Tíminn - 24.12.1982, Page 5
4
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
fGNBOGW
O 19 000
Sýningar II. í jólum
Dauðinn
á skerminum
(Death Watch)
Afar spennandi og mjög sér-
stæð ný Panavision litmynd um
furðulega lífsreynslu ungrar
konu með:
Romy Schneider,
Harvey Keitel
Max Von Sydow
Leikstjóri: Bertrand Tavenier
íslenskur texti
Sýnd kl.3, 5.30, 9 og 11.15.
Kvennabærinn
Blaðaummæli:
„Loksins er hún komin, kvennamyndin hans Fellinis, og svíkur
engan“.
„Fyrst og fremst er myndin skemmtileg, það eru nánast engin
takmörk fyrir þvi sem Fellini gamla dettur í hug“. -
„Myndin er veisla fyrir augað“. - „Sérhver ný mynd frá Fellini
er viðburður." „Ég vona að sem allra flestir taki sér frí frá
jólastússinu, og skjótist til að sjá „Kvennabæinn". -
Leikstjóri: Federico Fellini.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 9.05
Felti Finnur
Sprenghlægileg og fjörug litmynd um röska stráka og uppátæki
þeirra, með
Ben Oxenbould,
Bert Newton
Gerard Kennedy.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 3.05, 5.05
Fílamaðurinn
Hin víðfræga stórmynd, afbragðs vel
gerð og leikin af
Anthony Hopkins,
John Hurt,
Ann Bancroft,
John Gielgud.
Leikstjóri: David Lynch.
Islenskur texti
Sýnd kl. 3, 5.30,
9 og 11.15
og 7.05
Heimsfrumsýning:
Grasekkjumennirnir
Sprenghlægileg og fjörug ný gamanmynd í litum um tvo ólíka
grasekkjumenn sem lenda í furðulegustu ævintýrum, með
Gösta Ekman
Janne Carlsson.
Leikstjóri: Hans Iveberg
Sýnd kl. 3.15,5.15,7.15,9.15og 11.15
Gleðileg jól!
Austurbæjarbíó:
Dudley Moore sem Arthur í samnefndri mynd.
— önnur bestsótta myndin vestra á síðasta ári
■ Jólamynd Austurbæjarbíós er Art-
hur en sú mynd varð önnur best sótta
myndin i Bandaríkjunum í fyrra. næst á
eftir Týndu örkinni. Með aðalhlutverk
fara Dudley Moore, Liza Minnelli og
John Gielgud en sá síðastnefndi hlaut
óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í
myndinni. Leikstjóri og höfundur hand-
rits er Steve Gordon.
Myndin fjallar um öðlinginn Arthur.
forríkan náunga sem leggur stund. á
kappakstur, tennis og fitlar við kvenfólk
en tekur sér frí um helgar.
Sem fyrr segir er hann forríkur og á í
fyllingu tímans að taka við auði föður
síns, einum 750 millj. dollara. Einn
hængur er þó á því máli, faðir hans vill
að hann giftist ákveðnum kvenmanni
sem einnig mun vera vel í efnum. Arthur
er ekki par hrifinn af því en lætur þó
tilleiðast enda myndi maður sennilega
giftast ömmu andskotans ef í boði væru
750 millj. dollarar.
Þetta er sem sagt allt klappað og klárt
en þá hittir Arthur Lindu (Minnelli)
verður ástfanginn af henni og mál hans
öll flækjast í viðamikinn hnút.
Hér ntun vera á ferðinni ein af þessum
ágætu og bráðfyndnu gamanmyndum og
þykir Moore frábær í túlkun sinni á
aðalpersónunni.
-FRi
FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982
jólakvikmyndir
Háskólabíó:
ff
Med allt á hreinu”
— ný íslensk mynd frumsýnd
■ Háskólabíó er „Með allt á hreinu"
fyrir þessi jól en þessi nýja íslenska
kvikmynd var frumsýnd hjá þeim nýlega.
Þetta er söngva- og gleðimvnd með
hljómsveitunum Stuðmönnum og Grýl-
unum og fyrir þá sem gaman hafa af
tónlist þessarar tveggja sveita er myndin
ómissandi.
Myndin er örlagarómans tveggja ein-
staklinga, þeirra Kristins Styrkársonar
Proppé eða Stinna stuð leiknum af Agli
Ólafssyni og Hörpu Sjöfn Hermundar-
dóttur leikinni af Ragnhildi Gísladóttur.
Þau eru í sitthvorri hljómsveitinni og
hafa báðar sveitirnar bókað saman ýmsa
tónleika víðsvegar um landið. Er örlaga-
rómansinn fer síðan í vaskinn geta
þessar sveitir ekki hugsað sér að leika
saman og því er ákveðið að sú sveit sem
komi fyrst á hvern stað fái tónleikana.
Inn í söguþráðinn blandast síðan Dúddi
rótari, kallaður „fjöregg Stuðmanna" en
hann er leikinn af Eggert Þorleifssyni,
upphaflega aðeins smáhlutverk eit óx í
meðförum og ekki má gleyma Sigurjóni
digra, illvígum umsjónarmanni félags-
heimilis eins, leiknum af Flosa Ólafssyni
og að lokum skal geta þess að Konni
kemur fram í myndinni, í fyrsta sinn án
hins ómissandi félaga síns Baldurs.
Leikstjóri myndarinnar er Ágúst
Guðmundsson og er þetta þriðja kvik-
mynd hans í fullri lengd. Kvikmynda-
töku önnuðust þeir Dave Bridges og Ari
Kristinsson.
Hljóð önnuðust þeir Gunnar Smári og
Júlíus Agnarsson og leikarar eru Stuð-
menn og Grýlurnar sem óþarfi ætti að
vera að kynna.
■ Úr myndinni „Með allt á hreinu".
FÍÖ,Sa*aUSkemmt
ö de9inum
35525«*
Með allt á hreinu
Ný, kostuleg og kátbrosleg íslensk gaman- og söngvamynd,
sem fjallar á raunsannan og nærgætinn hátt um mál sem varða
okkur öll. Myndin sem kvikmyndaeftirlitið gat ekki bannað.
Leikstjóri. Ágúst Guðmundsson.
Myndin er bæði í DOLBY og STEREO.
SÝND KL. 3, 5, 7 og 9