Tíminn - 04.03.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 04.03.1983, Blaðsíða 20
 dropar Vilmundur óttast „sérframboð Alþýðu- flokksins“ ■ Þeir sátu nokkrir um dag- inn á kaffistofu Alþingis og ræddu framboðsmál, m.a. hugsanlcgt sérframboð for- sætisráðherra og Kvenna- framboðsins. Formaður Bandalags jafnaðarmanna var í kalTirabbinu, ásamt fyrrum flokksbróður sínum, Karvcl Pálmasyni. Formaðurinn, Vil- mundur Gylfason, sagði þá stundarhátt: „Já, það sem við í Bandalaginu óttumst mest, eru þessi hugsanlegu scrfram- boð dr. Gunnars Throddsen, Kvennaframboðsins og Al- þýðuflokksins.“ Karvel hvarf frá kaffiborð- inu við svo búið, án þess að svara formanninum einu orði. Forsætisráð- herra og Gunn- ar Thoroddsen ræðast við! ■ Einn alþingismanna okkar kom í fyrradag að máli við forsætisráðhcrra og spurði hann þeirrar spurningar, hvort forsætisráðherra og Gunnar Thoroddsen væru nákunnugir. Forsætisráðherra hikaði smástund, og sagði síðan: „Umm, þeir ræðast við.“ Friðriks- armurmn ■ Dropar urðu vitni að því að þeir Friðrik Sóphusson, vara- formaður Sjáll'stæðisflokksins og Guðmundur Ingólfsson, sjálfstæðismaður á ísaftrði sem mjög var orðaður við óánægða sjálfstæðismenn vegna próf- kjörsleysis í kjördæminu en hætti þó við þátttöku í sér- framboði því sem er í undir- búningi fyrir vcstan, stóðu í anddyri Alþingis og ræddust við. Dropar spurðu Guðmund hvers vegna hann hefði hætt við, hvorum arminum hann tilheyrði eiginlega. Guðmundi varð heldur svarafátt, en félagi hans, Friðrik Sóphusson, hafði svör á reiðum höndum: „Hann er auðvitað í Friðriksarminum. Það eru þeir líka, þeir Gunnar og Geir.“ Krummi... ...er að velt því fyrir sér hvers vegna það var miðvikudagur á Morgunblaðinu í gær... Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag FÆREYINGAR AÐ LAX- VEIÐUM RFÍt FYRIR I UTAN 200 MÍLURNAR ■ Flugvél Landhelgisgæslunn- ar fann í gær fimm færeyska línubáta að veiðum u.þ.b. 12 mílum utan 200 mílna markanna aust norð austur af Langanesi, sem voru þar að öllum líkindum að laxveiðum. Á þessu svæði veiddu Færeyingar inikinn lax í fyrra og nývcrið fréttist af mikilli laxveiði Færeyinga á þessum slóðum og létu Færeyingarnir svo um mælt að meira væri innan íslcnsku lögsögunnar. Þetta svæði sem um ræðir er ekki undir neinni lögsögu, en unnið hefur verið að samkomu- lagi um að bánna laxveiðar þar, en það bann hefur ekki tekið gildi og stendur á undirskrift Kanadamanna. JGK ■ Puma þyrlurnar frönsku, sem hér hafa verið að undanförnu, fóru í útsýnisflug yfir nágrenni Reykjavíkur í gær, ásamt þyrlu Landhelgis- gæslunnar. Þessi mynd er tekin úr opnum dyrum þyrlu Gæslunnar, þegar flogið er yfír hrikalegu landslagi Esjuhlíða. (Tímamynd Árni Sæberg) BROTISTINN Á EGILSSTÖÐUM ■ I fyrrinött var brotist inn á tveim stöðuin a Egilsstöðum, skrifstofubyggingu Kaupfélags Héraðsbtia og á llugvellínum. Ekkert haföist upp úr krafsinu i kaupfclagiriu, en u.þ.b. 2000 krönum vur stolið á skrifstofu ■ Flugleiða. Rúður vorti brotnar á báöum stöðum en ekki unnin önnur spjöll. Málið var óupplýst í gær- kvöldi, cn lögreglan á Egils- stöðum vann að því aö uppiýsti það. Bensfn hækkar um 2,6 prósent ■ Verð á bensíni hækkaði um 40 aura í gær úr 15.50 krónum í 15.90 hver lítri. Öll hækkunin nú er tilkomin vegna hækkunar bensíngjalds, sem hefur verið lagt á útselt bensín síðan 1974. Hækkunin á útsöluverði nemur 2.6 prósentu- stigum. JGK V, ’^HÖGGDEYFAR u ___„ „ i , , • Hamarshofða 1 ^GJvarahlutir ..sími365io. Tryggingarfélögir* um tjón f ófærðínni í vetur: ÁDCIfCTDIIM flllLfld I llllm FJÖLGAEN EN UPPHÆÐIR SVIPAÐAR ■ „Venjan er sú að þegar mikill snjór er og erfíðleikar í uinferðinni þá aka inenn hægar og þá verða árekstrarnir minni og mildari. En um leið og snjórinn er horfínn í nokkra daga, þá eykst hraðinn svo mjög að einn árckstur í auðu og góðu skyggni getur jafnast á við 6 til 10 árekstra í snjó, hvað tjónaupphæðir vurðar. í krónum talið tel ég því ekki að tjón hafi orðið ineiri í umferðarerfiðleikunum nú í vetur en endranær. Tjón eru að vísu fleiri, en í fíestum tilvikum mun minni", sagði Guðgeir Ágústs- son, fulltrúi í tjónadeild Samvinnutrygginga, er við leituðum upplýsinga um hvort þessi snjóþungi og umhleypingasami vetur hafí ekki orðið bifreiðaeig- endum og tryggingafélöguin kostnaðarsamur. í snjó og hálku sagöi Guð- gcir tjón að mestu felast í t.d. nuddi viö niætingar bila og rcnnsli inn á gatnamót. Tjónið sé þá oft svo lítiö að árekstur- inn sé ekki meldaður ti! trygg- ingafélagsins. „Viö erum kannski kallaöir til þess að skoða og meta tjón fyrir meint- an tjóuvald til aö vita hvaða bætur hanri á aö borga og hvort hagkvæmara sé íyrir hann að gera tjóniö upp sjálfur," sagöi Guðgcir. Einar Runólísson hjá Sjóvá tók í sama streng, þótt hann tæki fram að um þctta hefðí hann enn ongar tölur. Venjan sé að fyrst eftir snjókomu cða hálku fari menn varlegar, tjón verði að vísu ileiri en mun minni. Þegar frá liði gerist menn djart'ari á ný, „og þá förum við aftur aö fá stærri óhöppin", sagði Einar. Tók hann sem dæmi, að þegar snjöinn hafði að mestu leyst nú í vetur, en bærínn var |>ó allur í klakahryggjum og skiiyrðin því langt frá orðin góð, hafi niargir farið aðgerast djarfir á ný og gefa töluvert í. Taldi hann þaö jáfnvel hafa verið versta timann. -HEI,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.