Tíminn - 25.01.1983, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983.
9
á vettvangi dagsins
Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs:
Ferðamál — llfvænleg-
ur vaxtarbroddur íþjóð-
arbúskap framtíðar
Breytt viðhorf kallar á endurmat og ný vinnubrögd atvinnugreinar
og stjórnvalda
■ Kynslóðir allra tíma hafa ætíð átt
erfitt með að aðlaga sig og sætta sig við
breytingar, hvort sem það hefur verið
nýr aldarandi, breytt viðhorf í þjóðfé-
lagsskipuninni eða einhverjar þær ytri
aðstæður sem smátt og smátt hafa knúið
á breytta skipun í þjóðfélaginu. Velsæld-
arþjóðir Vesturlanda eiga erfitt með að
sætta sig við óbreyttan eða minnkandi
hagvöxt, minni þjóðarkökur og versn-
andi lífsafkomu. Sama gildir um íslend-
inga - hér gengur erfiðlega að fá menn
til að taka það alvarlega, að menn eyða
meiru en aflað er. Og misvel gengur
bæði hjá landsfeðrum og þjóðini að
eygja nýja möguleika, sem skapa at-
vinnu og gjaldeyristekjur. Svo virðist
sem nokkurrar hugarfarsbreytingar sé
þörf - og endurmats á möguleikum
okkar og getu. A.m.k. er það löngum
orðið tímabært, að menn freisti þess að
líta lengri veg fram á við og iæri af
reynslu þeirra þjóða, sem vel getur
gagnað okkur í slíkri framtíðarsýn. Því
er á þetta minnst hér í upphafi, sem
síðar verður rætt, að ef til vill standa
íslendingar á meiri tímamótum á ýmsum
sviðum en margir gera sér grein fyrir.
Vera má, að full snemmt sé að rita
eftirmæii ársins 1982, en margt bendir
þó til þess, að þau eftirmæli muni
tengjast nokkrum breytingum í efna-
hagslífi okkar og þar með þjóðfélags-
háttum. Það verður hins vegar undir
okkur sjálfum komið, hvernig við bregð-
umst við þeim nýju viðhorfum sem við
blasa og væntanlega munu skýrast nánar
eftir því sem tímar líða. Hin nýju
viðhorf snerta mjög atvinnugrein ferða-
mála og það er bæði undir stjórnvöldum
og forráðamönnum atvinnugreinarinnar
komið, hvemig og með hvaða hætti hin
tiltölulega unga atvinnugrein muni falla
inn í þjóðarmunstrið á næstu árum, til
dæmis frá síðustu áramótum til alda-
móta, ársins 2000. Sumum kann að
þykja það langur tími, en hann er þó
'ekki lengri en það, að um er að ræða
svipaða tímalengd og starfsemi íslenska
sjónvarpsins fram á þennan dag, sem
okkur virðist sem ný hafin.
Vaxtarbroddur framtíðar
Eins og síðar verður rakið í þessu
yfirliti má leiða að því sterk rök, að
atvinnugrein ferðamála geti verið einn
lífvænlegasti vaxtarbroddurinn í ís-
lensku atvinnulífi á næstu árum og
áratugum. Hafi hvort tveggja í senn
góða möguleika á því að afla þjóðarbú-
inu aukinna gjaldeyristekna og skapa
aukna starfsmöguleika fyrir nýja og
uppvaxandi kynslóð. Það má enn fremur
leiða að því skýr rök, að meðal annars
vegna þess að veruleg fjárfesting hefur
verið í atvinnugreininni á undanförnum
árum, m.a. með stórauknu hótelrými,
ekki síst víða út um landsbyggðina, þarf
tiltöiulega litla viðbótarfjárfestingu til
að gera atvinnugreininni kleift að auka
umfang sitt verulega bæði varðandi
fjölþætta þjónustustarfsemi við erlenda
ferðamenn jafnframt því sem búið er í
haginn fyrir ferðalög íslendinga um
eigið land.
Ferðamál - félagsleg
aðstaða
Það er sérstök ástæða til að minna á,
að það er ekki eingöngu hlutverk
Ferðamálaráðs íslands að stuðla að
ferðalögum erlendra manna til íslands í
viðskiptalegum tilgangi heldur er það
ekki síður hlutverk ráðsins að stuðla að
og hvetja til ferðalaga íslendinga um
eigið land og standa fyrir bættri aðstöðu
sem víðast um landið til að auðvelda slík
ferðalög, sem með hverju árinu eru að
verða æ mikilvægari þáttur í lífi hvers
einasta landsmanns, sem bæði stafar af
auknum frístundum, bættum sam-
göngum og auknum áhuga manna á því
að kynnast eigin landi. Það má enn
fremur minna á, sem er afar mikilvægt
atriði, að í flestum tilvikum stuðlar
fjárfesting í ferðamálum að bættri félags-
legri aðstöðu í þeim byggðarlögum sem
viðkomandi fjárfesting á sér stað og
auðgar þar með líf þess fólks sem þar
lifir og starfar. Hér mætti rekja mörg
dæmi hringinn í kringum landið þar sem
til dæmis ný hótel hafa bætt verulega alla
félagslega aðstöðu, stuðlað að auknu
menningarlífi og þar mætti lengi telja.
Aukin nýting slíkrar fjárfestingar stuðlar
bæði að auknum tekjum fyrir viðkom-
andi byggðarlag og þjóarbúið í heild.
Þessari staðreynd gleyma til dæmis
stjórnvöld of oft þegar ákveðin eru
lánskjör til slíkra framkvæmda, tolla-
stefna er mótuð og söluskattur ákveðinn
og fleiri tengd atriði.
Tveggja ára þróun
Þegar þessar línur eru ritaðar liggja
ekki fyrir endanlegar upplýsingar um
fjölda erlendra ferðamanna á árinu
1982, en miðað við þær upplýsingar er
fyrir lágu 1. desember má telja líklegt,
að fjöldi ferðamanna hafi verið svipaður
og á árinu 1981 eða 72 til 73 þúsund. Á
árinu ‘81 nam fjölgunin um 8% miðað
við fyrra ár, en gjaldeyristekjur vegna
erlendra ferðamanna samkvæmt upplýs-
FYRRI HLUTI
ingum Seðlabanka íslands 355 millj. kr.,
en vegna verðlagshækkunar á landinu á
árinu ‘82 má ætla, að aukning gjaldeyr-
istekna verði að minsta kosti 20% miðað
við árið áður. Þar sem endanlegar tölur
eru ekki komnar fyrir árið ‘82, en árin
að ýmsu leyti svipuð er rétt að geta þess
að á árinu 1981 voru gjaldeyristekjur af
erlendum ferðamönnum um 5,4% sem
hlutfall af verðmæti vöruútflutnings
landsmanna á árinu 1981, en sambæri-
iegt hlutfall árið ‘80 var 5,2%. Auk þess
sem að framan greinir má geta beinna
tekna ríkissjóðs af ferðamannaþjónust-
unni, sem þekktar eru að fráföldum
söluskatti og öllum opinberum gjöldum.
En samkvæmt fjárlögum ársins 1981
voru beinar tekjur ríkissjóðs um 45
millj. kr., þar með taldar tekjur af
Fríhöfnini á Keflavíkurflugvelli og gjald
á ferðalög íslendinga til útlanda, sem er
stærsti liðurinn. Þegar allar staðreyndir
um beinar og óbeinar tekjur ríkissjóðs
af ferðamannaþjónustunni í landinu eru
taidar saman fyrir árið 1981 er áætlað,
að þær hafi ekki verið minni en um 87
millj. kr. Ljóst er þegar, að tekjur
ríkissjóðs af atvinnugreininni á liðnu ári
hafa aukist verulega. Hér eru ekki með
taldir inniendir tekjuþættir, sem eru
verulegur þáttur af tekjuöfluninni. heldur
eingöngu gerð grein fyrir gjaldeyris-
öfluninni eins og opinberar tölur Seðla-
bankans greina frá. Samkvæmt upplýs-
ingum Hagstofu íslands má minna á að
hlutur annarra atvinnugreina í gjald-
eyrisöfluninni var eftirfarandi:
Sjávarafurðir 78,3%, Iandbúnaður
2,4%, iðnaðarvörur 9,5% ál og álmelmi
9,7% annað 1,1%.
Nýjar ferðavenjur -
ný viðbrögð
Ljóst er, að sú þróun er greinilega
kom fram á árinu 1981 og varðaði
ferðavenjur og eyðsluhætti erlendra
ferðamanna, varð e.t.v. enn skýrari á
árinu 1982. Þetta hefur m.a. komið fram
í því, að vafalaust vegna verðbólguþró-
unar bæði hérlendis og í heimaiandi
gestsins hefur hin almenna regla verið
sú, að eyðsla hefur minnkað. Ódýrari
kosturinn er frekar valinn þegar um
fleiri er að velja, sem m.a. hefur lýst sér
í því,-að jafnvel yfir hásumarið hefur
hótelrými í höfuðborginni ekki verið
nýtt á sama hátt og áður og menn kjósa
ódýrari og einfaldari veitingaStaði. Svo
virðist þó sem hótelnýtingin utan
Reykjavíkur hafi verið betri. Slík þróun
hlýtur að kalia á ákveðin viðbrögð - ný
og ferskari vinnubrögð. Aukið fjölþjóð-
legt ráðstefnuhald hlýtur að vera eitt
virkasta svarið til að tryggja aukna
tekjumyndun og innan tíðar mun Ferða-
málaráð geta skýrt frá nýjum áformum
þarað lútandi, sem innan skamms tíma
mun komast á framkvæmdastig. Alþjóð-
leg reynsia - og reyndar okkar eigin,
kennir þá athyglisverðu staðreynd, að
ráðstefnugesturinn eyðir u.þ.b. fimmfalt
meira en hinn almenni ferðalangur og er
því ekki eftir litlu að sækjast. Þetta vita
nágrannaþjóðir okkar, sem um langt
árabil hafa byggt upp myndarlega ráð-
stefnuþjónustu í löndum sínum, ýmist
fyrir frumkvæði stjórnvalda, ferðamála-
yfirvalda og/eða borgaryfirvalda.
A.m.k. sá hluti stjórnkerfisins, sem
ráðið hefur fjármálum hins opinbera á
undanförnum árum hefur skellt skolla-
eyrum við þessari staðreynd og látið sem
hún væri ekki til svo og borgaryfirvöld
Reykjavíkur, sem virðast ekki átta sig á
því, að höfuðborgin er viðkomustaður
nánast hvers einasta erlends ferða-
manns, sem til landsins kemur og skapar
ótöldum rekstri í borginni verulegar
tekjur og þar með sjóðum borgarinnar.
Ferðaþjónusta -
útflutningur
Atvinnugrein ferðamála er í raun
mjög víðfeðm og nær til margra þátt a í
þjóðarbúskap okkar. Svo víðtæk, að
þegar öll þjónustusvið eru með talin,
gætir þess stundum, að jafnvel sumir
hverjir er starfa innan atvinnugreinar-
innar gera sér ekki alltaf grein fyrir því
hvar þeir eiga heima - hvað þá þeir sem
utan starfa. Og atvinnugrein ferðamála
verður að skoða eins og hverja aðra
útflutningsgrein með þeirri mikilvægu
breytingu, að í stað þess að vörurnar eru
fluttar á erlendan markað til neytenda
þá koma viðskiptavinir ferðaþjónust-
unnar hingað til lands og kaupa vörur
og þjónustu og ferðast hingað undan-
tekningarlítið með íslenskum sam-
göngutækjum. Fróðlegt væri að reikna
það dæmi til enda, hversu margar
niðurgreiðslukrónumar neysla erlendra
ferðamanna, til dæmis á lambakjöti,
hefur sparað þjóðarbúinu á undanförn-
um árum. Þetta er staðreynd, sem allt
of fáir gera sér grein fyrir og jafnvel leiða
ekki hugann að.