Tíminn - 13.12.1981, Side 25
Sunnudagur 13. desember 1981
i íívíí í • m *i Ovíl Sfám a\Cmavc f ‘1 > í-*t5
Dominique Eudes:
The Kepetanios
Monthly Review Press
■ Hér segir af Grikkjum.
Eftir aB ÞjóBverjar réBust inn
I Grikkland reis þar upp mikil
og öflug andspyrnuhreyfing
sem, eins og viBar á Balkan-
skaga, skiptist i tvær fylking-
ar — kommúnista og ekki--
kommúnista. Eins og ehdrá-
nær reyndust kommúnistar
segir f baráttunni gegn nas-
istum en aBrir voru gjarnir á
aB hlaupa út undan sér. AB
stríBslokum var skæruliBa-
hreyfing kommúnista mjög
sterk og höfBu kammúnistar
fullan hug á aB koma Grikkj-
um undir ráBstjórn i meira
eöa minna mæli. Þaö gátu
Vesturveldin afturá móti ekki
þolaö og studdu andstæöinga
kommúnista gegn þeim.1946-
49 rikti grimmilegt borgara-
striö i landinu og fóru komm-
únistar aö lokum halloka.
Eudes segir þessa miklu sögu
á fróBlegan og skemmtilegan
hátt, því er ekki aB leyna aö
samúö höfundar er öll meö
kommUnistum en þaö
skemmir ekki fyrir bókinni i
heild.
kcm
Owwge invwfígotos
fiylheaijé>oraf TtmSpy'MxtCoim ir>/rrvn Ae Gj/d
John Le Carré:
A Murder of Quality
Penguin
■ Þessi bók er aö sönnu ekki
ný af nálinni. HUn kom fyrst út
áriö 1962 en hefur siöan veriö
endursprentuö æ ofan i æ og
vinsældir hennar fara sist
minnkandi. Þetta mun vera
önnur bók Le Carrés eri meö
þriöju bók sinni öölaðist hann
heimsfrægð: Njósnarinn sem
kom inn úr kuldanum, sem
gerði m.a. njósnarann George
Smiley frægan. 1 þessari bók
hér er Smiley á feröinni en
ekki viö snjósnir, hins vegar
berstfyrir tilviljun upp i hend-
urnar á honum morðmál.
Leikurinn gerist i umhverfi
ensku yfirstéttarinnar, finum
einkaskóla, og auðvitað
kemur margt grunsamlegt
upp á yfirborðið. Frásögnin er
meistaraleg plottið óaðfinnan-
legt en eins og siðar kom f ljós
er sterkasta hliö Le Carrés
,jiinn mannlegi þáttur” —
næm og blæbrigöarikpersónu-
sköpun.
Sigmund Freud:
Case Histories II — „Rat
man”, Screber, „Wolf Man”,
Famale Homosexuaiity
Pelican/Penguin 1979
■ Þetta er ni'unda bindiö i rit-
safni Pelican/Penguin útgáf-
unnar á verkum hins mikla
Freuds fýlupoka, tilvalið fyrir
alþýöu manna aö kynna sér
verk hans á nokkuö aögengi-
legan hátt I þessu bindi eru
þrjár „sjúkdómslýsingar” eöa
„case histories” sem voru
vinsælar i eina tiö og eru sjálf-
sagt enn — lesast nánast eins
og leynilögreglusögur. Svo
dæmi sé tekiö: þaö er komið
meö mann til Freuds og þjáist
af taugaveiklun, ofsóknaræði,
minnimáttarkennd og ööru
sem til fellur; eftir langar og
strangar yfirsetur / sem oft
taka mörg ár og eru viöburöa-
rikar, kemst Freud aö hinu
sanna — i æsku var dreng-
urinn lokaður inniskáp meðan
foreldrarnir eöluöu sig. Eöa
eitthvað álika. Mjög skemmti-
leg lesning og, ef menn eru
þannig sinnaöir, sjálfsagt lær-
dómsrik...!
Gay Talese:
Honor Thy Father
Dell 1981
■ Talese þessi er höfundur
frægrar bókar um kynlifsmál
ameriskra karla á miðjum
aldri —Thy Neighbour’s Wife.
Sú vakti bæöi aðdáun og
kneykslun, en er vel að merka
ekki fyrir alla: Hugh Hefner
og Utgefandi timaritsins
Screw lofsungnir fyrir að hafa
veitt leyndum hvörtum milli-
stéttarkarla útrás á ýmsastan
hátt... I þessari bók, sem
skrifuð var áður en Talese hóf
ódysseifsferð sina um nudd-
stofur, segir hann frá Mafi-
unni — nánar ’tiltekiö
Bonnano-fjölskyldunni, einni
hinni áhrifamestu af þeim
ítaliuættum sem lengstaf réði
lögum og lofum (!) i banda-
riskum undirheimum. Sagan
er sögð i skáldsöguformi og
frásögnin verður fyrir vikið
lifandi og á köflum spennandi.
Hafi maður áhuga á viðfangs-
efninu.
■ Bækurnar hér aö ofan eru fengnar hjá Bókabúö Máls og
menningar.
Sunnlenskir
sagnaþættir
BókaUtgáfan Hildur hefur sent
frá sér bókina Sunnlenskir sagna-
þættir.
Þættir þeir sem birtast i bók-
innieru fengnir Ur ýmsum áttum.
Leitast hefur veriö viö aö breyta
þeim sem minnst, en reynt aö láta
frásagnir höfunda njóta sin.
Þættirnir eru um margt ólikir en
allir eiga þeir þaö sameiginlegt
aö vera skemmtilegir aflestrar og
höföa til þeirra sem unna þjóöleg-
um fróöleik.
Gunnar S. Þorleifsson safnaöi
þáttunum saman.
Starfið er margt
Landvernd hefur gefiö Ut bók-
ina Starfiö er margt.ræöur og rit-
geröir Hákonar Guömundssonar,
fyrrum hæstaréttaritara og siðar
borgardómara.
Hákon var þekktur fyrirlesari
um lögfræðileg efni i Utvarpi um
langt skeiö. Auk þess var hann
mikill áhugamaöur um skógrækt
STARFIÐ
ER
MARGT
HÁKON GUDMUNDSSON
og umhverfisvernd og ræddi og
ritaöi margt um þau málefni.
1 bókinni er úrval Ur ræöum og
greinum af fræöisviöum Hákon-
ar.
Seljaútibú
BÚNAÐARBANKANS
tekur til starfa 11. desember
Afgreiðslutími mánudaga til föstudaga kl. 09.15—16.00
Síðdegisafgreiðsla fimmtudaga kl. 17.00—18.00
★ Við bjóðum Seljahverfinu alla innlenda bankaþjónustu
★ Við reynum að miða aðbúnað og þjónustu fyrst og fremst
við einstaklinga og fjölskyldur
★ Starfsfólk reynir að sýna viðskiptamönnum lipurð og
skilning í öllum afgreiðslum
★ Við bjóðum björt og notaleg húsakynni án hefðbundinnar
formfestu
★ Við bendum á, að Búnaðarbanki íslands er annar stærsti
viðskiptabanki þjóðarinnar og einn traustasti hornsteinn
íslenzkra peningamála
★ Athygli er vakin á því, að útibúið starfar til bráðabirgða í
núverandi húsnæði og bíður eftir aðstöðu í verzlunar- og
þjónustumiðstöð Seljahverfis
★ Við bendum á, að Skógarsel hefur nýlega verið gert að
aðalbraut og biðjum viðskiptamenn að gæta varúðar í
umferðinni
★ Loks bjóðum við viðskiptamenn velkomna í útibúið. Það
verður heitt á könnunni í skammdeginu.
Jón Sigurðsson
útibússtjóri
Sigurður Karlsson
gjaldkeri
Gerður Daníelsdóttir
bókari
Sigríður Stetánsdóttir
bókari
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
SELJAUTIBU
Stekkjarseli 1 (á horni Stekkjarsels, Stokkasels og Skógarsels)
Sími78855