Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 9

Tíminn - 13.07.1983, Blaðsíða 9
■ Svetlana Nedeliajeva flytur oft erindi um íslenskar bókmenntir á fundum og samkomum félagsins „Sovétríkin-Ísland" í Moskvu. Myndin var tekin að einni slíkri samkomu lokinni. Svetlana (önnur frá vinstri) ræðir við Harald Kröyer sendiherra Islands í Moskvu og Sigríði Snævarr, fyrrum sendiráðsritara í Moskvu. ATHUGASEMD við frásögn af boðsferð til Sovétríkjanna ■ Hr. ritstjóri. Sunnudaginn 10. júlí sl. birtist í Tímanum löng frásögn eftir Áskel Þóris- son, framkvæmdastjóra Sambands ungra framsóknarmanna, af boðsferð sex manna sendinefndar Æskulýðssam- bands íslands til Sovétríkjanna í byrjun maí sl. „Við vorum borin á gullstól um landið, fengum aðeins það besta og sáum líka aðeins það besta,“ segir Áskell í upphafi greinar sinnar, en hefur síðan ekkert fyrir því að lýsa þeim móttökum nánar, heldur birtir á þremur síðum hugleiðing- ar sínar um sovéskt samfélag, þar sem hann finnur því flest til foráttu. Er greinilegt á öllu, að höfundur hefur farið til Sovétríkjanna með fyrirfram fast- mótaðar og óhagganlegar skoðanir og hugmyndir um ástand mála þar eystra - og hann hefði vafalaust þess vegna alveg eins getað skrifað greinina án þess að þurfa að þiggja þetta heimboð ungliða- hreyfingar Kommúnistaflokksins í Sov- étríkjunum. Og þó. Greinarhöfundur segir á einum stað: „Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að fólk í Sovétríkjun- um sé afskaplega elskulegt - eða með öðrum orðum: Það er rétt eins og fólk er flest.“ En þessar línur okkar eru ekki settar á blað fyrst og fremst til þess að andmæla röngum eða órökstuddum staðhæfingum greinarhöfundar. (Þó verðum við að benda á misnotkun myndar af frægu plakati frá árunum 1941-42, þegar Sovét- þjóðirnar börðust upp á líf og dauða við innrásarheri fasista. „Fósturjörðin kallar“ stendur á plakatinu og er hvatn- ing til Sovétmanna um að standa saman gegn óvininum. í textanum, sem fylgir myndinni í Tímanum. er gefið í skyn að þetta sé nýtt áróðursplagg til þess gert að hvetja unga menn í dag til að ganga í herinn). Þessi athugasemd er skrifuð til þess að leiðrétta ummæli og fræða nánar um efni sem vikið er að í einum kafla greinarinnar undir millifyrirsögninni „Ríkisrekið vináttufélag“. Þar segir m.a.: „í Vilnus var sendinefndinni boðið að heimsækja vináttufélag íslands...en þar tók á móti okkur rússnesk kona sem kunni íslensku furðu vel. Síðar kom í Ijós að hún hafði þýtt nokkrar bækur á rússnesku og a.m.k. eina- Egilssögu -á litháisku. I upphafi taldi ég að við hefðum hitt á félag sem eingöngu hefði íslensk málefni á sinni könnu, að í því væri fólk sem væri á kafi í íslenskum litteratúr og fleiru en svo reyndist ekki vera. Við nánari athugun kom nefnilega í ljós að þetta „vináttufélag“ hefur samband við fjöldann allan af „vináttu- félögum“ í fjarlægum ríkjum og var ísland aðeins eitt þeirra. Að auki kom fram að hið opinbera studdi starf vináttu- félagsins með fjárframlögum, enda mun það telja sér hag í að koma á fót vinsamlegum samskiptum við sem flest ríki... Tengsl umrædds vináttufélags við önnur félög í öðrum heimshlutum eru einkum á menningarsviðinu. Okkur var til dæmis sagt að innan fárra mánaða væri að vænta listafólks frá Litháen til íslands. Af þeim litlu kynnum sem við höfðum af menningu Litháa er óhætt að hvetja Islendinga að sjá það sem fram verður boðið - það verður síður en svo af lakari endanum ef að líkum lætur.“ Já, svo mörg voru þau orð. „Tók á móti okkur rússnesk kona, sem kunni íslensku furðu vel,“ segir þar og getur greinarhöfundur ekki einu sinni nafngreint konuna, hvað þá að hann nefni það að þarna hafa landarnir hitt fyrir einn af þeim útlendingum sem mest og best hafa unnið að kynningu íslenskra bókmennta erlendis. Það væri móðgun við góðan íslandsvin, ef lesendur Timans fengju ekki meira að vita en það sem að framan var sagt. Þess vegna þetta: Svetlana Nedeliajeva-Steponaviciene heitir konan og er Rússi að þjóðerni, en gift litháískum manni, Albert Stepon- aviciene að nafni. Þau hjón eru bæði hámenntaðir málfræðingar, stunduðu nám við háskólann í Leningrad og þar kynntust þau og gengu í hjónaband að háskólanámi loknu. Síðan hafa þau verið búsett í Vilnus, höfuðborg lithá- iska sovétlýðveldisins, og kenna þau bæði við háskólann í borginni, sem er elsti háskóli í Sovétríkjunum og einn elsti háskóli í Evrópu allri, stofnaður 1579. Albert er prófessor í fræðilegri ensku, Svetlana dósent í samanburðar- málfræði, bæði virtir háskólakennarar og mikilsmetnir fræðimenn á sviði hug- vísinda. í háskólanum í Leningrad lagði Svetlana m.a. stund á norræn tungumál undir leiðsögn hins fræga sovéska norrænufræðings, prófessors Mikhaíls Steblen-Kamenskís. Hún hefurgottvald á íslensku máii, þó að hún hafi aðeins einu sinni komið í stutta heimsókn til íslands. Eftir Svetlönu Nedeliajevu liggja fjölmargar þýðingar úr íslensku á rússnesku, en hún hefur minna þýtt á litháisku. M.a. hefur hún þýtt á rúss- nesku og séð um útgáfu á nokkrum skáldsagna Halldórs Laxness, Ólafs Jó- hanns Sigurðssonar og fleiri íslenskra samtímahöfunda, cn einnig fengist við þýðingar á íslendingasögum, svo að nokkuð sé nefnt. Svetlana hefur verið leiðsögumaður og túlkur margra íslend- inga, sem lagt hafa leið sína til Sovétríkj- anna á undanförnum árum og haldið fjölmarga fyrirlestra um íslenskar bók- menntir og menningu víða þar eystra. Við, sem þessar línur ritum, áttum þess kost um síðustu páska, að heim- sækja hjónin Svetlönu og Albert og tvö börn þeirra í Vilnus og njóta gestrisni þeirra og vináttu. Einlægur hlýhugur í garð íslendinga leyndi sér ekki á því heimili, né heldur meðal annarra for- ystumanna Vináttufélagsins í Vilnus, sem við hittum og sendincfnd ÆSÍ vafalaust líka. Það félag á aðild að Sambandi sovéskra félaga vináttu og menningartengsla við útlönd, sambandi sem að flestra mati vinnur afar þýðing- armikið og merkilegt starf, sem felst í því að efla menningarleg samskipti milli þjóða, treysta vináttubönd manna af ólíku þjóðerni, kynna eigið land og þjóð fyrir útlendingum og kynnast öðrum þjóðum, menningu þeirra og þjóðlífi. Sovéska vináttufélagasambandið hefur samvinnu við fjölmörg félög og félaga- samtök víðs vegar um heim, hér á Islandi við félagið MÍR, Menningar- tengsl Islands og Ráðstjórnarríkjanna. Að lokum viljum við taka undir það sem greinarhöfundur segir, er hann hvetur íslendinga til að sjá það sem' listafólkið frá Litháen hefur fram að færa í haust, þegar það kemur hingað til lands til þátttöku í árlegum Sovéskum dögum MÍR í lok októbermánaðar. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík, 10. júlí 1983, ívar H. Jónsson, formaður MÍR Vilborg Kristjánsdóttir Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir. ■ Um daginn hitti ég kunningja minn, sérfróðan mann um fískveiðar og sjávargagn. Hann sagði beint út, að þorskstofninn mundi hrynja eins og síldarstofninn á sínum tíma ef ekki yrði gripið þegar í stað til róttækra aðgerða til að vernda hann. Fáum dögum síðar lýsti annar kunn- ingi minn því yfir vestur á Melum, að hann hefði verið að koma úr sumar- leyfi, sem hann eyddi á girtu og friðuðu landi. Þar var hvítt af fé. Þarna höfðu verið gróðursettar birkihríslur. Þær voru rytjur einar. Sauðkindin sá fyrir því. Og landið er að fjúka út á sjó. Og til að fullkomna þessar hrakspár, þá verð ég að geta þess, að ég drakk kaffi með þriðja kunningja mínum einn morguninn, og hann sýndi fram á íslandi þótt þorskur hætti að veiðast. Það er hægt með því að gerbreyta atvinnulífl landsmanna. Mér er þó ekki Ijóst hvort orkusala til alþjóðlegra auðfélaga getur komið í staðinn fyrir þann gula. Kannski eru einhverjir svo bjartsýnir að halda að það geti gerzt. En hætt er við, að þröngt yrði fyrir dyrum hjá mörgum ef treysta ætti á samninga svipaða þeim, sem gerður var við Alusuisse á sínum tíma. í hafi og í mold er þjóðarauður íslendinga. Landbúnaður er ein af þessu landi, og ég er viss um, að auka má afurðir hennar með því að tak- marka aðgang hennar að landinu öllu eins og nú tíðkast. Gróðurvernd er hagkvæmasta aðferðin til að auka afrakstur í sauðfjárbúskap. Til þess verður að stjórna beitinni, girða og friða stór svæði, og takmarka tölu fjár á hinum ýmsu svæðum. Það er fróðlegt fyrir okkur íslend- inga að heyra um fallþunga dilka á Grænlandi. Grænland er langtum harðbýlla en ísland, en á þeim HARALDUR OLAFSSON SKRIFAR I MIÐRI VIKU Fridun lands og sjávar mun skila margföldum veginn dugði þessi uppskurður ekki. Mann rekur í rogastans ef farið er rétt með algengustu orðtök tungunnar, einhvers'konar norskur framburður ómar í ríkisfjölmiðlunum (áðurnefn- dur áhugamaður um tunguna hélt þvi reyndar fram, að greina mætti fransk- an framburð í íslenzku um þessar mundir, - og er óskiljanlegt hvaðan hann er kominn). Til bjargar íslenzk- unni verður að skera burt fleiri mein- semdir, t.d. y, og dugi það ekki er hægurinn hjá að auðvelda unglingum námið með því að láta þá ráða því hvort þeir skrifa b eða p, d eða t, g eða k. Þá rynni upp sú gullöld tungunnar sem spáð var þegar z-etan var látin fjúka. Hetjurnar rumska Árni Björnsson beindi til mín spum- ingu vegna ummæla minna í síðasta miðvikudagsrabbi. Þegar ég notaði orðið ÖLL var það til að undirstrika arði með Ijósum rökum, að íslensk tunga væri að hverfa, orðaforði, beygingar- kerfi og framburður allt í senn. Þeir þremenningarnir eru engir flysj- ungar, og enginn skyldi ætla, að í orðum þeirra felist „ósk um hrakför sýnu verri“. Allt eru þetta mál, sem rætt er um manna á meðal. Allir virðast gera sér grein fyrir því, að þetta séu mikilvæg mál. Þó er eins og hikað sé við að draga réttar ályktanir af þeim staðreyndum, sem við blasa. Það er hugsanlega hægt að búa áfram á undirstöðum þjóðlífsins. Þess vegna skiptir miklu, að hann sé arðsamur, henti markaði og sé í sátt við landið. Það er hörmulegt til þess að vita, að enn skuli landið blása upp, að melar taki við af grónum bölum, og sandur kæfl viðkvæman hálendisgróður. Þátt- ur sauðkindarinnar í eyðingu viðkvæms gróðurs á ýmsum svæðum er stað- reynd, sem ekki þýðir að loka augun- um fyrir. Ég geng ekki eins langt og margir í andstöðunni við sauðkindina. Sauðkindin er dýr sem hentar vel svæðum, sem sauðfjárbúskapur er stundaður, er gróður mikill að sumrinu og fé fátt. Verði ekki land og haf friðað um sinn mun það hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Friðun og vernd lands og sjávar mun skila margföldum arði innan fárra ára. Rányrkja nútímans er vísasti glötunarvegurinn fyrir íslenzka þjóð. z, y, b, p, d, t, g, k Fyrir áratug eða svo, var lyft Grettis- taki tif bjargar íslenzkri tungu. Nú _skyjdi börnum og unglingum kennt að , TSIá auðugt og kjarngott mál, og andi þeirra eflast við að tjá hugsun sína á fagran hátt og lipran í stað þess að hvíla undir þrúgandi fargi málfræði og ritreglna. Til að ná þessu göfuga mark- miði varð að ráðast gegn meininu sjálfu, er sýkti alla viðleitni til að kenna íslenzku, og meinið var bókstaf- urinn z. Hann var skorinn burt svo betri tími gæflst til að kenna „málið“ eins og það var kallað. En einhvern hve Víetnamstríðið var mikið umhugs- unarefni manna, og hve það lét fáa ósnortna. Ég var alls ekki að segja, að ég hafl komið fram af hetjuskap þá né síðar. Ekki tel ég það heldur til frétta, að ég vildi hvergi koma nærri herstöðvaandstæðingum, né marxísk- um þrætubókum þeirra á því skeiði, sem Árni minnist á. Hitt er mér umhugsunarefni, að hetjurnar skyldu hrökkva upp við orð mín, en stríðið í Afghanistan gat ekki vakið þær.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.