Tíminn - 13.12.1981, Síða 30

Tíminn - 13.12.1981, Síða 30
■ Sem betur fer viröist islensk pldtuútgáfa standa i hinum mesta blóma núna. Otgefendur keppast við að koma á markaðinn plötum listamanna sinna fyrir jólin og er nú svo komið að enginn munur er á jólaplötuflóðinu og jólabóka- flóöinu. Plötur með islenskum listamönnum vekja skiljanlega mesta athygli og verður hér á eftir reynt að gera þeim plötum ■ Björgvin Halldórsson. ■ Start. Frá v. til h.: Eirlkur Hauksson, Nikulás Róbertsson, Pétur Kristjánsson, Kristján Edelstein, Davið Karlsson og Jón Ólafsson. JÖHmríH£LG^SOÖ. Fjórar íslenskar skil, sem komið hafa út það sem af er desember, en vegna pláss- leysis veröur þeim ekki gert jafn hátt undir höfði og þær ættu skil- ið. Björgvin Halldórsson //Eins og þú ert" Likt og félagi hans Gunnar Þórðarson, hefur Björgvin Halldórsson tekið að sér að vinna ákveöiö verkefni (project) fyrir Fálkann h.f. Björgvin hafði sem sagt yfirumsjón með sam- setningu plötunnar „Eins og þú ert”. 1 stuttu spjalli sem Nútim- inn átti við Björgvin i tilefni af útkomu plötunnar* kom fram að þetta er ekki sólóplata Björgvins, heldur hyggst hann fara úr landi á næsta ári, sennilega i mars, til að taka upp sólóplötu. Þegar hann var spuröur um tilurð þessarar plötu,þá sagðist hann hafa gengið lengi með þetta i maganum aö gefa út „jákvæða” barnaplötu. Þegar hann orðaði þetta við Kristján frá Djúpalæk og baö hann að semja texta brást Kristján vel við og boltinn byrjaði að rúlla. Frá upphafi hafði Björg- vin hugsað sér þessa plötu sem aðgengilega og ánægjulega plötu fyrir börn á öllum aldri. Þetta væri ekkert frekar jólaplata. en hún er vetrerplata. Til þess að auka fjölbreytnina á plöt- unni fékk hann til liðs við sig fólk úr öllum áttum, tilbúið að gera þetta fyrir krakkana. Leikarana Róbert Arnfinnsson, Gisla Rúnar Jónsson, söngvarana Jóhann Helgason Ragnhildi Gisladóttur og Ladda. Björgvin lét þess sérstaklega getiö að þessi plata væri eins mikiö platan hans Kristjáns frá Djúpalæk eins og sín, þar sem hann heföi samið alla textana og ætti auk þess hugmyndina að nafninu. Þaö má örugglega taka undir þetta með Björgvin, þvi textar Kristjáns eru mjög góöir og höfða á skemmtilegan hátt til barna og barnæsku. Flutningur allur og útsetningar eru til fyrirmyndar. Hvergi er of- gert eða ofkeyrt. Textafram- buröur er góður og lögin vel til þess fallin að raula með. Plata fyrir „barnið sem blundar i okkur öllum”. Jóhann Helgason //Tass" „Ef þetta er einhver for- smekkur aö væntanlegri sólóplötu hans,...mega menn fara að búa sig undir aö þeim verði komið þægilega á óvart.” (Plötudómur um smáskifu Jóhanns frá 15/11). Voruð þið tilbúin? Nei, ekki ég heldur. Jóhann Helgason kemur skemmtilega á óvart með nýju plötunni sinni „Tass”. Hún er tekin upp i Bandarikjunum, nánar tiltekið Los Angeles, þar sem helsti hjálparkokkur Jó- hanns við gerð þessarar plötu, Jakob Magnússon, býr. Þeir voru ekkert að flýta sér við gerð plöt- unnar, enda ber fyrsta lag plöt- unnar heitið, „Take Your Time”. Hún er hljóörituö I júii og ágúst, en hljóðblöndun stóö allt fram i október. Aöstoðarmenn hans á plötunni fyrir utan Jakob Magnússon eru allt viöurkenndir hljómlistar- menn I Bandarikjunum. Þar er að finna meölimi hljómsveitar söngvarans Boz Scaggs og hljóm- sveitarinnar „Pages”. Upptöku- menn eru hvorki af verri endan- um né of fáir. Fremstan má lik- lega telja Humberto Gattica, sem hefur m.a. starfaö með áður- nefndum Boz Scaggs og „Chicago”. Aðrir sem störfuðu með Jóhanni voru Heyworth Collins, Patrick McDonald, Jónas R. Jónasson, en hann starfar nú i Los Angeles og Alan Howarth. Yfir þessu öllu hafði svo Jakob Magnússon umsjón og á hann vafalaust mikinn þátt i aö gera plötuna jafn góöa og raun ber vitni. Þvi platan er góð og er tvi- mælalaust ein af bestu islensku plötunum þetta árið. Reyndar hafði ég alltaf beðið (eða vonað) aö Jóhann myndi gera svona plötu þvi hæfileikarnir eru fyrir hendi. Hlustiö bara á fjölbreyti- leik laganna á plötunni sem þó eru öll eftir Jóhann. Af hálfu Jó- hanns er greinilega mikill metnaður lagöur i plötuna og þá sérstaklega sönginn. Jóhann er hér i toppformi og kveður endan- lega niöur þá skoöun margra að sjónvarpsdægurlagakeppnin skeri úr um hver sé besti söngv- arinn á Islandi. Ef einhver von er til að koma sólóistum frá Islandi á framfæri erlendis þá er þetta einmitt plat- an. Hún myndi sóma sér vel á hvaöa vinsældarlista sem er. Hún er allavega efst á minum vin- sældarlista. Mezzoforte //Þvílíkt og annað eins" Þeir eru ekki öfundsverðir strákarnir i Mezzo. Allt frá þvi að þeir komu fyrst fram á Tónlistar- kvöldum Jazzvakningar fyrir hartnær fjórum árum hafa þeir stööugt verið undir smásjáraug- um okkar poppskribenta. Hér hefur gefist ómetanlegt tækifæri til aö fylgjast með þróun ungrar og efnilegrar hljómsveitar i eina verðuga fulltrúa okkar Islendinga á jazzrokksviðinu. Enn eru þeir ungir, en ekki lengur efnilegir heldur eru þeir orönir að efni. Og þaö góðu efni. Alls hafa þeir gefiö út á þessu fimm ára timabili, sem þeir hafa starfaö saman, þrjár stórar plötur. Alltaf hefur veriö gerður góöur rómur aö plötum þeirra og greinilegt að fólk kann að meta þetta tónlistarform. Þriðja og nýjasta skifa þeirra félaga „Þvilikt og annaö eins” varð til við undirspil þeirra sjálfra ef svo má aö orði komast. Þeir tóku hana upp i Bretlandi um þaö bil sem veriö var að gefa út aðra plötu þeirra „íhakanum”á Bretlandi og fékk hún talsverða spilun i útvarpi þarlendra. 011 lögin á „Þvilikt og annað eins” eru eftir þá Eyþór Gunnars- son eða Friðrik Karlsson. Sem fyrr eru lögin „instrumental”. Þeir hafa ekki raddað nokkur þeirra likt og gert var á „1 hak- anum” þegar Shady Ownes og Ellen Kristjánsdóttir aðstoðuðu þá og tókst, aö mati undirritaðs, ágætlega. Þaö gaf lögi unum skemmtilegan svip og plöt- unni tilbreytileika. Tveir að- stoðarmenn eru á „Þvilikt og annaö eins” þeir Louis Jardin og Ron Asprey. Þeir voru nú reyndar einnig meö á „1 hakan- um”. En þaö var Simon Hey- worth ekki. Hann stjórnaöi hins vegar upptökum hjá strákunum úti i Bretlandi og fórst þaö vel úr hendi, enda þaulvanur, hefur m.a. unnið með Mike Oldfield. Mikið og gott tónlistarlegt jafn- vægi rikir á þessari plötu. Yfir henni er i kraftmikill og ljóðrænn blær. Lög Friöriks eru yfirleitt taktföst, hröð og hrein og bein, en Eyþór vegur vel upp á móti þessu meö sinum mjúku og ljóðrænu lögum. Bestu lögin á plötunni finnst mér fyrstu tvö lögin á hlið tvö, þar sem þetta skemmtilega jafnvægi kemur i ljós. Start //... en hún snýst nú samt" Með lögunum „Seinna meir” og „Stina fina” skaust Start fram á sjónarsviðið i sumar. Þar gáfu þeir ákveöin fyrirheit um að vera efni i góða „heavy rock” grúppu, eins og Kaninn kallar þaö en út leggst vist á Islensku þungt rokk. Nú hafa þeir félagar sent frá sér sina fyrstu breiðskifu og þeir hafa vaðið fyrir neðan sig og ætla grcinilega aö skjóta gagnrýnend- um ref fyrir rass og kalla plötuna ,,... en hún snýst nú samt” Hugmyndin er góð, en ef þetta var tilgangurinn, þá var það al- gerlega óþarfi. Startstrákarnir þurfa ekkert aö afsaka sig gagn- vart einum eða neinum. Platan stendur fyllilega fyrir sinu. Að visu er það misjafnt hversu vel lögin koma út en samt, heildar- svipurinn er góður. Þeir standa við þau fyrirheit sem þeir gáfu um þungarokkið. Þeir hafa efniviðinn i góöa þungarokkshljómsveit. Davið Karlsson á trommunum er jafn og sterkur og Jón bassi Ólafsson veitir góða fyllingu i bakgrunninn ( og er auk þess liðtækur laga- smiður). Gitarleikarar eru tveir á plötunni. Sigurgeir Sigmunds- son var i Start þegar upptökur hófust á plötunni en yfirgaf hljómsveitina áður en upptökum var lokið. Kristján Edeilstein tók sæti hans og er þvi ekki annað hægt að segja en gitarleikur sé fjölbreytilegur! Nei I alvörunni þá er gitarleikur mjög góður og tekst þeim báðum félögunum Kristjáni og Sigurgeiri best upp i þungarokkinu. Nikulás Róberts- son er hljómborðsleikari Start og er hann mikilvægur hlekkur i hljómsveitinni. Gefur henni mýkt og melodiu þar sem þess er þörf. Likt og gitarleikararnir eru söngvararnir tveir. Þetta er þá svei mér fjölbreytt grúppa! Pétur Kristjánsson þarf ekki aö kynna fyrir Islenskum ungmenn- um og reyndar ekki heldur eldra fólkinu. Hann ætti aö vera orðinn vel þekktur eftir fimmtán ár i poppinu. Eirikur Hauksson er hinn söngvarinn. Kraftmikill og radd- sterkur söngvari, sniðinn fyrir þungarokkið. Þetta er gott start hjá Start!! —M.E. Að þora The Human League: Dare fe Sumarið og reyndar allt árið 1981 má segja að elektróniskt popp hafi tröllriðiö Bretlandi. All- ar nýjar hljómsveitir sem komu fram voru niðursokknar I nýjustu tækniundrin á tónlistarsviðinu. Nöfn sem sett hafa svip sinn á vinsældarlista Breta þetta árið eru t.d. „Depeche Mode”, „Soft Cell” og núna nýlega „The Hum- an League” með lagið sitt „The Sound of the Crowd”. Margir á Bretlandseyjum hefðu ekki trúað þvi að The Human League ætti eftir að hafa það af að komast á vinsældarlista, sérstak- lega með tilliti til þess að á siöasta ári yfirgáfu hljómsveit- ina, þeir tveir menn, Martin og Ian, sem allir álitu að væru þeir einu sem „kynnu” eitthvað. Eftir stóðu Phil Dakey, söngvari með sérkennilega hárgreiðslu sina og nafnið og Adrian Wright sem venjulega stjórnaði litskyggnu- vélinni á tónleikum. Þeir ákvaðu að gefast ekki upp og fengu til liðs við sig tvo hljóðgerflaleikara. Rökréttast var að fá einnig tii liðs við sig annan söngvara til þess að halda hljómsveitinni á floti. Phil Oakey fór þvi á stúfana og hóf leit að svörtum söngvara sem væri tilbúinn að ganga i elektróniska poppgrúppu. Þaö sem hann hins vegar kom til baka með voru tvær átján ára gamlar skólastúlkur, sem hann hafði séð dansa á diskóteki. Þær kunnu að sjálfsögðu ekkert en voru samt teknar i hljómsveitina. Nú litur hljómsveitin út eins og Abba á sviði, tveir strákar og tvær stelpur. Tónlist The Human League ber þess merki að hún kemur ein- göngu úr hljóögerflum, en merki- legt er þó að hún er bara viðkunn- anleg. Sjálfur hef ég aldrei kunnað við að viðurkenna slika músik, en The Human League sýnir fram á það að hægt er að búa til skemmtilega áheyrilega og melódiska dansmúsik með slikum tækjum. Hljómsveitin státar sig af þvi að hver og einn meðlimur hefur fullkomið frelsi innan hljóm- sveitarinnar til aö gera það sem honum eöa henni likar. Þannig að verkaskipting meðlimanna er engan veginn ljós. Reyndar státa þeir sig af þvi að vera „ekki tón- listarmenn” heldur séu aðeins að „gera”. Svipað prinsipp og Purrkur Pillnikk er með. Til þess að leggja áherslu á þetta þá gerði Phil Oakey sjón- varpsþátt þar sem hann gekk i hljóöfæraverslanir og sýndi mönnum að þeir gætu gengið inn i næstu búð og keypt sér i formi hljóögerfils heila hljómsveit og þaö skipti engu máli þótt þú værir alger byrjandi spilað gætir þú samt. A tónlist The Human League er engin byrjendabragur, og ef þetta er rétt sem þau halda fram þá mega stórhljómsveitir þessa heims fara að vara sig. —M.G. ■ The Human League á sviði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.