Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 28

Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 28
 Sunnudagur 13. desember 1981 ^28 nútíminn —gKi ■ „Mjötviöur mær” heitir nýja platan frá Þcy. Ætli hugmyndin aö nafninu hafi oröiö til þarna. Magnús og Sigtryggur kanna máliö. ■ llljómsveitin Þeyr er nýlega komin úr reisu til Bretlands og bar margt og merkilegt fyrir augu og eyru hljómsveitarinnar, sem vænta mátti. Helgar-Timinn hefur komist yfir dagbók sem félagar Þcys héldu i feröinni og fer hún hér á eftir, skrautleg nokkuö. 5. nóv.: Kæra dagbók. Ég vigi þig hér þar sem við, hið friða föruneyti Þeysreisunnar, brokkum skýjum ofar i einum hinna glæstu faxa Flugleiða. Eins og þessar fyrstu linur gefa til kynna hafa háloftin gert mig skaldlegan, en ég segi það satt að ég er eins og ómálga ungbarn við hliöina á gerðafélögum mínum: Guðni Rúnar er að semja þakkar- gjörðtil Drottins Allsherjar fyrir þá náð að öll mál hafi bjargast á siðustu stundu. Við erum allir með óstundvisari mönnum og þegar óstundvisin hefur verið hafin upp i sjöunda veldi er voð- inn vis. — Enda þurfti James- Bondkeyrsluúr bænum til þess að ná flugvélinni og öll frihafnar- kaup urðu að engu — nema það að mér tókst að hlaupa i gegn og kaupa þrjár svartadauðaflöskur sem við höföum ætlað nokkrum Ijúflingum handan við hafið. Já og Hilmar örn Agnarsson er með tárin í augunum að lofsyngja sól- arlagið: útsýnið er eins og bóm- ullarábreiða með blóðpolli út i einum endanum. „Þarnæsta plötuumslag”, segir Hilmar. Við samþykkjum annars hugar. Þor- steinn og Magnús fara aftur i til þess að svala nikótinnautninni, Gulli horfir út um gluggann og virðist utan viö sig. Hvernig skyldi blóðrautt sólarlag li'ta út i gegnum þessi bláu sólgleraugu hans Gulla? 10. min. siðar: Guðni potar i mig og segir að Gulli sé kominn með „svipinn” eina sanna. Þá fer ýmsilegt að gerast. Allirþekkja sögurnar um það hvernig Niels Bohr dreymdi um uppsetningu atómsins og hvernig — hvort var það Watson eða Crick? dreymdi um uppsetn- ingu kjarnsýranna, þetta eru góð dæmi um það þegar dulvitundin og innsæið hjálpa vi'sindunum. Gulli er stundum eins og Nichola Tesla (sem hefur fundið upp ann- að hvert apparat sem gengur fyr- ir rafmagni), hann „sér” fyrir sér teikningar af einhverjum furðumaskinum sem hann hefur oft orðið að smiða til þess að sjá hvað þær raunverulega gera. Að visu á hann lika til svefninnblást- ur og Valborg kona hans byrjar oft daginn á þvi að tina 10 blöð með útreikningum út úr rúminu og biður svo bæn um að þetta sé ekki eitthvað sem umbreytir heimilistækjum yfiri furðudót, — eins og þegar ryksugan varð að rakatæki, sjónvarpið að oskilló- skópi og hrærivélarskálin að parabólskum spegli til þess að varpa hátiönihljóðum. Hvað ætli komi út úr þessu? Loksinssést iborgarljós. Okkur er sagt að nú gefist einstakt tæki- færi til þess að sjá eldflaugasýn- ingar ofanfrá. 1 kvöld er hið fræga kvöld sem er kennt við Guy Fawkes, þann sem i eina tið ætl- aði að sprengja breska þingið i loft upp. Einhver illgjarn maður segir að Iranir hafi betri auga fyrir sögulegu samhengi en Ir- arnir: þeir dundi sér þö við það að sprengja þingmenn og ráðherra — á meðan menn á Bretlandseyj- um láta sér nægja að sprengja hamborgarasjoppur. En hvur veit nema Irarnir geri eitthvað af sér i kvöld. Var þaö ekki guðspjallamaðurinn John Lennon sem ritaði: „Remember Remember the fifth of Novemb- er”? Hvort skyldi hann hafa meint það afturábak eða áfram i tima? Rétt i þvi er ég hafði lokiö við að rita orðin hér að ofan, þ.e. þetta um timann, gekk Gulli að mér og tilkynnti að hann væri búinn að finna upp timavél! — Hafi ég gripið þetta rétt er hann kominn með grunnhugmynd að maskinu sem getur gert Fouriergreiningu af umhverfinu og búið til eftir- mynd/ir af þvi. Gulli er oröinn Guli Skuggi hljómsveilarinnar.. Gulli Skugginn!!! Bubbi Moran? Nei, andskot- inn... Við erum að lenda. (5. nóv.: Jaz (hljómborðsleikari og söngvari Killing Joke) sóttiokkur út á fhigvöll og tilkynnti að hann ætlaði að kynna okkur fyrir „und- irheimum Lundúnaborgar” og planta okkur á brjálaðasta hótelið i bænum. Þegar á hótelið kom opnaði fyrir okkur fölleitur mað- ur sem virtist ákaflega fúll yfir þvi aö fá gesti. Hann tilkynnti okkur að hótelið byði ekki upp á neina fæðu, engan morgunverð, hádegisverð, kvöldverð — ekk- ert! Herra Bath (en svo kynnti hann sig) sagði okkur að hér væri heldur ekkert sjónvarp en þegar það virtist ekkert ætla að draga úr þeim ásetningi okkar að gista hótelið, geiflaði hann sig illsku- lega, rétti okkur herbergislykla og hvarf inni skugga. „Hvilikur maður”, hló Sigtryggur. „Þar- þarnæsta plötuumslag”, sagði Hilmar örn A. og við fórum aö dást að augntönnunum sem mað- urinn hafði haft. Jaz fór þá glott- andi að segja okkur frá ameriskri ■ A hljómleikum Killing Joke I Leeds. MONTNIR Hljómsveitin Þeyr í Bretlandi hljómsveit sem hafði dvalist þarna stuttan tima og fengið það á hreint að hótelið væri vampýru- bæli. „Söngvarinn tjáði mér”, Jaz brosti sinu dimma brosi, „að hann hefði komist að þvf að herra Bath væri rússneskur innflytjandi og hann og hljómsveitin voru sannfærðir um að Mr. Bath væri sömuættar og Elizabeth Bathory, greifynjan sem ásamt Vlad nokkrum varð uppsprettan að sögunum um Dracúla greifa og allt hans slekt.” Við settumst inn á herbergið hjá Steina og Gulla, skulfum smávegis af ferðahrolli og blóðSuguhræðslu og köstuðum upp krónu um það hver ætti að kaupa hvitlaukskippu næsta morgun. Allt þetta gleymdist þö siðarþegar við söknuðum pokans með svartadauðaflöskunum þremur og teikningunum hans Gulla af timavélinni. Við leituð- um vel og lengi en ekkert fannst. Slðar: Drengirnireru komnir með gott æfingapiáss sem Jaz reddaði þeim og eru strax byrjaðir að vinna úr Lundúnaloftinu. Staður- inn er i hjarta einnar aðal blá- mannagötu hverfisins og þegar við Guðni komum á staðinn stóð hópur af þeldökku fólki og diskút- eraði tónlist eskimóanna. Enn siöar: Þeir hafa eitthvert skilaboðs- kerfi hér. Þegar við fórum út að borða fórum við á dularfullan veitingastað sem var rekinn af nokkrum blámönnum sem klæddu sig í A1 Capone-stil. Fyrst i stað litu þeir illilega á okkur en svo gekk allt i einu einn að okkur og spurði hvort við værum is- lenska hljómsveitin. Þegar menn ■ „Ber er hver aö baki...” Sig- tryggur og Hilmar biöa eftir lest. jánkuðu þvi, gjörbreyttist upplit- ið á mönnum og okkur var skyndilega tekiö eins og týndu sonunum. Þetta var svo góður hópur og fjörið svo mikið að Sig- tryggur tilkynnti að hann ætlaði að verða negri þegar hann yrði stór. 7. nóv.: Jaz tók okkur i kennslustund i þvi hvernig á að ganga eins og blámaður, en það ku vera eina leiðin til þess að geta gengið i gegnum hverfið án þess að vera barinn i hausinn og troðið veskis- lausum oni' öskutunnu. Hlutir halda áfram að hverfa. Guðni er búinn að týna þremur bókum og nokkrar kassettur með ensku útgáfunni af Þeysplötunni nýju eru lika horfnar. Gulli er bú- inn að vera óhuggandi útaf teikn- ingunum og segir að þetta hafi verið innblástur af þeirri gráðu að hann hafi varla hugmynd um nema lítinn hluta af efni þeirra. Hann, Sigtryggur og Steini fóru útá flugvöll til að athuga hvort eitthvað hefði fundist þar, en sú ferð bar engan árangur. En við gátum að visu fengið huggun i sögu sem við heyrðum um góðan Nýalssinna heima á landi isa: þessi ágæti maður er i svo miklu „sambandi”, að einn fjórði eigna hans er yfirleitt i ein- hverri annarrividd! Okkar vandi er smávægilegur i samanburði við það... Enn eitt hvarfið! Pokinn með hangikjötinu og harðfisknum sem við höfðum með okkur, er horf- inn. Allar okkar rammislensku matarbirgðir eru horfnar á ein- ■ Fyrir utan hóteliö. hvern dularfullan hátt, sveit mér þá ef ég hallast ekki að þvi að Helgi Pjeturs og Egill Skalla- gri'msson séu á Siriusi að halda veislu. 8. nóv: La gt af stað til Leeds til þess að hlusta á Killing Joke. 9. nóv.: Meðan lýsingarorðaforðinn er svona fátækur hjá manni, þá er fáránlegt að ætla sér að lýsa þess- um stórkostlegustu hljómleikum sem við höfum nokkru sinni heyrt. Kvöld: Góður dagur út frá praktisku sjónarmiði — vægast sagt. Tvö hljómplötufyrirtæki hafa boðið okkur það að gefa plötuna út. A öðru þeirra, Cherry Red, rættist spádómur okkar Guðna um það að við myndum hitta félaga Jello Biafra úrDead Kennedys. Þegar við vorum i miðju viðtali opnuð- ust dyrnar og Biafra gekk inn prúðu r og góður og ky nnt i s ig. V ið sátum þarna góða stund eins og litlirsætir sunnudagaskóladreng- ir og ræddum heimsmálin: það gladdi gamla hjartað i Biafra beibi'að vita, að fá tippi hefði haft jafn stóran áhorfenda — og vænt- anlega aðdáendahóp — heima á Islandi og einmitt hans eigið. En Jello opinberaði sem kunnugt er nekt sina i kvikmyndinni „öfgar i Ameriku II”og var nærri þvi kos- inn borgarstjóri i San Fransisco fyrir vikið. Eða eitthvað svoleið- is. Kæri Jello, sögðum við, hvurn- ig væri að þú kæmir til Islands og gerðireitthvað dónó og spennandi — svosem að halda hljómleika með Kennediunum????? Jello mældi okkur upp og niður og hvislaði siðan i' eyru okkar nokkru sem við getum ekki sagt hér vegna plássleysis.... En sumsé stórkostlegur dagur. 10. nóv.: Kvöld: Annar frábær dagur. Þó skyggði það i fyrstu töluvert á gleði okkar að fyrirhugaðir hljómleikar með Þey og Killing Joke hér i London féllu niður af ó- fyrirsjáanlegumástæðum, þá var strax bætt úr þvi með boði frá að- standendum nýjasta klúbbsins i London, en hann er rekinn af sranuaðilum og eru með tónlist- arblaðið Zig Zag. Þey var boðiö að leika þ. 23. ásamt bresku hljómsveitinni Cure sem hefur alla tið verið i sérlegu uppáhaldi hjá Þeysdrengjum. — Eini gall- inn er sá að þetta er ekki fyrr en

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.