Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til nlðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
T*
abriel
HÖGGDEYFAR
^QJvarahlutir .SSSÍ
Hamarshöfða 1
ftWIÍ'tm Ritstjorn 86300 - Augiysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
Sjóslysið á
Eyrarbakka:
LEIT ENN
EKKIBORH)
ÁRANGUR
■ Fjölmennt björgunarlið
gerði mikla leit á fjörum í nánd
við Eyrarbakka vegna sjóslyss-
ins sem varð í innsiglingunni
að þorpinu í fyrradag. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi fundu
björgunarmenn brak úr
Bakkavíkinni, bátnum sem
sökk ásamt rúmdýnum og
fleiru úr bátnum. Hins vegar
höfðu lík bræðranna tveggja
sem fórust ekki fundist síðast
þegar fréttist.
Bræðurnir hétu Þórður
Markússon, 29 ára, og Sigfús
Markússon, 25 ára. Sá sem
komst af hét Vigfús Markús-
son, 22 ára. Allir voru þeir
búsettir í foreldrahúsum á Eyr-
arbakka og áttu bátinn í sam-
einingu.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær sjópróf vegna slyssins
fara fram, en þau verða vænt-
anlega haldin hjá sýslumannin-
um á Selfossi.
-Sjó
Utanlands-
ferðir
íslend-
inga
dragast
saman
■ Töluvert hefur dregið úr
utanlandsferðum jslendinga að
undanförnu og það sem af er
þessu ári miðáð við síðasta ár,
að því er fram kemur í yfirliti
Útlendingaeftirlitsins, en er-
fendum ferðamönnum hefur
fjölgað nokkuð.
í ágústmánuði komu 12.893
íslcndingar til landsins á móti
15.010 í ágúst 1982, sem er því
fækkun um rúm 14% nú í
ágúst. Hcimkomur fslendinga
frá áramótum til ágústloka
voru alls 54.626 nú í ár en
60.143 á sama tíma í fyrra.
Erlendir ferðámenn í ágúst-
mánuði voru nú 13.166 á móti
11.522 í ágúst 1982, sem er
fjölgun um rúm 14%. -HEI
ANDFÆIUNGAR
GERAINNRAS A
PATREKSFJÖRÐ
— hraðfrystihúsid á von á 25 stúlkum
frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi
■ Hraðfrystihús Patreksfjarð-
ar á von á 25 stúlkum frá
Ástralíu og Nýja-Sjálandi til
starfa á nxstunni. Að sögn Jens
Valdimarssonar, stjórnarfor-
manns frystihússins er von á 15
þeim fyrstu nú um 20. september
og hinúm 10 um tveim vikum.
seinna.
Að sögn Jens virðast ekki vera
nein vandræði á að fá stúlkur til
starfa hinumegin frá af hnettinum
þótt erfiðlega gangi að ráða fólk
hér heima á Fróni.
Erlendar stúlkur sagði Jens
venjulega ráðnar til um hálfs árs
í senn. Spurður hvort einhverjar
þeirra setjist svo að á staðnum
kvað Jens það nú kannski ekki
ganga nógu vel. Pótt nokkrar
hafi ílengst, verði aðrar til þess
að taka unga menn með sér út.
Einir fjórir eða fimm ungir menn
úr plássinu væru þannig fluttir til
Ástralíu, þannig að íbúafjölgun
hafi ekki náðst með þessu móti.
-HEI
NliMERIN
KUPPT AF
ÓSKOÐIHNIM BÍLUM
■ „Við höfum þurft að reka
á eftir fjölda' bifreiða í skoðun
allt niður í tveggja stafa
númer“, sagði Hilmar Por-
björnsson, varðstjóri í umferð-
ardeild lögreglunnar í Reykja-
vík í spjalli við Tímann, en
undanfama daga hefurlögregl-
an og bifreiðaeftirlitið gert
„rassíu“ í að reka ökumenn
óskoðaðra bifreiða í skoðun
eða klippa númer af í verstu
tilfellum.
„Það er örþrifaráðið að
klippa númerin af bílunum, en
við höfum þó nokkuð oft þurft
að gera slíkt“, sagði Hilmar.
„Oftast er bara gefin skýrsla
um málið og það síðan látið
afskiptalaust ef maður mætir
meö bílinn í skoðun á tilsettum
tíma. Vanræki hann það hins-
vegar þá er ekki um annað að
ræða en beita sektar-
ákvæðum".
Hilmar sagði þessa „rassíu"
vera fyrst og fremst tii að koma
af stað skoðunaröldu. „Bif-
rciðamar skila sér ansi illa
þessa dagana, það virðist sem
menn séu eitthvað seinni til en
oft áður“, sagði hann að
lokum.
-Jól
dropar
„AF ser sverja
S VEFNLE Y SIГ..
■ Samvinnustarfsmenn eru
hressir þegar þeir koma samun
og kunna vel að skemmta sér
án þess að láta það bitna á
störfum sínum. Einnig cru
ýmsir þeirra hagmxltir vel, og
á nýafstöðnu þingi Landsam-
bands ísl. samvinnustarfs-
manna sem haldið var á Bifröst
í Borgarfirði um síðustu helgi
fauk talsvert í kviðlingum.
Þar voru ekki allir komnir í
svefn á miðnxtti á laugardals-
kvöldinu, en mxttu þó alls
ótrauðir til fundar klukkan níu
á sunnudagsmorgni, þótt sýni-
legt vxri að sumir hverjir hefðu
ekki náð fullum nxtursvefni.
Af því tilefni varð þessi vísa til,
en höfundur hennar er Pálmi
Gíslason, útibússtjón Sam-
vinnubankans við Suður-
landsbraut:
Af sér sverja svefnleysið.
Sviflétt morgungangan.
Morgunfrítt og fagurt lið
fölt er þó á vangan.
UM HVAÐ VAR
NORDAL AÐ
SEMJA?
■ Það vakti sérstaka athygli
Dropa að heyra yflrlýsingar
dr. Jóhahnesar Nordal, for-
manns álviðrxðunefndar, í
samtölum við fréttamenn og
útvarpið í fyrrakvöld, um að
enn vxri hann að semja við
Svisslendinga um hxkkun á
raforkuvcrði og önnur tengd
atriði, en líklega sxi fyrir end-
an á viðrxðunum þá um kvöld-
ið eða snemma nxsta morgun.
Yfírlýsingarnar vöktu at-
hygli fyrir þxr sakir að sam-
kvxmt heimildum Dropa lauk
viðrxðunum á hádegi þennan
sama dag, og um svipað leiti
lögðu Guðmundur G. Þórar-
insson og Gunnar G. Schram,
tveir þriðju hlutar viðrxðu-
nefndarinnar, af stað til Kaup-
mannahafnar. Á sama tíma
yfirgaf dr. Múller, aðalforstjóri
Alusuisse, Sviss líklega á vit
annarra viðskiptaviðrxðna.
Hafi dr. Nordal haldið áfram
að semja eftir að þeir þre-
menningarnir ylirgáfu landið,
bendir ýmislegt til að það hafl
verið annað en orkuverð sem
þar bar aðallega á góma, og
því engin ástxða til að láta
þjóðina standa á öndinni um
hvort samningar tókust eða
ekki.
Krummi ...
...heyrði að maður sé orðinn
miðaldra þegar síminn hríngir
á laugardagskvöidi og vonar
að það sé skakkt númer!