Fréttablaðið - 05.11.2008, Side 1
„Stjórn Samsonar eða kröfuhafar
geta nú farið fram á gjaldþrota-
skipti,“ segir Ásgeir Friðgeirs-
son, talsmaður Björgólfsfeðga.
Hann segir þetta ekki hafa bein
áhrif á önnur fyrirtæki sem þeir
feðgar eigi hluti í.
Beiðni Samsonar um áfram-
haldandi greiðslustöðvun var
hafnað í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær og farið fram á að félagið
verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Samson er í eigu feðganna
Björgólfs Guðmundssonar og
Björgólfs Thors Björgólfsson-
ar. Stærsta eign félagsins var
rúmlega 41,85 prósenta hlutur í
Landsbankanum.
Ásgeir bendir á að eignarhlut-
ur Samsonar í bankanum hafi
numið 90 milljörðum króna undir það síðasta.
Þegar ríkið tók bankann eignar-
námi varð hann að engu. Gunn-
ar Sturluson, lögmaður Samson-
ar, sagði niðurstöðuna koma sér á
óvart. Hann vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
Samson fékk greiðslustöðvun
7. október, sama dag og Lands-
bankinn var ríkisvæddur og rann
hún út á þriðjudag í síðustu viku.
Þýski bankinn Commerzbank Int-
ernational gerði einn athugasemd-
ir við framlengingu greiðslustöðv-
unar. Samson skuldaði Commerz-
bank rúma 23 milljarða króna auk
þess sem ábyrgð á láni til bresku
ferðaskrifstofunnar XL Leisure
Group upp á tæpa 37 milljarða
króna hvíldi á herðum félags-
ins. Líklegt er að ábyrgðin færist
aftur til Eimskipafélagsins. - jab
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 5. nóvember 2008 – 45. tölublað – 4. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Evran til Litháen | Ilmars
Rimsevics, seðlabankastjóri
Litháens, segir líkur á að landið
taki upp evru ári fyrr en áætl-
að var, jafnvel árið 2011. Um 80
prósent af öllum bönkum í Lit-
háen eru í eigu erlendra aðila.
Skoða Sterling | Nokkur kaup-
tilboð bárust í þrotabú Sterling-
flugfélagsins í Danmörku, sem
varð gjaldþrota í síðustu viku.
Frestur til að skila inn tilboðun-
um rann út á miðnætti í fyrra-
kvöld.
Vissi um kreppuna | Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, og Englandsbanki vissu
um komandi fjármálakreppu á
Íslandi í mars en forsætisráð-
herrann ræddi við Geir Haarde
um málið í apríl.
Vilja evruna | Rétt rúmur
helmingur Dana er nú fylgj-
andi því að taka upp evruna sem
gjaldmiðil. Fyrir rúmum hálfum
mánuði vildi tæpur helmingur
landsmanna taka upp gjaldmið-
il evrusvæðisins.
Allt er ríkisins | Danska blaðið
Berlingske Tidende sagði í vik-
unni danska hótelið D´Anglet-
erre, eitt frægasta hótel Norð-
urlanda, nú komið í eigu ís-
lenska ríkisins í gegnum Nýja
Landsbankann. Landsbankinn
gamli fjármagnaði kaup Nord-
ic Partners á hótelinu í fyrra.
Gísli Reynisson, stærsti hlut-
hafi Nordic Partners, vísaði því
á bug.
Svartur mánuður | Október
var sá svartasti mánuður sem
bandarískir fjárfestar hafa séð
í 21 ár. Í október árið 1987 féll
Dow Jones-vísitalan um 23 pró-
sent, þar af um 22,6 prósent 19.
sama mánaðar. Það var næst-
mesta fall vísitölunnar frá upp-
hafi. Í síðasta mánuði féll vísi-
talan um rúm 14 prósent.
Nálægt núllinu | Ben Bern-
anke, seðlabankastjóri Banda-
ríkjanna, er tilbúinn til að boða
frekari lækkun stýrivaxta á
næstunni dugi fyrri aðgerðir
ekki til að snúa efnahagslífinu
til betri vegar. Vextir standa nú
í einu prósenti. Lækki þeir frek-
ar hafa þeir aldrei verið lægri.
Orðskýringin
Hver er
finnska
leiðin?
Jeffrey Sachs
Hrunið og
leiðin til
viðreisnar
Novator
Spáði falli
krónunnar
árið 2006
2
Félag Björgólfsfeðga gjaldþrota
Á ekki fyrir skuldum eftir að kjölfestufjárfesting gufaði upp í ríkisvæðingu.
Greiðslur af Icesave-reikning-
um hefjast í næstu viku.
Fram kemur í frétt breska
ríkisútvarpsins að 230 þús-
und reikningseigendur í Bret-
landi fái í vikunni tölvupóst þar
sem þeim verður leiðbeint um
hvernig þeir geti nálgast inn-
stæður sínar. Vísað er til lof-
orða breskra stjórnvalda um að
allir fái fé sitt aftur.
Innstæðurnar á bresku og
hollensku Icesave-reikning-
um Landsbankans sáluga og
á þýskum Edge-reikningum
Kaupþings heitins, eru tryggð-
ar upp að ríflega 20 þúsund
evrum af Tryggingasjóði inn-
stæðueigenda. Haldið hefur
verið fram að sjóðurinn eigi
aðeins að ábyrgjast það sem
er í honum nú. Þar eru um 19
milljarðar króna. Erlendar inn-
stæður nema hundruðum millj-
arða. Fjármálaeftirlitið hefur
tilkynnt að greiðsluskylda hafi
stofnast hjá sjóðnum vegna
Landsbankans, Kaupþings og
síðast í gær vegna heildsöluinn-
lána Glitnis í Bretlandi.
Ekki hefur verið ákveðið
hvernig sjóðurinn bregst við, en
hann hefur heimild til lántöku
vegna skuldbindinga sinna. Enn
er ekki komin niðurstaða í við-
ræðum stjórnvalda við Breta
um lyktir málsins. Bráðabirgða-
samkomulag var gert við Hol-
lendinga en viðræðum er ekki
lokið. Eftir því sem næst verð-
ur komist hefur ekkert verið
rætt við þýsk stjórnvöld vegna
Edge. - ikh
Bretar greiða
út af Icesave
Er prentverkið
Svansmerkt?
6
MasterCard og annar stærsti
banki Kasakstan, Kazkomm-
ertsbank, hafa tilkynnt að þrátt
fyrir alþjóðlega fjármálakreppu
muni þeir ekki hætta við fyrir-
ætlanir um útgáfu nýs lúxus-
kreditkorts. Kortið er skreytt
með gullhúð og í miðju þess
hefur verið komið fyrir litlum
demanti.
Ársgjald demantskortanna
er 1.000 Bandaríkjadalir, en út-
tektarheimild þeirra er 50.000
dalir. Talsmaður bankans segir
að demanturinn sé „bara til
skrauts“ og að þrátt fyrir efna-
hagsþrengingar sé nóg af vell-
auðugu fólki sem vilji berast á.
Áhugasömum er bent á að þeir
þurfi að hafa hraðar hendur,
því bankinn ætlar sér aðeins að
gefa út 1.000 demantskort.
- msh
Demantsprýdd
kreditkort
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Skuggabankastjórn Markaðarins telur að skipta
verði um bankastjórn Seðlabanka Íslands. Sam-
kvæmt áætlun kynnir Seðlabankinn stýrivaxta-
ákvörðun og sýn á þróun efnahagsmála á vaxta-
ákvörðunardegi sínum á morgun.
Skuggabankastjórnin telur vexti þurfa að vera
óbreytta í 18 prósentum þar til línur skýrast hvað
varðar aðgerðaáætlun þá sem lögð hefur verið fyrir
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Upplýst verður um áætl-
unina þegar stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur
fjallað um hana í vikulokin.
„Meginverkefnið er að skapa trúverðugleika í
kringum peningamálastefnuna og Seðlabankann.
Það er nær útilokað með núverandi bankastjórn,“
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands. Hann á sæti í skuggabankastjórninni með
Ólafi Ísleifssyni, lektor við Háskólann í Reykjavík,
Eddu Rós Karlsdóttur, hagfræðingi hjá Landsbank-
anum, og Ásgeiri Jónssyni, forstöðumanni greining-
ardeildar Kaupþings.
Auk þess að yfirstjórnir Seðlabankans og Fjár-
málaeftirlitsins sæti ábyrgð „samkvæmt vestrænni
lýðræðishefð“ vill Ólafur Ísleifsson að stofnanirnar
verði að því loknu sameinaðar.
Edda Rós segir Seðlabankann og ríkisstjórnina
verða að ganga í takt. „Misvísandi skilaboð Seðla-
banka og ríkisvaldsins eru óásættanleg. Trúverðug-
leiki er nauðsynlegur. Því er eðlilegt að yfirstjórn
Seðlabankans víki,“ segir hún og bætir við að mistök
við hagstjórn upp á síðkastið kunni að leiða til þess
að vextir þurfi hér að hækka enn meira til að koma
stöðugleika á gjaldeyrismarkað. „Ný og trúverðug
yfirstjórn í Seðlabankanum myndi minnka þörfina
á slíkri aðgerð.“
Í umræðum skuggabankastjórnar kom fram að
Seðlabankanum væri nokkur vorkunn að ætla að
birta rit um framvindu efnahagsmála rétt áður en
fyrir liggja skilmálar samkomulags ríkisins og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins um aðgerðir í efnahagsmál-
um. Peningamálin verði því eins og „staðið kaffi“, ný
uppáhelling fáist ekki fyrr en allar upplýsingar liggi
fyrir. Það er meðal annars fyrir þessa óvissu sem
skuggabankastjórnin segir ekki hægt að mæla með
breytingu á vöxtum nú.
Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti í 18 pró-
sent 28. október síðastliðinn á viðbótarvaxtaákvörð-
unardegi. Þar áður var vöxtum einnig breytt utan
hefðbundinnar dagskrár 15. október þegar þeir voru
lækkaðir í 12 prósent, úr 15,5 prósentum. Sjá miðopnu
FUNDAÐ UM STÝRIVEXTI Skuggabankastjórn Markaðarins skipa
Ólafur Ísleifsson, Þórður Friðjónsson, Ásgeir Jónsson og Edda Rós
Karlsdóttir. Með eru ritstjórar Markaðarins. MARKAÐURINN/GVA
Skuggabankastjórn vill
nýja seðlabankastjórn
Stjórn Seðlabankans þarf að víkja til að auka trú á efna-
hagsstjórn hér, að mati skuggabankastjórnar Markaðarins.
Stýrivextir óbreyttir meðan upplýsinga er beðið.
Hermt er að gjaldþrot Samsonar
hafi engin bein áhrif á aðrar eignir
Björgólfsfeðga, hvorki hins eldri (BG) né
hins yngri (BTB).
HF Eimskipafélag Íslands BG
Icelandic Group BG
West Ham BG
Ólafsfell (- m.a. hlutur í Árvakri) BG
Actavis BTB
Play í Póllandi BTB
Amer Sport í Finnlandi BTB
Samson Global Holdings BG/BTB
- 35 prósenta hlutur í Straumi-
Burðarási
- sem aftur á hlut í Árvakri
E I G N I R
B J Ö R G Ó L F S F E Ð G A