Tíminn - 25.01.1983, Síða 10
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983.
MSam-
eigin-
legir
hags-
munir
miklir”
— segir Ragnar Kjartansson,
formadur nýstofnaðs
Sambands íslenskra ^
kaupskipaútgerða, SÍK
■ „Meðal flestra siglingaþjóða, a.m.k. þar sem ég
þekki til, eru starfandi hagsmunasamtök kaupskipaút-
gerða, sem hafa það verkefni að vaka yfir sameiginlegum
hagsmunum, en þeir eru gífurlega miklir og starfið því
talsvert umfangsmikið. Sameiginlegir hagsmunir útgerða
á íslandi eru ekkert minni en annars staðar og þess vegna
er í raunini furðulegt að samtök á borð við SIK skuli
ekki hafa verið stofnuð fyrr,“ sagði Ragnar Kjartansson,
framkvæmdastjóri Hafskips og formaður nýstofnaðs
Sambands íslenskra kaupskipaútgerða.
Aðild að SÍK eiga sjö útgerðir; Eimskip,
Hafskip, Skipadeild Sambandsins,
Skipafélagið Nes, Nesskip, Skipafélagið
Víkur og Skiparekstur Gunnars Guð-
jónssonar h/f. Á vegum þessara útgerða
eru 45 kaupskip í siglingum og hjá þeim
starfa milli 1400 og 1500 manns.
- Er samkeppni mili útgerðanna úr
sögunni með stofnun SÍK?
„Samkeppnin verður áfram. En þrátt
fyrir hana er ótal margt sem við getum
gert sameiginlega - til hagsbóta fyrir alla
aðila. Ýmislegt þar að lútandi er kannski
of snemmt að tala um núna vegna þess
hve stutt er síðan samtökin voru stofnuð.
Við erum rétt að fara af stað að leita
okkur að framkvæmdastjóra og húsnæði
undir starfsemina o.s. frv.“
Menntunarmál sjómanna
„En þó get ég sagt frá ýmsu sem hefur
verið rætt í okkar hópi og mér þykir
líklegt að samtökin muni í nánustu
framtíð beita sér fyrir. Við stöndum til
dæmis frammi fyrir því að íslenskir
farmenn, stýrimenn og vélstjórar, hafa
afskaplega litla þekkingu á öllu sem
lýtur að rekstri. Við ættum að gera kröfu
til þess að menntun farmanna verði í
framtíðinni þannig sniðin að hún nýtist
útgerðunum sem best. Stýrimenn ættu
að kunna skil á kostnaðaruppbyggingu
farmflutninga, farmmeðhöndlun, dreif-
ingarfræði, skipatækni, skipulagstækni,
fyrirbyggjandi viðhaldi, farm- og skipa-
tryggingafræðum, flutningatækni
o.s.frv. Það kæmi sér líka mjög vel að
vélstjórar, til viðbótar ofangreindum
rekstrarfræðum, kynnu skil á olíuverð-
lagningarfræði, sjálfvirkni, stýringu og
ýmsu fleiru. Þessum mönnum er á
hverjum degi ætlað að taka stórar
ákvarðanir sem lúta að því sem ég var
Þriöji ársfjórdungur 1982:
Samdráttur f iðn-
aðarframleiðslu
1.6 prósent
— álið hefur mest áhrif
■ Iðnaðarframleiðsla dróst lftillega
saman á þriðja ársfjórðungi nýliðins
árs miðað við sama tíma árið 1981
samkvæmt niðurstöðum könnunar
Félags íslenskra iðnrekenda og
Landsambands iðnaðarmanna. Að
magni til sýnir könnunin -um 1,6
prósent samdrátt, en sé álframleiðsla
undanskilin, fæst á hinn bóginn 1,3
prósent aukning. Upplýsingar um
framleiðslúmagn á þriðja ársfjórð-
ungi miðað við annan ársfjórðung
benda ekki til umtalsverðra breyt-
inga. þegar á heildiria er litið.
■ Ragnar Kjartansson, formaður nýstofnaðs Sambands íslenskra kaupskipaútgerða.
að rekja. Einnig tel ég að koma ætti á
fleiri endurmenntunarnámskeiðum fyrir
skipstjórnarmenn, eins og tíðkast í
nágrannalöndum. Þá hefur verið rætt
um námskeiðahald af ýmsu tagi fyrir
starfsmenn útgerðanna í landi.“
Niðurgreidd erlend sam-
keppni
„Hvernig er búið að íslenskri kaup-
skipaútgerð?
„Kaupskipaútgerðin býr við verulega
sérstöðu innan íslensks atvinnulífs vegna
samkeppninnar, sem oft á tíðum kemur
erlendis frá. Það er mikilvægt fyrir
okkur að gera yfirvöldum grein fýrir
þessu, því annars gætu ýmsar greinar
okkar flutninga farið illa.
Hættan liggur ekki í sambandi við
hina hefðbundnu stykkjaflutninga. Þar
stöndum við sterkir vegna þeirrar að-
stöðu sem við höfum hérna heima, á ég
við hafnaraðstöðu, vöruskemmur og
annað slíkt. En tilfellið er,að eins og nú
horfir eru vaxtarmöguleikarnir fyrst og
fremst í stórflutningum, sem tengjast
stóriðju. Þar standa íslenskar útgerðir
ekki vel gagnvart erlendri samkeppni,
sem í mörgum tilfellum er niðurgreidd
af ríkisfé viðkomandi þjóða.
Við þurfum að knýja á um að ná fram
að minnsta kosti jafnræði með inn-
lendum og erlendum útgerðum í stór-
flutningum að og frá íslandi. Ella er
Metár Volvo
vörubifreiða
á heimsmarkaði
■ „Metár varð í sölu VOLVO vöru-
bifreiða á heimsmarkaði þrátt fyrir
mikinn samdrátt í sölu vörubifreiða
yfirleitt. VOLVO framleiddi samtals
35.000 vöru- og flutningabifreiðar árið
1982, 30.700 VOLVO og4.300 VOLVO
White, segir í frétt frá Velti h/f,
Volvoumboðinu á íslandi.
Ennfremur segir í fréttinni að þetta sé
mesta aukning framleiðslu hjá VOLVO
Truck Corporation hingað til, þrátt fyrir
að árið á undan hefði einnig verið metár.
hætta á að við missum þessa útgerðar-
grein úr landinu."
Magninnkaup á olíu
„Olíukostnaður er hvorki meira né
minna en 20 til 40 prósent af rekstrar-
kostnaði íslenskra kaupskipa, en það fer
eftir því hverrar gerðar þau eru og hvaða
flutninga þau stunda. Erlendir sér-
fræðingar hafa staðfest þann fjárhags-
lega ávinning sem liggur í magninnkaup-
um, þ.e. stórum samningum. Mérfinnst
liggja beint við að kanna hvort ekki á
það sama við hér hjá okkur. Til dæmis
ríkir gífurlegur verðmunur á smurolíum
hér, mun meiri en á alþjóðlegum
markaði. Á henni held ég að sé unnt að
fá verulegan magnafslátt,“ sagði
Ragnar.
Mönnun íslenskra skipa
- Því er stundum haldið fram að
íslensk skip sigli með stærri áhafnir en
tíðkast í nágrannalöndum?
„Það eru dæmi um það að íslensk skip
sigli með þrjá til fjóra skipverja umfram
það sem tíðkast á sambærilegum skipum
í Danmörku til dæmis. Þetta rýrir okkar
samkeppnisaðstöðu mjög og ég vil láta
gera á því nákvæma könnun í hverju
okkar fyrirkomulag er frábrugðið fyrir-
komulagi annarra þjóða. Einnig tel ég
að kynna þurfi stéttarfélögum og útgerð-
um sjálfvirknibúnað, sem á boðstólum
er og getur haft áhrif þama.“
Ragnar nefndi ennfremur að ástæða
væri fyrir íslenskar kaupskipaútgerðir til
að gera könnun á því hvort ekki væri
mögulegt að komast að hagstæðari
tryggingasamningum um svokallaða
„gagnkvæma klúbba“. Þar væri hugsan-
legt að SÍK hefði forgöngu um að afla
upplýsinga og koma þeim á framfæri.
Loks nefndi Ragnar að frumvarpið
um tollkrít, sem nú liggur fyrir Alþingi,
gæti verulega dregið úr útvegun útgerð-
anna á skemmuplássi, sem leigt væri út
undir kostnaðarverði.
-Sjó.
„Rydgrandar
bílum óedli-
lega fIjótt
■ „Margt bendir til þess að ryð sé
í flestum tilfellum aðalástæða þess að
bifreiðar verði ónothæfar á óeðlilega
skömntum tíma, segir í frétt frá FIB
og neytendamáladeild verðlagsstofn-
unar, en fréttin byggir á niðurstöðum
vinnuhóps sem starfað hefur á
vegum Norrænu embættismanna-
nefndarinnar og fjallað sérstaklega
um ryðvörn bifreiða.
í niðurstöðum vinnuhópsins er
þess getið, að ryðskemmdir á bifreið-
um geti valdið slysum og gert það að
verkum að tjón verða meiri en ella
ef óhöpp henda.
„Löggjöf á Norðurlöndum veitir
bifreiðaeigendum ófullnægjandi
vernd ef tjón verður af ryði enda
koma skemmdirnar yfirleitt fyrst í
ljós eftir að ábyrgðartíminn er út-
runninn,-' -segir í niðurstöðum
vinnuhópsins.
Samkvæmt reglum, sem vinnuhóp-
urinn hefur samið, er ætlast til að
bifreiðaumboð skuldbindi sig gagn-
vart kaupendum að veiia þriggja ára
ábyrgð á ryð og lakkskemmdum á
ytra borði bifreiðar og sex ára ábyrgð
vegna ryðgunar í gegn.