Tíminn - 02.04.1982, Side 1
og dagskrá ríkisf jölmiðlanna 3/4 til 9/4 "82
■ Frá uppfærslu tslensku óperunnar á Sfgaunabaróninum
W . t1
| \ ' 4 1 Hb
í 1 1W
,Slegist um miðana’’
segir Garðar Cortes um aðsóknina að Sígaunabaróninum
■ „betta hefur gengið betur en
flestir þorðu að vona, en ég átti
alltaf von á að Sigaunabaróninn
myndi ganga vel,” sagði Garðar
Cortes, óperusöngvari, þegar
Timinn spurði hann um gengi
Islensku óperunnar. „Mig
minnir að það verði sýningar
niímer 36 og 37 sem.verða nú um
helgina,” sagði Garðar „og enn
hefur alltaf verið fullt og það
virðist ekkert lát á aösókninni.
Meðan aðsóknin er þá höldum
við áfram og mér sýnist allt
benda til að við getum haft fleiri
en fimmtiu sýningar, en
fimmtiu sýningar er það sem
við þurfum til að uppfærslan
borgi sig.”
— Nú er Sigaunabaróninn létt
og skemmtileg ópera, nokkurs-
konar óperetta. Attu von á að
þyngri stykki fái jafngóöa aö-
sókn?
„Já ef óperan verður eins
þekkt og vinsæl þá sé ég ekkert
þvi til fyrirstöðu,” svaraði
Garðar.
— Hafiði ákveðið hvað verður
sett upp næst?
„Nei, ekki er þaö nú alveg. En
það eru náttúrulega ýmsar hug-
myndir á lofti en að svo komnu
borgar sig ekki að tala um þær.
Við höfum að sjálfsögðu viðrað
þær hugmyndir sem okkur fyrst
og fremst langar til að koma á
framfæri en ef það tekst ekki þá
er hætt við að yfirlýsingar valdi
vonbrigðum i okkar hópi.”
Þrjár i gangi
— Hvenær verður næsta
stykki sett upp?
„Ja, það er von til þess að það
verði i vor og siðan aftur
snemma næsta haust.” —En þá
er ekki seinna vænna að ákveða
sig? „Já það er alveg rétt, enda
reikna ég með að við tökum á-
kvörðun á næstu dögum.”
— Stefnið þið að þvi að hufa
fleiri en eina uppfærslu i gangi i
einu?
„Já, það er draumurinn að
hafa a.m.k. þrjár uppfærslur i
gangi i einu. bá þurfum við ekki
að sýna hvert stykki fimmtiu
sinnum. Við getum kannski sýnt
eina óperettu 15 til 20 sinnum til
að byrja með siðan hvilt okkur
um stund og tekið hana til
sýninga aftur og haft þá aðrar
tiu til tuttugu sýningar. bannig
ætlum við okkur að hafa stöðugt
eitthvað i gangi.”
— Nú rekiö þiö Gamla bió?
„Já og það kemur sér mjög
vel að reka það samhliöa óper-
unni. Með þvi losnum viö við að
taka peninga af tekjum óper-
unnar til reksturs hússins. bað
er aldrei gróði á óperum, en
kvikmyndasýningarnar borga
sig, þær borga gjöldin af húsinu
og reka eiginlega húsið.”
— Hvað kostar ein óperu-
sýning?
„Ég er nú ekki með það alveg
i kollinum. En það er ansi drjúgt
enda margir sem vinna við
þetta. baðmega ekki vera mörg
auð sæti i húsinu til að tap verði
á sýningum. Enda neyðumst við
til að hætta sýningum á hverju
einstöku stykki um leið og að-
sóknin fer að dvina.”
— bú ert þá jafn bjartsýnn og
i upphafi?
„Já móttökurnar sem við höf-
um fengið hafa virkað mjög
hvetjandi. Ahugi fólks, hvort
sem er i Reykjavik eða úti á
landi, hefur verið með eindæm-
um. bað er slegist um miðana,
hópar af fólki koma utan af
landi. betta sýnir það að það
var virkilega þörf á þvi að setja
á stofn islenska óperu,” sagði
Garðar.
—Sjó .
■ Garðar Cortes og Ólöf Kolbrún Harðardóttir i hlutverkum sin-
um.
ÞÚ
byrö
vel
og
ódyrt
hjá okkur
.«Horaúi>
=ik—i □
n
Þeir
sem
hafa
hug
á
ad koma
upplýsingum
á framfæri í
TTHelgar-
pakkanuirT’
þurfa ad hafa
samband við
blaðið fyrri
hluta viku
og alls ekki
sídar en á
miðvikudegi