Tíminn - 05.03.1982, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.03.1982, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. mars 1982 fréttir Samvinnuferðir og Utsýn: STRfDIÐ UM FARÞEG- ANA í ALGLEYMINGI! — samanburður á fargjöldum skrifstofanna til Ítalíu og Júgóslavíu ■ Fargjaldastriðið svokallaða hefur vart farið fram hjá neinum að undanförnu, þar sem ást hafa við ferðaskrifstofurnar Útsýn og Samvinnuferðir/Landsýn. Hafa forsvarsmenn beggja fyrirtækj- anna haldið mjög á lofti sinum verðtilboðum, og talið þau, það besta sem gerist á markaðnum. Eins og fram hefur komið er það engan veginn auðvelt að gera raunhæfan verðsamanburð á ferðum mismunandi ferðaskrif- stofa, þvi svo margir utanaðkom- andi þættir spila inn i slik dæmi, eins og lengd ferða, landið sem ferðast er til, ferðatimi, gæði hótela og fleira. Hér á eftir verður þó reynt að gera samanburð á verðtilboðum tveggja ofangreindra ferðaskrif- stofa, til tveggja mismunandi landa, Italiu og Júgóslaviu. Þessi tvö lönd voru valin til saman- burðarins, vegna þess að báðar ferðaskrifstofurnar bjóða upp á ferðir til beggja landanna, dvalist er á mjög svipuðum slóðum, boð- iðer uppá jafnlangar ferðir i báð- um tilvikum á svipuðum árstima, og ekki verður annað séð en gisti- tilboðin séu einnig hliðstæð. ítaliusamanburður Útsýn býður upp á sólarlanda- ferðir til Gullnu strandarinnar, Lignano og er þar boðið upp á ýmsa gistimöguleika. Skammt frá Lignano er Rimini, en þangað flytur Samvinnuferðir/Landsýn Italiufarþega sina. Ef byrjað er að lita á þriggja vikna terðir ferðaskrifstofanna, og fyrst tekið dæmi um fargjald á einstakling sem ferðast með Út- sýn, og gistir i ibúð með fimm öðrum, þá er verðlagið, miðað við brottför i lok maimánaðar þannig að ferðin kostar einstaklinginn á bilinu 8650 krónur og upp i 8800 krónur. Hliðstæð ferö á vegum Samvinnuferða/Landsýnar til Ri- mini, kostar einstaklinginn, mið- að við 6 i ibúð, á sama timabili frá 6900 krónum upp i 7800 krónur. Þegar þetta verð hjá Samvinnu- ferðum/Landsýn er skoðað, og reyndaralltverðhjá þeim, ber að hafa það i huga, að Samvinnu- ferðir/Landsýn bjóða upp á sér- stakanaðildarafslátt.sem er ekki innifalinn i þessu verði. Afslátturinn nemur 800 krónum og gildir hann fyrir hvern aðildarfélaga, maka hans og börn eldrien 12 ára. Þeir sem eiga rétt á þessum afslætti eru félagar i A.S.I., B.S.R.B., B.H.M., Lands- sambandi islenskra samvinnu- starfsmanna, Stéttarsambandi bænda og Sambandi islenskra bankamanna, makar þeirra og börn. Sé verð frá Útsýn, á s'ama tima, þar sem tveir dveljast i stúdió- ibúð skoðað, þá kostar ferðin per einstakling 10.700 krónur. Hlið- stæð ferð Samvinnuferða til Ri- mini, þar sem tveir dvelja i stúdióibúð, kostar per einstakling 10.200. Einstaklingur sem fer til Lignano og dvelur á hóteli, og fær auk þess morgunverð borgar fyr- ir þrjár vikur á þessum tima 10.000 krónur, en einstaklingur sem fer til Rimini og dvelur á hóteli, með morgunverði greiðir þar fyrir 9.500 krónur og upp i 11.900, allt eftir þvi á hvaða hóteli hann dvelur. Júgóslaviusamanburður Báðar ferðaskrifstofurnar bjóða upp á sólarlandaferðir til Portoroz, Júgóslaviu. Verður hér gerður samanburður á þriggja vikna ferðum þangað i júnimán- uði. Báðar ferðaskrifstofurnar bjóða aðeins upp á hótelgistingu þar, en ekki ibúðir, þannig að verðið. hér á eftir miðast við ein- staklmg, sem dvelur i tveggja manna hótelherbergi og kaupir hálft fæði. Samvinnuferðir bjóða upp á þrjú mismunandi hótel og er verðið fyrir ferðina frá 9.400 krónum og upp i 11.700. Útsýn býður upp á gistingu i fjórum mismunandi hótelum og er verðið fyrir ferðina frá 9.450 krónum, upp i 11.900 krónur. Af þessum tölum er ljóst að verð ferðaskrif- stofanna til Júgóslaviu, er mjög hliðstætt, en þó heldur hagstæðari hjá Samvinnuferðum/Landsýn, en munurinn er engan veginn jafn áberandi mikill og þegar ferðir ferðaskrifstofanna til ítaliu eru bornar saman. Hvað kostar svo svona ferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu? Eins og fram hefur komið áður, þá bjóða Samvinnuíerðir/Land- sýn farþegum sínum, sem hyggj- ast fara i sólarlandaferð og búa úti á landi ókeypis flugfar hér innanlands, og nú nýverið brydd- aði Útsýn upp á þeirri nýjung að bjóða fanþegum sinum utan að landi upp á 50% afslátt af innan- landsfluginu. Verður þessum verðsamanburði lokið hér, með þvi að gera samanburð á kostnaði fyrir fjögurra manna fjölskyldu frá Egilsstöðum, að ferðast ann- ars vegar á vegum Samvinnu- ferða/Landsýnar til Italiu i 3 vik- ur, og hins vegar til Lignano á vegum Útsýnar, auk þess sem samskonar samanburður verður gerður á ferð jafnstórrar fjöl- skyldu frá Reykjavik, til sömu staða. Reiknað er með hjónum, sem eiga tvö börn, annað þriggja ára, hitt 9 ára. Verður hér fyrst litið á dæmi fjögurra manna fjölskyldunnar á Egilsstöðum, sem hyggst ferðast með Samvinnuferðum/Landsýn til Rimini, ítaliu, og er gert ráð fyrir þvi að fjölskyldan kaupi sér gistingu á ibúðahóteli, og dveljist i tveggja herbergja ibúð, og er þar valinn ódýrasti gistikostur- inn. Miðað er við að brottför frá Keflavik sé 27. mai. Helgi Jónsson, sölustjóri Samvinnuferða/Landsýnar: „Fögnum umfjöllun á hlutlausan hátt” ■ I framhaldi af niðurstöðum þessa samanburðar snéri Tim- inn sér til forsvarsmanna þess- ara tveggja ferðaskrifstofa og spurði þá álits á samanburðin- um. Eysteinn Helgason, for- stjóri Samvinnuferða/Landsýn- ar er erlendis, og varð Helgi Jó- hannsson, sölustjóri Samvinnu- ferða/Landsýnar fyrir svörum, I fjarveru hans. Fer hér á eftir álit hans á samanburöinum : „Niðurstöður þessa saman- burðar koma okkur sist á óvart, enda sést greinilega hversu mikil áhersla er lögð á að halda verði niðri þegar okkar aðildar- félagsmenn eiga i hlut. Sam- vinnuferðir/Landsýn er jú þeirra eign og okkur ber skylda til að gæta hagsmuna þeirra hvaðan af landinu sem þeir koma. Ennþá athyglisverðari er þó sú staðreynd að þrátt fyrir að ekki sé tekið tillit til aðildaraf- sláttar er okkar verð samt sem áður lægra en það verð sem keppinautar okkar bjóða. Lykillinn að þessum árangri er fyrst og fremst hinn aukni far- þegafjöldi Samvinnu- ferða/Landsýnar, sem jafn- framt kallar á aukna nýtingu og þá betra verð. Við hjá Samvinnuferð- um/Landsýn fögnum þvi að á opinberum vettvangi sé nú fjall- að um þessi mál á hlutlausan hátt með þvi að beita einföldum samanburði. Hér er um að ræða tölur sem almenningur getur sannreynt hvenær sem er og hvarsemer. Við teljum að nú sé kominn timi til að afhjúpa þann gengdarlausa óhróður og falsanir sem að Útsýn hefur gripið til þegar samkeppnis- hæfni þeirra þrýtur. Sem dæmi um grófa ögrun viö dómgreind þjóðarinnar setur forstjóri Útsýnar upp reiknings- dæmi i einu af dagblöðum landsins, og kemst að þeirri niðurstöðu að hans larþegar fái kr. 10.000 i afslátt! Þar gefur ■ Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri Ferðaskrifstofunnar Út- sýnar hafði eftirfarandi um þennan verðsamanburð að segja: „Það er náttúrlega auðséð á uppbyggingu þessa samanburð- ar þins, til hvers leikurinn er gerður. A ég þar t.d. við það að velja dýrasta stað utan að landi, Egilsstaði, sem heimastað fjöl- skyldunnar. Nú, ekki veit ég hve mikið þú þekkir til á Italiu, en ég býst ekki við að þú þekkir jafnmikið til þar og ég. Ég held að fáir sem til þekkja, berisaman Rimini og Lignano. Lignano er einn dýr- asti ferðamannastaðurinn, þvi hann er sérstaklega uppbyggð- ur sem módelferðamannastað- ur, og þar er allt tiltölulega nýtt, en Rimini aftur á móti, er gam- all staður, og viðurkenndur að vera einn allra ódýrasti sumar- dvalarstaður i allri álfunni. Og hann sér þá makalausu for- sendu að farþegi sem ekki ferð- aðist i hans hópferð til sólar- landa, yrði að greiða svonefnt normalfargjald, þ.e. kr. 11.500- 13.000 og siðan annað eins íyrir gistingu. Sannleikurinn er hins vegar sá, og það veit íorstjórinn mætavel, að innan við 1% af þeim sem ferðast til sólarlanda notast við þessi fargjöld, þvi til eru sérfargjöld, sem öllum landsmönnum bjóðast, sem eru á bilinu kr. 5.500-6.500, og verðið fer jafnvel enn neðar sé flogið i beinu leiguflugi. Ef við notuðum nú sömu lor- sendur og forstjóri Útsýnar og tækjum sem dæmi Grikkland. Þangað kostar flug samkv. nor- malfargjaldi kr. 15.600, gisting hátt i annað eins og þá fæst verð ca. kr. 30.000. Þessi lerö kostar hjá Samvinnuferðum/Landsýn hf. frá kr. 9.500, þannig að sparnaður á larþega væri hvorki meiri né minni en kr. 20.000, ef þessar stórfurðulegu reikningskúnstir væru notaðar! Samvinnuferðir/Landsýn heíur hins vegar ekki farið út i svona upphrópanir. Við látum fólki eftir að bera saman verð á eigin spýtur og auðvitað beinir það viðskiptum sinum þangað sem best er boöið hverju sinni.” — AB Ingólfur Gudbrandsson, forstjóri Útsýnar: „Tel þennan saman- burð óraunhæfan” ef við litum i ferðaáætlanir hjá nágrannaþjóðunum, hvort sem er i Bretlandi eða á Norðurlönd- unum, þá eru ferðir til Rimini, á meðal ódýrustu ferða á markaðnum og þær ódýrustu til ltaliu. Aftur á móti er Lignano ekki á boðstólunum hjá bresk- um eða skandinaviskum fyrir- tækjum, vegna þess, að staður- inn er i þaðháum klassa, að þeir hafa ekki treyst sér til þess að bjóða upp á ferðir þangað, verðsins vegna. Þessvegna tel ég þennan samanburð óraun- hæfan. Að öðru leyti er ekki nema allt gott um þennan samanburð þinn að segja. Ég sé ekki annað en þú farir rétt með tölur, og hef þvi að sjálfsögðu ekkert við það að athuga. Það mætti hins vegar alveg benda á þá staðreynd að Útsýn er að bjóða upp á sex mis- munandi dvalarstaði við Mið- jarðarhafið, á móti þvi að Sam- vinnuferðir/Landsýn hí. býður upp á þrjá slika dvalarstaði, ef Aþena er talin meö. Auk þess vil ég benda á það að þetta er óhag- stæðasti samanburðurinn sem þú getur gert á milli fyrirtækj- anna. Þá vil ég taka fram að verðiö hjá Samvinnuferðum kemur engum á óvart þvi Útsýn gaf sina áætlun út á undan Sam- vinnuferðum, og Samvinnuferð- ir hafa lagt áherslu á, að lækka sitt verð eins og mögulegt var, á þeim stöðum sem eru sambæri- legirvið Útsýnarferðir. En þeg- ar fólk fer aö kynna sér þessar áætlanir, og önnur ferðalög, en eru i þinum samanburöi borin saman, þá er siður en svo að Út- sýn sé með hærri fargjöld. Ég tel þvi aö þessi samanburður gefi engan veginn raunhæfa mynd af verösamanburði fyrir- tækjanna i heild. Þarna eru bara tekin út úr dæmi, sem koma tiltölulega hagstætt út fyrir Samvinnuferðir og tiltölu- lega óhagstætt fyrir Útsýn. Það vita eiginlega allir lands- menn hvers konar þjónustu þeir eru að kaupa hjá Útsýn, hún hefur ekkert brugðist hingað til.” — AB Feröaskrifstofan ÚTSÝN Dæmið litur þá svona út: 3 ára barn: ferð 7800, barnaaf- sláttur 2000, innanlandsflug 0, samtals — 5800 krónur. 9 ára barn: ferð 7800, barnaaf- sláttur 1600, innanlandsflug 0, samtals 6200 krónur. Móðir: ferð 7800, innanlandsílug 0, samtals — 7800 krónur. Faðir: ferð 7800, innanlandsflug 0, samtais 7800 krónur. Fjögurra manna íjölskyldan sem ferðast með Samvinnuferð um frá Egilsstöðum til Rimini, þarf þvi að greiða alls krónur 27.600 fyrir þrjár vikurnar á Ri- mini. Litum svo á samskonar fjöl- skyldu frá Egilsstöðum sem ætlar með Útsýn til Lignano. Valið er sams konar gistiaöstaða og i fyrra dæminu og brottfarartim- inn er 28. mai. Þriggja ára barn: ferð 8650, barnaafsláttur 2000, innanlands- flug 337, samtals — 6987 krónur. Niu ára barn: ferð 8650, barnaaf- sláttur 1700, innanlandsflug 337, samtals — 7287 krónur. Móðir: ferð 8650, innanlandsílug 674, samtals — 9324 krónur. Faðir: ferð 8650, innanlandsílug 674, samtals — 9324 krónur. (Athugið innanlandsfargjaldið er miðað við 50% aíslatt fyrir alla fjölskyidumeðlimi). Fjöl- skyldan þarf þvi samtals að greiða fyrir þriggja vikna ferð með Útsýn til Lignano, krónur 32.922. Verðmunurinn á feröum íyrir fjögurra manna fjölskyidu, i þessum tveimur feröum er þvi krónur 5322. Ekki yrði um jai'n mikinn mun að ræða á tveimur fjögurra manna fjölskyldum, sem færu i þessar ferðir og væru búsettar i Reykjavik. Talan sem gefin var upp fyrir fjölskylduna frá Egils- stöðum, sem íerðaöist með Sam- vinnuferðum/Landsýn yrði sú sama, eða krónur 27.600, en talan fyrir fjölskyldu frá* Reykjavik, sem færi með Útsýn til Lignano myndi lækka þvi sem innanlands- fluginu nemur, eða um 2022 krón- ur, þannig að verðið á ferðinni fyrir Reykjavikurfjölskylduna yrði 30900, og mismunurinn á milli ferðaskrifstofa verður i þvi tilviki krónur 3.300. Þar sem meginþorri launþega i landinu á kost á aðildarafslætti Samvinnuferða/Landsýnar, þyk- ir hér rétt að greina frá þvi hvernig dæmin litu út, ef aðildar- afslátturinn væri reiknaður með inn i þessi dæmi. Þá yrði ferðin hvort sem hún væri farin frá Egilsstöðum, eða Reykjavik, á vegum Samvinnuferða/Landsýn- ar 2400 krónum ódýrari, þvi inn i dæmið kæmi 800 króna afsláttur á hvern fullorðinn og 400 króna af- sláttur hjá hvoru barni, og ferðin kostaði þannig 25.200 krónur.sem hefði það i för meö sér að verð- munur fyrir Egilsstaðafjölskyld- una á þessum ferðum yrði 7722 krónur, en fyrir Reykjavikurfjöl- skyídunayrðiverðmunurinn 5.700 krónur, miðað við Útsýnar- ferðirnar til Lignano. Þess skal að lokum getið, að flugvallarskatturinn er ekki reiknaður inn i verðið þannig að hann bætist ofan á i öllum tilvik- um. — AB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.