Tíminn - 30.09.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 30.09.1983, Blaðsíða 12
■ Þórunn Pálsdóttir er kennari og leikari að mennt og hefur starfað við það, en nú gegnir hún störfum for- stöðukonu barnaheimilisins Ösp, en þar er bæði leikskóli og dagheimili. Þórunn er gift Stefáni Ásgeirssyni gæslumanni og garðyrkjumanni og á soninn Jón Pál. Það er alltaf farið of seint að sofa ■ Suð klukkunnar vekur mig. Ég rís upp við dogg, nýr dagur hefur göngu sína. Dagur í lífi forstöðukonu, móður, frænku og eiginkonu. Þegar ég dreg frá glugganum sé ég að það verður bjartur dagur. Morgunsólin glampar í hafinu. Ég er bara hress. „Nonni, Nonni". Ég reyni að vekja 9 ára slánann minn. Það er alltaf farið of seint að sofa. „í dag er fyrsti badmintontíminn - manstu?“ segi ég og dreg frá glugganum hans. „Bíddu á meðan ég þurrka stírurnar úr augun- um,“ svarar hann grútsyfjaður. „Ekk- ert hangs," svara ég. „Þú vildir eyða eina frímorgninum þínum í badmint- on,“ segi ég ákveðin. Upp, upp mín sál og allt...“ Hann er risinn upp með það sama, morgunmatur etinn og nesti útbúið. Við förum upp í bíl og höldum í átt að Heimahverfinu. Þegar komið er á móts við Goðheima sjáum við cinn skólafélaganna með stóra íþróttatösku og badmintonspaðinn skagar út úr. Ég horfi á eftir æskunni með badminton- spaðana sína. Þeir voru svo hressir og ungir í morgunroðanum. mm B| fw&wm J y® W ■W Þá eru það Gólanhæðirnar eða efra Breiðholtið. Mér finnst ég alltaf vera að borða í vinnunni! Ég planta bílnum á milli blokkanna og arka að „Öspinni" minni. Það liggur vel á öllum í vinnunni. Þetta er allt með sama brag. Enginn er veikur, engar áhyggjur. María í eldhúsinu er að úbúa morgunverðinn. Börnin tínast inn, ýmist glöð eða örg, mæður og feður. Ég hringi nokkur símtöl, m.a. í verkstjórann yfir görðunum. Ég er að reyna að fá nýtt hlið í gcgn. Það virðist ætla að ganga-vel. Aldrei þessu vant bregðast þeir fljótt og vel við. Hliðið verður komið upp eftir viku. Þá er það blessaður kaffisopinn. Við ræðum um sjónvarpið kvöldið áður, um ýmis vandamál á vinnustað o.s.frv. Eftir kaffið gluggaði ég svolítið í bókhaldið og ein móðirin biður um viðtal. Við spjöllum um barnið hennar og reynum að leysa smávandamál. Þá er María tilbúin með sinn Ijúffenga mat. Ég borða. Mér finnst ég alltaf vera að borða í vinnunni. Foreldrar leikskólabarnanna flykkj- ast að til að ná í börnin sín. Sumir skrafa svolítið, aðrir eru að flýta sér. Kl. 12.15 eru öll börnin nema 2 farin. Það eru hádegisbörnin. Dagheimilis- börnin eru í hvíld. Þá tek ég saman pappíra fyrir Hverfafund forstöðu- kvenna í Breiðholti. Sálfræðingarnir staldra alltof stutt við Fundurinn er í Gerðubergi (menn- ingarmiðstöðinni). Við mætum 15 að tölu. Það er margt til umræðu. Fyrst afgreiðum við ritvélarkaup, en þörfin fyrir sérstaka ritvél fyrir dagvistar- heimilin í Breiðholtshverfi er brýn og höfðum við fengið leyfi fyrir þeim kaupum. Þá er sálfræðiþjónustan rædd. Það er búið að ráða nýjan sálfræðing að Dagvistun barna. Þeir staldra allt of stutt við og er þá erfitt að veita góða þjónustu sem ber árang- ur. Fyrirlestrar fyrir foreldrafundi eru næst á dagskrá. Eitthvað fleira er til umræðu. Svo er fundi slitið. Þegar ég kem aftur á Ösp er búið að klæða öll börnin til útiveru og þau ærslast og leika sér í garðinum. Það er hringt, móðir með skilaboð í sambandi við barnið sitt. Aftur hringt og aftur. Ég væri ágæt símastúlka. Ég reyni að hringja inn á milli, m.a. í Berg, framkvæmdastjóra Dagvistar. Ég er að reyna að fá 1/2 klst. í viðbót fyrir starfskraft svo að hún geti aðstoðað dagheimilisstarfsstúlkuna kl. 5.30-6. Börnin eru oft svo „illa sótt“ eins og við segjum. Bergur vill ekki gefa leyfið en sættist á það að stúlkan komi 1/2 klst. seinna og fari seinna. Það leiðinlegasta sem ég upplifi er að missa góðan starfskraft og ráðan nýjan Það heyrist grátur að utan. Einn gaurinn minn hefur hent grjóti í annan. Ein lítil damá kemur inn öll rennblaut. Þetta er í fjórða skiptið sem hún pissar á sig í dag. Ég spjalla svolítið við hana. Hún er svo snúðug litla krúttið. Þá kemur ein starfsstúlkan til mín og segir upp starfi sínu. Hún er að fara í frekara nám. Úff, það leiðin- legasta, sem ég upplifi er að missa góðan starfskraft og ráða nýjan. Þá er að halda heim. Ég keyri á móti umferðinni. Kl. 5 liggur straumurinn upp í Breiðholt og ég sé bílaraðir svo langt sem augað eygir. Það vegur þó upp á móti vegalengdinni sem ég þarf að keyra fram og tilbaka á hverjum degi, að ég lendi aldrei í umferðar- teppu. Ég fer í búð og versla. Sunna frænka, draumurinn minn Iitli, bíður hjá dagmömmunni og tekur brosandi á móti mér, þegar ég kem til að ná í hana. Hún er 10 mánaða. Ég greindi Nonna á hjóli í fjarska og veit, að ég má teljast heppin ef hann birtist á réttum tíma í kvöldmat. Vinirnir eru nr. eitt, tvö og þrjú. Hitt skiptir litlu. Það er lítið hægt að sinna heimilis- störfum með frænku á handleggnum. Mamman kemur kl. 7 - og eiginmaður minn líka. Ég leik við súkkulaði- molann minn, skipti á bleiju og við höfum það gott saman. Kl. 7 kemur systir mín og tekur við afkvæminu. Þá loksins er hægt að elda. Svo rétti hann mér rósir... Eggjaréttur er á matseðlinum með alls konar jukki í. Þegar ég fer að brjóta fyrsta eggið í skálina birtist vinnulúinn eiginmaðurinn og heilsar með kossi. Ég sé fyrir aftan hann örla í eitthvað grænt. „Hvað er þetta?“ spyr ég. Hann sýnir mér háa, fína gúmmíplöntu „við hættum fyrr og skruppum til Hveragerðis. Þetta fékk ég á 240 krónur," segir hann. Þargerði hann góð kaup. Svo rétti hann mér rósir. Þá varð ég glöð og undrandi, því þetta er í fyrsta sinn sem hann afhendir mér slíkt óvænt. „Hvað er að gerast? spyr ég“ Ekkert sérstakt. Sláum þessu upp í kæruleysi og förum eitthvað út að borða. Ekkert flott, bara á ódýran og góðan stað,“ segir hann. Ég er stálhress með það, hendi frá mér pískum og pönnum, kalla á Nonna, læt hann þvo sér og við hendumst af stað. A..... verður fyrir valinu. Við pöntum okkur gómsæta fiskrétti og Nonni fær körfukjúkling af barna- matseðli. Við fáum okkur pilsner með. Þetta var yndislega afslappandi. Á eftir ókum við framhjá húsinu okkar sem er í byggingu og skoðuðum hvað búið var að gera um daginn. Allt hefur verið í fullum gangi. Það tekur þó lengri tíma en við héldum að koma sér upp smá húsakynnum. Heimilisverkin bíða eftir manni - þrátt fyrir allt Þegar heim er komið er írska fram- haldsmyndin ennþá í sjónvarpinu. Þetta er með betri sakamálamyndum sem ég hef séð þar. Stebbi (þ.e. eiginmaðurinn) þarf að mæta á nætur- vakt og um það leyti sem hann kveður er Nonni kominn upp í rúm og bíður eftir góða-nótt-kossi. Þegar ég hef slökkt ljósið og knúsað hann eins og hann vill, verð ég að fara í þvottahúsið. Heimilisverkin bíða eftir manni, þrátt fyrir allt. Kl. 12 er ég komin upp í. Ég er í litlu lesstuði og er steinsofnuð von bráðar. ■ Það er margt við að vera í garðinum við Ösp. Það er t.d. ekkert á móti því að tylla sér undir húsvegg í sólskininu og spjalla smávegis við fóstruna. Dagur í lífi Þórunnar Pálsdóttur, forstöðukonu barnaheimilisins Ösp

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.