann stundar nám langt i burtu og kemur I heimsókn endrum og eins. Hann virðist skilja hvað önnu liður og reynir að koma til móts við hana. Hvort sem henni þykir það leitt eða ljúft verður hún smám saman hrifin af Frið- riki, hvað er gagnkvæmt. Engin ástarsaga Með timanum sættir hún sig svo við nýju mömmuna og verður „sama glaða og káta” stelpan sem fyrr. Þegar Friðrik kemur næst i heimsókn opinbera þau trúlofun sina og allt endar i lukk- unnar velstandi.... Lesendur skyldu ekki misskilja nafn bókarinnar, þetta er engin ástarsaga. Ástin kemur við sögu en fyrst og fremst er þetta lýsing á baráttu söguhetjunnar við sjálfa sig þegar henni virðast all- ar dyr luktar og engin úrræði i sjónmáli. Sem slik er þessi bók góð, það er hægt að kalla hana til- finningalega þroskasögu, — og auk þess ágæta skemmtilega. Bókin er lipur og atburðarásin skýr. Þýðing Andrésar Kristjánsson- ar er vel unnin og á góðu máli, — eins og vænta mátti. Leyfist mér svo að spyrja að lokum: afhver ju stendur á bókar- kápu að bókin sé likleg til að falla stúlkum vel I geð, mér virtist hún nokkurnveginn við allra hæfi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.