Tíminn - 05.03.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 05.03.1982, Blaðsíða 18
Föstudagur 5. mars 1982 26 meðal annarra orda Norrænt samstarf ■ Um þessar mundir stendur hið árlega þing Norðurlandaráðs yfir i Finnlandi. Að venju hefur meirihluti rfkisstjórnarinnar farið á vcttvang auk nokkurra þingmanna. Og svo er aö heyra I fréttum sem islendingarnir hafi látið verulega á sér bera i um- ræðum. Á þingum sem þessum eru mörg fjálgleg orð látin falla um mikilvægi norræns samstarfs. Til þessara orða er slöan gjarnan vitnað þegar miður gcngur f einstökum norrænum verkefnum og bent á að í reynd séu þessi orð ekki nema orðin tóm, þegar að raunveruleikanum komi sé ailt annað uppi á teningnum. Það er ómótmælanlegt að norrænt samstarf er gagnlegt og á mörgum sviðum höfum við Islendingar notið góðs af þessu samstaríi. Það er nú svo að eðli frétta- mennsku virðist vera það að fjalla ekki nema um eitt eða örfá mál i einu og þá venju- lega þau mál sem deilt er um eða einhver vandræði eru með. Það er hins vegar ekki getið um þau málsem allir eru sammála um og sigla i gegn mótatkvæðalaust og umræðu- litið á Norðurlandaráðsþing- um. Má þar nefna ýmsa sam- ræmingu á norrænni löggjöf, gagnkvæm réttindi norrænna rikisborgara, menningarmál og ýmis önnur atriði sem snerta daglegt lif. Og það er á þessum sviðum sem norrænt samstarf hefur orðið okkur Is- lendingum mest að gagni. En svo koma öðru hvoru upp stór mál sem ganga ekki upp og þau eru blásin út og i kring um þau spira fræ þeirra sem hafa neikvæða skoðun á nor- rænu samstarfi. Mismunandi hagsmunir Auðvitað eru hagsmunir Norðurlandanna ekki hinir sömu i öllum málum. Til dæmis ekki pólitiskt. Finnland er undir sovéskum þrýstingi, Sviþjóð er i hlutleysisleik en Danmörk, Noregur og Island eru i Atlantshafsbandalaginu. Þessi mismunandi pólitiska afstaða gerði það t.d. að verk- um að efnahagsbandalag Norðurlandanna komst ekki á fyrir rúmum áratug og mis- munandi hagsmunir á þessu sviði sem og i atvinnulegu til- liti hafa komið Nordsat mál- inu á kaldan klaka þó eitthvað eigi nú að klóra i bakkann enn um stund. Menn veröa þannig að gera sér grein fyrir að i sumum málum hafa Norðurlöndin sameiginleg hagsmunamál og það eru fyrst og fremst mál sem snerta daglegt lif al- mennings og réttindi hans. í öðrum málum hafa Norður- löndin misvisandi eða gagn- stæða hagsmuni og er það einkum á pólitiska sviðinu. Róa þar sem best veidist Við tslendingar þurfum að vera virkir þátttakendur i al- þjóðasamvinnu. Þar er nor- ræn samvinna mikilvæg. Við skulum hins vegar gera okkur fulla grein l'yrir þvi að við verðum á hverjum tima og i hverju máli að gera okkur ná- kvæma grein fyrir þvi hverjir hagsmunir okkar eru og velja okkur vinaþjóðir samkvæmt þvi. I sumum málum eru það Norðurlandaþjóðirnar og i öðrum málum eru það aðrar þjóðir. Það gilda þvi sömu reglur i utanrikismálum okkar eins og i sjávarútvegi aö róa hverju sinni þar sem best veiðist. Haukur Ingibergsson skrifar flokkstarf Kvikmyndir Bingó Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnu- dag kl. 14.30 að Hótel Heklu Rauðarárstig 18. FUF Reykjavik. Bolungarvik Fundur um sjávarútvegs og samgöngumál verður haldinn i húsi verkalýðs og sjómannafélagsins i Bolungarvik sunnudaginn 7. mars kl. 14.00. Alfir velkomnir. Steingrimur Hermannsson. Árnesingar Almennur bændafundur um stöðu landbúnaöarins i Arnesi 5. mars kl. 21.00. Frummælendur: Markaösmál, Ingi Tryggvason form. Stéttarsamb. bænda.Nýjar búgréinar, Hákon Sigurgrims- son. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Arnessýslu Rangæingar Rangæingar Hin árlega 4ra kvölda félagsvist framsóknarfélagsins hefst að Hvoli sunnudagskvöld 7. mars kl. 21.00. Góð kvöldverðlaun. Aðalverðlaun Sólarlandaferð. Stjórnin. Almennur stjórnmálafundur verður haldinn I Gagnfræða- skólanum á Isafirði laugardaginn 6. mars kl. 4 e.h. Alþingismennirnir Jóhann Einvarðsson og Ólafur Þ. Þórðarson ræða stjórnmálaviðhorfið og svara fyrirspurn- um. Allir velkomnir. Framsóknarfélag isfirðinga Framsóknarfélag Kjósarsýslu boðar til almenns félagsfundar i Hlégarði sunnudaginn 7. mars kl. 15.00 Dagskrá: 1. Skýrsla viðræðunefndar 2. Tekin ákvörðun um framboðsmál 3. önnur mál. Nýir félagar velkomnir á fundinn. Stjórnin. Grindvíkingar Framsóknarfélag Grindavi'kur auglýsir hér með eftir framboðum i væntanlegtprófkjör sem fram fer sunnudag- inn 14. mars n.k. Framboöum skal skilað til uppstillinganefndar eigi siðar en föstudaginn 5. mars. 1 uppstillinganefnd eru: Svavar Svavarsson Guðmundur Karl Tómasson Gisli Jónsson Halldór Ingvarsson og Ragnheiður Bergundsdóttir. Hún- vetningar Almennur stjórnmálafundur Blönduósi föstudaginn 12. mars 1982 kl. 21.00 Á fundinn mæta: Steingrimur Hermannsson samgöngu og sjávarútvegs- ráöherra og alþingismennirnir: Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Ingólfur Guðnason. Allir velkomnir Framsóknarfélögin Austur-Húnavatnssýslu Viðtalstimi borgarfulltrúa Gerður Steinþórsdóttir varaborgarfulltrúi og Gylfi Guö- jónsson fulltrúi i skipulagsnefnd verða til viðtals að Rauðárárstig 18 laugardaginn 6. mars milli kl. 10 og 12. Gerður á sæti i félagsmálaráði og stjórn Borgarbóka- safns. Sími78900 Fram í sviðsljósiö (BeingThere) r\... tcí Grlnmynd I algjörum sérflokki. Myndin er talin vera sú albesta sem Peter Sellers lék I, enda fékk hún tvenn óskarsverölaun og var útnefnd fyrir 6 Golden Globe Awards. Sellers fer á kostum. Aöalhlutv.: Peter Sellers, Shirley | MacLaine, Melvin Douglas, Jack Warden. íslenskur texti. I Leikstjóri: Hal Ashby. Sýnd kl. 3, 5,30, 9 og 11.30. Endless Love Enginn vafi er á þvl aö Brooke Shields er táningastjarna ungl- inganna I dag. Þiö muniö eftir henni úr Bláa lóninu. Hreint frá- bær mynd. Lagiö Endless Love er til útnefningar fyrir besta lag I kvikmynd I mars nk. Aöalhlutverk: Brooke Shields, Martin Hewitt, Shirley Knight. Leikstj.: Franco Zeffirelli. Islenskur texti. aýnd kl. 3.05, 5.20, 7.20 9.20 og | 11.20. Á föstu (Going Steady) L v Frábær mynd umkringd Ijóman- um af rokkinu sem geisaöi um 1950. Party grln og gleöi ásamt öllum gömlu góöu rokklögunum. Bönnuö bömum innan 12 ára. Sýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10. íslenskur textí. Halloween Halloween ruddi brautina I gerö hrollvekjumynda, enda leikstýrir hinn dáöi leikstjóri John Carpen- ter (Þokan). Þessi er frábær. Aöalhiutv.: Donald Pleasence, Jamie Lee Curtis, Nancy Lomis. Bönnuö bömum innan 16 ára. lslenskur texti. Sýnd kl. 9.10 og 11.10. Trukkastríðið (Breaker Breaker) Heljarmikil hasarmynd þar sem trukkar og slagsmál eru höfö I I fyrirrúmi. Fyrsta myndin sem karate-meistarinn Chuck Norris leikur I. Aöalhlutv.: Chuck Norris, George Murdoch, Terry O’Connor. Bönnuö innan 14 ára. Islenskur texti. Sýnd kl. 3.15. 5.15 og 7.15. Dauöaskipiö (Deathship) Þeir sem lifa þaö af aö bjargast úr draugaskipinu, eru betur staddir aö vera dauöir. Frábær hrollvekja. Aöalhlutv.: George Kennedy, Richard Crenna, Sally Ann How- es. Leikstj. Alvin Rafott. Bönnuö börnum innan 16 ára. Islenskur texti. Sýnd kl. 9.15 og 11.15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.