Tíminn - 13.12.1981, Síða 33

Tíminn - 13.12.1981, Síða 33
Undur Ofreskja kemur í bæinn — Alfreð Alfreðsson lendir í vandræðum í undirheimum — 8. þáttur ■ Alfreð var i slæmu skapi. Þaö er aö segja: Alfreð Alfreösson, okkar maöur f undirheimum, lit- ill, pervisinn og rebbalegur, skuggabaldur mesti og réttnefnd- ur Napóleon fjóröi glæpalýösins 1 Reykjavik, samviskulaus þorp- ari, góðkunningi lögreglunnar og uggvænlegur betri borgurum. Og nú var hann i slæmu skapi. Hann haföi veriö iðjulaus i mánuð, engin tækifæri gefist aö brýna klæmar, og mamma hans var si- fellt aö suða i honum að fara Ut á land að vinna i fiski — vinna var eitur í beinum Alfreðs Alfreðs- sonar. Svo hann hékk mestanpart i fleti si'nu i móöurgarði, reykti, las Morgan Kane og hámaöi i sig franskar meö tómatsósu. Kunn- ingjarnir voru tvistog bast: Uxa- skalli varla viðmælandi vegna ástar á Almannagjá úr Keflavik, Arfur Kelti í útlöndum, Húnbogi á Hrauninu, Aldinblók á flótta vegna kjaftháttar og Bóbö niður- sokkinn í nýja sendingu af bláum videó-spólum sem hafði verið smyglað til hans frá Kaupmanna- höfn. Alfreð fannst hann vera einn i heiminum. Svo var það einn daginn að Alfreð fékk nóg af móöur sinni. Hún haföi lesiö fyrir hann — i tvi- gang! — atvinnuauglýsingarnar úr öllum blööunum, bent honum á að það væri mokafliá Halamiðum og taldi vist að afreiðslumaðurinn i Gullfiskabúðinni væri að hætta. Alfreð, vanalega þolinmæðin uppmáluð viðmúttu sina, reiddist að lokum: „Haltu kjafti kelling!” öskraði ’ann, rauk á dyr og skellti á eftir sér. Sótrauöur af vonsku arkaöi hann út i Hljómskálagarö, þar áttu þeir félagarnir leynistaö þar sem þeir stungu bokkum ef eitt- hvaö var afgangs að loknu svalli. Hjarta Alfreös kættist er hann kom á staðinn: hálffull flaska af ákaviti brosti við honum. Heim- urinn er þrátt fyrir allt ekki al- vondur, hugsaði Alfreö hlýr að innan eftir fyrsta sopann. En hvert skyldi haldið? Upp i' Hlfðar til Uxa En Uxaskalli var ekki heima. Rottan, hugsaði Alfreð, nú er hann á bió með Almannagjá! Forsmáir gamla vini og drykkju- félaga. Fjandinn eigi hann! Alfreð velti fyrirsér hvorthann ætti að taka strætó uppi Skógasel tii Bóbós en hryllti við. Honum leiddust liffærasýningar á fölblá- um sjónvarpsskermi. Hvert þá? Áður en Alfreð vissi af var áka- vitið uppurið og hann kominn inni Klúbb. Dyravörðunum var um og ó. Ætli þeirþekki ekki Alfreð! „Kúl- aöu þaö, maöur,” sagöi Alfreð ró- lega,þegar einn þeirra, alkunnur fauti, ætlaði aö varna honum inn- göngu. „Ég stoppa stutt.” Og glotti ismeygilega. Það var fimmtudagskvöld og fáir mættir enn. Alfreð smeygði sér niður i kj allara, fiskaði á leið- inni veski upp úr rassvasa kóf- drukkins manns, og fór á barinn. Fékk sér meira ákaviti. Settist inni' einn básinn og beið. Eftir þvi aö eitthvaö geröist. Þegar ekkert hafði gerst lengi svipinn. Þeir litu svinsaugum sinum hver á annan. „Við vorum að koma frá Bakkafirði, bræður minir og ég,” sagði foringinn loks. „Við ætlum að mála bæinn rauðan.” „Geriði þaö fyrir mér,” ansaði Alfreð stuttaralega. „Nú er ég farinn.” „Þú ferð ekki fet, Freddi litli, fyrren viö leyfum þér að fara. Þú ert bara nóboddi. Héðan i frá erum þaö við sem ráðum i bæn- um. Skiluröu það?” „Hver þykist þú vera?” spurði Alfreð eins kæruleysislega og honum var unnt. Foringinn tútnaði út: „A Bakkafirði var ég kallaður Undur Ófreskja.” „Segir mér ekki neitt.” „Ekki þaö, lilliman. Freddi. En biddu bara — eftir smástund veröur allur bærinn búinn aö frétta af mér og bræðrum minum,,’ sagði Ófreskjan. Alfreð fann þykka krumlu gripa um fingur sér og kreista. Hann horfði uppi gular, skemmdar tennur eins bræðranna: „Ég heiti Dálaglegur.” Onnur hönd þreif um fingur Al- freös. „Beinabrjótur hérna.” „Fjögramaki.” „Putti Vasahnifur.” „Og ég heitiLilli,” sagði sá sib- asti. Alfreð reyndi að glotta yfir- lætislega. „Gleður mig aö kynn- ast ykkur.” „Onei,” urraði Undur Óíreskja. „Það gleður þig ekkert. Og þú átt sko eftir að komast betur i' kynni við okkur. Við vitum allt um þig, Freddi og þina lúsablesa. Ein- hver sagði mér að þú létir kalla þig Napóleon fjórða.” Alfreð hætti á að fara meö höndina i vasa sinn og draga upp velktan sigarettupakka. Hann fékk sér eina og blés reyknum framan i ófreskjuna. „Þcir kalla mig það á Helgar- Timanum.” Undur Ófreskja spratt upp, reif sigarettuna úr munnviki Alfreðs og fleygði henni burt. „Sannaðu til, lillimann. Eftir ekki langan tima verður þetta undanrennukjaftæði farið að snú- ast um mig og bræöur mína, Undur Ófreskju, Dálaglegan, Putta Vasahnif, Beinbrjót, Fjögramaka og Lilla. Þú verður gleymdur. Viö ætlum að taka við stjórninni hér.” Auövitaö vissi Alfreö betur en hann mátti ekki vera að þvi' að hugsa um það. Sterkar hendur Beinbrjóts og Dálagslegs tóku hann á loft og svo var honum fleygt öfugum út úr básnum og kútveltist eftir ganginum. Hann heyrði storkandi rödd ófreskj- unnar á eftir sér: „Þér væri hollast að fara úr bænum, Freddi. Þú hefur ekkert að gera hér lengur. Hver veit, þú gætir farið á Bakkafjörð!” Og bræðurnir hlógu ofsalega. Alfreö reyndi að bæla niður i sér hvöt til aö ráðast á þá með hnúunum einum. Hann stakk höndum i vasa og skálmaði út. Þegar hann var kominn undir bert loft hugsaöi hann: Uxi! Nú liggur mikiö við! framhald. og glasið búið fór Alfreð aftur á barinn. Svo aftur. Og i fjórða sinn. Hvort glösin urðu sjö eða átta mundi Alfreð ekki seinna- meiren svo mikið er víst aö hann sofnaði værum svefni þarna i básnum. „Færðu þig, lillimann!” Alfreð hrökk upp. Sex menn voru komnir i básinn hans og það engir smá menn. Gegnum áfengisþokuna sá Alfreð ekki bet- ur en mennirnir væru undarlega likir. Þeir voru allir hátt á annan metra á hæð, sviramiklir og herðabreiöir, handstórir, rassvið- ir og fótstuttir. Allir ljóshærðir, krullaðir með útflatt nef. Smá- eygðiren kjaftstórir. Sá svolaleg- asti þeirra potaði aftur i Alfreð. „Færðu þig, lillimann!” Alíreö rauk á fætur, óstöðugur á löppunum. „Djöfullinn heldurðu aö þú sért, keppur? Þetta er minn bás. Það hreyfir enginn viö mér i Klúbbn- um.” Svolinn blakaði við Alfreð svo hann féll ifangið á einum hinna, hann var gripinn Tarzan-taki aftan frá. „Það er uppi tippið á þeim stutta, bræður”, sagði svolinn og hló hrossahlátri. Hinir hlógu lika og einn þeirra gaf Alfreð olnboga- skot i kviðinn. Alfreð saup kiljur en þegar hann hafði jafnaö sig hvæsti hann milli samanbitinna tannanna : „Þetta skuluði fá borgað! Þetta skuluði fá borgaö margfalt!” Ruddarnirsex hlógu enn hærra. Tarzan takiö harðnaði og for- inginn spurði: „Hver þykist þú vera, lilli- mann?” Alfreð geröi sitt besta til aö þenja út brjóstkassann mjó- slegna. ,,Ég er kallaður Alfreð Alfreðs- son,” sagði hann kæruleysislega. Jötnaforinginn rak upp stór augu. ,J)etta mér nú allar dauöar...” hrópaði hann. ,,Ert þú Freddi?” bætti hann viö. „Alfreð Alf...” byrjaði Alfreð en fann aöTarzan að baki honum herti takið enn. Alfreð náði dcki andanum, hann var að kafna. Loks þegar slakað var á spurði sá stærsti: „Jæja, hvað heitiröu þá?” ,,Alf...” og Alfreö fann járn- krumlur læsast i sig. „Freddi! Freddi! Ég heiti Freddi!” „Sko lillamann. Hann er ekki svo vitlaus. Slepptu honum, Bein- brjótur”. Maðurinn sem kallaður var Beinbrjótur þeytti Alfreð sögu- hetju okkar fram á boröiö i básn- um. Alfreð kastaði mæðinni. Það var runnið af honum. „Þú þykist vist vera eitthvað númer hérna fyrir sunnan, Freddi minn,” urraði foringinn. „Er það ekki, Freddi?” Alfreð reyndi að endurheimta virðingu sina og svaraði ekki. Hann gaut pfrðum augum sfnum fram á ganginn og hugðist taka undir sig stökk og sleppa. þá gripu hann margar hendur og héldu honum blýföstum. „Ertu hræddur, Freddi?” Og þeir hlógu. „Nei,” hvæsti Alfreð. „Hverjir eruð þiö?” Ruddarnir sex urðu drjúgir á ■ Undur ófreskja, ögn stilfæröur.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.