Tíminn - 30.06.1983, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 30. JUNÍ1983
tekinn tali
■ Nýlega var haldinn á Höfn í Horna-
firöi aðalfundur sýslunefndar Anstur-
Skaftafcllssýslu, auk þess sem Austur-
Skaftfellingar vígðu nýlega Elli- og
hjúkrunarheimili sitt, og er Friðjón Guð-
röðarson sýslumaður var á ferð í Reykja-
vík nú um daginn, tók blaðamaður
Tímans hann tali og spurði hann m.a.
fregna af aðalfundinum og af nýja elli-
heimilinu. „Það er kannski rétt, að víkja
að því hver eru umsvif sýslunefndar, þar
sem ýmsir aöilar eru alltaf að reyna að
leggja þær niður,“ segir Friðjón í upp-
hafi samtalsins.
„Sýslunefnd hefur með fjölmörg mál
að gera. Hún afgreiðir ýmis erindi, gerir
ályktanir og semur fjárhagsáætlun til að
vinna eftir, og hefur með fjárveitingar til
ýmissa merkra og góðra mála í héraðinu
að gera. Þar að auki fer sýsluvegafé í
gegnum aðalfund sýslunefndar og þar er
ákveðið í hvaða framkvæmdir skuli ráð-
ist og hvar í sýslunni.
Svona sem sýnishorn af því sem sýslu-
nefnd tekur fyrir á fundi, þá get ég nefnt
Tíminn ræðir
við Friðjón
Guðröðarson,
sýslumann
um störf
sýslunefnda,
Elliheimilið á
Höfn o.fl.
HÖFN í HORNAFIRÐI
ELLI- OG HJÚKRUNARHEIMILI A-SKAFTF.
TSIKN/SrOFA STSFÁNS JÓNSS.
■ „Manneskjulegt umhverfi, var það sem við stefndum að,“ sagði Friðjón Guðröðarson sýslumaður Austur-Skaftafellssýslu um Elli- og hjúkrunarheimili þeirra Austur-
Skaftfellinga á Höfn, og eins og þessi útlitsteikning ber með sér, þá hcfur það markmið náðst.
.JÚMEREUT AÐ
SYSLURNAROG HERUHN
FÁIAUNÐ SÚLFSTBI"
■ „Númer eitt að sýslurnar og héruðin
fái aukið sjálfstæði," segir Friðjón Guð-
röðarson sýslumaður Austur-Skafta-
fellssýslu.
hér, að við förum yfir reikninga allra
hreppanna, leggjum blessun okkar yfir
þá, eða gerum athugasemdir, allt eftir
því hvað við á hverju sinni; þá förum við
yfir okkar eigin reikninga, sem cru
Sýslusjóðsreikningur, Sýsluvegasjóðs-
reikningur, Varasjóðsreikningur og Út-
gáfureikningur, en við erum með nokkra
útgáfustarfsemi á vegum sýslufélagsins.
Þá fáum við inn fjöldann allan af erind-
um sem við þurfum að gefa umsögn um.
Ýmis félaga- og menningarsamtök leita
til að mynda eftir fjárstuðningi. Svo
rekum við okkar cigin stofnanir eins og
Byggðasafn, Sýslurit, Elli- og hjúkrunar-
heimili, nokkuð vel virka Náttúruvernd-
arnefnd og fleira mætti telja. Þá fjöllum
við um vegamálin, eða sýsluvegi, sem er
viss tegund vega innan hvers umdæmis
þar sem ríkið leggur fram ákveðna
upphæð á móti hreppunum. Það er
aðalfundur sýslunefndar sem ákveður
hvert fjármagnið rennur, nema svokall-
að aukaframlag, en því ráðstafa hrepp-
arnir sjálfir, í samráði við verkstjóra
Vegagerðarinnar á svæðinu.
Við fjölluðum um ansi háar upphæðir
á síðasta aðalfundi. Við vorum með
sýsluvegaáætlun upp á rúm 12 hundruð
þúsund, og er áætlað að í Öræfum verði
framkvæmt fyrir um 8 hundruð þúsund
á þessu ári. Meginstefnan hefur verið sú,
hjá okkur, og að mínu mati er hún
skynsamleg, að vera ekki að drita pen-
ingum niður í alla hreppana, heldur að
stefna að nýbyggingum vega og fram-
kvæmdum í einum hreppi í einu, svo
eitthvað sjáist nú eftir.
Sýslusjóðsáætlun fyrir þetta ár hljóðar
upp á tæpar 19 hundruð þúsund krónur
og þar af fer til Elli- og hjúkrunarheimil-
isins 1.3 milljónir króna á árinu og í
rekstur Byggðasafns 150 þúsund krónur,
til félags- og menningarmála 150 þúsund
og minni upphæðir síðan í ýmislegt
annað.
Við rekum Sýsluskjalasafn 'og við
höfum verið að hugleiða að við þyrftum
Útlit Elli- og hjúkrunarheimilisins frá mismunandi sjónarhornum.
Tímamyndir - Öm