Tíminn - 25.01.1983, Qupperneq 18
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983.
Snjónóðin á Patreksfirði. Innanstokksinunir liggja eins og hráviður um allt.
(Tímamynd Róbert).
Gunnar Thoroddsen um snjóflóðin á Patreksfirði:
EIGNATJÓNIÐ
VERÐUR BÆTT
■ Fundur var haldinn í sameinuðu
þingi í gær og var eitt mál á dagskrá,
snjóflóð á Patreksfirði. Jón Hefgason
forseti sameinaðs þings ávarpaði þing-
menn og sagði:
S.l. laugardag bárust þær fréttir frá
Patreksfirði að þá uin daginn hcfðu fallið
þar snjóflóð, sem lentu á mörgum
íbúðarhúsum og sópuðu sumum þeirra
burt. Ekki var þá strax vitað hversu
margir menn hefðu lent undir snjóflóð-
■ Fyrstu umræðu um bráðabirgðalögin
var fram haldið í neðri deild í gær.
Steingrímúr Hermannsson sjávarútvegs-
ráðherra lagði fram breytingartillögur
um að 40 millj. kr. af gengismun renni
í Stofnlánasjóð fiskiskipa og að eftir-
stöðvum verði ráðstafað til stuðnings
útgerðinni.
Breytingartillögurnar hljóða þannig:
1. 5. tl. 4. gr. orðist svo:
Krónúr 40 milljónir renni í Stofnfjár-
sjóð fiskiskipa til lækkunar á skuldum
og/eða fjármagnskostnaði fiskiskipa,
samkvæmt reglum sem sjávarútvegs-
ráðuneytið setur, að höfðu samráði við
stjórn Fiskveiðasjóðs íslands og lands-
samband íslenskra útvegsmanna.
2. Á eftir 5. tl. 4. gr. komi nýr liður,
sem verði 6. tl., svohljóðandi:
Eftirstöðvuin, ásamt vöxtum, skal
ráðstafað skv. nánari ákvörðun sjávarút-
vegsráðuneytisins í samráði við sjávarút-
vegsnefndir Alþingis.
Sjávarútvegsráðherra sagði að það
framlag sem þarna er gert ráð fyrir að
gangi til Stofnlánasjóðsins sé 10 millj.
kr. hærra en kveðið var á um í
bráðabirgðalögunum. Einnigsagði hann
að nokkur afgangur væri af gengismunin-
inu, en mikil hætta var talin á frekari
flóðum, svo að flest hús á hættusvæðinu
voru rýmd og íbúarnir fluttir á öruggari
staði.
í hvert sinn sem slík tíðindi berast, þá
finnum við til þess, hversu vanmegnug
við erum gagnvart óblíðum náttúru-
öflum okkar lands en hljótum að vona
og biðja að yfir okkur sé haldið
verndarhendi.
Björgunarstarf var þegar hafið og
um sem sjávarútvegsráðuneytið ráðstaf-
ar í samráði við sjávarútvegsnefndirnar.
Geir Hallgrímsson flutti ’langa ræðu
um bráðabirgðalögin og taldi þau ein-
kennast af tveim höfuðþáttum, kaup-
skerðingu og skattahækkunum, og ekki
ná þeim tilgangi sínum að halda í við
verðbólguna.
Sighvatur Björgvinsson taldi lögunum
margt til foráttu en tók ekki eins djúpt
í árinni og hann hefur oft áður gert í
umræðum um þau.
Fundi var. frestað kl. 16.00 vegna
þingflokksfunda, en var fram haldið kl.
16.00 en áður en hlé var gert á fundinunt
tilkynnti deildarforseti að stefnt yrði að
því að ljúka umræðunni um kvöldið og
afgreiða málið til nefndar.
Eins og fram hefur komið í Tímanum
og víðar situr Siggeir Björnsson nú á
þingi fyrir Eggert Haukdal, og hefur lýst
yfir að hann sé enn stuðningsmaður
ríkisstjórnarinnar, þótt Eggert hafi sagt
skilið við hana. Hefur því ríkisstjórnin
og þar með frumvarpið unt efnahagsað-
gerðir öruggan meirihluta í neðri deild
að minnsta kosti þessa vikuna. En
ekkert mælir gegn því að Siggeir sitji
áfram ef Eggert het'ur ekki tök á því að
koma til þings á næstunni.
fjöldi manns vann að því að leita hinna
týndu. Um hádegi í gær höfðu allir
fundist, en fjórir þeirra voru þá látnir og
nokkrir slasaðir.
Slíkur atburður er mikið áfall fyrir
byggðarlagið, þar sem fólk er tengt
nánum böndum vensla og vináttu.
Sárastur er söknuður nánustu ættingja
og vipa hinna látnu. Við vottum öllu
þessu fólki einlæga samúð og hluttekn-
ingu.
Ég bið háttvirta þingmenn að taka
undir orð mín með því að rísa úr sætum.
Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra
kvaddi sér hljóðs og flutti eftirfarandi
ávarp:
Enn einu sinni hefur íslenska þjóðin
orðið fyrir þungu áfalli af völdum
náttúruhamfara. Þær hörmungar sem
gengu yfir Patreksfjörð um helgina,
urðu á þcim slóðum og af þeirri
skyndingu, að engan hafði órað fyrir.
Fjölskyldum hinna látnu og Patreks-
firðingum öllum vil ég votta samúð í
nafni þjóðarinnar allrar og ríkisstjórnar
íslands.
Islenska þjóðin vill með samhjálp
kappkosta að bæta tjón af slíkum
áföllum eftir því sem í mannlegu valdi
stendur.
Lög um Viðlagatryggingu Islands með
endurbótum, sem gengu í gildi um
síðustu áramót, tryggja bætur fyrir
verulegan hluta þess fjárhagsskaða sem
orðinn er.
Verði sveitarfélag fyrir óvæntu fjár-
hagstjóni, svo sern vegna náttúruham-
fararer heimilt að veita því aukaframlag
úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Átakanlegastur er sá skaði, sem aldrei
verður með fjármunum bættur, manns-
lífin sem töpuðust, heimilin sem lögð
voru í rúst. Sumt eignatjón verður
heldur aldrei að fullu bætt. En stjórnvöld
munu eftir megni leitast við að lina það
áfall, sem þetta byggðarlag hefur orðið
fyrir, og mun þá hafa hliðsjón af
aðgerðum vegna snjóflóðanna í Norð-
firði í desember 1974.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson mælti
fyrir hönd þingmanna Vestfirðinga og
þakkaði forseta samúð í garð fólksins á
Patreksfirði og ríkisstjórninni og
forsætisráðherra fyrir þá yfirlýsingu er
hann flutti. Hann sagði að þegar svo
hörmulegir atburðir gerðust eins og
snjóflóðið á Patreksfirði kæmi í ljós að
íslendingar eru sem ein fjölskylda og
vildu bera hvers annars byrðar. Kvaðst
hann þess fullviss að allt verður gert sem
í mannlegu valdi stendur til að bæta
þann skaða sem íbúarnir á Patreksfirði
hafa orðið fyrir.
Brádabirgdalög-
in í nefnd
— og Siggeir enri á þingi
Kvikmyndir
Sími7Q9O0
Salur 1
Frumsýnir
nýjustu mynd
Arthurs Penn
Fjórir Vinir
(Four Friends)
V V»
ItHlt lÍIII NDs
Ný frábær mynd gerð af sníllingn-
um Arthur Penn en hann gerði
myndimar Litli Risinn og Bonnie
og Clyde. Myndin gerist á sjöunda
áratugnum og fjallar um fjóra vini
sem kynnast í menntaskóla og
verða óaðskiljanlegir .Arthur Penn
segir: Sjáið til svona var þetta í þá
daga.
Aðalhlutverk: Craig Wasson, Jodi
Thelen, Michael Huddleston, Jim
Metzler.
Handrit: Steven Tesich. Leikstjóri:
Arthur Penn.
Sýnd kl. 15,7.05,9.05,11.10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Salur 2
"7---------------------------
Flóttinn
(Pursuit)
Flóttinn er spennandi og jafnframt
fyndin mynd sem sýnir hvemig
J.R. Meade sleppur undan lög-
reglu og fylgisveinum hennar á
stórkostlegan hátt. Myndin er
byggi á sannsögulegum helm-
ildum.
Aðalhlutverk: Robert Duvall,
Treat Williams, Kathryn Harrold
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11
Hækkaö verð
Salur 3
Litli lávarðurinn
(Little Lord Fauntleroy)
f
Aðalhlutv: Alec Guinness, Ricky
Schroder og Eric Porter. Leik-
stjóri: Jack Cold.
Sýnd kl. 5 og 7
Dularfullar sím-
hringingar
Spennumynd i algjörum sérflokki.
Aðalhlutverk Charles During og
Carol Kane.
Sýnd kl. 9 og 11.
Salur 4,
Sá sigrar sem þorir
(Who Dares Wins)
Þeir eru sérvaldir, allir sjálfboðalið-
ar svifast einskis, og eru sérþjálf-
aðir. Þetta er umsögn um hina
frægu SAS (Special Air Service)
Þyrlu-björgunarsveit. Uðstyrkur
þeirra var það eina sem hægt var.
áð treysta á.
Aðalhlv: Lewis Collins, Judy
Davis, Richard Widmark, Robert
Webber
Sýnd kl. 5,7.30 og 10
Átfi. breyttan sýningartíma.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
HÆKKAÐ VERÐ
_________Salur 5_____________
Being There
Sýnd kl. 9