Tíminn - 12.04.1983, Síða 1
Allt um íþróttir helgarinnar. Sjá bls. 11-14
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Þriðjudagur 12. apríl 1983
82. tölublað - 67. árgangur
Hægt væri að lækka orkuverð til heimila verulega segir
Guðmundur Bjarnason
■ Greinilegt er að ekki er not-
aður nema hluti af orkujöfnunar-
gjaldi til að greiða niður raforku.
Gjaldið nemur um 300 millj. kr.
og auk þess eru á fjárlögum
veittar 70 millj. kr. til verð-
jöfnunar á orku. Rúmar 100
millj. kr. eru notaðar til niður-
greiðslu. Ályktanir þingflokks
framsóknarmanna um að orku-
jöfnunargjaldið gangi til að jafna
orkuverð hafa verið virtar að
vettugi af iðnaðarráðherra og
fjármálaráðherra. Þeirsýna eng-
an vilja til verðjöfnunar og gjald-
ið fer til annarra hluta að miklu
leyti.
Fjölmörg heimili og byggðar-
lög sem þannig eru í sveit sett að
njóta ekki ódýrrar hitaorku
greiða óheyrilegar fjárhæðir í
hitunarkostnað á meðan orku-
jöfnunargjaldið rennurgreiðlega
í ríkissjóð en treglega úr honum
aftur. Iðnaðarráðherra sýnir
engan vilja til að nýta gjaldið til
verðjöfnunar og fjármálaráð-
herra segir peninga ekki til í
sjóðnum. Nokkuð var samt til
þegar félagsmálaráðherra þókn-
aðist að slá um sig með loforðum
um niðurgreiðslu á tannlækna-
kostnaði.
■ Alþýðubandalagsmenn og
málgagn þeirra hamra stöðugt á
því að orkureikningar til heimila
séu svo háir sem raun ber vitni
einvörðungu vegna smánarlega
lágs orkuverðs til ísal. En iðnað-
arráðherra hefur ekki tekist að
ná fram neinni hækkun til auð-
hringsins og kennir nú öllum
öðrum um en sjálfum sér hve
ólánlega þau mál standa.
Með því að nota allt orku-
jöfnunargjaldið til niður-
greiðslna á orku til þeirra sem
mest greiða væri hægt að lækka
rafmagnsreikninga heimilanna
verulega en iðnaðarráðherra og
fjármálaráðherra þverskallast við
og eyða peningunum í annað.
Þetta kemur m.a. fram í viðtali
við Guðmund Bjarnason alþing-
ismann sem birtist á öðrum stað
í blaðinu.
Sjá bls. 5.
-O.O.
I
VIGDÍS RÆÐIR
VIÐ MITTER-
RAND í DAG
■ Opinber heimsókn forseta
íslands Vigdísar Finnbogadóttur
til Frakklands hefst í dag. Eftir
viðhafnarmóttökur á Orlyflug-
velli í París verður ekið til Hótel
Crillon þar sem forsetinn og
fylgdarlið búa meðan á heim-
sókninni stendur.
Síðdegis í dag mun Vigdís
síðan ræða við Francois Mitter-
rand forseta Frakklands og fara
viðræðurnar fram í Elysééhöll.
í fylgdarliði Vigdísar Finn-
bogadóttur, forseta íslands,
verður Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra.
Kostnaður
minnkaður
um þriðjung
og byggt
í áföngum
fljótt á laggirnar eins og ástatt er
í dag. En það er á hreinu að
stjórnarsáttmálinn fellur úr gildi
þegar er forsetinn fellst á lausn-
arbeiðni ríkisstjórnarinnar og
gildir ekki þann tíma sem hún
situr sem starfsstjórn.
Sjá bls. 3 -O.Ó.
■ De Cuellar sagði að mörg mál hefðu verið rædd á fundi hans með
Ólafi Jóhannessyni, utanríkisráðherra, og Gunnari Thoroddsen,
forsætisráðherra sem fram fór í Ráðherrabústaðnum á laugardag.
Tímamynd Ámi Sæberg.
„Deilur írana
og íraka stærsta
vandamálið nú”
— segir Perez De Cuéllar,
aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna
■ Perez De Cuellar, aðalfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, fór frá íslandi á áttunda
tímanum í gærmorgun eftir
tæpra þriggja sólarhringa opin-
bera heimsókn. Hélt hann til
Kaupmannahafnar ásamt fylgd-
arliði, en þar mun hann dveljast
næstu daga.
Á blaðamannafundi á laugar-
daginn, sagði De Cuellar, að
brýnustu verkefni Sameinuðu
þjóðanna um þessar mundir
væru að reyna að finna lausnir á
deilum írana og íraka. Einnig
sagði hann átökin í Afganistan
og E1 Salvador alvarleg deilu-
efni. sjá nánar bls. 2.
■ Mikil snjóþyngsli
hafa verift á Siglufirði aft
undanfömu eins og sést
á myndinni en hvort litla
hnátan sé á leiðinni aft
hringja í vegagerðina til
að kvarta eða ekki vitum
við ekki svo gjörla,
kannski em það síðustu
forvöð áður en almenn-
ingssími plássins fennir í
kaf.
Tímamynd R.G.
NY FLUGSTOD 1986
■ Fyrsti áfangi nýrrar flug-
stöðvarbyggingar getur orðið til-
búinn árið 1986 ef framkvæmdir
hefjast í sumar. Ný áætlun hefur
verið gerð og kostnaður við
bygginguna færður niður um
þriðjung. Sá áfangi sem gert er
ráð fyrir að verði tilbúinn eftir
þrjú ár er jafnstór að grunnfleti
og sú flugstöð sem nú er notuð.
Þetta kemur fram í viðtali við
Ólaf Jóhannesson utanríkisráð-
hera sem birtist á öðrum stað í
blaðinu. Hann segir að Alþýðu-
bandalagsmenn hafi haft mikið
fé af íslendingum með því að
beita neitunarvaldi og tefja
málið. En eftir að stjórnin segir
af sér fellur stjórnarsáttmálinn
úr gildi, þótt ráðherrar sitji
áfram í starfsstjórn.
Flýta þarf ákvörðunartöku í
málinu því framlag Bandaríkja-
manna fellur niður 1. okt. nk.
og athuga þarf hvort þeir eru
reiðubúnir að greiða allt framlag
sitt út á fyrsta áfangann.
Ólafur Jóhannesson segir að
það liggi greinilega fyrir að
stjórnin segi af sér þegar að
kosningum loknunt og að ný
stjórn verði að komast mjög