Tíminn - 12.04.1983, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1983 _MWlÚWl_____5
jam TILLÖGUR OKKflR UM
ORKUVERÐ ERU SNIÐGENGNAR”
— segir Guðmundur Bjarnason, alþingismadur
■ Orkujöfnunargjald var samþykkt með lögum 1980 og er 1.5% af söluskatti og er
áætlað að leggi ríkissjöði til rúmar 300 millj. kr. á þessu ári. Síðan eru á fjárlögum
35 millj. kr. til olíuniðurgreiðslu og annað eins til verðjöfnunar á raforku. Þá fær
iðnaðarráðuneytið nokkra upphæð til styrktar hitaveitum sem eiga við erfiðleika að
stríða. En vafi leikur á að allt það fé sem fara á til að jafna orkukostnað fari til þeirra
hluta, en orkuráðherra kennir einhliða ódýrri orku til Isal hve óhóflegir orkureikning-
ar leggjast á landsmenn, sérstaklega þá sem ekki hafa aðgang að ódýrri hitaorku.
Guðmundur Bjarnason alþingismaður hefur fjallað mikið um þessi mál sem fulltrúi
Framsóknarflokksins og innti Tíminn hann eftir hvort allt það fé sem ætlað er að fari
til niðurgreiðslu á rafmagns- og olíureikningum sé notað til þeirra hluta.
- Það er erfitt að meta nákvæmlega
hve mikið af fé sem veitt er til iðnaðar-
ráðuneytisins á fjárlögum fer í einhverj-
ar orkujöfnunargreiðslur. Það er ekki
skilgreint sérstaklega og þess vegna
segja menn að það sé gríðarlegur munur
á því orkujöfnunargjaldi sem rennur
óskipt í ríkissjóð án þess að vera markað
til orkujöfnunar. Það eru kannski um
100 millj. kr. sem maður getur með
góðri samvisku sagt að notaðar séu til
orkujöfnunar, sem er hvergi nærri sú
upphæð sem heimilt er eða skylt að nota
í þessum tilgangi. Aðeins 1.5% af sölu-
skatti eru 300 millj. kr. Að vísu segir í
lögunum að fé þetta skuli að öðru leyti
renna til að mæta útgjöldum ríkissjóðs
vegna orkuframkvæmda.
- Ætluðust þingmenn ekki til að þetta
fé færi til orkujöfnunar þegar lögin voru
samþykkt?
- Það var meiningin, en illa hefur
gengið að jafna orkureikningana.
■ í tilefni af 25 ára afmæli Lögfræð-
ingafélagsins sem haldið er hátíðlegt
þessa dagana, hefur aðalfundur þess
samþykkt að kjósa dr. Ármann Snævarr,
hæstaréttardómara, heiðursfélaga Lög-
ræðingafélagsins, hinn annan í röðinni.
Dr. Ármann var fyrsti formaður félags-
ins auk þess sem hann hefur verið
mikilvirkur rithöfundur á sviði íslenskrar
lögfræði og liggja eftir hann fjöldamarg-
ar bækur og tímaritsgreinar um ýmiss
lögfræðileg efni.
Aðalfundur Lögfræðingafélags ís-
lands var haldinn í lok síðasta árs. Á
í vetur gerði þingflokkur framsókn-
armanna samþykkt að aukin yrði niður-
greiðsla á rafmagni af orkujöfnunar-
gjaldinu, og sýndi ótvíræðan vilja
okkar í þessu efni. Eðlilega átti ríkis-
sjóður að bera þann kostnað sem yrði
vegna þeirrar niðurgreiðslu. Þessu hefur
lítt verið sinnt. Að vísu er búið að greiða
smáræði niður í þrem áföngum, 1. okt.
1. nóv. og 1. febr. var raforkuverðið
lækkað og er niðurgreiðsla núna 17
aurar á kílówattstund. Taxtinn frá Raf-
magnsveitu ríkisins er í dag 58 aurar,
niðurgreiðsla 17 aurar, þannig að hann
ætti að vera 75 aurar ef engin niður-
greiðsla kæmi til, en niðurgreiðslan nem-
ur 22.5%. En það er ekki nándar nærri
nóg.
Þetta þýðir að samkvæmt upplýsing-
um iðnaðarráðuneytisins ætti taxti frá
Rafmagnsveitu ríkisins að vera 62% af
óniðurgreiddri olíu, þá er miðað við 84
kwst. á rúmmetra í húsi í orkueyðslu á
þeim fundi baðst Guðmundur Vignir
Jósefsson, fráfarandi formaður, undan
endurkjöri í stjórn félagsins. í stað
Guðmundar var prófessor Arnljótur
Björnsson kjörinn formaður næsta
starfstímabil, og varaformaður var kjör-
inn Guðrún Erlendsdóttir, settur hæsta-
réttardómari. Aðrir í stjórn félagsins
voru kjörin Logi Guðbrandsson, hrl.,
Baldur Guðlaugsson, hrl., Ólöf Péturs-
dóttir, deildarstjóri, Valgeir Pálsson,
hdl., ,og Þorgeir Örlygsson, dómarafull-
trúi.
-Kás
ari. En það er miklu algengara að kwst.
séu 100 á hvern rúmmetra.
- Hvað værí hægt að lækka orku-
reikninginn mikið ef 1.5% af söluskatti
færi til niðurgreiðslna?
Það væri mikið, ég þori ekki að nefna
það nákvæmlega. Það er talið að til þess
að ná því marki sem við settum okk-
ur í haust sem er sambærilegt
við nýjar hagkvæmar hitaveitur, var
þyrfti að leggja fram um 100 millj.
kr. á verðlagi í des. Nú sýnist mér að sú
áætlun standist ekki. Menn nota meira
rafmagn en gert var ráð fyrir og verðlag
hefur hækkað.
Ég sat í nefnd sem skipuð var á vegum
iðnaðarráðuneytisins s.l. haust og var
hlutverk hennar að kanna leiðir til
fjáröflunar til niðurgreiðslu á raforku.
Þar varð samkomulag um að í fyrsta lagi
bæri að hækka raforkuverð til stóriðju
og nota þær tekjur til lækkunar á
hitunarkostnaði. Á meðan það ekki
tekst yrði farin sú leið að greiða þetta
niður úr ríkissjóði af orkujöfnunargjald-
inu. f framhaldi af þessu ályktaði þing-
flokkurinn að greiða bæri orkuna niður
beint úr ríkissjóði.
- Hverjir standa í veginum fyrir að
orkujöfnunargjald er ekki notað nema
að hluta til niðurgreiðslna?
- Það er auðvitað iðnaðarráðherra
sem fer með þessi mál og fjármálaráð-
herra heldur utan um ríkissjóð og komu
þeir í veg fyrir að tillaga okkar um
greiðslur úr orkujöfnunrsjóði næðist fram.
Hins vegar virðist ekki ávallt skorta fé,
eins og þegar t.d. heilbrigðisráðherra lét
sér detta í hug skömmu fyrir kosningar
að greiða niður tannlæknakostnað úr
ríkissjóði, þótt ekki væri hægt að finna
fjármagn í sama sjóði til þess að jafna
orkuverðið meira en þegar er gert.
- Framsöknarmenn eru ásakaðir um
að hafa rofið samstöðu í álmálinu og
sagðir tefja fyrir að samningar náist um
hækkað orkuverð til Isal. Telur þú
þessar ásakanir réttmætar?
- Ef einhver hefur rofið samstöðu um
það mál er það Hjörleifur Guttormsson
því að hann notar aldrei sína samstarfs-
aðila og þeir ná ekki að hafa nein áhrif
í málinu. Allar tillögur þeirra eru virtar
að vettugi og sjálfum hefur honum aldrei
tekist að ná fram neinni hækkun á
orkuverðinu til auðhringsins. Hann hef-
ur notað rangar áherslur. í stað þess að
leggja höfuðáherslu á að ná fram hækk-
uðu orkuverði fór hann í skattastríð.
Auðvitað á hver og einn að borga sína
skatta eins og honum ber, en okkar
■ Aðeins um 53 þús. tonn af þorski
bárust á land í marsmánuði s.l., scm er
um 26 þús. tonnum minni þorskafli en í
sama mánuði 1982, samkvæmt aflatölum
Fiskifélags íslands. Frá áramótum til
marsloka er þorskaflinn nú aðeins 96.789
tonn, en var 127 þús. tonn á sama tíma
í fyrra, 122 þús. tonn árið 1981,173 þús.
tonn 1980 og 129 þús. tonn árið 1979.
Mest hcfur þessi samdráttur bitnað á
bátaflotanum sem nú fekk um þriðjungi
minni þorskafla í marsmánuði en í fyrra,
eða um 43 þús. tonn á móti rösklega 62.
þús. tonnum í mars 1982. Þorskafli
bátanna frá áramótum til marsloka varð
66.745 tonn sem er 22.605 tonnuni
höfuðáhugamál í samskiptum við svona
aðila er auðvitað að ná sanngjörnu
orkuverði. Við getum aldrei vitað hvern-
ig þeir geta brallað með sína reikninga
og miklu erfiðara fyrir okkur að fylgjast
með því. Við hljótum að leggja höfuð-
áherslu á að selja þeim þá þjónustu sem
við veitum þeim á eins háu verði og
mögulegt er að fá og þá geta þeir brallað
með sína skattinneignarreikninga eða
uppgjör án þess að við þyrftum í
rauninni að hafa áhyggjur af því ef við
gerðum orkuverðið að aðalatriði. Það er
fyrst og fremst það sem skiptir okkur
máli.
Á nieðan ekki er hægt að sýna vilja og
getu til að ná fram stórhækkuðu orku-
verði frá fsal er í rauninni ófært að leyfa
sér að nota ekki allt orkujöfnunargjaldið
til að greiða niður orkuverðið til þeirra
heimila sem eru að kikna undan kostnað-
inum. -OÓ
minna en á sama tíma í fyrra. Þorskafli
togaranna frá áramótum varð nú 30.044
tonn, scm er 8.722 tonnum minna en í
fyrra.
Heildar botnfiskaflinn frá áramótum
til marsloka varð nú 172.075 tonn á móti
198 þús. tonnum á sama tíma 1982. Þar
af hafa togararnir nú fengið alls 74.807
tonn - hafa bætt sér upp minni þorskafla
með öðrunt veiðum, því heildarafli
þeirra er ekki nema tæpum 500 tonnum
minni cn á sama tíma í fyrra. Það hefur
bátaflotinn hins vegar ekki gert, því afli
hans er nú 25.440 tonnum minni en í
fyrra, eða um það bil sem nemur minnk-
un þorskveiða þeirra. -HEI
Lögfrædingafélag íslands
25 ára um þessar mundir:
Fyrsti formaöurinn
kosinn heiðursfélagi
Adeins 53
þúsund tonn
af þorski á
land í mars
— sem er 26 þúsund tonn-
um minna en í sama
mánudi í fyrra
Tökum að okkur
allar breytingarog viðhald
fyrir fyrirtæki, húsfélög og stofnanir.
Önnumst allar breytingar og viðhalds-
þjónustu á fasteignum fyrir einstak-
linga, stofnarnir, fyrirtæki og hús-
félög. Þeir sém gera viðhaldssamning
við okkurfá þá þjónustu sem enginn
annar býöur upp á.
Reikningar verða aðeins lagóir fram
fyrir unna tíma í hvert sinn. Fyrsta
flokks þjónusta.
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Hringió og biójið um bækling
VERKTAKAIÖNAÖUR HF
SKIPHOLT 19, 105 REYKJAVÍK. SÍMI 29740