Tíminn - 13.12.1981, Qupperneq 32
Sunnudagur 13. desember 1981
Nýja Philips maxim
er ekki aðeins hrærivél
heldur einnig grænmetiskvörn,
hakkavéi og blandari
Philips maxim er frábær hönnun. Með
fáeinum handtökum breytir þú hrærivél-
inni í grænmetishvörn, hakkavél eða
blandara. Allt sem tii þarf eru fáeinir
Philips maxim kostar aðeins
2.226 krónur!
Það er leit að ódýrari hrærivél!
fylgihlutir, sem aliir eru innifaldir í
verðinu.
Philips maxim fylgir stór skál, þeytari,
hnoðari, lítil skál, grænmetishvörn,
hakkavél, blandari og sleikja.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
Þessi margeftirspurða rúmsamstæða
komin aftur.
Verð kr. 3.970.— með dýnum
BKí
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Slökkvitæki fyrir
heimilið, bíiinn
og vinnustaðinn
GINGE
Halon 1301
slökkvikerfi fyrir
skip, báta og
tölvusali
Bridela
Eldvarnarteppi
Kolsýru-
hleðslan s/f
Seljavegi 12, simi 13381
útdauðir - lifandi
■ Kringum áriö 1950 eru pygmiar sagöir hafa drepiö dinósár-
usarlega skepnu sem ógnaöi fiskimiðum þeirra i vatni nokkru.
Lifandi
dínósárusar
ennþá til?
— Leiðangur inn í
frumskóga Kongó
■ Eru lifandi dinósárusar enn á sveimi í myrkvið-
um Kongó? — sem nú heitir Zaire? Kann að virðast
fráleitt en nú í haust og fyrrihluta veturs hefur Roy
nokkur P. Mackal, líffræðingur við Chicago há-
skóla, stundað leit að sliku dýri. Mackal er þraut-
reyndur í þessum efnum og í fyrra snéri hann aftur
úr langri og erfiðri ferð um regnskógana þar sem
hann hafði leitað að dularfulium skepnum í fenjum
Likouala, en það er lítt kannað svæði milli ánna
Ubangi og Sanga. Leit hans bar ekki árangur en í
október síðastliðnum iagði hann upp á ný og hugðist
þá beita mun betri aðferðum við leitina. Með
honum var og er Herman nokkur Regusters, en
hann er verkfræðingur við Caltec's Jet Propulsion
Laboratory sem fylgist nákvæmlega með ferðum
leiðangursmanna með f jarskiptum um gervihnött.
Er Mackal var á þessu
svæöi i fyrra heyröi hann frá
rúmlega þrjátiu innfæddum
sögur um aö þeir heföu séö
meö eigin augum undarlega
skepnu á stærö viö flóðhest
eða stærri, og kalla þeir þessa
skepnu Mokele-Mbeme. Segja
þeir aö dýr þetta hafi rauö-
brúnan skrokk, langan háls,
fremur smátt höfuð og langan
digran hala. Er Mackel lagði
fyrir hina innfæddu myndir af
hinum og þessum skepnum
sem ef til vill gætu fallið undir
þessa lýsingu völdu þeir allir
sömu myndina.
Sú mynd var af sauropod —
en þaö var tegund dinósárusar
sem meöal annars innihélt
brontósárus, stærsta landdýr
á jörðinni. Mackel kvaö þaö
athyglisvert aö ef þetta dýr
væri sauropod heföi þaö
breyst litiö sem ekkert á 60
milljónum ára.
Hinir innfæddu sögöu
Mackel aö þaö heföi ver-
iö um þaö bil áriö 1950 sem
Mokele-Mbembes dýr tóku aö
birtast i vatni sem fiskimenn
stunduðu veiðar i. Fiskimenn-
irnir reistu giröingu yfir eina
ána sem rann i vatniö til þess
aö halda skepnunum i burtu en
eitt dýranna geröi tilraun til
þess aö brjótast i gegn.
Innfæddir veiðimenn, sem eru
af dvergakyni pýgmia, réöust
þá aö dýrinu, stungu þaö til
bana meö spjótum sinum og
átu þaö. Allir þeir sem þátt
tóku i þeirri átveislu eru
sagðir hafa dáiö kvalafullum
dauödaga stuttu eftir þennan
atburö.
Sást skepnan árið 1770?
Mackel segir eftirtektarvert
aö Likouala-svæöiö hafi nær
ekkert breyst siöan dinósárus-
ar voru upp á sitt besta en ibú-
ar þar eru þó ekki hinir einu
sem hafa tilkynnt aö þeir hafi
séö undarleg dýr i skógum
Kongó. Franskir trúboöar sem
voru þarna á ferö um þaö bil
órið 1770 sögöust hafa séö spor
eftir dýr á stærð viö fil nema
hvaö þessi dýr höföu sterkar
klær. Tveir og aðskildir þýskir
leiöangrar á tuttugustu öldinni
hafa einnig gefiö til kynna aö
þeir hafi séö sitthvaö þarna
inni i skógunum sem ekki er
almennt reiknaö meö. Þessar
fra'sagnir, sem og ýmsar
aörar, hafa sannfært Mackel
um aö Mokele-Mbembe sé i
raun og sannleika til og til-
heyri algerlega einstæöri
dýrategund á jaröriki, þó hann
sé enn ekki nægilega viss i
sinni sók til að fullyröa aö hér
sé um sauropod aö ræöa.
Leiöangurinn er nú brýst
gegnum skóga Kongó er sér-
lega vel útbúinn tæknilega
séö. Meöal tólanna sem þeir
Mackel og Regusters hafa
meöferöis eru sónar og videó-
tæki og hyggjast þeir nota þau
til að kanna vötn og vatna-
svæði aö nóttu til. Mackel
kvaðst, áður en hann hélt af
staö inn i frumskógana, vera
nokkuð viss um aö regntiminn
þetta áriö yröi ofsafengnari en
venjulega og það sagöi hann
koma sér vel. Hækki vatns-
boröið i ám og vötnum eru
meiri likur en ella á þvi að
Mokele-Mbembe hætti sér út
úr fylgsnum sinum dýpst inni i
frumskógunum og fari viöar i
fæðuleit.
Skepnan er sögö leggja sér
fyrst og fremst til munns
ávöxtinn Molombo, en hann er
svipaður epli og vex alls staö-
ar viö árbakkana. Takist ejcki
aö finna lifandi dinósár hugga
þeir félagar sig viö aö rann-
sóknir þeirra, studdar gervi-
tunglum, muni aö minnsta
kosti veröa til þess aö Likou-
ala svæöiö veröi nú loksins
kortlagt af einhverri alvöru.