Tíminn - 30.09.1983, Qupperneq 1
Dagskrá rlkisf jölmiðlanna — Sjá bls. 13
FJOLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 30. september 1983
226. tölublað - 67. árgangur
Sidumúla 15-Postholf 370 Reykjavík-Ritstjorn86300-Augtysingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Hugmyndir um að reisa verksmiðju í Hveragerði til framleiðslu á áveiturörum úr gúmmí:
HEFIIR EINKALEYFI A SÖLU VÖR-
UNNAR TIL ÞRIGGJA HEIMSAlFA
— stendur á bankaábyrgð vegna erlendrar lántöku
■ í nokkrar vikur, og síðast í
gær, hafa forsvarsmenn væntan-
legs félags, ENTEK h/f á íslandi
reynt að fá Útvegsbankann til
þess að ganga í ábyrgð, og taka
fyrir sig erlent lán, en fyrirtækið
hyggst reisa verksmiðju í Hvera-
gerði, á 2,5 hekturum lands og
hefur fengið einkaleyfi til fram-
leiðslu áveituröra úr gúmmí, til
sölu í Afríku, Asíu og stærstum
hluta Evrópu.
Fyrirtækið hefur tryggt sér
sölusamning að verðmæti þriggja
milljóna bandaríkjadala, sem
svarar til 84 milljóna íslenskra
króna. t>á hefur félagið tryggt
sér heimild frá langlánanefnd og
viðskiptaráðherra, til erlendrar
lántöku að upphæð 8-11 mill-
jóna íslenskra króna, og nú
stendur aðeins á því að Útvegs-
bankinn, eða einhver annar við-
skiptabanki vilji ábyrgjast lánið.
Forsvarsmenn hins væntan-
lega hlutafélags eru þeir Jón
Gunnar Zöega lögfræðingur,
Haukur Hjaltason veitingamað-
ur og Ingvar Karlsson læknir.
Auk þeirra hefur Þorsteinn Páls-
son alþingismaður unnið að
undirbúningi fyrirtækisins, en
ekki tókst að ná í Þorstein í gær
til þess að kanna hvort hann
verði einn af hluthöfum. í sam-
tali við Tímann í gær sagði einn
af aðstandendum fyrirtækisins.
„Ef við fáum ekki þessa fyrir-
greiðslu hér þá förum við bara til
útlanda með þetta fyrirtæki, sem
er mjög arðsamt.“ -BK
Sjá nánar bls. 2
Nýtt sfldarverð ákveðið:
BITUM I SURT
EPU EINS OG
OFT ÁÐUR’’
— segir Óskar Vigfússon
■ „Við verðum að taka þessu
af raunsæi. En að við séum
ánægðir með það sem fæst fyrir
sQdina er fráleitt að ætla,“ sagði
Óskar Vigfússon, forseti Sjó-
mannasambands íslands, þegar
hann var spurður hvort sjómenn
væru sáttir við nýákveðið stQdar-
verð.
Samkomulag náðist í yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins, sem fjallaði um verð á
síld til frystingar. Hækkar verð á
henni um 45,6% frá síldarvertíð-
inni í fyrra. Hins vegar var verð
á síld til frystingar ákveðið af
fulltrúum kaupenda og odda-
manna, en seljendur, sjómenn
og útvegsmenn, voru á móti.
Verð á síld til frystingar hækkar
um 24% milli ára.
„Þrátt fyrir allt á ég ekki von
á öðru en sjómenn sætti sig við
þessar ákvarðanir. Þeir gera sér
grein fyrir þeim staðreyndum
sem fyrir hendi eru á mörkuðum
erlendis. Menn bara bíta í súrt
epli eins og svo oft áður,“ sagði
Óskar.
Hann sagði ennfremur að
verðhækkun á síld til söltunar
héldist nokkuð í hendur við
almennar launahækkanir í land-
inu. Hins vegar vantaði mikið
upp á það á verði til frystingar.
-Sjó
Sjá nánar bls. 2
Mjólkurfrædingar hjá Mjólkursamsölunni í verkfalli:
VERÐUR LAHD REYNA A
LÖGMÆTI AÐGERDANNA
■ „Vtð munum láta reyna á
það hvort þessar aðgerðir séu
ekki lögleysa og reynist það vera,
verða þeir sem að þeim standa að
sjálfsögðu látnir sæta ábyrgð",
sagði Guðlaugur Björgvinsson
forstjóri Mjólkursamsölunnar í
samtali við blaðið í gærkvöldi,
en mjólkurfræðingar við Mjólk-
ursamsöluna boðuðu vinnu-
stöðvun í gær með dags fyrir-
vara. ■ Vinna þeirra liggur því
niðri í dag. „Við munum gera
allt sem í okkar valdi stendur til
að neytendur verði fyrir sem
minnstum óþægindum," sagði
Guðlaugur.
„Deilan stendur um það hvort
mjólkurfræðingur eigi að leysa
af annan mjólkurfræðing á rann-
sóknarstofu hjá fyrirtækinu.
Við höfum félagsdómssátt fyrir
því að svo eigi að vera,“ sagði
Guðmundur Sigurgeirsson for-
maður Mjólkurfræðingafélags-
ins í gærkvöldi. Hann sagði að
vinnustöðvunin myndi standa
þar til samkomulag hefði tekist í
málinu.
STAKKAF
EFTIR
ÁKEYRSLU
■ I gærkvöldi var ekið á fvo
kyrrstæða bQa á gatnamótum
Njálsgötu og Frakkastígs. Báð-
ir hilarnir svo og sá sem á þá
ók skemmdust ntikið og varð
að flytja þá burtu með krana-
bíl, en ekki vildi liigreglan
fullyrða að þeir væru ónýtir.
Ökumaðurinn stakk af og var
ekki fundinn þegar síðast frétt-
ist í gærkvöldi. Talið var hugs-
anlcgt að hann væri slasaður,
brotin framrúða og beygt stýri
bentu til að hann hcfði l'cngið
mikið högg við árcksturinn.
Tímamynd Sverrir
-JGK