Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Fimmtudagur 8. september 1983
207. tölublað - 67. árgangur
Síðumúta 15-Posthólf 370 Reykjavik-Rjtstjórn86300- Auglysingar 18300- Atgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Tilfelli sem berast Slysadeild Borgarspítalans:
MEINUM VEGNA LÆKNISAÐGERDA
FJGLGAR FJÓRFALT MILU ÁRA
■ Á Slysadeild Borgarspítalans
leituðu í fyrra 353 menn vegna
tilfella sem flokkuð eru sem
„mein af læknisaðgerð" í skýrslu
* Slysadeildar fyrir árið 1982. Árið
áður var fjöldinn 96 og sömuleið-
is í kringum eitt hundrað tvö
næstu ár á undan.
Spurður um hvers konar mein
þarna væri um að ræða sagði
Haukur Kristjánsson, yfirlæknir
slysadeildar, töluvert vera um
ofnæmisútbrot af lyfjasprautum og
þessháttar, t.d. penesilini og
öðrum lyfjum sem fólk geti feng-
ið ofnæmi af. Sömuleiðis sé ekki
óalgengt að fólk þurfi að leita til
þeirra af völdum bólusetninga.
Þá geti þetta verið fólk sem hafi
fengið saumað sár sem síðan
komi gröftur í. Einnig leiti fólk
oft til Slysadeildar ef tekur að
blæða eftir tannúrtöku.
Varðandi þessa miklu fjölgun
(nær fjórföldun) tilvika milli ára
kvaðst Haukur hvorki geta stað-
fest þær tölur eða neitað. Með
sjálfum sér væri hann sannfærður
um að einhver prentvilla eða
önnur skekkja hafi komist inn í
þessa útreikninga.
Nýkomur slasaðra á Slysadeild
Borgarspítalans voru alls tæp-
lega 39 þús. á síðasta ári, sem
samsvarar því að þriðji hver íbúi
höfuðborgarsvæðisins hafi þurft
að leita til Slysadeildar. Aukn-
ingin var 5% frá árinu áður.
Margir þurftu síðan að, koma
oftar, þannig að alls voru komur
á Slysadeild á síðasta ári tæp 63
þúsund.
Varðandi orsakir slysa er slys
af völdum falls eða hrass algeng-
ast, alls rúm 11 þús. tilvik og
högg af hlut í öðru sæti, um
8.700 tilfelli. Þriðja algengasta
slysaorsök er ölvun, rúmlega
3.100 tilfelli og nær jafnmargir
koma vegna slysa af íþrótta-
iðkunum. Þá má nefna að um
1.280 manns leituðu á Slysadeild
í fyrra vegna áverka frá öðrum,
sem er um 110 fleiri en árið áður
og 116 vegna viljandi sjálfs-
áverka, sem voru 84 tilfelli árið
áður.
-HEI
Borgarfó-
getinn f
Reykjavík:
AUGLÝS-
IR667
NAUÐ-
UNGAR-
UPPBOÐ
■ Borgarfógetinn í
Reykjavík auglýsti 667
nauðungaruppboð að
kröfu Gjaldheimtunnar
vegna vangoldinna fast-
eignagjalda í nýjasta
hefti Lögbirtingablaðs-
ins. Varð að gefa út sér-
stakan viðauka með
blaðinu til að koma
öllum augiýsingunum
fyrir.
„Ég geng út frá því að upp-
boðsbeiðnirnar séu eitthvað
fleiri núna cn til dæmis í fyrra.
En sennilega eru skuldirnar
yfirleitt smærri því að ef litið er
almennt á innheimtu fasteigna-
gjalda þá hefur hlutfallslega
innheimst hærri upphæð núna
en á sambærilegum tíma í
fyrra. Þess vegna segir þessi
fjöldi í rauninni lítið um
greiðslugetu fó!ks,“ sagði
Guðmundur Vignir Jósefsson,
gjaldheimtustjóri í samtali við
Tímann í gær.
Uppboðin eiga að fara fram
þann 20. oklóber hafi skuldar-
ar ekki innt af hendi greiðslu
fyrir þann tíma. Guðmundur
sagði að venjan væri sú að
yfirgnæfandi meirihluti lyki
greiðslum áður en til uppboðs
kæmi. -Sjó
■ toðvík 14. frakkakooungur horfir hér athugul-
um augum á skemmtíatriði i afmælisveislu hans sem
haldin var við Snorrahrautina i gærmorgun. Ekkerf
grín hjá mér. Þetta var það sem leikhópurinn Svart
og sykurlaust stóð m.a. fyrir í gærmorgun á
yfirstandandi Friðarhátíð. Sjá nánar á bls. 3.
l ímamynd'. Árni Sæberg./Jól.
„RfKISSTJÓRNIN VERD-
UR RD BLESSfl ÞETTfl”
— segir forsætisráðherra
Forstjóri
ÍSAL segir
ríkisstjórn-
ina fá ál-
samkomu-
lagid
aðeins til
skoðunar:
■ „Það er ekki hægt að tjá sig
um innihald þessa samkomulags,
fyrr en búið er að sýna það
báðum aðilum. Það hlýtur að
vera eðlileg málsmeðferð, því
þó að samkomulaginu verði ekki
breytt, þar sem báðir aðilar hafa
umboð til þess að semja, þá tjáir
maður sig ekki um efnislegt inni-
hald fyrr en ríkisstjórnin og
stjórn Alusuisse hafa skoðað
þennan samning," sagði Ragnar
Halldórsson, forstjóri í ÍSAL er
Tíminn spurði hann hvert álit
hann hefði á því bráðabirgða-
samkomulagi sem náðist í Sviss í
álviðræðunum.
„Báðir aðilar, bæði ríkis-
Istjórnin og stjórn Alusuisse,
þurfa að leggja blessun sína yfir
þetta bráðabirgðasamkomulag,"
sagði Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra er Tíminn
spurði hann í gær, hvort endan-
legt umboð til samninga væri í
höndum álviðræðunefndarinnar,
fyrir íslands hönd,“ en hins vegar
er búið að hafa svo náið samband
á báða bóga, á meðan á við-
ræðum hefur staðið, að það er
fastlega gert ráð fyrir að þetta
verði samþykkt“.
-AB