Tíminn - 30.06.1983, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ1983
5
fréttir
■ Ólðfu Jónsdóttur fannst vcðrið
dýrlegt eins og flestum öðrum.
■ Og þú iíka karl minn? Passaðu þig á
því.
■ Langþráður sólskinsdagur hleypti
kappi í kinnar meyjum og sveinum
í Reykjavík í gær. Hvarvetna mátti sjá
fáklætt fólk með ís í brauðformi, svala-
drykk eða aðra næringu í hita og þunga
dagsins. Það er orðið æði langt síðan
annar eins dagur hefur komið. Undan-
farið hafa rigningar og annað leiðinda-
veður angrað sólarþyrsta Reykvíkinga.
Það var greinilegt að menn komust í
sólskinsskap í gær eftir dumbunginn
undanfarið. Á hverjum grasbletti lá fólk
í sólbaði og sundlaugar fylltust. Örtröð
í ísbúðum.
í Vesturbæjarlauginni hitti blaðamað-
ur Tímans leikarann góðkunna, Flosa
Ólafsson, þar sem hann spókaði sig á
sundskýlunni.
„Einn íslenskur sólskinsdagur á ís-
lensku rigningarsumri er himnaríki",
sagði Flosi. „Spaklcga mælt, finnst þér
ekki? Ég er fastagestur hér í Vestur-
bæjarlauginni. Kem á hverjum morgni
klukkan 7.20 og syndi 1200 metrana.
Svona langt syndi ég til að halda mér
háum, grönnum og „interessant". Þegar
svona gott veður er má ég til að koma
hingað eftir matinn og halda við brúnk-
unni. En það er eitt í þessu. Vonda
veðrið hefur í raun og veru miklu meira
giidi en góða veðrið því ef ekki væri vont
veður hér, þá væri ekki svona varið í
góða veðrið. Það er ekkert varið í að
hafa sólskin í Florida", sagði Flosi.
Viltu tjá þig eitthvað um skegg þitt,
sem þú mikið berð nú?
„Jú alveg endilega. Nú má ég ekki
raka mig þessa dagana því éger að leika
í kvikmyndinni hans Hrafns Gunniaugs-
sonar sem gerist á þjóðveldisöldinni. Þá
var ekki búið að finna upp rakvélina.
Auk þess er skegg nauðsynlegt til að
■ ...en hvað er þetta. Er hún að horfa
á mig?
■ Mér er í fersku minni er ég lék í
þættinum Félagsheimilið og var í hópi
loðna fólksins...
SOUN BROSTI
Blin f GÆR
■ Valdimar Hergeirsson var hress. Brúnn og sætur enda nýkominn að utan.
undirstrika háan aldur og mikið
mannvit, plús hrjúfan karakter og kyn-
getu umfram Njál“, sagði hinn bráð-
.hressi Flosi Ólafsson, í sumarskapi, að
lokum.
í brekkunni við laugina rakst blaða-
maður á hinn síhressa og fjöruga
kennara og fararstjóra, Valdimar Her-
geirsson, þar sem hann sleikti sólina af
mikilli áfergjú.
„Þetta er bara eins og á Ibiza,“ sagði
Valdimar. „Ég var einmitt að koma
þaðan og þessi dagur hefði sómað sér vel
á dagatalinu þar. Annars er ég að skrópa
núna, á að vera á tölvunámskeiði. En
manni hlýtur að fyrirgefast slíkt þegar
svona viðrar", sagði svo Valdimar.
Víða var mönnum gefið frí frá vinnu
sinni vegna veðurblíðunnar í gær og
mikill fjöldi manna var í bænum og
hreinlega lá í leti.
Á Austurvellinum varð á vegi blaða-
manns bráðmyndarleg kona á besta
aldri, Ólöf J. Jónsdóttir.
„Þetta er dýrlegt veður. Það væri nú
gott að fá fleiri svona daga hér á eyjunni
okkar. Nú er maður að reyna að ná sér
í lit en láttu það koma fram að mér finnst
alltof fáir bekkir hér í bænum. Svona
sólardagur hefur svo örvandi og hvetjandi
áhrif á störf fólks. Hugur manns lyftist“,
sag^j Ólöf að lokum.
Látum okkur vona að fleiri dagar sem
þessi eigi eftir að létta okkur lundina í
sumar.
-Jól
■ ísinn var vel þeginn í góða veðrinu í gær.
Timamyndir: Ámi Sæberg