Tíminn - 24.04.1983, Qupperneq 26

Tíminn - 24.04.1983, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1983 Vínsmökkun í Cochem, þar sem íslenskir blaðamenn settu upp velleikinn sérfræðingssvip: Cochem kallað Hjarta Mosel ■ Reichsburg, hinn lignarlegi kastali þeirra Cochembúa, er eins og varöhundur, sem vakir yfir Cochem, og í hlíðunum að kastalanum má sjá vínvið þeirra Cochembúa. Myndina tók ég af svölum klausturbyggingarinnar, eftir að við höfðum klifið þrepin 122. Lengst til vinstri er íslenski fararstjórinn okkar, Sxmundur Guðvinsson, fréttafulltrúi Flugleiða, þá sést á bak Guðlaugs Bergmundssonar, blaöamanns Helgarpóstsins, þá Eiríkur S. Eiríksson, blaðamaður Dags á Akurcyri og þau þrjú í horninu eru þýskir gestgjafar okkar. — og hlýtur það nafn að teljast viðeigandi Að hvíla í himneskri himnasæng, í ævagömlu Moselhúsi, sem nú um 200 ára skeið hefur verið nýtt sem hótel, er hreint út sagt ævintýralegt. Auðvitað má segja sem svo, að himnasængin sem slík sé ekkert sem maður getur ekki án verið, en íslenskir blaðamenn, sem fyrir nokkru voru á ferð saman í þýska sambandsríkinu Rheinland-Pfalz, í boði Flug- leiða og Þýska ferðamálaráðsins féllu samt sem áður í stafí, þegar þeir komu til smáborgarinnar Cochem, sem á bökkum Mosel stendur, þegar þeir komu á gististaðinn, Alte Thorschenke, þar sem himnasængurnar fögru, ásamt viðhlítandi húsbún- aði biðu þeirra, í þessu elsta húsi Cochem sem reist var árið 1332. ■ Þessi smáborg byggir afkomu sína Moseldalurinn talinn hafa einhverja þá svo til eingöngu á túrisma og héruðin í bestu eiginleika sem hugsast gctur, fil kringum Cochem að sjálfsögöu á vín- þess að gæðj vínframlciðslunnar verði framleiðslu, en þar eru framleidd þcssi sem best. Fyrir skömmu síðan var því Ijúfu Moselvín. Mosclvín eru að sjálf- lýst yfir af vínfrámleiðslusérfræðingum, sögðu heimsþekkt framleiðsla, enda er eftir það sem þeir segja vísindalega ■ Ekki minnkar nú tilkomuleiki Reichsburgar, þegar maður kemst í návígi við kastalann. rannsókn, að héruðin umhverfis Coc- hem hefðu þessa góðu loftslags- og jarðfræðieiginleika í hvað ríkustum mæli, af öllum svæðum við Mósel, að þar ættu bestu möguleikarnir að vera á að ná bestum gæðum fram í vínlöguninni. Þessu halda Cochembúar að sjálfsögðu óspart á lofti, þegar þeir kynna fram- leiðslu héraðanna sinna ferðamönnum og vínkaupmönnum. Það er engin heim- sókn að koma til Cochem, ef ekki er farið í vínsmökkunarleiðangur í ein- hvern vínkjallarann, en þeir eru þar fjölmargir. Við sem í þessari ferð vorum áttum að fá að sækja fríherra borgarinn- ■ Hver og einn sem heimsækir Mosel, að ég nú tali ekki um Hjarta Mósel-Cochem, verður að prufa vínsmökkun, a.m.k. einu sinni, því „Weinprobe41 er hreint ævintýri, hvort sem þið trúið því eða ekki. ■ I Reichburg eru að sjálfsögðu sögulegar menjar um vínlögun í Cochem og hér eru nokkrar forkunnarfallegar vlnkrúsir sem vínið hefur verið borið fram í á hinum ýmsu tímum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.