Tíminn - 04.03.1983, Page 5
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1983
5,
Steingrímur Hermannsson:
ER EKKI
STIMPILL
í HENDI
ALBERTS
Hart deilt um flugmálastjóra
á Alþingi
■ - Ég er enginn og verð ekki gúmmí-
stimpill í hendi Alberts Guðmundssonar
eða nokkurs annars, sagði Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra á Al-
þingi í gær, en þar var hart deilt á hann
fyrir að veita Pétri Einarssyni stöðu
flugmálastjóra. Albert á sæti í flugráði,
og taldi hann eins og flestir ræðumenn
að umsögn ráðsins um hverjum ætti að
veita embættið hefði átt að ráða gjörðum
ráðherra. En Steingrímur sagði það
ótvírætt á valdi ráðherra að veita em-
bættið og væri hann ekki bundinn af
umsögn flugráðs, þótt því bæri að mæla
með umsækjendum í stöðuna.
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að nýverið skipaði samgönguráðherra
Pétur Einarsson varaflugmálastjóra í
stöðu flugmálastjóra en flugráð hafði
eindregið mælt með Leifi Magnússyni í
stöðuna. Friðrik Sóphusson hóf máls á
stöðuveitingunni utan dagskrár í samein-
uðu þingi í gær og stóðu umræður yfir í
rúml. tvær klukkustundir. Þeir sem til
máls tóku auk frummælanda voru Albert
Guðmundsson, Skúli Alexandersson,
Garðar Sigurðsson, Arni Gunnarsson,
og Magnús H. Magnússon. Þeir gagn-
rýndu allir mjög stöðuveitinguna og
töldu að fara hefði átt eftir umsögn
flugráðs og skipa Leif Magnússon. Mikið
var lesið upp úr blöðum um það sem
skrifað hefur verið um málið undanfarna
daga og óþarft að endurtaka það.
Steingrímur Hermannsson sagði að
engar brygður væru bornar á vald hans
til skipa flugmálastjóra. Alls bárust 11
umsóknir um stöðuna og voru þær
sendar flugráðsmönnum til athugunar.
Ég fór yfir þessar umsóknir, sagði sam-
gönguráðherra, og það vakti athygli
mína í þessum umsóknum eru margar
frá einstaklingum sem tvímælalaust eru
vel hæfir til þess að gegna embætti
flugmálastjóra. Flugráð mælti með Leifi
en engar umsagnir bárust um aðra
umsækjendur, og gerði samgönguráð-
herra athugasemd við að ekki hafi verið
fjallað sameiginlega um umsóknirnar á
fundi flugráðs, og vel hefði getað komið
til greina hjá flugráði að benda á fleiri
en einn sem hæfan umsækjanda.
- Ég tel óeðlilegt, sagði Steingrímur,
og dreg það ekki til baka að flugráð í
heild sinni fari ekki yfir umsóknirnar og
fjalli ekki um þær í stað þéss að mæla
með einum umsækjanda umræðulaust.
Steingrímur sagðist hafa farið vel yfir
umsóknirnar og ýmsir aðilar sem við
flugmál starfa hafi sent sér umsagnir um
bæði Pétur Einarsson og Leif Magnússon
og mæltu aðilar ýmist með Pétri eða
Leifi. Hann kvaðst hafa kannað í ráðu-
neytum og víðar hvernig mönnum hafi
líkað störf Péturs Einarssonar þau ár
sem hann hefur starfað hjá flugmála-
stjórn og sem varaflugmálastjóri og hafi
hann eindregið hlotið þau ummæli að
störf hans hefðu verið óaðfinnanleg og
hin besta regla á störfum hans öllum.
- Min niðurstaða varð því sú, sagði
Steingrímur, að það væri ekki rétt að
ganga fram hjá Pétri Einarssyni. Það
hafa ekki komið fram þau rök í málinu
sem réttlættu það að ganga fram hjá
manni sem skipað hafði stöðu varaflug-
málastjóra í tvö og hálft ár. Ég vil vekja
athygli á því að Leifur Magnússon sem
einnig hafði gegnt þessari stöðu, vissu-
lega meðágætum, yfirgaf flugmálastjórn
og tók sér annað starf. Það er að mínu
viti ekkert sjálfgefið að hann geti krafist
þess að koma til baka og taka við stöðu
flugmálastjóra. Ég vil taka fram að ég
hef alls ekkert á móti Leifi, en tel
hinsvegar að með tilvísun til þess ágæta
vitnisburðar sem Pétur Einarsson hefur
fengið hjá öllum, hefði verið í hæsta
máta ódrengilegt að ganga fram hjá
honum.
Steingrímur sagðist taka undir nýleg
ummæli Alberts Guðmundssonar, þar
sem hann segir, að hann vilji taka fram
að Pétur Einarsson hefur gegnt stöðu
varaflugmálastjóra með ágætum og flug-
málastjóra í ágætu samstarfi við flugráð.
Steingrímur tók fram að þetta væri
ekki í fyrsta sinn sem ráðherra er
gagnrýndur fyrir skipan í embætti. M.a.
gerðist það 1953 að þáverandi dóms- og
kirkjumálaráðhera Bjarni Benediktsson
var gagnrýndur mjög harðlega fyrir
skipun í kennara- og prófessoraembætti.
Þá var borin fram á hann vantrauststil-
laga. Síðan las ráðherrann upp kafla úr
svari Bjarna: „Um enga af þessum
stöðum er því haldið fram, að ég hafi
ekki haft vald til að ráðstafa henni eins
og ég gerði. Hinu hefur verið hreyft að
ég hafi ekki fylgt tillögum þeirra aðila
sem tillögurétt áttu um veitinguna. Það
er rétt, en ef það væri skylda að fylgja
ætíð tillögum þeirra sem tillögurétt eiga
væri veitingavaldið vitanlega ekki hjá
ráðherranum, heldur hinum sem tillögu-
réttinn fá. Það að ráðherra hefur sam-
kvæmt skýlausum ákvæðum laga á-
kvörðunarvaldið fær honum bæði rétt og
skyldu til að kanna hvert mál sjálfur og
veita stöðuna eftir því sem hans eigin
sannfæring segir til um en ekki einhverra
annarra. Ef hann bregst þessari skyldu
sinni hefur hann sýnt að hann er ekki
hæfur til að gegna því mikilvæga embætti
sem honum hefur verið veitt. Vald hans
er þá ekkert annað en stimpill sem aðrir
geta sett á sínar gerðir til staðfestingar.
Eg hef aldrei verið slíkt verkfæri í
annarra höndum og verð það aldrei."
Ég vil leyfa mér að gera þessi orð
Bjarna að mínum, sagði Steingrímur.
En margir ræðumanna höfðu sakað
hann um valdníðslu og kváðu svo sterkt
að orði að aldrei hefði önnur eins
embættisveiting átt sér stað á íslandi.
Einnig minnti Steingrímur á er Björn
Þórðarson skipaði Sigurbjörn Einarsson
dósent á móti vilja guðfræðideildar há-
skólans.
Steingrímur var spurður hvort hann
hafi skipað Pétur vegna þess að hann er
framsóknarmaður. - Nei, svaraði ráð-
herra, en ég læt hann ekki gjalda þess
heldur, né heldur hins að hann hefur
gegnt störfum sínum hjá flugmálastjórn
óaðfinnanlega að allra dómi.
SEDRUSHysGosi
bðkunv
amskrok eba stotu. Fast 1 stóll meb háumJot-
ýmsum
staerbum.
Sötasettmebbáumebal^
veika.
..„ im vel meb farin notub sðfasett
thugib- 9'6 to sann_
r ii
SEDRUSHUSGOGN, Suðavogi 32, s. 84047.
STOR-
GLÆSI/
LEG
ASKRIFENDA
GETRAUN!
Drögum 24. mars 198|
□AIHATSU
CHA
1983
Nú er stóra tækifæri
að vera með
Aðeins skuldlausir áskrifendur geta tekið þátt í getrauninni.
Getraunaseðlarnir birtast í laugardagsblöðunum ■
Síðumúla 15, Fteykjavík