Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 2
Samgönguráduneytið veitir Helga Jónssyni leyfi til áætlunarflugs milli íslands og Grænlands: FLUGLEIÐIR NÆTTA FYRIRVARA- LAUST FLUGI TIL GRÆNLANDS! ■ Samgöngumálaráðuneytið hefur á- kveðið að veita Helga Jónssyni flug- manni leyfi til áætlunarflugs milli íslands og Kulusuk á Grænlandi, svo framarlega sein diinsk stjómvöld samþykki þessa ákvörðun. í framhaldi af þessu hafa Flugleiðir ákveöið að hætta þegar í stað áætlunarflugi til Narssassuaq sem félagið hefur haldið uppi í sumar og fyrirhugað var að stæði til mánaðamóta ágúst/sept- ember. í frétt frá Flugleiðum í gær segir að eftir þessa ákvörðun samgönguráðu- neytisins séu forsendur fyrir áframhald- andi áætlunarflugi brostnar. Félagið hafi því ákveðið að hætta flugi til Narssass- uaq og verður send flugvél eftir þeim farþegum sem þar dvelja. Er bent á að Flugleiðir og áður Flugfélag íslands hafi sinnt Grænlands- flugi síðan 1950 og brauðryðjendastarf félaganna hafi hlotið sérstaka viður- kenningu stjórnvalda í Danmörku og á Grænlandi. Flugleiðir hafa undanfarin sumur haldið uppi áætlunarflugi til Nars- sassuaq í samvinnu við SAS og þegar SAS hætti millilendingum í Keflavík á þessari leið sóttu Fiugleiðir um og fengu leyfi til áætlunarflugs frá því í júní og fram í ágúst. Prátt fyrir átak við að auglýsa ferðirnar varð aðsóknin minni en menn gerðu sér vonir um, en ákveðið að halda fast við auglýsta ákvörðun með það í huga að verið væri að byggja upp flug til framtíðar á þessari leið. „Með því að færa öðrum aðila leyfi til að sinna áætlunarflugi milli íslands og Grænlands er búið að svipta Flugleiðir öllum möguleikum til að byggja upp og treysta þennan markað. Félagið á því ekki annars kost en hætta rekstri á þessari áætlunarleið þegar í stað“, segir orðrétt í frétt Flugleiða. Síðan segir að farþegar með staðfestar bókanir muni eiga völ á öðrum ferðum í staðinn, t.d. leiguflugi til Kulusuk, eða fengið far- seðla sína endurgreidda. Tíminn hafði samband við Ólaf Stein- ar Valdemarsson ráðuneytisstjóra í sam- gönguráðuneytinu og spurði hann um forsendur leyfisveitingarinnar. Ólafur sagði að umsóknir hefðu borist frá 4 aðilum í sambandi við þetta flug: Arnar- flugi, Flugleiðum, Helga Jónssyni og Flugfélagi Norðurlands. Ákvörðun hefði síðan verið tekin um það að veita Helga Jónssyni vilyrði fyrir þessu flugi 'í tíð fyrrverandi samgönguráðherra, Stein- gríms Hermannssonar, en Matthías Bjarnason, núverandi samgönguráð- herra hefði staðfest það. Ólafur sagðist gera ráð fyrir að menn hefðu talið Helga vera með heppilega flugvélartegund til þessa flugs og góða aðstöðu til að rækja það, en Helgi hefur verið með leiguflug til Grænlands undanfarin ár. Ekki tókst að hafa samband við Matt- hías Bjarnason samgönguráðherra í gær. - GSH Páll S. Pálsson hæsta- réttarlögmaður látinra ■ Páll S. Pálsson fyrrum hæstaréttar-' lögmaður lést í Reykjavík í fyrradag 67 ára að aldri. Páll var fæddur 29. janúar 1916 að Sauðanesi í Torfalækjarhrcppi í A.- Hún. og voru foreldrar hans Páll Jónsson bóndi þar og Sesselja Þórðardóttir. Páll lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla ís- lands 1937, stúdentsprófi utanskóla frá Menntaskólanum í Reykjavík 1940 og lögfræöiprófi frá Háskóla íslands 1945. Páll starfaði við kennslu í skólum Rcykjavíkur og nágrennis til ársins 1942 og var einnig stundakennari við Kvenna- skólann í Reykjavík 1942-1952. Hann var skrifstofustjóri Félags fslenskra iðn- rekenda frá 1945-1946 ogframkvæmda- stjóri santa félags 1947-1956. Pá var hann framkvæmdastjóri Fasteignaeig- endafélágs Rcykjavíkur 1946-1948. Ilann varð héraðsdómslögmaöur 1946 og hæstaréttarlögmaður 1956 og rak síðan málaflutningsskrifstofu í Reykja- vík til dauðadags. Páll gegndi ýmsum félagsmálastörf- um. Hann var m.a. formaður Ung- mennafélags Rcykjavíkur, formaður Stúdentafélags Reykjavíkur og Stúdenta- ráðs, formaður bankaráðs Iðnaðarbanka íslands frá stofnun hans 1952 til 1957, formaður Iðnaðarmálastofnunar fslands frá stofnun 1953 til 1957, formaður Barnavinafélagsins Sumargjafar 1957- 1962 til dauðadags, formaður hús og landcigcndasambands Norðurlanda 1969- 1973, meðstjórnandi í Rauða- krossdeild Reykjavíkur 1975 til dauða- dags og í stjórn Lögmannafélags íslands 1970- 1971 ogformaðurþess 1973-1976. Páll átti einnig sæti í fjölda nefnda, bæði á vegum opinberra aðila og félaga- samtaka sem hann starfaði fyrir. Hann var meðritstjóri að Iðnaðarritinu 1946- 1949, ritstjóri að íslenskum iðnaði 1949- 1956, auk þess sem hann stundaði ýmis önnur ritstörf. Eftirlifandi kona Páls er Guörún G. Stephensen. veiðihornið | -§|fe umsjón: Fridrik Indriðason Vilt þú fá ókeyp- is veiði f Grímsá? — næsta laxveiðisumar ■ Vorirt 1982 var sjö þúsundum ör- merktra seirta frá Laxalöni sleppt í ár Borgarfjarðarhéraðs og var skipting þeirra sem hér segir: I Grimsá var sleppt 2000 seiðum af Þverárstofni og 1000 seirtuin af Grímsárstofni og í Langá var sleppt 4000 seiðum af Þver- árstofni. Tilgangur merkinga þessara er sá að fræðast um endurheimtuhlutfall sjó- göngusciða úr eldisstöðvum sem sleppt er í laxveiðiár en einnig og ekki síður að kanna hlutfallsskiptingu endur- heimtra seiða milli þeirra veiðiáa sem sleppt er í og þeirrar ár sem stofninn er úr. Ennfremur hvort vart verði við laxa þessa í öðrum ám héraðsins. Og þá er komið að spurningunni. Ef þú vilt eiga þess kost að fá ókeypis veiði í Grímsá næsta sumar þá skalt þú fylgjast með veiðiuggaklipptum löxum í afla þínum og skila efri skolti þeirra til Veiðimálastofnunarinnar til leitar að örmerkjum. Hver sem slíku merki skilar verður um leið þátttakandi í happdrætti þar scm 2 veiðidagar í Grímsá á góðum tima er vinningurinn. Ekki er búist við að fleiri en 50-100 merki finnist þannig að vinningsmögu- leikar eru töluvcrðir. Að auki fá allir þeir sem skila inn mcrki 40 kr. í verðlaun frá Veiðimálastofnun fyrir skilvísi. Örmcrkin sem hér um ræðir eru smásæir málmbútar sem skotið er í; trjónu fisksins og þarf sérstök áhöld til að endurheimta þá. Því er mikilvægt að taka efri skolt fisksins allt aftur að augum og skila honum inn en eftirtald- ir aðilar taka við honum: Veiðimála- stofnunin í Borgarnesi, Veiðimála- stofnunin í Reýkjavík, Bensínstöð ESSO í Borgarnesi og veiðihúsin við Grímsá, Langá, Þverá og Norðurá. Veiðimenn eru beðnir um að skrá stærð og kyn fisksins ásamt veiðistað og veiðitíma. Einnig er æskilegt að hreistursýni fylgi og að frysta sýnið ef afhending dregst. - FRI ■ Larry Joncs heldur opinni lúgu á TF Rán svo Bush og fylgdarlið geti gengið út. (Timamyndir Árni Sæberg). Þyrluflugmaður hjá bandaríska forsetaembættinu: ■ Larry Jones ræðir virt flugmenn Landhelgisgæslunar, þá Benóný Asgrímsson til vinstri og Pál Halldórsson Hafði með höndum yfirum- sjón þyrlu- flugs Bush ■ „Larry Jones undirforingi er einn af þyrluflugmönnunum hjá bandaríska forsælisembættinu og hafrti hann yfir- umsjón meö þyrluferðinni frá Þing- völlum til Borgarfjarðar og sírtan Reykjavíkur aftur“, sagrti Benóný Ás- grímsson þyrluflugmaður hjá Land- helgisgæslunni i samtali virt Tímann, en þart vakti athygli að með þyrluferð George Bush varaforseta var borgara- klæddur martur sem fylgdist grannt mert framvindu mála. „Það má segja að hann hafi samhæft vinnuna milli Landhelgisgæslunnar og Varnarliðsins. Hann bar ábyrgð á því hvort þessi ferð væri farin og fór yfir ýmsar öryggisreglur áður en lagt var Upp. Hann kom hingað viku áður og kynnti sér aðstæður í Borgarfirði og víðar og var með okkur í öðrum undirbúningi. Hann fór síðan með varnarltðsþyrlunni í ferðina, en flaug ekki sjálfur" sagði Benóný að lokunt. - GSH.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.