Tíminn - 24.12.1982, Síða 8
Geimskutlu-
James Bond
fll ISTURBÆ JARRÍfl
Jólamyndin 1982
„Oscars-verðlaunamyndin“
■ Lois Chiles og Roger Moore í hlutverkum sínum í Moonraker.
■ Tónabíó tekur loksins til sýningar
James Bond myndina Moonraker en
nokkuð er um liðið síðan hún var sýnd
ytra. Þetta er langdýrasta Bond myndin
sem gerð hefur verið og gefa tæknibrell-
urnar í henni í engu eftir því besta sem
gert hefur verið á sviði vísindaskáld-
skaparmynda.
James Bond, leikinn af Roger Moore,
á hér í höggi við megalomanikkinn Hugo
Drax, leikinn af Michael Lonsdale en sá
er ekki lítill í sniðum því hann hefur
komið sér upp glæpahring sem rænir
geimskutlum, hvorki meira né minna.
Þær notar hann svo til að byggja sér
einkageimstöð skammt utan jarðar en
með henni hyggur hann á heimsyfirráð.
Bond stúlkan er að þessu sinni Lois
Chiles en hún leikur kjarnakvendið
Holly Goodhead og nýtur Bond aðstoð-
ar hennar við að vinna á Drax. Það er
þó ekki létt verk því Drax hefur kallað
til liðs við sig engann annan en gamla
stálkjaftinn Jaws.
Leikstjóri þessarar myndar er Lewis
Gilbert en um sviðsmyndina sá óskars-
verðlaunahafinn Ken Adams og þykir
sviðsmyndin hreint ótrúleg svo vel hefur
tekist til cn undirritaður sá þessa
mynd ytra og telur óhætt að fullyrða að
sjaldan hafi betri Bond mynd verið gerð.
-FRI
“l race cars,
Iplaytennis,
Ifondlewomen,
but Ihave
weekends off and
am myown boss...”
Dudley
Moore
Arthur
Ein hlægilegasta og besta gamanmynd seinni ára, bandarísk í litum, varö önnur best sótta
kvikmyndin í heiminum sl. ár. Aðalhlutverkið leikur: Dudley Moore (úr „10“) sem er einn
vinsælasti gamanleikarinn um þessar mundir. Ennfremur Liza Minelli og John Gielgud,
en hann fékk „Oscarinn" fyrir leik sinn í myndinni. Lagið „Best That You Can Do“ fékk
„Oscarinn" sem besta frumsamda lagið í kvikmynd.
ísl. texti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Conan
villimadur
■ Arnold Schwarzenegger í hlutverki Conans
Nýja bíó:
■ Jólamynd Nýja bíós að þessu sinni
er Conan The Barbarian eða Conan
villimaður sem margir kannast eflaust
við úr teiknimyndasögum Morgun-
blaðsins. Upphaflega varð þessi sögu-
persóna til í Weird Tales tímaritinu árið
1932, þá skrifuð af Robert E. Howard
en hann samdi einar 21 Conan bækur,
og í samvinnu við aðra en ýmsir hafa
spreytt sig á þessum sögum.
Leikstjóri myndarinnar er John Milius
en hann hefur áður einkum getið sér orð
fyrir handritagerð og á því sviði liggja
eftir hann verk á borð við The Life And
Times Of Judge Roy Bean, Magnum
Force og Apocalypse Now.
Með aðaihlutverkið í mvndinni fer
svo kappinn Arnold Schwarzenegger en
hann þvkir lifandi eftirmynd hetjunnar
hvað burði varðar, er þetta fimmta
mynd hans en hann hefur yfirleitt leikið
kraftakarla í myndum sínum.
Með Arnold í aðalhlutverkum eru
James Earl Jones og Sandahl Bergman.
Myndin Conan The Barbarian gerist
á fornsögulegum tímum. Conan er rænt
sem barni af hópi bófa með Thulsa
Doom (Jones) sem foringja. Hann er
hnepptur í ánauð fram á fullorðinsár en
losnar þá úr vistinni, sver hefndir og
heldur ásamt tveimur vinum að fram-
kvæma þann eiðdaga og leita leyndar-
máls stálsins í leiðinni. Mikil ævintýri bíða
þremenninganna áður en til lokaupp-
gjörsins kemur.
Aðrar jólamyndir
■ Önnur bíó en hér hefur verið getið
um verða einnig með jólamyndir en
yfirleitt er þá um að ræða myndir sem
sýndar hafa verið áður. Þannig verður
Hafnarfjarðarbíó með myndina Hellis-
búinn sem jólamynd. Gamanmynd um
fornsögulega tíma er kvenmenn voru
kvenmenn og karlmenn voru skepnur.
Ringo Starr og Barbara Bach í aðalhlut-
verkum.
Nýja bíó í Keflavík sýnir myndina
Max Bar sem jólamynd en hún fjallar
um nokkra góðhjartaða en bæklaða
fastagesti á Max bar. John Savage í
aðalhlutverki.
Bíóbær í Kópavogi verður með tvær
jólamyndir, annarsvegar er það endur-
sýning á myndinni Land og synir og
hinsvegar er það ný mynd Að baki
dyrum dauðans með Tom Hallick og
Melindu Naud í aðalhlutverkum leik-
stýrt af Henning Schellerup. Myndin er
byggð á metsölubók hjartasérfræðings-
ins dr. Maurice Rawlings, og fjallar um
spurninguna hvort dauðinn sé endir alls
lífs í ljósi þeirrar framþróunar í tækni
sem gerir okkur kleift að lífga við fólk
úr dauðadái. -FRI